Þjóðviljinn - 31.10.1973, Side 5

Þjóðviljinn - 31.10.1973, Side 5
Miðvikudagur 31. októbcr 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Alþýðubandalagið í Reykjavik Fulltrúar á flokksráðsfund Guðlaugur Þorvaldsson prófessor Verður Guðlaugur Háskóla- rektor? í þriþættu prófkjöri i lláskólan- um i gær reyndist Guðlaugur Þor- valdsson prófessor hafa mestu fylgi að fagna i öllum atkvæða- greiðslum. 1 háskólaráði fékk Guðlaugur 22 atkv. í fyrsta sæti, 17 i 2. sæti og 7 i þriðja sæti. Þór Vifhjálmsson hlaut i sömu röð 19, 6 og 5 atkv. Jónatan Þórmundsson fékk 4, 2 og 1 og Sigurður Lindal 3, 1 og 8. A hvern atkvæðaseðil voru skrifuð þrjú nöfn i háskólaráði. I prófkjöri stúdenta hlaut Guð- laugur einnig langflest stig eða 830, Ólafur Ragnar Grimsson hlaut 345 og Þór Vilhjálmsson 231. í Félagi háskólakennara voru greidd atkvæði á sama hátt og i háskólaráði. Þar fékk Guðlaugur 9atkv. i fyrsta sæti, 4 i 2. sæti og 4 i 3. sæti. Jónatan Þórmundsson hlaut 4, 2 og 1 og Sigurður Lindal 3, 1 og 8. Háskólaráð skal endanlega kjósa rektor hinn 10. nóvember. Atkvæðisrétt hafa þá væntanlega Framhald á bls. 14 A aðalfundi Alþýðubandalags- ins i Reykjavik hinn 25. okt. sl. voru kosnir eftirtaidir fulltrúar á flokksráðsfund Alþýðubanda- lagsins sem haldinn verður um næstu helgi: Aðalfulltrúar: Alfheiður Ingadóttir Arnmundur Backmann Brynjólfur Bjarnason Einar Olgeirsson Erla E. Ársælsdóttir Gestur Guðmundsson Gils Guðmundsson Guðjón Jónsson Guðmundur Hjartarson Guðmundur Magnússon Guðmundur Vigfússon Gunnar Guttormsson Haukur Helgason Jón Timótheusson Kjartan Ólafsson Magnús Kjartansson Margrét Guðnadóttir Mörður Arnason Óttar Proppé Páll Bergþórsson Sigurður Magnússon Sigurjón Pétursson Snorri Jónsson Stefán Sigfússon Svava Jakobsdóttir Svavar Gestsson Tryggvi Þór Aðalsteinsson Þór Vigfússon Sjómaður drukknar Ungur sjómaður frá Stykkis- hólmi drukknaði i höfninni i Ólafsvik um helgina. Hann hét Svanur Kristinsson og var aðeins 24 ára gamall. Svanur heitinn var skipverji á vélbátnum Ólafi Bjarnasyni. Vitað var, að hann kom um borð á sunnudagskvöld, en hans var saknað er báturinn hélt I róður á mánudagsmorgun. Svanur var ókvæntur, en lætur eftir sig eitt barn. Kafari fann lik- ið i höfninni, og hefur það verið sent til Reykjavikur til krufning- ar. Þorsteinn Vilhjálmsson Þröstur ólafsson Framhald á bls. 14 Áhugahóp* ar hjá BSRB Sú nýbreytni verður tekin upp i haustáætlun um fræðslustarf BSRB, að stofnað verður til þriggja áhugamannahópa, sem kynna sér og gera greinargerð um tiltekin málefni. Hóparnir halda fundi vikulega og hefja starf i næstu viku (6.-9. nóvem- ber) og er verkefnaskipting þessi: Vísitölumál verða á dagskrá á þriðjudögum. Fjallað verður um skattamálá miðvikudögum. I.ifeyrissjóðsinál eru verkefnin á föstudögum. Hver hópur ákveður nánar fundatimann, sem verður eftir vinnutima eða á kvöldin á skrif- stofu BSRB, Laugavegi 172. Starf hópanna er ætlað sem undirbún- ingur fyrir sérstaka ráðstefnu um mál þessi siðar i vetur, sennilega að Munaðarnesi. Fræðslunefnd bandalagsins væntir þess, að ýmsir þeir, sem gegna trúnaðarstörfum á vegum samtakanna og áhugamenn i þessum efnum sjái sér þess kost að taka þátt i einhverjum þessara starfshópa. 