Þjóðviljinn - 25.10.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 25.10.1973, Blaðsíða 4
4 Sft)A — ÞJÓDVILJINNjFimmtudagur 25. október 1973. Rikisstjórnin hefur lagt fram frumvarp á alþingi um breytingar á lögum um tilkynn- ingar aðsetursskipta. Samkvæmt frumvarpinu skulu allir þeir sem áttu lögheimili i Vestmanna- eyjum við upphaf jarðeidanna vera skráöir með lögheimili þar, r---------;-----------1 þingsjá þjóðviljans L_____________________U Alþýðuflokkurinn leggur til: Lögheimili V estmannaeyinga þann 1. des. n.k., nema annað hafi verið tilkynnt Hagstofu tslands á ótviræöan hátt eigi siðar en 28. nóvember 1973. 1 greinargerð frumvarpsins segir m.a.: „Heimildir um aösetursskipti Vestmannaeyinga siöan 23. janúar 1973 liggja fyrir og halda áfram að berast þjóðskrá I ýmsu formi, svo sem á sérstöku, þar til gerðu eyðublaði til tilkynningar á dvalarstað, á almennu eyöublaði þjóðskrár til aöseturstilkynninga, og i formi tilkynninga til póst- stöðva. En i þessum gögnum kemur yfirleitt ekki fram skýr viljayfirlýsing varðandi lög- heimili hvort menn telja sig áfram heimilisfasta I Vest- mannaeyjum eða hafa ákveöið að flytjast þaðan. Þar við bætist, að sennilega standa margir Vest- mannaeyingar i eirri trú, að þeir hafi látið i té ákveðna viljayfir- lýsingu I þessu efni, án þess að svo sé i raun. Þessi heimildar- gögn eru þvi ófullnægjandi grundvöllur til skráningar á lög- heimili Vestmannaeyinga i þjóð- skrá 1. desember 1973, sem Hag- stofan er nú að undirbúa. Eina örugga leiðin til lausnar þessum vanda er að lögfesta, að tilkynningar um lögheimilis- flutning frá Vestmanna- eyjum skuli látnar i té á sérstöku þar til geröu eyðublaði eða á annan ótviræðan hátt. 3. gr. frv. Ný þingmál Stjórnarfrumvarp um upplýs- ingaskyldu stjórnvalda. Endur- flutt. Stjórnarfrumvarp um gjald- þrotaskipti. Samið af Þór Vil- hjálmssyni prófessor. Frumvarp til laga um happ- drættislán rikissjóðs fyrir hönd vegasjóðs vegna framkvæmda við uppbyggingu Norðurlands- vegar. Flutningsmenn Eyjólfur K. Jónsson og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Fyrirspurn til samgönguráð- herra um rannsókn á brúarstæð- um yfir Dýrafjörð og Onundar- fjörð. Frá Þorvaldi Garðari Kristjánssyni (S). Fyrirspurn til menntamálaráð- herra um bætta aðstöðu nemenda landsbyggðarinnar, sem sækja sérskóla á höfuðborgarsvæðinu. Frá Lárusi Jónssyni (S). hefur að geyma ákvæði hér að lútandi. Þá er og þessum tilkynn- ingum settur ákveðinn tima- frestur, til þess að svigrúm verði til að taka þær til greina við gerð ibúaskráa 1. desember 1973.” Söluskatt Allir 5 þingmenn Alþýöuflokks- ins hafa lagt til á alþingi, að rikisstjórninni verði faliö aö skipa nefnd til að semja frumvarp á grundvelli þeirrar meginstefnu, aö tekjuskattur af almennum launatekjum falli niöur en i staöinn komi hækkun söluskatts, „til þess aö bæta rikissjóöi þann Rikisstjórnin leggur fram: Frumvarp til ábúðalaga Lagt hefur verið fram á alþingi stjórnarfrumvarp til ábúðaríaga. Frumvarp þetta er i 7 köflum og er fjallað um eftirtalin atriöi: Byggingu jaröa, ábdðartima og eftirgjald, réttindi og skyldur leiguliða og ábúðarlok, erfða- ábúð, úttektir á leigujöröum, stöðu landsdrottins og leiguliða vegna framkvæmda, og loks eru niðurlagsorð. I kaflanum um mannvirki, ræktun, stöðu landsdrottins og leiguliða vegna framkvæmda segir I 16. grein: „Nú á fráfarandi leiguliði hús, hlut i hlusum eða umbætur á jörð, og er það til frambúðar hagan- lega fyrirkomið og nauðsynlegt til búrekstrar á jörðinni, að dómi úttektarmanna, og skal þá lands- drottni skylt að kaupa þær eignir fráfaranda þvi verði, er úttektar- menn meta, enda séu þá hús jarðarinnar og önnur mannvirki ekki meiri og dýrari en svo, að jörðina megi leigja fyrir hæfilegt afgjald, að mati úttektarmanna. Séu hús ekki nauðsynleg vegna almenns búrekstrar, skal taka tillit til þess við mat þeirra og þau metin lægra veröi en hin nauð- synlegu jarðarhús.. Landsdrottni er einnig skylt að kaupa ræktun, sem fráfarandi hefur