Þjóðviljinn - 26.10.1973, Blaðsíða 5
Föstudagur 26. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Á vinnustaöa-
fundi MFA
Menningar- og
fræðslusamband al-
þýðu og Listasafn ASÍ
gegusst i dyrradag
fyrir þriðja vinnu-
staðafundinum, sem
þessir aðilar hafa
haldið i haust. Var
fundurinn að þessu
sinni haldinn i vist-
legum vinnuskúr
Byggingarsamvinnu-
félags atvinnubifreiða-
stjóra (BSAB) við
Asparfell i Breiðholti
III.
Fundurinn hófst við lok há-
degismatartimans. Hafði verið
komið fyrir málverkum frá
Listasafni ASl i vinnuskúrnum,
og voru þarna mættir, auk
þeirra sem vinna hjá BSAB,
fulltrúar frá MFA, Listasafni
ASI og frá Trésmiðafélagi
Reykjavikur og Verkamanna-
félaginu Dagsbrún. Hannes
Helgason trésmiður kynnti
atriði fundarins.
Þeir Jón Snorri Þorleifsson,
formaður Trésmiðafélags
Reykjavikur, og Guðmundur J.
Guðmundsson, varaformaður
Dagsbrúnar, kynntu starfsemi
þeirra verkalýðsfélaga sem þeir
eru i fyrirsvari fyrir.
Þar næst sungu tveir leikarar
i gerfi trúða, þeir Kjartan
Ragnarsson og Sigmundur örn
Arngrimsson, óð tileinkaðan
hinum fullkomnu samskiptum
verkamannsins og forstjórans,
og fluttu siðan leikþátt eftir Vé-
stein Lúðviksson um þá sömu
menn og óðurinn fjallaði um.
Þá var dreift á fundinum
fyrsta eintaki af Vinnunni sem
hefur komið út siðan 1966.
Þessu næst talaði Stefán
Ögmundsson um Menningar-og
fræðslusamband alþýðu, en að
ávarpi hans loknu lögðu fundar-
menn fram fyrirspurnir og
hófust þá nokkrar umræður.
t þeim umræðum upplýsti
Stefán að á vegum MFA væru
starfandi 4 fræðsluhópa og
störfuðu þeir 6 kvöld hver. Þá
sagði Stefán að þessi fundur og
aðrir honum likir væru eitt af
þvi sem MFA hefði kjörið sér að
vinna að bæði með það fyrir
augum að færa listina til
fólksins og svo að gefa verka-
fólki kost á að hitta forystumenn
sinna stéttarfélaga á vinnustað
og ræða við þá.
„Verkalýðsfélögin þurfa sjálf
að leggja sitt til menningar-
askana, en ekki að eftirláta
eignastéttinni það einni”, sagði
Stefán.
Þeir Jón Snorri Þorleifsson og
Guðmundur J. Guðmundsson
svöruðu fyrirspurnum um
verkalýðsmál og kjara-
samningana á komandi vetri og
einnig harðri ádeilu á forystu
verkalýðshreyfingarinnar fyrir
Guðmundur J. útskýrir fyrir fundarmönnum starfssvið Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. (Ljósm. A.K.)
Séöi andlit atvinnurekandans Sigga, og bak vinar hans, verkamannsins Sigga. (Ljósm. A.K.)
SAMSIGLING
MENNINGAR- OG
YERKALÝÐSMÁLA
að vera einangruð frá verka-
fólkinu.
Um einangrun forystu verka-
lýsðhreyfingarinna sagði Guð
mundur J. meðal annars:
„Hvaðan koma mennirnir i
stjórnir og ráð verkalýðsfélag-
anna, sem i flestum tilvikum er
kosið til árlega? Ég veit ekki
betur en þeir komi beint af
vinnustöðunum. Einn félagi i
stjórn Dagsbrúnar er til að
mynda starfandi á þessum
vinnustað.”.
Að lokum þakkaði Sigurður
Flosason, formaður BSAB,
gestunum fyrir komuna. Var
ekki annað að heyra á fundar
mönnum en þeim hafi þótl vel
til takast með þennan fund.
Blaðið hafði stutt viðtal við
Baldur óskarsson, starfsmann
MFA, og spurði hann nánar út i
þennan þátt starfsemi Mh"A.
