Þjóðviljinn - 25.10.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.10.1973, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 25. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Nýr bátur til Þingeyrar Með línubeiting- arvél um borð Lokið smíði 9 báta af söinu gerð Föstudaginn 19. okt. var tveim 150 lesta stálfiskiskipum hleypt af stokkunum hjá Slippstöðinni h.f., Akureyri. Þau hlutu nöfnin „M/B FJÖLNIH 1S-177” og „M/B GARÐAR II SH-164”. M/B FJÖLNIR ÍS 177 er smiðaður fyrir Sæbjörgu h.f. á Þingeyriog útbúinn til linu-,neta- og togveiða. Til nýjunga telst, að i honum er norsk linubeitingarvél og er þess vænst að hún verði sett i fleiri skip ef hún reynist eins og til er ætlast. Fyrirkomulag á afturskipinu er sérstaklega hannað fyrir þessa vél, og til þess að fá meira rými er skuturinn gafllaga en ekki boglaga eins og hefðbundið hefur verið. Vistverur i skipinu eru fyrir 12 manns. Aðalvél er af gerðinni MANN- HEIM og er 765 ha., ljósavélar eru 2 Caterpillar. Skipið er búið öllum nýjustu siglingar-og fisk leitartækjum svo sem 2 Decca ratsjám og dýptarmæli og fisksjá af gerðinni Simrad. Áætlað er að afhenda skipið um næstu helgi. M/B GARÐAR II SH 164 er smiðaður fyrir Björn og Einar s.f. i ólafsvik og er að flestu leyti eins og M/B FJÖLNIR. Þó hefur verið beðið með að setja i hann linu-' beitingarvél meðan reynsla fæst af vélinni i Fjölni , en hann fer Fundur stjórnar Farmanna- og fiskimannasambands Islands 24.10. 1973 lýsir eindregnum stuðningi við a'lyktun rikis- stjórnarinnar um að unnið skuli að bráðabirgðalausn landhelgis- deilunnar við Breta á grundvelli skýrlsu forsætisráðherra. 4.469 nýir fólks- bílar á 7 mán- uðum Fyrstu sjö mánuði ársins var mest flutt inn af „Fiat 127” allra fólksbílategunda. 258 bilar af þessari gerð voru fluttir til landsins. Af fólks- bilum er „Ford Escort” I öðru sæti með 232, en síðan koma „Volkswagen 1300” meö 217, „Skoda 100/110” mcð 196, „Fiat 128” með 198, „Mosk- vitsch M412” með 175, „Volga Gaz” með 188, „Datsun 1200” með 178, „Volkswagen 1303” með 157, „Volvo 144” með 141, „Ford Cortina” með 150, „Volkswagen 1303” mcð 157, „Fiat 125” (pólskur) með 128, „Ford Bronco” með 127, „Ford Mercury/Comet” með 118, „Saab 96” með 113 og „Sagh..90”.með 113. Af öðrum fólksbilategundum voru fluttar inn færri en 100 bif- reiðar. i skrá þessari,sem byggð er á skýrslu llagstof- unnar, er eingöngu átt við nýja bila. strax til linuveiða. Aætlað er að afhenda M/B Garðar i janúar n.k. Nýlega var hafin smiði á næstu tveim skipum af sömu gerð og fer það fyrra til Bildudals, en það siðara til Eskifjarðar. bá standa yfir samningar við aðila við Breiðafjörð og á Austfjörðum um sams konar smiði, en það hefur i för með sér að verktiminn er kominn fram á mitt ár 1975 og ekki er hægt að byrja á næstu verkefnum fyrr en næsta haust. Ofangreind skip,M/B Fjölnir og M/B Garðar II,eru 8. og 9. skipið i röð 150 rúmlesta fiskiskipa, sem stöðin hóf framleiðslu á fyrir réttum þremur árum og eins og áður segir eru nú samningar og samningaumleitanir um 4 - 5 i viðbót. Viðgerðir i Slippstöðinni h.f. hafa verið með meira móti i sumar og ber þar hæst viðgerðir varðskip- anna, en auk þess hefur skipa- flotinn við Vestur- og Norðurland aukist með tilkomu hinna nýju skuttogara, en þeir hafa nú verið að koma i fyrsta sinn á slipp. Við Slippstöðina h.f. starfa nú um 190 manns og er skortur á vinnu- afli mikill þegar tekið er tillit til bæði eftirspurnarinnar eftir ný- smiðum og viðgerðum. Skeiðarár- menn vilja betri fréttatíma 61 brúargerðarmaður á Skeiðarársandi hefur sent frá sér áskorun til útvarpsráðs sem þeir undirrita allir sem einn. Áskorunin er svohljóð- andi: Við brúargerðamenn á Skeiðarárasndi samkvæmt meðfylgjandi undirskriftar- lista mótmælum harðlega breyttum kvöldfréttatima hljóö varps. Vinnutimi okkar, sem svo margra annarra, er þannig háttað, að við komum ekki til kvöldverðar fyrr en kl. 19. Missum við þvf alltaf af aðal- fréttatima hljóðvarpsins. Slikt álftum við algerlega óviöun- andi ástand. Það eru þvf ein- dregin tilmæli okkar til út- varpsráðs, aö fréttatiminn veröi aftur fluttur á sinn gamla góða stað i dagskránni, og þaö sem fyist. — Fjölnir er einn af 9 bátum, 150 rúmlesta, scm smiðaðir hafa verið i raðsmiöi. Samningar standa um siniði á 4-5 i viðbót. Áskorun Iðnnemasambandsins til stjórnvalda Látið sjómenn ráða A þingi Iðnneinasambands is- Jands um siðustu helgi var sam- pykkt svofelld ályktun vcgna ,a muingaum leitana I land- íielgisdeilunni: „31. þing INSÍ lýsir yfir sam- stöðu sinni við stjórnvöld I bar- átiunni fyrir útfærslu land- helginnar i 50 milur. Varðandi þær nýju tillögur er nú liggja fyrir eftir viðræður forsætisráðherra islands og Bretlands vill þingið hvetja stjórnvöld til þess að nú þegar verið haldnir fundir með sjó- mönnum og öðrum lands- mönnum um land allt og vilji þeirra verði látinn ráða afstöðu rikisstjórnarinnar til tillagn- anna.” Ónýtur ofaníburður Bílar sitja fastir á Þorlákshafnarvegi ef rignir Undanfarna daga hafa vega- gerðarmenn unnið að þvi að bera ofan i veginn frá Þrengsla-af- leggjara niður i Þorlákshöfn og hefur veriö notaður við verkið ónýtur ofaniburður, þvi að um leið og rigndi varð vegurinn leðjusvað og bilar sátu fastir. t fyrrakvöld áttu margir bilar i miklum erfiöleikum með aö komast yfir svaðið og niður i Þor- lákshöfn. Það virðist sem ofan- itiurðurinn þoli alls ekki rigningu, þá verður hann að svaði. Sem vonlegt er, eru Þorláks- hafnarbúar mjög óánægðir með þessi vinnubrögð enda hafa þeir átt i hinum mestu erfiðleikum vegna þessa. -ÞS Þrjár húnvetnskar konur sýna að Hallveigarstöðum Þrjár konur norðan úr Húna- vatnssýslu sýna að Hallveigar- stöðum næstkomandi laugardag 27. þ.m. og sunnudaginn 28. Veröa á sýningunni eingöngu munir sem unnir eru i fristundum. Konurnar eru Sigrún Jónsdóttir frá Hvammstanga sem sýnir fjöl- breytt úrval af brúðum i mis- munandi þjóðbúningum, Hildur Jakobsdóttir frá Hvammstanga sem sýnir margskyns hannyrðir og Sigriður Jónsdóttir frá Þor- finnsstöðum i Vestur-Hópi sem sýnir marga muni úr skeljum og kuðungum og fleiru úr fjörunni. . Sýningin er opin báða dagana frá kl. 14-22. Sýningin er sölu- sýning. vogs á slaghörpu. Einnig verður sýnd kvikmynd frá Vestmanna- eyjum. Milli atriða verður fjöldasöngur við undirleik Guð- mundar Matthiassonar Kennaraskólakennara. Vakan er öllum opin. ÁLANDSEYJAYAKA í Kópavogi A undanförnum árum hefur Norræna félagið i Kópavogi haldið kynningarfundi þar sem hvert Norðurlandanna hefur verið kynnt sérstaklega. Nú er röðin komin að Álands- eyjun. Sunnudagskvöldið 28. þ.m. kl. 20.30 efnir Norræna félagið til vöku i binghóli.Alf- hólsvegi 11, þar sem Þórdoddur Guðmundsson skáld fiytur ferðaþanka frá Álandseyjum, en hann heimsótti eyjarnar á s.l. sumri. Þá verður sýnd stutt kvikmynd frá Álandseyjum. Ragna Freyja Karlsdóttir spjallar um vinabæjamót sem haldið var i Norrköping á liðnu vori. bá leikur Arni Harðarson nemandi i Tónlistarskóla Kópa- Leiðrétting Einhverra undarlegra hluta vegna skaust aukaorð inn i opið bréf Jóhanns J.E. Kúld á 6. siðu blaðsins i gær. Þetta var orðið „ekki” sem að vanda sneri við merkingu setningarinnar, sem réttu lagi hljóðar svo: „Þegar ég var að alast upp við norðanverðan Faxaflóa rak oft upp á Mýrarnar netatrossur á vetrarvertið þegar útsynnings- garri stóð lengi.” Blaðið biður veivirðingar á þessum mistökum. íhalds- þjónkun eða -peninga? Margir urðu undrandi erþeir lásu innlegg Inga R. Iielga- sonar lögfræðings og fast- eignasala i Votmúla- umræðurnar I Þjóðviljanum sl. þriðjudag. Þótt auðvitað sé honum annl um sölulaun sin fyrir þessar 30 Votmúla- miljónir, þá bjóst maður tæp- lega við að hann legðist svo lágt að gerast talsmaður ihaldsins á opinberum vett- vangi cins og hann nú hefur gert og ráðist gegn samtökum vinstri manna á Selfossi. Sjálfur cr lögfræöingurinn i vandræðum með að verja framkomu sina og lætur lita svo út sem hann sé að skrifa vini i fjarlægð, nýkominn frá útlöndum. Ilins vegar vita allir eystra og margir syðra að Ingi þessi hefur handleitt svcitarstjórann alla tið síöan endemissamningarnir voru gerðir, og haft samvinnu við vor ihaldsmenn á Selfossi. Hann hcfur lika gortað af þvi við mcnn eystra að hafa sett ofan i við Þjóðviijann i krafti imyndaðs veldis. Tilraun lögfræðingsins til að réttlæta kaupsamninginn er brosleg i augum þeirra sem til þekkja og um málið liugsa, t.d. þegar hann cr að rcyna að básúna núvirði óarðbærrar fjárfestingar. Grein hans ber öll einkenni ihaldsáróðurs. Hamrað er i sifellu á sömu vit- leysunni og gengið fram hjá öllum rökum sem fram hafa komið gegn þessum fáránlega kaupsamningi. S. Jóhannesson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.