látið gera. Við mat á eignum fráfaranda ber að draga frá fyrningu og styrki. Fjárhæð þá, er lands- drottni er gert að greiða sam- kvæmt mati, ber honum að greiða með jöfnum árlegum afborg- unum á næstu átta árum frá úttektardegi, nema um annað semjist. Landsdrottni ber að greiða sömu vexti af skuldum vegna kaupa á mannvirkjum leiguliða og Stofnlánadeild Búnaðarbanka tslands reiknar af lánum. Þau hús, sem ekki teljast nauð- synleg til búrekstrar, og unnt er Spurt um vegagerð og leiklist Helgi Seljan alþingismaöur hefur lagt fram á alþingi 2 fyrir- spurnir. Er önnur til samgöngu- ráöherra á þessa leiö: 1. Hve mikill hluti af heildar- framkvæmdum Vegageröar rikisins er unninn a) af Vegagerö- inni meö eigin vélakosti, b) af Vegageröinni meö leigöum véla- kosti, c) af verktökum? 2. Er stefnt aö aukinni vél- væöingu Vegageröarinnar sjálfrar til aö annast meiriháttar verkefni? Hin fyrirspurn Helga Seljan er til menntamálaráöherra á þessa leiö: Hvenær má vænta þess, aö fram veröi lagt frumvarp til nýrra laga um fjárhagslegan stuöning viö áhugaleikfélög? Helgi Seljan að flytja, er jaröareigandi ekki skyldugur að kaupa af frá- faranda. Verði ekki samkomulag um kaup á þeim, hefur fráfarandi rétt til að flytja þau af jörðinni eða selja þau öðrum til brott- flutnings og er skylt að sjá um, að þau verði rifin, ef viðtakandi krefst, og þá svo, að viðtakanda sé sem minnst mein af. Séu mannvirki minna virði, aö mati úttektarmanna, en þau voru, er leiguliöi tók við jörð, skal hann greiða landsdrottni mismuninn. Sá mismunur, er greiðast skal, er lögtakskræfur. Við matsgerðir þessar ber úttektarmönnum að taka tillit til almennra verð- breytinga, sem orðið hafa á kostnaði við mannvirkjagerð.” Frumvarp þetta var einnig lagt fyrir siðasta alþingi, en hlaut þá ekki afgreiðslu. 1 athugasemdum við lagafrum- varpið segir m.a. „Nú eru i gildi ábúðarlög nr. 1 12. jan. 1884, nr. 87 19. júni 1933, nr. 8 5. febr. 1951 og lög nr. 36 29. marz 1961. Lögin eiga við eftir þvi hvenær ábúð hefst. Þannig fer eftir lögum nr. 1 frá 1884 um ábúö þeirra, sem hófu búskap fyrir 1. jan. 1934. Samkvæmt þeim lögum er réttar- staða leiguliða mun verri heldur en eftir yngri ábúðarlögum, þannig er landsdrottinn t.d. ekki skyldur skyldur að kaupa hús, sem leiguliði hefur látið gera, þó að haganleg séu, og er leiguliða þá heimilt að rifa hús og hafa með sér efni og og önnur verðmæti úr þeim. Ábúðarlögin frá 1933, 1951 og 1961 eru i höfuðatriðum efnislega lik. Þessi mörgu lög um nær sama efni hafa hins vegar oft orðið til að valda misskilningi. 1 lögunum eru ákvæði, sem eru óþörf vegna almennra reglna laga eða breyttra búhátta og þjóðfélagsaðstæðna. Leitast hefur verið við að haga efnisskipan þessa frumvarps þannig, að saman væri þaö, sem saman á, stytta lögin eftir föngum, án þess af þeim sökum að rýra þau að efnisgildi frá fyrri lögum. Var ákveðið, eftir að hafa ráð- gast við próf. Gauk Jörundsson, að gera tillögu um að fella úr gildi með þessum lögum eldri ábúðarlög, þó svo, að samningar skv. þeim lögum haldi gildi sinu að svo miklu leyti, sem annað leiðir ekki af ákvæðum frum- varps þessa, ef að lögum veröur.” KVIKMYNDIR SMIÐjAN ^„A GKKD TEKL'R AD SER SMÆRRI OG STÆRRI VKRKEFNI A SVIDI KVIKM YNDAGERÐ- AR SMIÐJAN Einholti 9. Sími: 15361. KVIK MY.NDA GKRD í stað tekjuskatts tekjumissi, sem hann verður fyrir vegna niðurfellingar tekjuskatts samkvæmt framansögðu ”, Á næsta ári verði svo söluskatti breytt i virðisaukaskatt. Fyrsti flutningsmaður þessarar tillögu til þingsályktunar er Gylfi Þ Gislason. Kennd verði haffræði við Háskólann Sex þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt til á alþingi að rikisstjórnin láti kanna, hvort ekki sé tlmabært, að hefja kennslu I haffræði og skyldum greinum við Háskóla tsiands. Þingmennirnir, sem flutt hafa þingsályktunartillögu um þetta efni eru: Ingvar Gislason, Jón Arnason, Geir Gunnarsson Jón Armann Héöinsson, Karvel Pálmason og Vilhjálmur Hjálmarsson. I Greinargerð með tillögunni segir: „Tillaga þessi var lögð fram seint á siðasta þingi, en varð ekki útrædd. Með þingsályktunartillögu þessari er hreyft máli, sem flm. telja mikla nauðsyn á að verði kannað til hlitar. Islendingar eru umfram allt fiskveiðiþjóð, og þjóðarbúskapurinn stendur og fellur með sjávaraflanum. Sem eyþjóð eru Islendingar einnig i slikri nálægð og snertingu við hafið, að ekki fer milli mála, að það er hluti af nánasta umhverfi islensku þjóðarinnar. Á tslendingum hvilir þvi sérstök skylda um rannsóknir á hafinu, auk þess sem vist er, að þessing á eðli sjávar hefur hagnýtt gildi fyrir þjóðarbúskapinn. 