Þjóðviljinn - 26.10.1973, Page 11
Föstudagur 26. október ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Takmarkalaus sigurvilji
Athyglisverð
tilraun
Þessi glæsilega mynd er frá
knattspyrnukappleik i Sovét-
rikjunum og auk þess aö vera
sérstaklega glæsileg ljós-
mynd, þá minnti hún okkur á
þaö alvarlega ástand hér á
landi og raunar viöar, þegar
maöur sér mannfjöldann i
hakgrunni myndarinnar.
Og vegna þess aö myndin er
sovésk, þá má einnig minna á
aö þaö cru einmitt Sovétmenn
sem hafa tekiö forystu i aö
reyna aö auka aösókn aftur aö
knattspyrnunni. Þeir hafa
borið fram nokkrar tillögur á
alþjóðaþingum knattspyrnu-
manna um aö breyta knatt-
spyrnulögunum á þann veg aö
fleiri mörk verði skoruð I
leikjum og reyna með þvi aö
auka áhuga manna aftur á
knattspyrnunni.
Þessar tillögur þeirra hafa
ekki enn fengiö nægilegan
hljómgrunn meðal manna og
þvi tóku þeir sjálfir að reyna
nokkrar af þessum breyting-
um.
Má þar fyrst nefna aö þegar
knattspyrnutimabiliö hófst i
april si. i Sovétrikjunum var
ákveðið að engum leik i
deilda rkeppninni gæti lokiö
meö jafntefli. Ef jafnt var að
venjulegum leiktima loknum
varö að framlengja og siöan ef
enn var jafnt, þá vitaspyrnu-
keppni. Þetta er þekkt úr
bikarkeppni en hefur ekki áð-
ur verið reynt i deildarkeppni.
Þá var og ákveöiö aö gefa
stig fyrir skoruö mörk, auk
stiganna tveggja sem fengust
fyrir að vinna leikinn eins og
alls staöar er.
Keppnistimabilinu i Sovét-
rikjunum er mú að ljúka, en
þeir hvila yfir hásumariö og
leika heldur ekki yfir hávetur-
inn. Þaö gæti verið fröðlegt aö
fá aö vita hvernig þessar til-
raunir þeirra til auka aösókn-
ina að leikjunum hafa tekist
og hvort þetta er ef til vill þaö
sem koma skal.
—S.dór
færði íslenska unglingaliðinu sigurinn
— Þaö tókst. Islenska ung-
lingalandsliðið er komið áfram i
lokakeppni EM unglinga i knatt-
spyrnu með þvi að sigra Ira 3:2 i
siðari leik liðanna i gærkveldi og
sá sigur var svo sannarlega verö-
skuldaður. Hafi nokkurt lið unnið
fyrir sætum sigri þá er það þetta
lið i gærkveldi. Irska liðið, skipað
eintómum atvinnumönnum, var
vissulega betur leikandi lið og
leikmenn þess kunnu meira fyrir
sér á flestum sviðum knattspyrn-
unnar, en takmarkalaus sigur-
vilji islenska liðsins var þeim
ofurefli, enda næsta fágætt að sjá
slikan sigurvilja hjá’ islenskum
liðum. Við stæðum áreiðanlega
framar á iþróttasviðinu ef allir
islenskir iþróttamenn berðust af
slikum fidonskrafti sem islenska
liðið gerði i gærkveldi.
Þessi mikli baráttuvilji
islenska liðsins kom Irunum
greinilega mjög á óvart og þeir
áttu ekkert svar við þessum
ósköpum. Jafnvel reyndir at-
vinnumenn eins og Arsenal-leik-
maðurinn Brady, sem lék með
Arsenal i ensku deildarkeppninni
sl. laugardag.fékk ekkert að gert.
Það gat ekki liðið á löngu þar til
þessi kraftur bar árangur. A 21.
minútu var dæmd hornspyrna á
irska iiðið. Gunnlaugur
Kristfinnsson, einn besti maður
islenska liðsins, gaf vel fyrir
markið og fyrirliðinn Janus Guð-
laugsson kom aðvifandi úr mið-
varðarstöðunni og skoraði glæsi-
lega með föstu skoti.