1 hverjum þeirra verða meðal þátttakenda menn úr forustu BSRB. Þá er i þessari viku að hefjast félagsmálanámskeið.sem verður fyrst 5 kvöld (mánudaga eða fimmtudaga) i Reykjavik og sið- an um helgi uppi i Munaðarnesi. Þetta er þriðja námskeiðið þess- arar tegundar, sem BSRB gengst fyrir, og hafa þegar tilkynnt þátt- töku um 40 manns. AF BÁKNINU Eru nefndakóngarnir vinnu■ svikahrappar eða ofurmenni? Það er vonum seinna að i blaðinu birtast skrif upp úr hinni gagnmerku bók Stjórn- um, nefndum og ráðum rikis- ins 1972, þvi um hálfur mánuð- ur mun vera liðinn siðan hún kom út. Til þess að bæta hér um munum við fara nokkuð ýtarlega ofan i kverið og birta úr þvi nokkra dálka með upp- lýsingum. Heildarfjöldi nefnda starf- andi árið 1972 var 440, en kom- inn niður i 335 um áramót. 1 þessum nefndum störfuðu 2097 menn, og ritarar nefndanna voru 42 talsins. Um áramótin hafði nefndarmönnum fækkað um rúmlega 400 og voru þá orðnir 1650 og nefndarritarar 33. Laun til allra þessara nefnda urðu 49,9 miljónir og annar kostnaður af þeim 10,7 miljónir, en heildarkostnaður af öllu farganinu 60,6 miljónir. Flestar nefndir voru á veg- um menntamálaráðuneytisins eða 126 og kostnaður við þær 11,3 miljónir. Fæstar voru nefndirnar hins vegar i utan- rikisráðuneytinu 8 talsins, og kostuðu 1,3 miljónir. Af þeim tæplega 50 miljón- um, sem fóru i launagreiðslur fyrir nefndastörf fóru 3 mil- jónir 241,8 þúsund krónur til 6 tekjuhæstu nefndakónganna. Athyglisvert er, að af þess- um 6 hæstu nefndarmönnum eru fimm opinberir starfs- menn i hæstu launaflokkum. Þessir menn eru og fengu svo mikið fyrir nefndarstörf: Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri 621,9 þúsund kr. Jón Sigurðsson ráðuneytis- stjóri 590,8 þúsund kr. Jón Sigurðsson hagrann- sóknarstjóri 568,8 þúsund kr. Ólafur Björnsson prófessor 498,3 þúsund krónur. Guðlaugur Þorvaldsson prófessor 454,6 þúsund kr. Við þetta yfirlit hljóta að vakna ýmsar spurningar, eins og til dæmis: Er tviborgað fyrir sum verk,sem unnin eru, þannig að sumt af greiddum nefndarstörfum f y 1 g i embættisverkum fastráðinna embættismanna? Kemur ekki þessi gegndarlausa nefndar- vinna opinberra hálauna- manna niður á aðalstarfinu? Eða er aðalstarfið, i þessu til- viki bankastjórastarf, pró- fessorsstarf, eða ráðuneytis- starf, svo litið starf að hægt sé að vinna sér inn tvöföld verka- mannalaun jafnframt þeim án þess að það komi niður á aðal- starfinu? Eða eigum við tslendingar máske svona mikið af ofur- mennum? Af þeim 36 mönnum, sem háía meir en 200 þúsund krón- ur i nefndartekjur á árinu 1972 eru 24 skipaðir og ráðnir opin- berir starfsmenn auk þeirra sem teljast opinberir starfs- menn en eru til þess kjörnir, svo sem þingmenn. Af þessum 24 ráðnu