2 íslendingar hafa vissulega lagt mikið af mörkum á sviði fræðilegra og hagnýtra fiskirann- sókna, sem fram fara á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar. Einnig hefur sú stofnun með höndum haffræðirannsóknir, eftir þvi sem fjármagn og mannafli hrekkur til, en með haffræði er i stuttu máli átt við þá fræðigrein, sem fjallar alhliða um hafið og náttúru þess i viðri merkingu. Það er skoðun flm., að auka beri haffræðirannsóknir og haf- fræðilega þekkingu. Viö teljum flest rök mæla með þvi, að tekin verði upp kennsla i þessari vis- indagrein við Háskóla tslands. Sem fylgiskjal með tillögunni birta flutningsmenn itarlegar til- lögur dr. Unnsteins Stefánssonar um málið, en dr. Unnsteinn hefur um nokkurra ára skeið starfað hjá Menningar- og visindastofnun Sameinuðu þjóðanna, m.a. að þvi að skipuleggja kennslu i haffræði i ýmsum löndum. Vestmaimaeyjaskip fyrir viðlagas j óðsfé? þingmenn Suðurlands flytja þingsályktunartillögu Allir þingmenn Suðurlands- kjördæmis, þeir Garðar Sigurðs- son, Guðlaugur Gislason, Björn Fr. Björnsson, Agúst Þorvalds- son, Steinþór Gestsson og Ingólfur Jónsson hafa lagt fram á alþingi tillögu til þingsályktunar um byggingu skips til Vest- mannaeyjaferöa. Tillagan er á þessa leið: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að ákveða nú þegar að láta byggja nýtt skip til Vest- mannaeyjaferða og leita tilboða smiði þess á grundvelli tillögu stjórnskipaðrar nefndar um sam- göngumál Vestmanneyinga, sem fram kemur i álitsgjörð nefndarinnar til samgönguráðu- neytisins.” t greinargerð til lögunnar er minnst á þann mögu- leika að nota hluta hinna frjálsu framlaga, sem Viölagasjóöi hafa borist til uppbyggingar Vest- mannaeyja, til greiðslu byggingakostnaðar skipsins. Um þetta atriði segir i greinar- geröinni: „Uppplýsingar liggja fyrir um, að til greiöslu kostnaðar vegna náttúruhamfaranna i Eyjum og til fullra bóta til Vestmanneyinga samkvæmt reglugerðinni um Við- lagasjóö og lögunum um neyöar- ráðstafanir vegna jarðeldanna á Heimaey þurfi ekki að fullu að nota það fé, sem borist hefur til Vestmannaeyjasöfnunarinnar frá rikisstjórnum Norðurlandanna og fleiri aðilum og Viðlagasjóður hefur veitt móttöku. Er hér á nokkur mismunur, og væri það vissulega i fullu samræmi við óskir gefenda, að framlög þeirra yrðu notuð til uppbyggingar i Eyjum, þannig að byggð mætti sem fyrst risa þar á ný og blómgast i framtiðinni. En telja verður frumskilyröi fyrir, að svo megi verða, að samgöngumálum Vestmanneyinga veröi komið i svo gott horf sem frekast er kostur á. Fé þetta er að visu i bili fast i fjárfestingum, sem Við- lagasjóður hefur ráðist i hér á þéttbýlissvæðinu og viðar til að bæta aðstöðu Vestmanneyinga, meðan þeir neyddust eöa neyðast til að dveljast utan heimabyggðar sinnar, og er þar einkum um að ræða fjárfestingu sjóðsins I sam- bandi við hin innfluttu hús frá Norðurlöndum og stutt lán til sveitarfélaga vegna niður- setningar húsa og til annarra opinberra aðila. Mun fé þetta fljótlega skila sér aftur, þega Vestmannanneyjingar þurfa ekki lengur að nota húsin og þau verða seld og aðilar þeir sem fengið hafa lán hjá Viðlagasjóði, endur greiða þau. Er hér um möguleika að ræða sem flm. telja að skoöa beri ti. hlitar, ef það mætti verða til aí leysa þetta mjög svo aðkallandi mál Vestmannaeyinga á sem fljótvirkastan og besta hátt.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.