Þjóðviljinn - 31.10.1973, Síða 13
Miðvikudagur 31. október 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
POULÖRUM:
BOÐORÐIÐ
25
strákar. Einhvern veginn var
eins og hann væri ekki aðeins eftir
á mannauðu býlinu, heldur væri
hann og hefði alltaf verið aleinn i
heiminum, óháður nokkurri
manneskju og honum væri hjart-
anlega sama.
En samt sem áður voru eins
konar tengsl á milli okkar og það
var ómögulegt að bera kala til
hans þegar hann brosti og sagði:
— Þetta var svo sem ágætt
meðan á þvi stóð, eða hvað Johs?
En nú ertu sem sé að fara.
— Já, ég er að leggja af stað.
— Allt i lagi, rúllaðu þá, sagði
hann og fór aftur að lesa i heftinu
áður en ég var búinn að loka á eft-
ir mér.
16
— Nú hefurðu heyrt sameigin-
lega ævisögu okkar Alex — allt
fram að kaflanum sem nú er að
liða,sagði ég. —Mér þætti gaman
að vita hvernig.... En það kemur i
ljós þegar hann skriður saman.
Ég dauðsá samstundis eftir að
hafa sagt þetta. En ég hafði svo
lengi setið og létt á hjart minu við
Marianne, að það var næstum að
komast upp i vana. Hún sagði:
— Hverju getur hann tekið upp
á gagnvart okkur? Johs, ég er
hrædd við þennan mann. bað er
aldrei að vita með hann, eða
hvað?
Ég hlaut að hafa sagt þetta oft-
ar en einu sinni. Nú var hún farin
aö segja það lika. Ég reyndi að
slá þvi upp i gaman með þvi að
vitna i orð hennar sjálfrar:
— Það er óþarfi að vera hrædd
við hann. Hann virðist ósköp
notalegur og aðlaðandi...
— Hættu þessu, Johs!
— Við getum haldið i hemilinn á
honum. Hann er ekki sami mað-
urinn eftir öll þessi ár og það er ég
ekki heldur. Ég hef haldið mig
innan ramma laganna, en hann
hefur áreiðanlega rambað á
barmi þeirra. Það gerir maður
ekki án þess að það skilji eftir sig
merki. Hann er sennilega orðinn
háður alls kyns plötuslætti, eins
og þegar hefur komið i ljós. En
það stoðar ekki við mig i annað
sinn...
Trúði ég á þetta sjálfur? Ég
sagði það til að róa Marianne og
lika til að róa sjálfan mig. Alex
yrði aldrei háður einu eða neinu.
bað var mér öldungis ljóst. Og ég
vissi lika að enginn myndi komast
upp með að snúa á hann. Það var
sá maður sem Marianne var
hrædd við. Og það var ég lika
innst inni.
— Það er eitt sem ég get ekki
hætt að hugsa um, sagði hún. —
Þennan dag sem hún var myrt...
Það var ekki aðeins Alex sem
valdaði þig, eins og þú segir. Þú
valdaðir hann lika.
— Já, það var gagnkvæm fjar-
vistarsönnun.
— En hann var þarna, aleinn á
býlinu áður en þú komst. Hann
hefði haft tækifæri til... að gera
það.
— Af hverju hefði hann átt að
gera það? Hann var ekkert
spenntur fyrir Virginiu og hún
ekki af honum.
— En þú hefur hugsað um þetta,
Johs?
— Já, ég bægði þessari hugsun
æðioft frá mér á sinum tima. Hún
var of fráleit og auk þess — hvað
hefði ég átt að gera i málinu, þótt
það hefði verið rétt?
— Hvað áttu við?
— Ef ég hefði haldið að hann
hefði gert það, hefði ég þá átt að
fara til lögreglunnar og ljósta upp
um hann? Þegar hann var búinn
að bjarga mér frá ákæru og allt
var orðið rólegt.
— Ljósta upp! sagði hún. —
Þetta skil ég ekki.
— Nei, það er vist ekki hægt að
skilja það, sagði ég og enn vottaði
fyrir raddhreimnum frá þvi i
gamla daga — talsmáta náung-
ans sem ég hafði verið og var
aldrei langt undan. — En við vor-
um þrátt fyrir allt eins konar
félagar. Og maður verður ekki
sögusmetta i þeim göfuga til-
gangi að hinn aðilinn fái ævilangt
fangelsi. Og hvað myndi það svo
sem stoða. Ekki hefði það vakið
hana til lifsins aftur.