opin- beru starfsmönnum eru 4 bankastjórar og 10 stjórar úr ráðuneytum. Og áður en við sláum botn- inn i þetta i dag, er sjálfsagt og eðlilegt að skýra frá þvi, að eini bankastjórinn sem sæti á á alþingi, Magnús Jónsson fyrrum ráðherra, vann sér inn auk þingstarfa og banka- stjórastarfa, 237 þúsund krón- ur fyrir nefndastörf sl. ár, og ekki finnst honum enn nóg að gert, blessuðum, þvi nú situr hann allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna, mitt i öllum önnum, og verður frá i nokkr- ar vikur. —úþ Sýning Þórdfs Tryggvadóttir opnaði á laugardag niálverkasýningu i Iiogasal Þjóðminjasafnsins og sýnir þar oliumálverk, blý- ants- og krítarteikningar — samtals 39 verk. Sýningin ber þaðin.a. mcð sér að Þórdis befur dálæti á þjóðsagna- mótffum. Um leið og við birt- um liér mynd af Þórdisi og tvcim verkum liennar á sýu- inguiini, liiðjum við hana af- sökunar á þvi, að texti með inynd af lienni l’éll niður i blað- inu i gær. (hjósm. A.K.) Trampler með Sinfóníunni Okku Kamu frá Finnlandi stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni 3. reglulegu tónleikar hljómsveitarinnar á þessu starfsári verða á morgun, og kemur þar fram sem einleikari á lágfiðlu WALTER TRAMPLER, og leikur viólukonsert Béla Bar- tóks. Walter Trampler er þýskur að uppruna og var þegar orðinn þekkt- ur i heimalandi sinu, er hann fluttist til Banda- rikjanna i byrjun siðari heimsstyrjaldar. Hann er i dag einn virtasti lág- firðluleikari i heimi fyrir frábæra leikni og næma túlkun. Stjórnandi verður hinn ungi finnski hljómsveitarsljóri OKKO KAMU, sem heimsækir okkur nú i annað sinn, en hann stjórnaði tón- leikum hljómsveitarinnar 24. mai siðastl. Má teljast mikill fengur að fá Okku Kamu hingað öðru sinni, þar sem hann er meðal eftirsóttustu hljómsveitarstjóra eftir að hann vann Karajan-verð- laun fyrir hljómsveitarstjórn, þá aðeins rúmlega tvitugur. A efnisskránni á tónleikunum verða bessi verk, auk viólukon- serls Bartóks: Forleikur að óper- unni Don Giovanni eftir Mozart og Sinfónia nr. 1 eftir Brahms. Eftirprentanir á tveim myndum Eggerts Guðmundss. i tilefni af 1100 ára afmæli is- landsbvggðar á næsta ári hefur Eggert Guðmundsson iistmálari málað tvær þjóðlifsmyndir fyrir llörpuútgáfuna á Akranesi. Fyrri myndin nefnisl „Vörin” og sýnir sjómenn viö störf og báta i vör. 11 in myndin heitir „Heyannir” og þar er fólk við heyvinnu eins og hún tiðkaðist á fyrstu tugum þessarar aldar. Útgefandi hefur látið gera eftir- prentanir til sölu af myndum þessum. Báðar myndirnar eru lit- greindar og unnar i Kassagerð Reykjavikur. óhætt er að full- yrða, að verk þetta hefur tekist frábærlega vel, og er mikill feng- ur að fá listaverk Eggerts Guð- mundssonar unnin svo vel sem hér hefur til tekist. Þarf ekki að efa að margir munu senda vinum og ættingjum heima og erlendis þessar þjóðlegu myndir að gjöf i tilefni þjóðhátiðarársins. GERIR EITT STlICJll ^ SAMVINNUBANKINN RT

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.