Þjóðviljinn - 31.10.1973, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. október 1973.
Lygarar
Framhald af bls. 1
mættu eitthvað gera eða ekki.
Það er mjög leiðinlegt ástandið
hérna, nákvæmlega eins og það
var áður en fært var út i 50 milur.
Ástandið hefur versnað til
muna siðan herskipin fóru, þvi
meðan þau voru hér á miðunum
'voru allir útlendingarnir á mjög
þröngum afmörkuðum svæðum.
Þetta má segja að hafi veriö
betra ástand fyrir okkur sjó-
mennina og fyrir fiskinn i sjón-
um.
Eftir að ráðherraviðræðurnar
voru ákveðnar, og varðskipunum
áreiðanlega bannað að skipta sér
nokkuð af þessu,er þetta alveg
nákvæmlega eins og þetta var
hérna áður: togararnir að veiðum
hingað og þangað og ekkert svæði
i rauninni friðað. Maður kemur
aldrei á neina slóð núna sem ekki
eru Bretar á.
Ég vil að það komi fram, að við
erum mjög óánægðir hérna á
miðunum út af þessu afskipta-
leysi varðskipanna og Land-
helgisgæslunnar. Og svo hitt, að
þegar verið er að bera svona til
baka kemur mjög leiðinlegur
tónn i menn hér. Það er verið að
reyna að gera okkur aö lygurum.
Siðan ræddum við stuttlega viö
Hermann Skúlason á Júliusi
Geirmundssyni. Hann var aö
veiðum á svipuðum slóðum og
Bessi og heyrði þvi hvað blaða-
manni og Jóhanni á Bessa fór á
milli.
— Ég er alveg samþykkur þvi
sem Jóhann sagði. Við erum farn-
ir að halda að þeir séu með eitt-
hvað annað i kollinum um þetta
friðaða hólf en okkur hefur verið
gefið upp. Þetta er orðið alveg ó-
skiljanleg framkoma, og maður
botnar ekkert orðið i þessu.
— Viltu senda landsfeðrunum
smá lexiu?
— Nei. Ég held að þeir séu ekki
þess verðir að eyða á þá orði. —úþ
Ted Willis
Framhald af bls. 6.
Miðjarðarhafs snertir viljum við
Bretar vera hlutlausir, og okkar
stjórn hefur lýst þvi yfir. En
erfiðleikarnir á þvi eru augljósir
þegar við höfum bæði bandarisk-
Við kynnum nýju útgáfuna af
ENCYCLOPEDIA
BRITANNICA
24 bindi i glæsilegu „White Imperial”
bandi.
Nýjasta útgáfan (1973) er nú fyrirliggj-
andi hjá okkur.
Miklar endurbætur.
Verð 59.850 kr.
Umboðsmenn Éncyclopedia Britannica á tslandi:
Bókaverslun Snæbjarnar
Hafnarstræti 4 & 9.
Sími 13133.
SnftbjörnIíón$$on&(ah.f
THÍ ENGUSH BOOKSHOP
250000
Þeir þarna i Heidelberg geta ekki látið það
vera að gorta svolitið. Nú eru þeir búnir að
framleiða 250 000 Heidelberg-prentvélar
og vilja að öll heimsbyggðin viti það.
Jæja, lesandi góður, nú veist þú það.
Það fylgir sögunni að þeir séu ekki bara
stærstu framleiðendur i heimi fyrir bóka-
pressur heldur lika ofset-pressur.
Þetta tilkynnist hér með öllum læsum
manneskjum, hvort sem þeim kemur það
við eða ekki. Það vantar ekkert, nema
biðja þá læsu um að segja þeim ólæsu frá
þessu.
Takmarkið er: Skuttogara, loðnudall og
Heidelberg-prentvél inn á hvert heimili.
Virðingarfyllst
STURLAUGUR JÓNSSON 6 CO.
SF.
Manneldisfræði
— Sjúkrafæða
Vegna mikillar eftirspurnar \hefst nýtt námskeið í
manneldisfræði og sjúkrafæði (megrunarfæði o.fl) mánu
daginn 5. nóv. Sérfræðingur annast kennsluna. Uppl. í
sima 86347.
ar herstöðvar — sem sennilega
eru búnar kjarnorkuvopnum — og
erum þar að auki i NATO. Þið
þekkið þetta líka, eruð þið ekki
líka i NATO? Við gætum hæglega
dregist inn I hernaðarátök að geð-
þótta Bandarfkjanna og fyrir
ákvörðun þeirra einna eins og
alltaf er hætta á við þetta ,,jafn-
vægi vopnanna”.
