Þjóðviljinn - 31.10.1973, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. október 1973.
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
Valur og
Fram leika
til úrslita
í kvöld
Víkingur — Þróttur leika
þáeinnigum 5.og ö.sætið
i kvöld fara fram tveir
síðustu leikirnir í Reykja-
víkurmótinu í handknatt-
leik, en þá leika Víkingur
og Þróttur um 5. og 6. sætið
i mótinu og strax á eftir
leika svo sigurvegararnir
úr riðlunum, Fram og
Valur, til úrslita i mótinu.
Fyrri leikurinn hefst kl. 20
en sá siðari um kl. 21. Þvi
miður hefur Reykjavíkur-
mótið orðið svipminna nú
en flest undanfarin ár og
má eflaust kenna riðla-
skiptingunni þar mest um
en eins hinu, að mótið hefur
verið slitið svo leiðinlegai
sundur að liðið hefur á
þriðju viku milli leikja. En
nú er sem sé komið að
úrslitum og ætti leikkvöldið
i kvöld að geta orðið hið
skemmtilegasta.
Fyrri leikurinn verður eins og
áður segir á milii Vikings og
Þróttar, sem leika um 5. og 6. sæti
mótsins. Eftir öllum sólar-
merkjum að dæma ætti að vera
nokkurn veginn vist að Vikingur
með eina 7 landsliðsmenn beri
sigur úr býtum. En á hitt verður
einnig að lita, að það sem af er
mótinu hefur Vikings-liðiö heldur
litið sýnt af þvi sem búist var viö
af þvi.
Hinsvegar hefur Þróttur sýnt
mjög góða leiki og bitið fast frá
sór, einkanlega þó i vörninni og
sjálfsagt veitir ekki af i kvöld
gegn stórskyttuliði Vikings.
Siðari leikurinn, milli Fram og
Vals um Reykjavíkurmeistaratit-
ilinn, ætti að geta oröiö skemmti-
legur. Fram hefur verið i mun
sterkari riðli en Valur og oft sýnt
stórgóða ieiki. Vals-liðið verður
alls ekki dæmt af leikjum sinum i
mótinu, en landsliðsmenn Vals
hala sýnt i landsleikium okkar i
haust að þeir hafa sjaldan verið
betri og frammistaða þeirra gegn
Gummersbach hér heima
sannaði okkur að liðið verður
mjög sterkt i vetur.
En um úrslit leiksins er engin
leið að spá. Hitt er hinsvegar
öruggt aö þessi tvö lið munu taka
þátt i toppbaráttunni i 1. deildar-
keppni tslandsmótsins i vetur,
það hafa þau sýnt i leikjum sinum
i haust.
Þess má svo aö lokum geta að 1.
deildarkeppnin hefst eftir viku
eöa miðvikudaginn 7. nóvember
og þá mætast Valur og Vikingur i
fyrsta leik mótsins.
Hér fer á eftir lokastaðan i
riölum Reykjavikurmótsins:
A.
1. Fram 3 0 0 53-41 6 stig
2. t.R. 2 0 1 51-50 4 stig
3. Vikingur 1 0 2 46-47 2 stig
4. Ármann 0 0 3 34-46 0 Stig
B
1. Valur 3 0 0 61-34 6 stig
2. K.R. 1 1 1 53-51 3 stig
3. Þróttur 0 -2 1 48-53 2 Stig
4. Fylkir 0 1 2 40-64 1 stig
Siglingasamband
innan ÍSÍ stofnað
Þau gleðilegu tiðindi hafa
gerst, að siglingaiþróttinni hefur
loks veriö sýndur sá sómi sem
henni ber. Stofnað hefur verið
Siglingasamband tslands og er
það eitt af sér iþróttasamböndum
innan tSÍ.
Sambandið var stofnað
fimmtudaginn 25. október sl. i
húsakynnum tSl. Þar voru lögð
fram drög að lögum Siglinga-
sambands tslands og þau sam-
þykkt með nokkrum breytingum.
Siglingasambandið er 15. sér-
sambandið innan tSl og stofn-
aðilar þess eru:
tBR
UMSK
tBA
HSÞ
IBH
Kjörin var stjórn fyrir Siglinga-
sambandið en hana skipa Jón
Ármann Héðinsson,formaður, og
meðstjórnendur:Ari Bergmann
Einarsson , Gunnar Hilmarsson,
Stefán Sigtr.vggsson , Rúnar
Steinsen. Varamenn: Daniel
Friðriksson , Gunnar Hallsson ,
Pétur Th. Pétursson. Endurskoð-
endur: Stefán Stephensen , Árni
Friðriksson.
Gisli Klöndal er nú sem óðast að komast isitt gamla góöa form eftir þrálát meiðsli ihné. Hann verður án
efa hættulegur Fram-vörninni i kvöld.
Hví fá hinir yngri
ekki tækifæri
á NM?
I.andslið okkar i badminton,
scm mæta á Finnum i lands-
keppni 11». nóv. nk. og taka þátt i
Norðuriandamótinu daginn eftir
i Finnlandi, hefur verið valið
fyrir nokkru. Nú er það svo aö
hadminton hefur ekki veriö
hávær iþróttagrein i frcttum
fjölmiðla um iþróttir hér á landi
undanfarin ár. og þess vegna
finnst eflaust einhverjum
skrýtið að nú skuli alit i einu
farið að deila á val landsiiös i
þessari grein.
Þar kemur þó fleira en eitt til.
t fyrsta lagi er vaknaður mikill
áhugi á badminton, þannig að
fleiri og fleiri eru nú einmitt
farnir að ræða um badminton,
æfingar, keppni og val liða. Og
það er ekki bara meðal almenn-
ings, heldur einnig á iþrótta-
siðum dagblaðanna. þar sem
badminton hefur, sem betur fer.
fengið æ meira rúm að undan-
förnu.
En hvað er þá að vali lands-
liðsins sem mæta á Finnum?
Kannski er ekkert að valinu,
breiddin er ekki það mikil i
islenskum badminton að um
marga sé að velja. Og þó. Að
minu áliti hefur verið gerð ein
mjög stór skyssa við val liðsins.
Hún er sú að þegar um álika
sterka menn er að ræða eru þeir
eldri teknir fram yfir þá yngri.
Mennirnir sem eru um það bil
að kveðja og stóðu fyrir
nokkrum árum á hátindi getu
sinnar eru teknir fram yfir þá
yngri sem eru að taka við en
vantar reynslu, en þó umfram
allt að fá tækifæri til að sjá
bestu badminton-menn leika
sem völ erá (Danina) og læra af
þeim.
t þessu sambandi hef ég
einkum tvo unga menn i huga og
þá i allra fyrsta lagi Reyni
Þorsteinsson KR, sem lagði tvo
landsliðsmenn að velli með
miklum glæsibrag i opna
mótinu á sunnudaginn og er hik-
laust i fremstu röð badminton-
leikara okkar. Það jaðrar við
hneyksli að Reynir skuli ekki
vera i liðinu, hvort sem við
tökum tillit til þess sjónarmiðs
að láta þann yngri keppa ef
velja þarf um tvo jafna eða
ekki.
Hinn maðurinn sem ég hef i
huga er Helgi Benediktsson.
Helgi er mjög ungur og stórefni-
legur badmintonleikari og ætti
hiklaust að vera i liðinu. þótt
ekki væri til annars en að fá að
læra af þeim stóru á NM.
Munurinn á honum og flestum
eldri mönnunum i liðinu er ekki
EF GRANNT
ER SKOÐAÐ
það mikill að slikt myndi ekki
borga sig, ef litið er til fram-
tiðarinnar, og myndi alls ekki
hafa neina úrslitaþýðingu
varðandi landskeppnina, sem
við eigum þó möguleika á að
vinna.
Þótt margir vilji yngja upp i
iþróttum aðeins yngingarinnar
vegna.og ef til vill hef ég i eina
tið verið þeirrar skoðunar, en
hef sem betur fer lært af reynsl-
unni i þvi efni, þá horfir hér öðru
visi við. t landsliðinu nú eru
menn rétt við eða um fertugt.
Og við getum eflaust öll verið
sammála um, að það sé ekki
besti aldur badmintonleikara.
Eigi að siður gæti val þeirra
verið afsakanlegt ef langt bil
væri milli þeirra og yngri
mannanna og þá ættu þeir eldri
skilyrðislaust að vera i liðinu.
En þegar biiið er ekki fyrir
hendi (eins og með Reyni Þor-
steinsson) og það er jafn litið og
raun ber vitni með Helga
Benediktsson, þá hefði, að minu
áliti, hiklaust átt að velja þá
frekar og án umhugsunar. Hér
hefur orðið leiðinlegt slys sem ef
til vill verður aldrei bætt.
—Sdór
Islandsmótið í körfuknattleik hefst um næstu helgi
Keppni 1. og 2. deildar i
islandsmótinu i körfuknattleik
liefst um næstu lielgi. Það verða
ÍMA og UBK sem leika norður á
Akureyrii 2. deild á laugardaginn
en á Seltjarnarnesi leika i 1. deild
Valur-HSK og ÍS-UMFS.
Siðan heldur keppnin áfram á
sunnudag og þá leika i 1. deild
UMFS-iR i Njarðvikum og
UMFN-Armann á sama stað.
Einnig veröur leikið i 2. og 3.
deild á sunnudag en ekki liel'ur
áður verið keppt i 3. deild i körfu-
knattleik hér á landi.