Þjóðviljinn - 02.11.1973, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 02.11.1973, Qupperneq 1
UOBVIUINN Föstudagur 2. nóvember 1973 38. árg. 252. tbl. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON BlLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA Nýir Akureyrar- togarar: Svalbakur °g Sléttbakur Tveir togarar bættust i tog- araflota Akureyringa í gær, en þá komu til landsins færeysku togararnir sem Útgeröarfélag Akureyrar hefur fest kaup á. Þar meö gerir ÚA út 6 togara. Vilhelm Þorsteinsson, ann- ar tveggja forstjóra ÚA, sagði blaðinu að togarar þessir væru smiðaðir i Noregi siðast á ár- inu 1968 og á árinu 1969. Stærð þeirra er 834 tonn brúttó. Eig- andi þeirra til þessa hefur ver- iðpqrtafélagið Stella i Klakks- vik. Verð hvors togara fyrir sig er 11,4 miljónir norskra króna. ÚA gerði út fjóra togara, áð- ur en þeir færeysku komu til sögunnar. Það eru Kaldbakur, Svalbakur EA 2, Harðbakur EA 3 og Sólbakur. 1 febrúar i vetur var togaranum Sléttbaki lagt, og verður hann ekki gerður út aftur. Þessir togarar eru siðutogarar að Sólbak slepptum, en hann er fransk- smiðaður skuttogari, keyptur til landsins árið 1972. — Hugmynd okkar er að gera út þessi fjögur skip á- fram, sagði Vilhelm. — Þessir tveir togarar eru þvi viðbót. Hvort það tekst, það er önnur saga. Nýju skipin verða skirð Svalbakur EA 302 og Sléttbak- ur EA 304. —úþ Bruni á Blika- stöðum í gær kom upp eldur í heyhlöðu að Blikastöðum í Mosfel Issveit. Klukkan 18.10 var Slökkvi I ið Reykjavíkur kvatt á vett- vang og var þá allmikill eldur i hlöðunni. Ekki mun hlaðan hafa verið alveg full af heyi. Samkvæmt upplýsingum SlökkviIiðsins tókst fljót- lega að koma léttfroðu yf ir heyið og bægja frá hættu á að eldurinn breiddist út. Mikill reykur var frá eld- inum í byrjun, en hvarf, þegar léttfroðunni hafði verið komið yfir heyið. Myndin sýnir björgun fiðurfjár úr brunanum og ber með sér að björgunar- mennirnir voru ekki allir háir í loftinu. (Ljósm. AK) Flokfesráðsfundur- inn hefst í kvöld Ragnar Arnalds og Lúðvik Jósepsson flytja framsögurœður á kvöldfundinum Flokksráðsfundur Al- þýðubandalagsins hefst i kvöld kl. hálfniu. Verður fundurinn haldinn i Þing- hóli i Kópavogi. Flokksráð Alþýðubandalagsins skal koma saman til funda a.m.k. einu sinni á ári þau árin sem landsfundir eru haldnir, en landsfundir skulu haldnir á þriggja ára fresti hið minnsta. Flokksráð er kosið beint i hinum einstöku Alþýðubandalagsfélög- um. Alls eru um 90 félagar i flokksráði. Flokksráð kýs mið- stjórn og markar stefnu i veiga- miklum málum, þannig að flokksráðið er á ýmsan hátt að- eins smærri mynd landsfundar, sem þó getur einn breytt lögum flokksins og hann velur formann, varaformann og ritara flokksins, Á fyrsta fundi flokksráðsins i kvöld verða kosnir starfsmenn fundarins og þeir Ragnar Arnalds og Lúövik Jósepsson flytja yfir- lits- og framsöguræður. Mun for- maður flokksins flytja yfirlit um störf flokksins á liðnu ári og verk- Kagnar Arnalds efnin framundan. Þá mun Itagn- ar fjalla sérstaklega um barátt- una fyrir auknu jafnrétti og lýð- ræði. Ræða sjávarútvegsráðherra mun fjalla um þróun landhelgis- málsins og efnahagsmállin. Að loknum framsöguræðunum l.