Þjóðviljinn - 31.10.1973, Page 3

Þjóðviljinn - 31.10.1973, Page 3
Miðvikudagur 31. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Stœkkun lands- hafnar i Þorlákshöfn Fram- kvœmdir í undir- búningi Útlit er fyrir að stækkún landshafnarinnar i Þorláks- höfn hefjist i mars eða april á næsta ári en undirbúnings- rannsóknir og framkvæmdir eru þegar hafnar. Er nú verið að rannsaka grjótnámu i ná- grenni Þorlákshafnar með væntanlega uppfyllingu i huga. Talið er að stækkun hafnarinnar taki 3 ár. Hér hefur verið sæmilegur afli undanfarið, en gæftir stopular. Mjög mikil atvinna er i Þorlákshöfn nú og hefur svo verið i allt sumar. Mun vart fyrr hafa verið jafn mikil atvinna i þorpinu og það sem af er þessu ári. —Þ.S. Nýr hafnar- stjóri í Þorlákshöfn Nýr hafnarstjóri hefur verið skipaður við landshöfnina i Þorlákshöfn og tók hann til starfa 1. okt. sl. Heitir hann Sigurður Jónsson, áður starfs- maður landhelgisgæslunnar. Nýja hafnarstjórans biðu mörg verkefni úrlausnar og hófst hann þegar handa um byggingu húss yfir bilvog hafnarinnar, loftskeytastöð- ina, húsnæði fyrir bryggju- verðina og skrifstofu hafnar- stjórans, en öll starfsemi þessara aðila hefur verið rek- in i mjög ófullkomnu húsnæði og það svo, að jaðraði við neyðarástand á siðustu ver- tiö. —Þ.S. Hamranesmálið: Senn er að vœnta úrskurðar saksóknara Hamranesmáliö svokallaða hefur legið hjá saksóknara siðan i sumar að bæjarfógeta- cmbættið i Hafnarfirði sendi það þangað eftir árs legu hjá embættinu i Hafnarfirði. i gær fengum við þær fréttir hjá saksóknaraembættinu að innan tiðar yrði tekin ákvörð- un um hvað gcrt skuli i mál- inu, og er úrskurðarins að vænta innan skamms. Þá spurðum við einnig um hvað liði úrskurði i oliu-ó- happsmálinu við Klöpp sem átti sér stað i sumar, og var þvisvarað til að það lægi hjá siglingamálastofnuninni og væri beðið eftir umsögn henn- ar. —S.dór Talið frá vinstri: Böðvar, Kristinn, Kristin og Kjartan. Fyrsta „siðdegisstund” vetrar- ins hjá Leikfélagi Reykjavíkur verður á morgun, fimmtudag, og hefst kl. 17.15. Þar munu þau Kristin ólafsdóttir, Böðvar Guðmundsson, Kristinn Sigmundsson og Kjartan Ragnarsson syngja um Hug- sjónahetjur og Hversdagshetjur við ljóð eftir örn Arnarson, Davið Stefánsson, Jóhannes úr Kötlum, Stein Steinarr, Grim Thomsen og Böðvar Guðmundsson. Lögin eru ymist frumsamin af flytjendum eða þjóðlög. Þá er einkar skcmmtilegur flutningur hópsins á Sfðasta blóminu eftir Magnús Asgeirsson, en inn á milli verður brugðið upp myndum James Thurber úr bókinni. Þessi siðdegisstund verður ekki endurtekin nema fólk, sem er að vinna á þessum tíma, hafi áhuga á að hlýða á dagskrána á öðrum tima, og mun LR kanna það sér- staklega. Siðdegisstund verður fyrsta fimmtudag i hverjum mánuði, og verður næst leikrænn flutningur á smásögum eftir Alfred Daudet og þarnæst flutningur á Heljar- slóðarorrustu. Inngangseyrir er aðeins 200 krónur. John Miles Band Set r til Islands i dag, miðvikudag, kemur hing- að hljómsveitin Jolin Miles Band Set og mun leika á hljómleikum i Austurbæjarbiói aunað kvöld. Auk Jolin Miles Band Set koma fram á hljónileikunum hljóm- sveitirnar Capricórn og Júdas. John Miles er viðurkenndur listamaður i heimalandi sinu, Englandi, og leikur jöfnum hönd- um á pianó og gitar. Hljómsveitin flytur frumsamið efni. Út hafa komið talsvert margar litlar plöt- ur með John Miles, og fer vegur hans stöðugt vaxandi. Er óhætt að fullyrða, að hér er á ferðinni at- hyglisverð hljómsveit. John Miles Band Set er á samn- ingi hjá hinu góðkunna hljóm- plötu- og útgáfufyrirtæki Orange, en það fyrirtæki liefur m.a. á