Marianne sat þögul og gat ekki
fylgt mér eftir og mér var ekki
unnt að útskýra þetta nánar. Það
var ekki nóg með að Virginia væri
dáin. Hún var dáin mér, rétt eins
og hún hefði aldrei verið til... þótt
það lýsti þessu ekki til fulls held-
ur. Ég gat ekki komið henni i
skilning um það og reyndar ekki
sjálfum mér heldur. En þannig
var það.
— Það er annað mál, sagði ég.
— En það var alls ekki til um-
ræðu. Alex bjargaði mér úr
klipu...
— Og hann fékk það vel borgað,
sagði hún.
— Vinnur þú á pósthúsinu fyrir
ekki neitt? Tekurðu ekki við þvi
sem þú getur fengið?
— Nei, heyrðu iLig nú, sagði
hún. — Þú ætlar þó ekki að bera
saman...
— Ekki það? Það er litill munur
á skit og kúk i... heiminum.
Ég hafði ætlað að segja: i ykkar
heimi. en ég áttaði mig i tima og
hélt áfram þrjóskulega:
— Hver og einn hirðir þau laun
sem hann getur fengið, og. ef
starfið er áhættusamt, reynir
hann að fá alla þá uppbót sem
hann á kost á. Er það ekki nokk-
urn veginn hið sama?
— Auðvitað má lita þannig á
það!
Það var að heyra að henni fynd-
ist allt annað. Ég brosti til henn-
ar.
— Er það nú vist?
— Johs, við megum ekki fara að
rifast.
—• Nei, það megum við ekki.
Það er lika of áliðið til þess að við
getum gert eitthvað að gagni i
málinu. Sérðu hvað klukkan er
orðin.
Hún var orðin fjórðung yfir tvö.
— Við skulum koma i rúmið,
sagði ég. — Og reyndar skal ég
viðurkenna að hann féfletti mig
ferlega þarna i gamla daga. En
það var nú þá. Hann kæmist ekki
upp með moðreyk ef hann reyndi
eitthvað viðlika núna.
Við fórum i rúmið. — Ég er
samt hrædd, sagði hún þegar við
lágum i myrkrinu. — Taktu utan-
um mig, Johs.
Ég tók utanum hana og við
höfðum aldrei verið svo nátengd
hvort öðru og elskast svo heitt og
innilega. Aður en við sofnuðum
flaug mér i hug, að þetta ætti ég
eiginlega Alex aö þakka.
17
Það var ekki sérlega alvarlegur
heilahristingur serú Alex hafði
fengið. Það var ekki liðinn nema
hálfur mánuður þegar hann var
aftur kominn á stjá. Ég hefði vel
getað hugsað mér, að Mark hefði
verið þunghentari við hann þegar
hann sótti átta þúsundin — eða
öllu heldur sjö þúsund og fimm
hundruð — á hótelherbergið, þvi
að þetta var besti hálfi mánuður-
inn i lifi minu — lifi okkar.
Við höfðum aldrei verið eins
nátengd hvort öðru og eftir að ég
létti á hjarta minu — að svo miklu
leyti sem hægt er að gera það —
við Marianne um þá fortið sem
hafði staðið á milli okkar eins og
skuggi. Að visu var nú annar
skuggi framundan. Þaö voru
áhyggjurnar yfir þvi á hverju við
ættum von af Alexar hálfu, þegar
hann kæmi af sjúkrahúsinu. En
það vorum við saman um og það
tengdi okkur enn nánar i stað þess
að skál ja okkur að.
— Hvað ætlarðu að gera þegar
hann kemur aftur, Johs?
— Ég ætla ekki að gera neitt.
lialda mér við samninginn sem
við gerðum illu heilli.
— En ef hann heldur þvi fram,
að þú eða Mark hafi tekið pening-
ana af honum... að þú hafir fengið
Mark til að gera þetta?
— Þá neita ég þvi einfaldlega.
— En ef hann heldur það samt?
— bað er ekki nóg aö halda það,
eða hvað?
Ég vissi betur. Alex hafði alltaf
látið sér nægja það sem hann hélt
sjálfur. Það skipti meira máli en
það sem aðrir vissu. En það var
ástæðulaust að baka Marianne
frekari áhyggjur.
En annars töluðum við ekki
mikið um hann þesssar tvær vik-
ur. Við höfðum meiri áhuga hvort
á öðru og vorum saman allar okk-
ar fristundir. A hverju kvöldi ók
hún með mér út á suðurströndina,
þar sem ég óð út i og leit eftir
laxanetinu. Það kom i það horn-
fiskur og lúra, en aðeins einn ein-
asti lax og ekki sérlega stór held-
ur. En það var gott að eiga þetta
net til að vitja um og það var
notalegt að vita af henni uppi á
ströndinni á meöan, þar sem hún
rölti um og leitaði að rafi. Eitt
kvöldið fann hún stórt stykki með
fljúgandi skordýri innani — þann-
ig leit það út að minnsta kosti:
eins og það hefði festst i gullnum
klumpunum meðan það sveif um
á gegnsæjum vængjum.' Orsmi’ð-
urinn fullyrti að það væri vor-
fulga. Ég hafði notfært mér
fingrafimi æsku minnar til að
stela því af henni án þess að hún
SATT BEST AÐ SEGJA
stjórnarinnar á sinum tima.
Vegna pólitiskrar stöðu sinnar,
buðust honum og fjölmörg tæki-
færi framan af til að gera veru-
legt gagn. En hann var ekki i
stakkinn búinn og lágkúran og
skrumið náði yfirhöndinni, smátt
og smátt.
1 eldhúsdagsumræðunum um
daginn sveiflaði hann sér út úr-
tómarúmi stefnuleysisins og
gerði lýðum ljóst, að nú hefði
hann fundið sér hæfilegt og verð-
ugt hlutverk i islenskri pólitik, að
hann og hans spaka lið hefði
tileinkað sér hugmyndafræði
skattleysingjans.
Glistrup íslands
Pólitik undanfarinna ára hefur
haft uppá marga skemmtilega
tilburði að bjóða. Margir hafa t.d.
fylgst með þvi af töluverðum
áhuga hversu prófessor Bjarna
Guðnasyni hefur á tveim árum
tekist á yfirskilvitlegan hátt aö
tapa hverri vigstöðunni af
annarri á alþingi og glutra
bókstaflega niður allri pólitiskri
stöðu sinni. Ég er ekki i minnsta
vafa um að i upphafi ól prófessor
Bjarni með sér vissar pólitfskar
hugsjónir. sem m .a. iýsa sér i þvi
að hann átti þátt i myndun vinstri
Það er alltaf gleðiefni, þegar
menn ná landi eftir hrakningar,
en ég vil minna „vinstri” mann-
inn prófessor Bjarna Guðna og
allt hans harðsnúna lið á það, að
vinstri stjórnin hefur einsett sér
að auka verulega félagsleg
umsvif hins opinbera, og slikt
verður ekki gert nema meö
auknum tekjum rikissjóðs.
En Bjarna Guðna til huggunar
nær hann vafalaust hljómgrunni
á hægra kanti stjórnmálanna i
þetta sinn, eins og Glistrup af
Danmörku.
Miðvikudagur 31. október
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunstund barnanna kl.
8.45. Asdis Skúladóttir
endar lestur sögunnar um
„Astu litlu lipurtá” eftir
Stefán Júliusson( 4).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög á
milli liða. (Jr játningum
Agústinusar kirkjuföður kl.
10.25. Séra Bolli Gústafsson
i Laufási les þýðingu Sigur-
björns Einarssonar biskups
(1). Kirkjutónlist kl. 10.40.
Fréttir kl. 11.00. Morgunt.
leikar: I Solisti Vaneti leika
Concerto grosso eftir Corelli
/ Elfriedo Kunschak,
Vinzenz Hladky og Maria
Hinterleitner leika
Divertimento i D-dúr
fyrir mandólin og sembal
eftir Schlick. / Emmanuel
Koch, Paul Lambert og
Einleikarasveitin i Liege
leika Konsertsinfóniu eftir
Stamitz.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.000 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan: „Saga
Éldeyjar-lljalta" eftir
Guðmund G. Ilagalin.
Höfundur les (2)
15.00 Miðdegistónleikar: is-
lenz.k tónlist. a. Kvintett
fyrir blásara eftir Jón G.
Asgeirsson. Blásarakvintett
Tónlistarskólans leikur. b.
„Alþýðuvisur um ástina”
eftir Gunnar Keyni Sveins-
son. Söngflokkur undir
stjórn höfundar syngur. c. ,,
Esja”, sinfónia i f-moll eftir
Karl O. ltunólfsson.
Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur, Bohdan Wodiczko
stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurlregnir.
16.25 Popphornið.
17.10 (Jtvarpssaga barnanna:
„Mamma skilur allt” eftir
Stefán Jónsson. Gisli
Halldórsson leikari les (2)
17.30 Frainbuðarkennsla
bréfaskóla SÍS og ASÍ.
Spænska. Kennari: Magnus
G. Jónsson.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 verður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar
Veðurspá. Orð af orði. Nýr
umræðuþáttur undir stjórn
Ölafs Hanniblassonar.
19.45 llúsnæðis- og byggingar-
mál. Ólafur Jensson verk-
fræðingur sér um þáttinn.
20.00 Kvöldvaka. a.
Éinsöngur. Arni Jónsson
syngur lög eftir islenzka
höfunda. b. Ilaustið 1918.
Gunnar Stefánsson les
siðasta hluta frásögu Jóns
Björnssonar rith. c. Um
drauina. Gunnar Bene-
diktsson rithöfundur flytur
stutt erindi. d. Ljóðmál.
Hallgrimur Jónsson frá
Ljárskógum fer með frum-
ort kvæði. e. Svipasl um á
Suðurlandi. Jón K.
Hjálmarsson skólastjóri
talar við Þórð Tómasson
safnvörð i Skógum. f. Kór-
söngur. Karlakór Akur-
eyrar syngur undir stjórn
Askels Jónssonar. Guð-
mundur Jóhannsson leikur
á pianó.
21.30 Otvarpssagan: „Dverg-
urinn” eftir Par Lagcrkvist,
i þýöingu Málfriðár Einars-
dóttur. Hjörtur Pálsson les
(2).
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Um ber-
afla Bandarikjanna i
Kvrópu. Arni Gunnarsson
segir frá.
22.35 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir tón-
verk frá alþjóðlegri tón-
listarhátiö nútimatónskálda
i Keykjavik i vor;framhald.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
á\ á\
Miðvikudagur 31. október
18.00 Kötturinn Felix. Stutt
teiknimynd. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdótir.
18.10 Skippi. Ástralskur
myndflokkur fyrir börn og
unglinga. Kappaksturinn.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.35 Gluggar. Breskur
fræðsluþátlur með blönduðu
efni fyrir börn og unglinga.
Þýðandi og þulur Gylfi
Gröndal.
18.50 Ungir vcgfarendur.
Fræðsluþáttur um umferða-
mál fyrir börn á forskóia-
aldri.
19.00 lilé.
20.00 Frcttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Lif og fjör i læknadeild.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Éngin ósiðlegheit.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
20.55 Nýjasta tækni og vísindi.
Könnun auðlinda með gervi-
tunglum. liöfrungar.
Tilbúnir Skýstrokkar.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.25 Mannaveiðar. Bresk
framhaldsmynd. 14. þáttur.
Loforðið. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson. Elni 13.
þáltar: Vincent og Jimmy
vinna i nælurklúbbi i
Bordeaux ásamt Adelaide.
l^eir komast á snoðir um, að
Gestapo hyggist gera árás á
fundarstað andspyrnu-
manna, sem er vöru-
geymsla i eigu andspyrnu-
foringjans, AUards. Þeim
mistekst að ná sambandi
við Allard, en stúlka, sem
með þeim vinnur i klúbbn-
um,býðst tilaðfylgja þeim
til vöruskálans. Þegar
þangað kemur, reynist hún
hafaleitt þá i gildruGestapo
hefur umkringt staðinn.
Vincent segir Jimmy, að
hann sé orðinn uppgefinn á
stöðugum flótta og biður
hann að sjá um að hann
komist ekki lifandi i hendur
Þjóðverja. Þættinum lauk
svo með þvi, að Gestapo-
menn handtóku Vincent, en
Jimmy tókst ekki að skjóta
hann til ólifis.
22.15 Jóga til heilsubótar.
Myndaflokkur með kennslu
i jógaæfingum. Þýðandi Jón
O. Edwald.
22.30 Ilagskrárlok.
Flug
Fljúgum til Blönduóss og Siglufjarðar þriðjudaga —
fimmtudaga — laugardaga. kl. 1 1 00 f.h Aukaflug til
Blönduóss blla mánudaga
VÆIMGIR h.f.
Simar 26066 — 26060.