Öreigalávarður
— Eru lávarðar auðugir menn
sem fyrirlita alþýðuna?
Ted Willis móðgaðist ekki
nokkurn skapaðan hlut, en hló
dátt að fyrirspyrjanda.
— Spurningin kemur fram 100
árum of seint. Auk þess er hér um
það að ræða að skipa menn til æfi-
langrar setu i lávarðadeildinni
svo sem til að jafna á milli flokka.
Það er þá oft gert á grundvelli
einhverra verðleika.
Ég var til að mynda skipaður i
þetta stand fyrir einum 10 árum.
Ekki er ég auðugur maður, á eng-
ar veiðilendur og engan kastala.
Ég er eiginlega öreigalávarður,
og það segir sina sögu að flestir
heima kalla mig bara Lord Ted.
— Komstu ekki við sögu i þing-
kosningunum i Ástraliu?
— Jú, stendur heima, siðustu
kosningunum, en þær öllu þarna
straumhvörfum. Ég aðstoðaði vin
minn Gough Whitlam i kosninga-
baráttunni sem ræðuritari og
dvaldi þarna um 3ja mánaða
skeið.
Það er ekki að orðlengja það,
Verkamannaflokkurinn hlaut
meirihluta og Whitiam er nú for-
sætisráöherra. Þarna er mjög
merkileg pólitisk þróun að eiga
sér stað. Það má tala um leit
Ástraliumanna að sjálfum sér, og
á þeirri öldu þjóðlegrar vakning-
ar komst Whitlam til valda.
Eitt kjörorðið var ,,að kaupa
Astraliu aftur” vegna hinna
miklu eigna erlendra aðila, aðal-
lega breskra, bandariskra og jap-
anskra, i atvinnurekstri i landinu,
og svo itaka þeirra i jarðeignum,
sjálfu landinu. Nú er stefnt að þvi
að Astraliumenn eigi aldrei
minna en 60% i þeim tilfellum að
um einhverja erlenda eignarhlut-
deild sé að ræða.
Ég held að Astraliumenn og Is-
lendingar eigi margt sameigin-
legt, til dæmis þetta að vera svo
varir um sjálfstæði sitt. Gough
Whitlam er að minni hyggju mjög
mikilhæfur stjórnmálamaður og
mundi hafa orðið það i hvaða
landi sem hann hefði komið fram
i. Kannski islenska stjórnin gæti
boðið honum heim, næst þegar
hann á leið um Evrópu?
Talið barst að siðustu að rit-
verkum Ted Willis sjálfs. Sagði
hann að leikritið Hitabylgja sem
sýnt var hér hjá Leikfélaginu um
árið væri nú á fjölunum i Suður-
Afriku, i Buenos Aires og Madrid.
Og væntanlega væri það lika á
farandsýningu i Sviþjóð, það virt-
ist njóta þar mikilla vinsælda.
Nýjasta leikritið sitt væri saka-
málaleikrit, Morð á laugardegi.
Að vori væri væntanlegur póli-
tiskur reifari, þar sem borgar-
skæruliðar héldu forsætisráð-
herra Verkamannaflokksins i
gislingu.
Spurður kvaðst Ted Willis hafa
samið 21 sjónleik, handrit fyrir
30—40 leiknar kvikmyndir og 21
langan sjónvarpsþátt. Liklega
ætti hann heimsmetið i gerð sjón-
varpsþátta!
hj—
Fulltrúar
Framhald af bls 5.
Varafulltrúar:
1. Böðvar Pétursson
2. Eðvarð Sigurðsson
3. Gisli Þ. Sigurðsson
4. Hjalti Kristgeirsson
5. Guðmundur Ágústsson
& Guðrún Helgadóttir
7. Jóhann Kúld
8. Sigurður Breiðfjörð Þor-
steinsson
9. Edda óskarsdóttir
10. Guðmundur Þ. Jónsson
11. Ragnar Geirdal
12. Gunnar Karlsson
13. Sigurður Ragnarsson
14. Haraldur Steinþórsson
15. Ásgeir Blöndal Magnússon
16. Jón Hannesson
17. Þórhallur Eiríksson
18. Guðmundur Bjarnleifsson
Síldveiðin
í Norðursjó
K tímabllinu fra 22. til 27. október s.l. hafa eftir-
talln sfldveiðiskip selt afla sinn f Danmörku og Þýzkalandi:
Danmörk:
22. okt. jón Garðar GK.
22. n Rauðsey AK.
22. »» Þorsteinn RE.
22. " VÍ3ir NK. (ex Glssur hvíti SF. 1)
22. «• VfSir NK.
22. »• Heimir SU.
22. ii »»
22. •i Börkur NK.
23. »» Helga Guðmundsd. BA.
23. »» Svílan EA.
23. ii Svanur RE.
23. " Höfrungur III. AK.
23. »» Magnús NK.
23. »» Bjarni dlaíss. AK.
23. »* ólafur Sigurðss. AK.
23. ** Loftur Baldvinss. EA
23. ii Albert GK.
23. (» Grindvíkingur GK.
24. »» Skírnir AK.
24. " »»
24. " Guðmundur RE.
24. »» ii
24. •» Faxaborg GK.
24. " Héðinn ÞH.
24. " »»
24. " Vörður ÞH.
24. ii /Csberg RE.
24. " SkarBsvík SH.
24. n Talknfirðingur BA.
24. »» ii
24. " Faxi GK.
24. ii Dagfari ÞH.
24. " Keilvíkingur KE.
25. " Jon Finnsson GK.
25. »» »» •»
25. ii Óskar Magnúss. AK.
25. ii »» »»
25. okt, . Helga 11. KE.
25. " "
25. ii Örn SK.
25. »» Petur jónss. KÓ.
25. »» »» »»
25. " fsleifur VE.
25. »» n
25. •» ísleifur IV. VE.
25. »» Faxaborg GK.
25. i» Sveinn Sveinbjörnss,
25. •»
25. »» »1 »»
26. »» Hilmir SU.
26. " Grímseyingur GK.
Þyzkaland:
25. okt . Nattfari ÞH.
26. »» Sœberg SU.
Sfld
BrreOslusfld
§asial2
Magn Verðm. Verðm.
lestir: ísl.kr.: Pr- kg.:
69.3 2.178.425.- 31.43
84.1 2.635.619.- 31.34
71.4 2.140.871.- 29.98
21.6 661.045.- 3o. 6o
31.8 269.598.- 8.48
92.2 2.829.986.- 3o.69
7.7 58.833.- 7.64
6o. 5 1.922.711.- 31.78
64.9 2.068.634.- 31.87
75.8 2.438.898.- 32.18
7o.6 2.2o2.957.- 31.2o
38.3 1.164.558.- 3o.41
52.2 1.6o8.36o.— 30.81
82.0 2.541.006.- 3o.99
55.3 1.7ol.828.- 3o.77
94.1 3.157.185.- 33.55
82.o 2.733.169.- 33.33
97.7 3.144.852.- 32.19
82.9 2.312.684.- 27.9o
8.4 81.239.- 9.67
155.1 4.522.3o8.- 29.16
3.o 3o.897.- lo.3o
186.9 5.228.125.- 27.97
lo6.7 3.o62.ol9.- 28.7o
3.2 24.691.- 7.72
58.4 1.648.914.- 28.23
88.6 2.5o8.425.- 28.31
52.4 1.556.423.- 29.7o
62.9 1.76o.792.- 27.99
4.2 25.417.- 6. o5
52.7 1.455.141.- 27.61
62.4 1.746.574.- 27.99
64.4 1.797.121.- 27.91
93.9 2.557.947,- 27.24
3o. 9 251.764.- 8.15
lo2.o 2.8o7.523.- 27.52
9.5 76.o7o.- 8. ol
75.2 2.156.8o6,- 28.68
12.1 86.9ol.- 7.18
72.2 2.103.629.- 29.14
77.5 2.164.201.- 27.93
3.5 28.982.- 8.28
75.6 2.078.698.- 27.5o
3.2 18.772,- 5.87
48.1 1.294.161.- 26.91
38.2 877.658,- 22.98
2.6 25.955.- 9.98
7o.8 1.895.976.- 26.78
2.1 22.001.- lo.48
77.0 2.182.914.- 28.35
64.9 1.843.513.- 28.41
88.8 2.455.685.- 27.65
82.2 2.242.913,- 27.29
3.o51.8 122.2 89.39o.254.- l.ool.12o.- 29.29 8.19
___2§*á8
1) Brœðslusíld.