stefnuskrá sinni að gera islenska listamenn heimsfræga. Þeir Magnús og Jóhann,eða hljóm- sveitin Change, er á samningi hjá Orange. Auk þess hefur áðurnefnt fyrirtæki tekið að sér að gefa út tvær litlar plötur með Magnúsi Kjartanssyni, með lögum sem tekin verða af væntanlegri LP- plötu hans. Capricorn hefur skemmt lands- miinnum um tveggja vikna skeið og ætti ekki að þurfa að fjölyrða um hljómsveitina, sem þegar hel'- ur hlotið talsverða kynningu i fjölmiðlum. Forsala aðgöngumiða að hljómleikunum i dag og á morgun 'er'i Facó Laugavegi 89 og i Hljóð- færaverslun Sigriðar Helgadóttur Skólamáltiðir og samfelld skóladvöl Borgarráð hefur sam- þykkt að taka upp við- ræður við rikið um kostnaðarskiptingu vegna ráðstafana varð- andi samfeldni i skóla- dvöl barna, ef ákvaðnar yrðu. Einsog áður hefur verið sagt frá i Þjóðviljanum var gerð sl. vetur ýtarleg könnun á möguleik- um á samfeldni i skóladvöl og þá m.a. á skólamáltiðum af ein- hverju tagi. Var jafnframt gerð kostnaðaráætlun með þrem mis- munandi möguleikum. Benedikt Gunnarsson tæknifræðingur geröi þessa athugun á vegum fræðslu- ráðs borgarinnar. Þegar þáverandi formaður fræðsluráðs, Kristján J. Gunnarsson, kynnti þessa könnun i borgarstjórn, voru einu við- brögðin af meirihlutans hálfu upphrópanir Alberts Guðmunds- sonar um sósialisma og foreldra, sem ekki nenntu að hugsa um börnin sin. Samþykkt borgarráðs nú bendir þvi vonandi til að a.m.k. einhver vilji sé fyrir hendi um athugun á málinu. —vh Loftur Baldvinsson er nú búinn aö selja Norðursjávarsild fyrir rúmar 60 miljónir króna, og nú er heildaraflaverðmætið komið yfir 1 miljarð, en siðasta vika var á- gæt hjá flotanum: aflinn var 3.174 lestir og aflaverðmætið rúmar 90 miljónir. Faxaborg GK var með bestu söluna, seldi 186,9 lestir fyr- ir 5.2 miljónir króna. Sjá nánar skýrslu i blaðinu á morgun. Lán til hafna á Suðurlandi Hinn 26. þ.m. var undirritaður i Washing- ton samningur um lán að upphæð 7 milj. Bandarikjadollara, milli fjármálaráðherra f.h. rikissjóðs og Alþjóða- bankans. Lán þetta er veitt i þvi skyni að greiða erlendan hluta kostnaðar við endurbætur og stækkanir á þremur höfnum á Suðurlandi, Grindavik, Þorlákshöfn og Höfn I Hornafirði, til þess að draga úr efnahagslegum afleiðingum af jarðeldunum i Heimaey og auð- velda móttöku á afla af flota Vestmannaeyinga á meðan á uppbyggingu Vestmannaeyja stendur. Heildarkostnaður er' áætlaður sem svarar 11,3 milj. Bandarikjadollurum. Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, undirritaði lánssamning- inn i umboði Halldórs E. Sigurðs- sonar, fjármálaráðherra. Lánsupphæðin er 7 milj. Bandarikjadollarar og er lánið til 15 ára með 7 1/4% vöxtum. Fyrstu fjögur ár lánstimans er lánið afborgunarlaust. Lánssamningurinn tekur ekki gildi fyrr en Alþingi hefir sam- þykkt lög, er heimili lántökuna. (Fréttatilkynning frá fjármálaráðuneytinu) TIMARIT MALS OG MENNINGAB Efni: Sigfús Daðason og Jakob Benediktsson: Kristinn E. Andrésson Herbert Marcuse: Siðfræði og bylting Vésteinn Lúðvíksson: Siðlausar sálir þinga Þórbergur Þórðarson: Bréf til Kristinar Guðmundardóttur Þórður Sigtryggsson: Mennt er máttur Thomas Mann: Örðug stund Sira Jakob Jónsson: Ásatrú og kristindómur Sigurveig Guðmundsdóttir: Sigriður Einars frá Munaðarnesi Roger Bernos: Gjaldeyriskreppan og forræði Bandarikjanna Haraldur Jóhannsson: Alþjóðlegi bankinn Ljóð eftir Rilke, Vilborgu Dagbjartsdóttur, Dag, Pjetur Hafstein Umsagnir um bækur eftir Geirlaug Magnússon, Jón Sigurðsson, Siglaug Brynleifsson Mál og menning, Laugavegi 18

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.