Þjóðviljinn - 25.10.1973, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 25.10.1973, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. október 197:$. Júdó Framhald af bls. 11. hannsson, Ottarr Halldórsson, össur Torfason og Jóhannes Haraldsson. 1 tækniráöi JSt eru Sigurður H. Jóhannsson, Ragnar Jónsson össur Torfason. Tækni- ráðiögegnir mikilvægu hlutverki. Það setur reglur um gráðanir, og hefur skipulagt þrjú sérstök gráðunarkeppnismót á vetrinum. Það fyrsta var háð s.l. laugardag og tókst mjög vel, en það næsta verður i febrúar. Fimm iþrótta- og ungmenna- félög hafa nú tekið júdó á stefnu- skrá sina: Júdófélag Reykja- vikur, Glimufélagið Armann, Ungmennafélag Grindavikur, Gerpla i Kópavogi og Ungmenna- félag Keflavikur. Chile Framhald af bls. 7. ofsafenginn i fjandskap sinum við vinstrisinna og kumpánar hans og skýra sumir sem til þekkja það þannig, að hann hafi ekki trú á að þeir og þeirra pakk verði langlift i landinu. — Allir eru þeir félagar á sextugsaldri. Nú segir kannski einhver að á- stæðulaust sé aö vera að kynna þessar górillur i islensku blaði, þær séu svo langt i burtu. Það er hættulegur misskilningur. Þær eru i hverju einasta kapitalisku þjóðfélagi, einnig þvi islenska. Ýmist þegar við völd opinberlega eða reiðubúnar til þess að kasta grimunni á sama hátt og nýskeð var gert i Chile, hvenær sem „lýöræðið” dugar. borgarastétt- inni ekki lengur til að hanga viö völd. dþ. „Vinnan” Framhald af bls. 2. lýðsfélaga og landssambandanna innan ASl um kaup á ákveönum eintakafjölda. Gengi Vinnunnar og möguleik- ar á áframhaldandi útkomu hlýt- ur að mestu ieyti að byggjast á þvi hvaða móttökur hún fær hjá félagsmönnum i verkalýðsfélög- unum og öðrum velunnurum verkalýðshreyfingarinnar. Ritnefnd Vinnunnar er skipuö einum manni frá miðstjórn ASt og öðrum frá stjórn MFA og sjá þessir aðilar um útgáfu blaðsins. Forseti Alþýðusambandsins er ábyrgðarmaður þess. Ritstjórn Vinnunnar er það ljóst, að til þess að blaðið verði að góðu málgagni verkalýðssamtak- anna og góður tengiliöur á milli Alþýðusambandsins og félags- mannanna, þarf það ekki hvað sist aö fjalla um þau málefni, sem mestu varða i daglegu lifi fólks. En til þess að það sé mögulegt, verða forystumennirnir og fólkið i verkalýðsfélögunum að leggja blaðinu lið að þvi er efni, hug- myndir og útbreiðslu varðar”. Tekjur Framhald af bls. 10. staðar eða rétt undir eða yfir 400.000 kr. og eru stærstu útgjaldaliðirnir vallarleiga og aug- lýsingar leikjanna. En litum þá aðeins á útkomu hvers liðs fyrir sig. KBÉESSStattl M.s. Esja ferfrá Reykjavík mánu- daginn 29. þ.m. vestur um land i hringferð. Vörumóttaka fimmtu- dag og föstudag til Vest- fjarðahafna, Norður- fjarðar, Sigluf jarðar, Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsavíkur, Raufar- hafnar, Þórshafnar, Bakkaf jarðar, Vopna- fjarðar, Borgarf jarðar, Mjóaf jarðar, Seyðis- fjarðar, Neskaupstaðar, Eskifjarðar, Reyðar- fjarðar og Fáskrúðs- f jarðar. Söngfólk Samkór Kópavogs óskar eftir söngfólki i allar raddir. Uppl. i simum 41355,41375, og 40818. Dömur athugið Hef opnað hárgreiðslustofu að Heykja- víkurvegi 68. Opið alla daga vikunnar. Reynið viðskiptin. Simi 51938. Að eignast Framhald af bls. 6. „verndararnir”, sem meö bliðu- látum senda einn volaðan pótin- táta hingað til þess að sannfæra islenska ráðamenn um að allt verði gert til þess að þessar tvær bræðralagsþjóðir megi draga inn klærnar. Og sá sami fyrirmaður „fær” Breta til þess að gefa eins mikið eftir eins og þeir voru alltaf fúsir til. Mörlandanum er siðan ætlað að draga af þessu réttar ályktanair. En við Islendingar megum ekki hvika, þvi timinn hefur gengið i lið með okkur. Ber okkur þvi að forðast ólukkusamninga, sem tryggja Bretum áframhaldandi rányrkju hér við land lengur en þeir geta búist við. Réttur strand- rikja til 200 milna lögsögu er i augsýn. Bindum ekki hendur okkar lengur en þörf krefur. Gerumst ekki feitir þjónar. ítalir Framhald af bls. 11. stillt upp og maður neitar að trúa þvi fyrr en maður tekur á að landsliðsnefnd reyni enn einu sinni aö sniðganga nokkra of okkar bestu hand- knattleiksmönnum eftir það á fall sem tapið fyrir Frökkum var á dögunum. t gær höfðu forráðamenn is- lenska landsiðsins samband við Knut Wadmark, formann skipulagsnefndar Alþjóða handknattleikssambandsins , og sögðu honum hvernig málum var komið og ráðlagði hann tslendingunum að sam- þykkja ekki að einn dómari dæmdi leikinn. Mun málið þvi fara til Alþjóða handknatt- leikssambandsins og er auðvitað ekki hægt að fullyrða neitt um það hvernig málinu lýkur. Möguleikarnir eru nokkrir. Nýr leikur, Italairnir dæmdir úr keppninni og leikir þeirra þurrkaðir út, eöa að leikurinn verður dæmdur tapaður fyrir ítalíu, en hvað verður þá með markatöluna? Það er sem sé mörgum spurningum ósvarað á þessu stigi málsins en úr þvi hlýtur að greiðast á næstu dögum, þar sem leikur Frakka og ts- lendinga fer fram 4. nóv. nk. og fyrir þann leik verður úr- skurður Alþjóðasambandsins að liggja fyrir. Þess má að lokum geta að tslendingar og og ttaiir léku vináttuleik i gærkveldi, þar sem júgóslavneski dómarinn, sem mætti,og Jón Erlendsson, formaður landsliðsnefndar, dæmdu leikinn. -S.dór ÍB-málið Framhald at öls. 16. sem einnig hefur starfað hjá umræddu timariti. Auk þeirra hafa verið fangelsaðir ljósmynd- arinn Ove Holmquist og tvitugur maður, sem ekki hefur verið upp- gefið hvað heitir. Albert segir,að gert hefði verið upptækt utan Stokkhólms talsvert af dóti málinu viðkomandi, og lét skilja það á sér, að þeir hlutir væru tæknilegs eðlis. Sigurvonin Framhald af bls. 1 band við varðskip. Hefðu varð- skipsmenn kallað Bretann uppi og farið fram á að togararnir hefðu sig á brott. Bretinn var þó ekki farinn i burtu er blaðamaður ræddi við Einar. Margir sjómenn eru tor- tryggnir vegna samkomulags forsætisráðherra við Edward Heath, og ýmsar spurningar vakna i þvi sambandi. Einar skipstjóri kvaðst vilja koma tveimur fyrirspurnum á framfæri við forsætisráðherra. I fyrsta lagi: Hvernig á að fyrirbyggja það að skip sem gerst hefur brot- legt og hefur verið svipt veiði- leyfi, komi aftur til veiða undir nafni annars skips? t öðru lagi: Hvernig verður farið með mál þeirra landhelgisbrjóta sem staðnir verða að veiðum innan gömlu 12 milna markanna? Nixon Framhald af bls. 16. menn sina alvarlegar áhyggjur af andlegri heilbrigði Nixons. Dómsmálaráðherrann var mjög ákyggjuflllur út af for- setanum, stóð i blaðinu. — Það voru möguleikar á að forsetinn yrði settur af, eða myrtur, og þar á ofan var andleg heilsa hans ekki upp á það besta. Dómsmálaráð- herrann var hræ'ddur um að það endaði með þvi að glæpa- rnaðurinn Agnew héldi innreið sins i Hvita húsið, segir New York Times. Samningafundur Framhald af bls. 3. samningaumboðs sem hún hefur sérstaklega. 30-manna-nefndin mun ekki hafa formlegt umboð neins félags til að gera samninga. Þjóðviljinn hafði i gær sam- band við Ólaf Jónsson fram- kvæmdastjóra Vinnuveitenda- sambandsins og innti hann eftir þvi, hve mörg verkalýðsfélög væru búin að setja fram sér- kröfur. — Það eru Iðjufélögin hér og fyrir norðan, svo og félög járn- iðnaðarmanna. — Hvenær er von á gagntil- lögum ykkar? — Við búumst við þvi að leggja fram á morgun (þ.e. i dag — Þjóðv.) okkar tillögur um breytingar á kjarasamningum. A fundinum með 30-manna- nefndinni. Þess má geta, að i gærkvöldi átti að halda félagsfund i Verka- mannafélaginu Dagsbrún og ganga þar frá tillögum félagsins um sérkröfur. Kvenfélag sósíalista heldur fund i kvöld I félags- heitnili prentara, Hverfisgötu 21. Meðal fundarefnis er kosning fulltrúa á aðalfund Bandalags kvenfélaga i Iteykjavik. Ennfremur verður rætt um kjaramálin. Stjórnin s KÆLISKAPAR 3> ★ IGNIS býður úrval & nýjungar. ★ 12 stærðir, stærðir við allra hæfi, auk þess flestár fáanlegar i viðarlit. ★ Sjálfvirk afhriming. ★ Ytra byrði úr harð- plasti, er gulnar ekki með aldrinum. ★ Full komin nýting alls rúms vegna afar þunnrar einangrunar.-ý-Kæliskáparnir með stílhreinum og fallegum línum. ★ IGNIS er stærsti framleiðandi á kæli- og frystitækjum í Evr. ópu. ★ Varahluta- og viðgerðaþjónusta. ‘RAFIÐJAN SIMI: 19294 RAFT0RG SÍMI: 26660 3ZT~1 Ni 1 Sr^ Sólun HJÖLBARÐAVIÐGERÐIR {i snjómunstur veitir góða spyrnu V í snjó og hólku. önnumst allar viðgerðir hjólbarða með fullkomnum tækjum. (jjí) Snjóneglum hjólbarða. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. — Sími 30501.--Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.