3) Afgangur fra deginum aður.
4) BræSsluafld, afgangur fra deginum aBur.
SamanburOur a sfldarsölum erlendis a þessu og a sfðasta ari:
1972: Tonn: 31.453.1 Kr. 444.986.18o.- 14.31 pr. kg.
1973: " 4o.236.3 " 1.000.880.624.- 24.88 " "
br.lú aflahcestu sfldvelBisklpln f ár er sera hér seglr,
fra' þvf síldveiSar hofust til 27. október s.l.:
Lestlr: Kr.: Pr. kg.:
1)
1)
1)
1)
1)
1)
1)
1)
1)
1)
1)
3)
4)
1)
Loftur Baldvlnss. EA.
Guðmundur RE.
Súlan EA.
2.268.2 6o.o4o.oo5.- 26.47
1.885.0 47.960.571,- 25.44
1.754.3 43.357.689,- 24.72
Háskólabölið
Framhald af bls 8.
deild okkar i getnaði og fæðingu
ófreskjunnar sem nú er i burðar-
liðnum og hótar að leggja gerv-
alla erfiðismenningu Islendinga i
rúst: grunnskólafrumvarpið.
(Það er þó lán i óláni hvað MTÓ
er svifaseinn).
Og svo bætum við gráu ofan á
svart með þvi að trúa og reyna að
láta aðra trúa þvi að hægindaseta
okkar á langskólabekkjunum hafi
ekki verið nægileg umbun fyrir
tiu til fjórtán ára styttingu starfs-
ævinnar. Sum okkar ympra jafn-
velá þeirri dólgslegu kenningu að
meta skuli menntun til fjár: að
maður sem hefur verið að skælast
i skóla hálfa ævina til þess að
undirbúa ævistarfið eigi að fá
hærri mánaðarlaun en ólærður
erfiðismaðurinn sem höndiaði
lifshugsjón sina sextán ára að
aldri og vinnur þjóð sinni gagn.
Hvilikur hroki!
Og er þá ótalið óráðsfleipur
sumra háskældra að erfiðisvinna
sé á góðri leið með að hverfa úr
sögunni, að framleiðsluferill
samfélagsins verði sifellt flóknari
og tæknivæddari, sem leiði af sér
að við þurfum á sifellt menntaðri
og langskólagengnari (ljótt orð
mundi Flosi segja) starfskröftum
að halda (jafnvel sérfræðingum,
gvuð fyrirgefi mér að nefna ó-
sómann).
Svona lymskufullur er áróður
hinna háskældu óþurftarmanna
gagnvart ómenntaðri alþýðu
(einkum til sveita) til þess að
telja henni trú um hvað þeir eru
mikilvægir.
Þeir eru annars furðu glaðlynd-
ir Mývetningar að geta spaugað
að þessu öllu saman.
Guðlaugur
Framhald af bls 5.
122, þar af 20 fulltrúar háskóla-
stúdenta.
Til gamans má geta þess að i
atkvæðagreiðslu stúdenta hlaut
Gylfi Þ. Gislason 102 stig, Gunnar
Thoroddsen 92 og Ólafur Jó-
hannesson 31 stig.
Snorri
á veiðar
Hinn nýi skuttogari Bæjarút-
gerðar Reykjavikur, Snorri
Sturluson, fer væntanlega á veið-
ar nú i vikunni. Að sögn Marteins
Jónassonar, forstjóra BOR, er
verið að ganga frá veiðarfærum
og einnig er verið að setja i hann
ballest.
Bjarni Benediktsson er kominn
á veiðar!!!
Bæjarútgerðin á enn einn tog-
ara i smfðum á Spáni, Ingólf
Arnarson, og er hann væntanleg-
ur tií fandsins um áramót. _jjh