Þjóðviljinn - 26.10.1973, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 26.10.1973, Blaðsíða 15
Föstudagur 26. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Húfa Foringjans A dögunum var haldið uppboð á veitingahúsi i Miinchen þar sem seldir voru ýmsir munir frá dögum þýsku nasistanna. ökuskirteini með nafni Adolfs Hitler frá árinu 1939 var slegið á 130 þúsund krónur og ein- kennishúfan, sem sést hér á myndinni, og sögð hafa verið i eigu Foringjans, var slegin á 196 þúsund krónur. Talið var að kaupandinn hefði verið fyrrum liðsforingi i þýska hernum, en yfirleitt er slikt nasistadót keypt af Banda- rikjamönnum segir News- week. 270upp- skriftir í Ljóma sam keppni Ljóma smáréttakeppnin hefur tekist með ágætum og var skilað 270 fullgildum uppskriftum og hefur 6 manna dómnefnd þegar tekið til starfa og verða úrslit kynnt 15. nóvember n.k. Sem dæmi um nöfn á réttunum eru hér nokkur valin af handahófi: Uppá- h a 1 d s r é ttu r s k i p - herrans — Kvöldgóðgæti piparsveinsins — Ást þreyttu hús- móðurinnar — Ljómandi pylsuréttir með hraði — Heimilisfriður og Hjónabandsljómi. Myndirnar hér að ofan sýna bandarlska þingmanninn Wiliiam Proxmire. Hann ákvað að Iáta græða á sig hár og það kostaði hvorki meira né minna en 240 þúsund krónur. Hann gerði þessa hárræktum að umtalsefni í viðtali við bandarikstblað, og sagði að sköllóttir menn tækju sig illa út á sjónvarpsskerminum, og sér fyndist hann lita betur út með hár. Aftur á móti vildi hann ekkert ræða hvort hann hefði einnig látið framkvæma á sér andlitsiyftingu. :: ■■ :: :: ■■ Leikkonan Jane Fonda sem er þekkt fyrir afstöðu sina gegn hernaðarbrölti hefur núhöfðað mál gegn Nixon og fleiri ráðamönnum vegna þess að þeir hafi unnið markvisst að þvi að njósna um ferðir henn- ar og athafnir og sverta hana I augum almennings. i ákær- unni nefnir hún bandarisku leyniþjónustuna FBI og tvo banka, sem hún segir að hafi gefið opinberum aðilum upp- lýsingar um fjármáiastöðu sina ogfjármálaumsvil ánþess að spyrja sig leyfis eöa gefa sér aðvörun. Maria Callas sópransöngkona og tenórinn Giuseppe di Stef- ano hyggja á söngleikaför til margra landa og byrjuðiförina með konsert i Hamborg. ifl Bobby Fischer kom til Manila fyrir skömmu og var þar við- staddur skákkeppni. Þar sagði hann við fréttamenn, að hann myndi halda titlinum næstu 10 árin, og neitaði þvi að hann hefði misst áhuga á skák, en viðurkenndi að hann legði ekki eins hart að sér við skák at- huganir og fyrrum. Hann les 20 sovésk skáktimarit mánaðarlega. Fischer ræddi lika um þær ásakanir að hann væri hræddur aö verja titil sinn og sagði: „Af hverju skora Rússarnir ekki á mig?... Ég hef ekki heyrt neitt frá þeim.” Bandariskur stjórnandi Lorin Maazel var að stjórna Don Giovanni eftir Mozart i óperu- húsinu i Berlin. Undirtektir á- heyrenda voru vægast sagt lé- legar og menn stóðu upp og bauluðu. Eftir hlé snéri stjórn- andinn sér að áheyrendum og sagði: Ég fullvissa ykkur um, að siðari hlutinn verður alveg eins slæmur og fyrri hlutinn. En kannski langar einhvern hér að hlusta, og þessvegna bið ég þá sem hafa púað að yfirgefa húsið”. Enginn fór. Mikið ætla menn að græða á minningunni um Marilyn Monroe. A sunnudaginn verða boðin upp einkabréf hennar og ýmsir persónulegir smá mun- ir. Uppboðið verður haldið i Los Angeles. Kanadiski forsætisráðherrann Trudeau var nýlega i heim- sókn hjá Kinverjum. Hann undirskrifaði m.a. viðskipta- samning milli rikjanna, en Kanadamenn eru með stærstu viðskiptavinum Kinverja. Þá var gerður samningur um aukin tengsl á menningar- vis- inda- og iþróttasviðum. Kin- verjar féllust m.a. á að senda flokk lækna til Kanada til að kynna nálarstunguaðferðina. Þessi bráðmyndarlega stúlka er sögð yngsti kvendómari i Vestur-Þýskalandi, 25 ára gömul, og heitit UrsulaDreis- bach. Ilún dæmir i venjuleg- um einkamálum. SÍÐAN UMSJÓN: SJ Lada er eftirlíking af Fíat 124 LADA bifreiöin sovéska kom fyrst hingað tii lands i vor og hefur selst ágæta vei að sögn sölumanns hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum. Billinn er eftirliking af Fiat 124 en hækk- aður og styrktur fyrir malar- vegi. Verðið á fólksbilnum er tæpar 328 þúsund, en á station- gerðinni tæpar 347 þúsund. Enginn Lada bill er til eins og er, en sending væntanleg á næstunni. Þá er mjög mikil eftirspurn eftir Volgu, sem kostar rúmar 423 þúsund krónur og þykja þessi verð hagstæð i dag. Verðbólga á listsýningu Verðbólguþróunin i landinu virðist ansi ör. Aðgangur að sýningu Sverris Haraldssonar hækkaði um 50 krónur um daginn. Astæðan mun vera sú,að hin myndarlega sýningarskrá reyndist dýrari en aðstandendur sýningarinn- ar bjuggust við. Hverskonar misgáningur? I FRETT I Mbl. í gær var tíundað, hvað nefndir rfkisins hefðu kost- að rfkissjóð á árinu 1972. Af mis- gáningi tvöfaldaðist sú upphæð, sem nefndirnar kostuðu, og eru lesendur beðnir velvirðingar á þessum mislökum. Nefndakostn- aðurinn var 60,6 milljónir króna á öllu árinu. Breski aðallinn stundar mikið fuglsveiðar og það sæmir ekki aðalsmönnum að skjóta með venjulegum byssum. Þeir gera sin byssukaup hjá smið- um sem handsmiða byssurnar af mikilli nákvæmni og eiju. Bestu byssurnar hjá fyrirtæk- inu Holland & Holland kosta rúmar 700 þúsund krónur stykkið! Sahlon Gahlin — Ef allir hefðu jafn mikið úr að spila, myndu allir kvarta um að þeir hefðu úr of litlu að spila. t t tilefni friðarverðlauna — Samþykkt með öllum samhljóöa atkvæðum — við kaupum Alaska

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.