Þjóðviljinn - 26.10.1973, Side 1
Föstudagur 26. október 1973. — 38. árg. — 246. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Rannsókn á
fjárreiðum
flokkanna?
Tillaga komin fram um það efni frá
þremur þingmönnum Alþýðubandalagsins
Þrír þingmenn Alþýðubanda-
lagsins flytja á alþingi tillögu til
þingsályktunar um rannsókn og
lagasetningu varðandi fjárreiður
stjórnm álaflokka. Flutnings-
menn eru Jónas Árnason, Helgi
F. Seljan og Ragnar Arnahls.
Tillagan er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni a) að láta fram fara
opinbera rannsókn á fjárreiðum
og eignum stjórnmálaflokka, b)
að láta undirbúa að leggja fyrir
alþingi frumvarp till laga um
fjárreiður stjórnmálaflokka og
eftirlit með þeim.
1 greinargerð kemur fram, að
tilefni tillögunnar eru einkum
tvö: Sifelldar aðdróttanir
Morgunblaðsins um það hversu
kommúnistar fjármagni
starfsemi sina, og ummæli Geirs
Hallgrimssonar i útvarpsþætti á
dögunum um að Alþýðubanda-
lagiðeða fyrirtæki i tengslum við
það hafi komist yfir fasteignir
rneð grunsamlegum hætti.
Flutningsmenn taka fram i
greinargerð — og vitna til
Reykjavikurbréfs Morgunblaðs-
ins 29. sept. sl., að þeir vænti þess
að tillaga þessi verði samþykkt á
alþingi,a.m.k. hljóti hún stuðning
þess ritstjóra Mbl., sem nú situr á
þingi.
BSRB óskar samstarfs
Samninga-
viðrœður
hafnar
Þessi mynd var tekin við upp-
haf fyrsta sanmingafundar
Alþýðusa mbands islands og
Vinnuveitendasambands islands
i gærdag. Rlaðamaður og ljós-
myudari Þjóðviljans fóru á vett-
vang og er frá þvi greint i ináli og
mynduin á þriðju siðunni i dag.
Þarereinnig sagt frá tiliögum at-
vinniirekenda til breytinga á gild-
andi kjarasamningum, en þær til-
lögur voru afhcntar i gær.
FUF í
Reykjavík
klofnar
Hátt á annað hundrað manns
gengu út af fundi , sem stjórn
Félags ungra framsóknarmanna
el'ndi til i fyrrakvöld. Töldu út-
göngumenn að fundurinn væri
ólöglegur, settu siðan eigin fund
og kusu aðra stjórn f'yrir FUF i
Reykjavik. Kru þvi starlandi tvö
fclög i Rvik, sem lelja sig réttmæt
l'élög ungra framsóknarmanna i
höfuðborginni.
r
við samnmganefnd ASI
Vœntanleg frestun samningaviðrœðna við BHM og BSRB til miðs desember
Stjórn sú sem útgöngumenn
kusu á aðalfundi FUF afhenti i
gær kærur til lormanns SUF og
vuraformanns Framsóknar-
llokksins vegna meintra falsana
Iráfarandi stjórnar FUF á spjald-
skrá félagsins og annarra laga-
brota.
Að þvi er Haraldur Steinþórs-
son sagði Þjóðviljanum i gær
slitnaði uppúr viðræðum Banda-
lags starfsmanna rikis og bæjar
við samninganefnd rikisins i
fyrradag. Var samningafund-
urinn mjög stuttur og ekki boð-
aður nýr.
Samninganefnd BSRB
óskaði í gær einróma eftir
samstarfi við samninga-
nefnd ASi við samninga-
gerð næstu daga og vikur.
Jafnframt hefur BSRB
óskað eftir frestun samn-
ingaviðræðna til 20.
desember, þannig að málið
gangi ekki til kjaradóms
um mánaðamótin næstu.
BHM hefur óskað, að frest-
rinn verði styttri.
Hefur samninganefnd BSRB
óskað eftir þvt við fjármálaráð-
herra, að viðræðufrestur verði til
20. desember og málið gangi þá
ekki til kjaradóms 1. nóvember.
Er fastlega gert ráð fyrir, að
fjármálaráðherra leggi fram frv.
um slíka lagabreytingu i dag eða
næstu daga. Hefur bessi
frestunartillaga BSRG jafnframt
verið borin undir Bandalag há-
skólamanna, en samninganefnd
BHM óskað eftir að fresturinn
verði styttri, að þvi er formaður
samninganefndar þess, Jónas
Bjarnason sagði Þjóðviljanum.
Þjóðvil janum barst i gær
Iréttatilkynning frá stjórn FUF
ivinstri armsins sent kttllar sig
svo) og er hún birt i heilu lagi á
10. siðu blaðisins i dag.
Hverju svarar ASÍ?
Haraldur Steinþórss. sagði að
með frestun fengist hálfur annar
mánuður til að starfa að samn-
ingum við hlið Alþýðusambands
Islands, enda skrifaði samninga-
nefnd BSRB samninganefnd ASl i
gær og óskað samstarfs eða sam-
ráðs við gerð samninga. Stóð
samninganefnd BSRB einróma
að þeirri ákvörðun.
t þvi sambandi má minna á, að
á kjararáðsteínu ASl nýlega var
felldtillaga Siglfirðinga um sam
Framhald á bls. 14
BÖRN OG FÓSTRUR
Fóstrufélagið heldur sina
árlegu skemmtun fyrir börn
á forskólaaldri og foreldra
þeirra i Austurbæjarbiói á
morgun laugardag. Haldnar
verða tvær sýninga, kl. 1.30 og
aftur.kl. 3.30.
Á dagskrá er blandað efni og
skemmta börn og fóstrur Það
er nýbreytni núna, að komið
var á samvinnu milli tveggja
heimila, þannig að fóstrur i
leikskólanum i Hafnarfirði og
Brákarborg hafa æft börn af
þessum heimilum i söng. Þá
sýna börn af dagheimilinu i
Hafnarfirði leikinn Geiturnar
þrjár.
Þessar skemmtanir hafa
alltaf verið vel sóttar og nú
kostar aðgangurinn einar
litlar 100 krónur. Miðar eru
seldir á barnaheimilunum og
við innganginn.
Myndin er tekin á æfingu i
Austurbæjarbiói og sýnir
börnin frá Brákarborg og leik-
skólanum i Hafnarfirði ásamt
fórstunum Hildi Gisladóttur
og Katrinu Ölafsdóttur.
Bandaríkjaher viðbúinn ^„ín