úövik Jóscpsson hefjast almennar umræður. Fundur hefst svo að nýju kl. 10 i fyrramálið með framsöguræðu Magnúsar Kjartanssonar. Hann ræðir sjálfstæðismálin og þróun islenskra atvinnuvega. Ráðgert er áð flokksráðsfundinum ljúki á sunnudagskvöld. (iisli (iuömundsson viö tal- sliiöina i vigtarskúrnuni. Gisli á Sú»anda: ,Þar voru tveir djöflar Gisli (iuömundsson frélta- ritari okkar viö Súgandafjörö hlustar alla daga á hátana I talslööinni, og þvi hringdum viö vcstur i gær aö fá hjá hon- um upplýsingar um ásland inála á Vcstfjaröamiöum. Gisli sagði: — Eg talaði við Sigurvon áðan, en hún var 30 milur i norður frá Súgandafirði, og þar var enginn andskotans togari, sagði stýrimaðurinn. Ólafur Friðbertsson var norðvestur að vestri frá Súg- andafirði, 30—35 milur, og þar var enginn togari heldur. Guðrún Guðleifsdóttir var nokkuð norðar en Sigurvon; þar var ekkert skip sjáanlegt. Kristján Guðmundsson var á Hornbanka, sama stað og i gær, og þar voru tveir djöflar. Mimir var norðan til við Guðrúnu Guðleifsdóttur. Þar var engan togara heldur að sjá, og Bragi frá Flateyri var 16 sjómilur norövestur af Barða og þar var friður og ró. Togararnir eru mest á ör- bylgjunum og i þeim heyri ég ekki og þeir ekki til min. —úþ IRSKIR FANGAR FLÝJA DUBLIN 1/11 — Lögregla og her- menn i trska lýðveldinu leita nú ákaft að þrem foringjum frá stærsta fangelsi Dublin. Flóttinn varð með þeim hætti að félagar IRA-foringjanna rændu þyrlu, neyddu flugmanninn til að lenda i fangelsisgarðinum og hirtu þaðan fangana. Einn þeirra er Seamus Twoney, áður foringi IRA i Bel- fast. öfíugur vörður hefur verið settur á landamæri Norður-ír- lands og i hafnir til að koma i veg fyrir að fangarnir komist úr landi. FISHING NEWS: Frystiflotinn í Grims- by tvöf aldaður I því kunna breska blaði Fishing News birtist tuttugasta og sjötta október s.l. frétt þess efnis, að í vik- unni þá á undan hefði sam- band breskra togaraeig- enda lýst því yfir að frysti- skipafloti þess, sem gerður er út frá Grimsby yrði tvö- faldaður. Eins og sakir standa, gera breskir togaraeigendur út þaðan fimm slik skip (það sjötta hefur ekki veriö gert út um nokkra hriö). Nú á aö yfirfæra til borgar- irinar þrjú frystiskip frá Hull. Þessi þrjú skip bera jafn stór- kostleg nöfn og Illustrious, Invin- cible og Implacable. Þá eru i byggingu tvö ný frysti- skip, að nafni Roman og Goth, sem einnig á aö gera út frá Grimsby. Það fylgir með sögunni að þessari stækkun frystiflotans verði fagnað af mörgum aðilum innan iðnaöarins i borginni. Fisk- kaupmenn og aðrir, sem annast dreifingu á fiski, óska i sivaxandi mæii eftir fiski, sem frystur er i skipum út á sjó. Fyrirtæki eins og þau, sem reka kæligeymslur, hafa lika áhuga á þessu, og þetta er liklegt til þess að auka eftir- spurn eftir vinnuafli i þessa grein. Þessu á einnig að fylgja vaxandi atvinna fyrir sjómenn, þar eð togaraeigendur segja að hin nýju skip verði mönnuð frá Grimsby. Samband breskra togaraeig- enda (British United Trawlers) er dótturfyrirtæki fiskiðnaðar- hringsins Associated Fisheries Ltd. og gerir nú út tuttugu og fjóra frystitogara, þar af átján frá Hull.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.