Sagði Baldur að þetta væri
þriðji vinnustaðafundurinn,
sem haldinn væri. Hinir hefðu
verið í Héðni og Stálsmiðjunni.
Bjóst Baldur við að einhverjir
fundir yrðu haldnir i næstu viku,
og komið hefði til tals að koma
upp slikum fundum úti á landi,
td. i Vestmannaeyjum, en óskir
frá vinnustöðum um slika fundi
væru að berast, og hefði þessi
fundur hjá BSAB verið haldinn
að ósk þeirra sem þar vinna.
Fengju starfsmenn BSAB laun
greidd meðan fundur stæði.
„Markmiðið með þessum
fundum okkar er að ná til
fólksins á vinnustöðunum
sagði Baldur, ,,og kynna þvi
starf verkalýðshreyfingarinnar
og MFA. Þetta hefur tekist vel,
þvi á þessum fundum höfum við
fegið margar góðar ábendingar
og góð ráð, og á hverjum fundi
hafa orðið talsveröar umræður
um verkalýðs- og menningar-
mál.” UÞ
Er bankinn viðriðinn
Votmúlahneykslið?
Kosningar um Votmúlagreifadœmi á sunnudag
A sunnudag ganga Sélfossbúar
til atkvæða um það hvort þeir
vilja samþykkja eða hafna þvi að
hreppsfélagið kaupi cyðijörðina
Votmúla i Sandvikurhreppi fyrir
:t0 milljónir króna. Kaup-
samningurinn sem meirihluti
hreppsnefndar gerði við lög-
fræðing nokkurn f.h. jarðar-
eiganda er frægur orðinn. Hann
táknar, ef hann næði fram að
ganga, rrieiri uppsprengingu
jarðarverðs sem dæmi eru til um
hér áður.
Menn hafa árangurslaust beðið
eftir einhverri haldbærri
skýringu sem kynni að réttlæta
þessi viðskipti hjá samnings-
aðilum.. Andstæðingar þessa
kaupsamnings hafa bent á að
sá meirihluti sem knúði fram
samþykkt samningsins með bola-
brögðum á hreppsnefndarfundi
22. ágúst s.l., er hlutkestismeiri-
hluti, og hæpnari eða veikari
meirihluti er ekki til i neinni
sveitarstjórn. Þeim mun
óskiljanlegra er það ofurkapp
sem þessi meirihluti' leggur á
þessi óhagkvæmu kaup. Bent
hefur verið á að jörðin Austurkot
sem er næsta jörð við Votmúla en
með allgóðum byggingum, var i
fyrra seld á 2 1/2 milljón króna.
Landstærð jarðanna er svipuð,
þannig að samkvæmt þessu hefur
jarðarverð i Miðflóanum 11-
faldast á einu ári. Einnig hefur
skilmerkilega verið sýnt fram á
að iandbúnaður á Islandi verður
gjörsamlega óraunhæfur, ef
hækkun jarðaverðs verður slik
sem i Votúlasamningnum felst.
Þáttur Búnaðarbankans i þessu
máli er dularfullur og óupplýstur,
en engum dylst að hann er
drjúgur. Blaðið Þjóðólfur sem
gefið er út á Selfossi segir svo s.l.
laugardag:
„Sögusagnir ganga um allt land
er sýna fram á óeðlileg afskipti
Búnaðarbanka fslands i málinu,
ef sannar eru. Selfoss og raunar
þjóðin öll á heimtingu á að vita
um sannleiksgildi þeirra.
Það er krafa Selfossbúa að
þingmenn Suðurlandskjördæmis
fari fram á, að Alþingi láti fara
fram rannsókn á hlutdeild banka-
stjóra Búnaðarbankans i kaupum
þessum”.
Minningarspjöld
barnaspítalasjóðs
Hringsins
fást á eftirtöldum stöðum:
Blómabúðinni Blómið Hafnar-
stræti 16, Skartgripaverslun-
um Jóhannesar Norðfjörð
Laugavegi 5 og Hverfisgötu
49, Þorsteinsbúð Snorrabraut
60, Vesturbæjarapóteki,
Garðsapóteki, Háaleitisapó-
teki, Kópavogsapóteki, Lyfja-
búð Breiðholts Arnarbakka 4-6
og i Bókabúð Olivers i Hafnar-
firði