Aðeins 11 minútum siðar bætti
svo besti maður islenska liösins,
sá eini sem var i sama gæðaflokki
knattspyrnulega og irsku at-
vinnumennirnir, Kristinn
Björnss., öðru markinu við. Hann
fylgdi vel á eftir og komst i
sendingu til markvarðar frá
hinum fræga Brady.
Þannig var svo staðan i leik-
hléi. Á 15. min. siðari hálfleiks
bætti Kristinn 3ja markinu við.
•Hann fékk góðan stungubolta inn-
fyrir irsku vörnina og skoraði
glæsilega 3:0.
Undir lok leiksins var islenska
liðið búið með úthaldið og trarnir
tóku að sækja stift. A 22. min. s.h.
skoraði miðvörðurinn Kilkelly
fyrra mark þeirra eftir varnar-
mistök i islensku vörninni og á 30.
Framhald á bls. 14
irski markmaöurimi hjargaði oft snilldarlega.
Úrslit úr síðasta
Miklatúnshlaupi Árm.
2. Miklatúnshlaup Ármanns á
þessum vetri fór fram laugardag-
inn 20. október ki. 16.00 I ágætis
veðri. U, 40 börn og unglingar
kepptu og luku hlaupinu með
sóma.
tJrslit I einstökum flokkum
urðu þessi:
Keppendur f. 1960 og fyrr.
1. fl.
Drengir: (hlupu lengri leiðina)
1. Asgeir Þór Eiríksson
2:48,0 min.
2. Óskar Thorarensen
2:54,0 min.
3. Hafsteinn óskarsson
3:08,0 min.
4. Jón B. Gunnarsson
3:15,0 min.
5. Hlynur Vigfússon
3:25,0 min.
6. Grétar Melsted
3:29,0 min.
7. Helgi Indriðason
3:47,0 min.
8. Jóhann Jónasson
4:11,0 min.
Stúlkur (styttri leiðin)
1. Guörún Stefánsdóttir
2:20,0 min.
Keppendur f. 1961 og 1962.
2. fl.
Drengir:
1. Birgir Jóakimsson
2:14,0 min.
2. Georg Magnússon
2:20,0 min.
3. Þorsteinn Ingimarsson
2:23,0 mín.
4. Eyjólfur Þórðarson
2:24,0 min.
5—6. Albert Sigurðsson
2:28,0 min.
5—6. Ólafur Indriðason
2:28,0 min.
7. Viðar Egilsson
2:41,0 min.
8—9. Aðalsteinn Loftsson
2:49,0 min.
8—9. Kristinn Hrafnsson
2:49.0 min.
Stúlkur:
1. Ingibjörg Guðbrandsdóttir
2:15,0 m!n.
2. Sólveig Pálsdóttir
2:21,0 min.
3. Katrin Sveinsdóttir
2:22,0 min.
4—5. Marta Valgeirsdóttir
2:26,0 min.
4—5. Sólveig Sveinsdóttir
2:26,0 min.
Sigrún Harðardóttir
2:28,0 min.
7. Birna Björnsdóttir
3:08,0 min.
Keppendur f. 1963 og 1964.
3. fl.
Drengir:
1. Guðjón Ragnarsson
2:19,0 min.
2. Einar Már Gunnarsson
2:25,0 min.
3. Bergsveinn Ólafsson
2:31,0 min.
4. Brjánn Ingason
2:36,0 min.
5. Bernhard Petersen
2:41,0 min.
6. Lárus Lárusson
2:43,0 min.
7. Jón Sk. Indriöason
2:48,0 min.
8. Benedikt Jónasson
2:00.0 min.
Stúlkur:
1. Eyrún Ragnarsdóttir
2:33,0 min.
2. Rannveig Rúnarsdóttir
2:40,0 min.
3. Maria Lárusdóttir
2:45,0 min.
Keppendur f. 1965 og siðar.
4. fl.
1. Stefán Harðarson
2:51,0 min.
2. Sigurður Frederiksson
3:05,0 min.
Ef veður leyfir verður hlaupið i
þriðja sinn i vetur laugardaginn
17. nóvember á sama tima, kl. 16.
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson