Þjóðviljinn - 26.10.1973, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 26.10.1973, Qupperneq 7
Föstudagur 26. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Cr ávarpi séra Jakobs Jónssonar Vegna Hallgrímsmessu Ilallgrimsmessan, sem veröur á laugardaginn kemur, hefir farið fram árlega i nærfellt þrjá ára- tugi. Nú er 299. ártiðardagur séra Hallgrims. Og væri nú tilvalið að gera eitthvað til að stuðla að þvi, að 300. ártiðin beri þann svip, sem til er ætlast. Látum þvi Hall- grimsmessuna á laugardaginn minna oss á, að Hallgrimskirkja þarf aö vera sem lengst komin næsta haust — og án hennar er enginn svipur yfir islenzkri þjóð- hátið, með fullri virðingu fyrir öllu öðru. Vakin skal sérstök athygli á þvi, að Hallgrimsmessan á laugardaginn hefst kl. 5 e.h.Sira Ragnar Fjalar Lárusson predik- ar, en dr. Jakob Jónsson þjónar fyrir altari. Kristinn Hallsson óperusöngvari syngur hinn forna ,,Te Deum ’-sálm ásamt söng- flokk kirkjunnar. Að lokinni guðs- þjónustunni mun borgarstjórinn i Reykjavik, Birgir Isleifur Gunnarsson flytja ávarp Við út- göngudyr verður samskotum til kirkjunnar veill viðtaka. Jakob Jónsson. Teikningin af blóðgjöfinni er úr bresku blaði, en sú af þeim vinunum N og B i sjó- manni er úr frönsku blaði. Blóð- læknar fara í sjómann Hildarleikurinn i Austur- löndum nær verður blaða- teiknurum um allan heim til- efni til þess að sýna getu sina. Og ótrúlega margir sjá þá Nixon og Brésnéf í for- grunni átakanna. Þeir láta israelsmenn og Araba berjast til siðasta manns ef þeim býður svo við að horfa. Þeir fara i sjómann og krcista þá i sinum stóru krumlum án þess að taka eftir hinum litlu peðum. Staðreynd er að i striði ísraelsmanna og Araba er notuð nýjasta hertækni frá báðum þessum kumpánum, og það jafnvægi sem menn þykjast greina milli hinna striðandi aðila er ekkert annað en valdajafnvægi milli Washington og Moskvu. Hver er Halder Camera — og hversvegna er gengið framhjá honum við veitingu friðarverðlauna Nóbels? Norska Nóbel-nefndin hefur enn þá einu sinni valdið deilum með kjöri sinu á friðarverð- launahafa ársins. „Aftenposten” i Osló, hið stóra borgaralega blað, lét svo um mælt, að það velja Henry Kissinger untanrikisráðherra Bandarikjanna og Le Duc Tho aðalsamningamenn Norður- Vietnams hefði skapað ,,ofsa- lega gagnrýni um allan heim”. „Daily Telegraph”, stórblað breskra ihaldsmanna, var svo kaldhæðnislegt að lýsa þvi yfir, að það hefði verið á valdi bæði Bandarikjanna og Norður- Vietnams að ljúka striðinu á miðjum siðas liðnum áratug. Þvi væri úthlutun friðarverð- launanna nú til þessara tveggja stjórnarerindreka álíka við- eigandi, og það hefði verið að sæma þá Adolf Hitler og Ne- ville Chaberlain verðlaununum að gerðu Miinchen-samkomu- laginu árið 1938. Um úthlutun verðlaunanna til Kissingers reit stærsta ihaldsblað Danmerkur, „Berlingske Tidende ,,Það vekur bæði undrun og gremju að heiðraður skuli fulltrúi þess rikis sem er höfuðábyrgt fyrir hinu langa og enn ekki fulllokna Vietnam-striði”. Nóbel-nefndin hefur enn einu sinni sýnt það, að hún gerir val verðlaunahafa miklu erfiðara en það þyrfti að réttu lagi að vera. Á siðari árum hefur verið unnt að benda á einn áberandi persónuleika meðal þeirra sem gerðar hafa verið tillögur um til nefndarinnar, en nefndin hefur greinilega látið á sér skilja að hún teldi þann mann ekki sæmdarinnar verðan. 1 fyrra bárust mjög böndin að þessum manni, en þá lét nefndin það undirhöfuðleggjast að ' úthluta nokkrum verðlaunum. Enginn taldist þeirra verður.L Það að láta verðlaununum óúthlutað vakti mikla gagnrýni i norskum blöðum, og bentu þau á þann mann sem bar höfuð og herðar yfir alla hina sem gerð var uppástunga um: Erkibiskupinn Domllelder Canarafrá Brasiliu. Það hefur verið gengið fram hjá Helder Camara fjórða árið i röö. Árið 1970 var bent á hann — kaþólskan biskup — af 5. heims- móti lútherstrúarmanna og Al- þjóðasamtökum verkalýðsins i Briissel. En þá fékkk hinn norsk-ættaði bandariski búfræð- ingur Norman E. Borlaug verð- launin. Það var i tilefni af hinni svokölluðu „grænu byltingu” i vanþróuðum löndum, sem hann hafði beitt sér mjög fyrir, en hún er umdeild og hefur skapað mörg vandamál. Sá næsti sem hlaut friðarverðlaunin var Willy Brandt kanslari Vestur-Þýska- lands. Sænski uppfinningamaðurinn Alfred Nobel, höfundur dýna- mitsins, gerði á sinum tima heldur stuttaralega grein fyrir þvi, hvers konar fólk hann taldi að ætti að fá þessi verðlaun: „Friðarverðlaunin skulu ganga til þess, sem hefur starfað mest eða best að eflingu bróðurþels Pistill eftir Halldór Sigurðsson milli þjóðanna og til að afnema fastaheri eða draga úr þeim, svo og við að koma á friðarþingum eða gera þau almenn”. Þetta gætum við tekið saman svona: Nóbel óskaði eftir þvi að þeir menn skyldu njóta sómans sem af hugsjónaástæðum hafa unnið að þvi að efla skilning milli þjóða, frið og afvopnun. P'áir nútimamenn hafa sýnt meiri þolinmæði, gáfur og vilja- þrek til að fara eftir kröfum Nóbels heldur en erkibiskupinn i Recife-Olinda i Norðaustur- Brasiliu. Það hefur m.a. komið fram á árlegum ferðalögum hans til allra heimshiuta þar sem hann hefur fylgt boðorði Sófóklesar: „Hver er dráps- maðurinn? hvert fórnarlambið? Talið'.”. Helder Camara, 64ra ára að aldri, talar máli fátækra manna og kúgaðra, og hann hef- ur gert það með þeim kjarki og mælsku sem hefur gert hann að einum fremsta fulltrúa fyrir tvo þriðju hluta mannkyns, eða þess sem nefnist þriðji heimurinn. „Hlutverk mitt”, sagði hann mér i samtali fyrir tveim mán- uðum, „er að vinna að friði. Án réttlætis vinnst enginn friður. Þess vegna verðum við að vinna að þvi að skapa réttlæti i hverri sveit, i hverju héraöi, á hverju meginlandi og um allan heim. Oréttlætið i arðráni auðugra manna á þeim látæku i Brasiliu, er ekki nema hluti stærri heild- ar, þar sem auöugri heimurinn arðrænir þann fátæka, vanþró- uðu löndin”. Helder Camara er ofsóttur af herforingjastjórninni i Brasiliu (2 af nánustu samverkamönn- um hans sitja um þessar mundir i fangelsi, og stjórnin hefur til- kynnt páfagarði, að hún „geti ekki tryggt öryggi hans”), og hann lætur að þvi liggja i einka- viðræðum, að friðarverðlaun Nóbels væri ein mesta hugsan- lega uppörvun i garð þeirra sem vinna að meira öryggi og rétt- læti i heiminum, og jafnframt kæmi þá alvarleg viðvörun til þeirra sem vinna;gegn slikum markmiðum. En hann bætti við: ,,Hin mikla fyrirmynd min, Gandhi, dó án þess að hafa nokkru sinni fengið þessi verð- laun”. Sé farið yfir lista um þá sem hlotið hafa friðarverðlaun Nób- els, kemur i ljós að Nóbel-nefnd- in hefur aðeins tvisvar sinnum farið út fyrir Vestur-lönd. 1 fyrra skiptið var það 1936, þegar Argentinumaðurinn Saavedra- Lamas hlaut þau fyrir að miðla málum i hinu blóðuga striði milli Bóliviu og Paraguay. t sið- ara skiptið hlaut suður-afriski ættarhöfðinginn Albert Luthuli þau árið 1960. Þeir limm nefndarmenn sem veita friðarverðlaun Nóbels eru sjálfir valdir af vissri stjórn- málanefnd Stórþingsins. Þingið gerir siðan ekkert annað en staðfesta skipan nefndarinnar. Skipan nefndarinnar einkennist hvorki aí æsku né hugmynda- i flugi. I henni sitja helst nokkrir gamalgrónir þingmenn og til viðbótareinn til tveir embættis- menn (helst lögfræðingur og sagnfræðingur). Þess vegna má ekki búast við öðru en niðurstöðum af hefð- bundnum hyggindum. Gandhi var ekki þóknanlegur af þvi að hann vann á móti nýlenduveldi Breta. Helder Camara er ekki þóknanlegur — það er sagt að Brasiliustjórn hafi þegar árið 1970 haft sendimann i Osló til að tilkynna nefndinni.að tilnefning erkibiskupsins yrði litin giska alvarlegum augum. Nóbels-verðlaun eru sæmdar- auki á alþjóðlegan mælikvarða. Úthlutun þeirra á ekki að leggja á herðar fólki sem er eins fjarri almenningsálitinu i heiminum og Nóbel-nefndin i Osló er. „Arbeiderbladet” málgagn jafnaðarmanna i Osló, skrifaði i fyrra þegar þá var gengið fram hjá Helder Camara: „Ætli sé ekki kominn timi til þess að ræða alvarlega um stöðu Nóbel- nefndarinnar og vinnubrögð hennar”. Halldór Sigurðsson. mmmmmmmmmmm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.