Þjóðviljinn - 02.11.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.11.1973, Blaðsíða 3
Föstudagur 2. nóvember 1973 ÞJÓÐVILJINN — StDA 3 Trimm- fundurinn haldinn í kvöld í kvöld kl. 21 hefst i Norræna húsinu fundur sá um trimm sem íþróttakennarafélag tslands gengst fyrir. Fundur þessi er öll- um opinn, og aö loknum ræiium frummælenda, sem verða Sigurð- ur Magnússon úthreiðslustjóri ÍSÍ og Sigurdór Sigurdórsson iþróttaf réttamaður, er öilum frjálst að taka til máls. Ekki er að efa að fundur þessi verður hinn fróölegasti, enda hafa menn ekki verið á eitt sáttir um framkvæmd trimm-herferð- arinnar. og um velgengni al- menningsiþrótta hér á landi. Sumir segja að allt sé i lagi, aðrir að ekkert hafi áunnist. Er skorað á allt áhugafólk um almennings- iþróttir að mæta og láta i ljós álit sitt á þessum málum. Aðeins einn skósmiður norðanlands Blaðið Dagur á Akureyri segir þær fréttir nýjastar um fækkun i skósmiðastéttinni að nú sé aðeins einn starfandi skósmiður á öllu Norðurlandi. Þaö er heiðursmað- urinn Oddur Jónsson sem hefur verkstæði sitt i Brekkugötu 13 á Akureyri. Oddur er Svarfdæling- ur að ætt og hefur stundað iðn sina i meira en hálfa öld. Nú á timum gróðafiknar og skattsvika er Oddur orðinn hálf- gerð þjóðsagnapersóna fyrir lágt verðlag á vinnu. bykir mörgum að honum svipi helst til Björns i Brekkukoti, sem hafði annan mælikvarða á peninga en bankar og kaupmenn. Nýtt verð á hörpudiski Verðlagsráö sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lág- marksverö á hörpudiski frá 1. nóvember til 31. desember 1973: Hörpudiskur i vinnsluhæfu á- standi, 7 cm á hæð og yfir, hvert kg. kr. 12.20. Verðið miðast við, að selj- andi skili hörpudiski á flutnings- tæki við hlið veiöiskips, og skal hann veginn á bilvog af löggiltum vigtarmanni á vinnslustaö, og þess gætt, aö sjór fylgi ekki með. Verðið miðast við gæða- og stærðarmat Fiskmats rikisins og fari gæða- og stærðarflokkun fram á vinnslustaö. (Fréttatilk. frá verðlagsráði sjávarútvegsins) Gunnars- rímur Komnar eru út hjá Isafoldar- prentsmiðju Rimur af Gunnari á Hliðarenda eftir Sigurö Breið- fjörð. Um þessa útgáfu sá Svein- björn Beinteinsson skáld og alls- herjargoði. Gunnarsrimur eru 20 rimur og hefur Jóhann Briem myndskreytt þessa útgáfu. Rimurnar orti Sig- uröur Breiðfjörð veturinn 1836. Gunnarsrimur eru 6. bindið i Rimnasafni sem Isafoldarprent- smiðja gefur út. Eiðsgranda- samkeppni Borgarráð hefur kosið þrjá menn i dómnefnd til að dæma i samkeppninni, sem fyrirhuguö er um húsagerð á Eiðsgranda, þar sem byggja á keðjuhús og fjöl- býlishús með stallagerð. 1 dómnefndinni eru Hilmar Guðlaugsson, Gisli Halldórsson og Gunngeir Pétursson. SÝNING á verkum ásmundar Yfirlitssýning á listaverkum Asmundar Sveinssonar q^yndhöggvara stendur yfir i Lista- safni rikisins. Aðsókn hefur verið góð, enda er þarna gott tækifæri til að kvnnast verkum Ásmundar. Langt er siöan sum þeirra hafa komiö fyrir almenningssjónir. Sýningin verð- ur opin fram i miðjan nóvembcr. (Ljósm. A.K.) Laxveiðikœran á Vopnafirði: Málið fellt niður Laxveiði ísjó við Vopnafjörð enn heimil Eins og menn eflaust muna sá maður nokkur í sumar laxa i frystihúsinu á Vopnafirði með augljósum netaförum á. Kærði sá málið/ og var stuttu siðar skipaður setudómari í mál- inu, Freyr ófeigsson frá Akureyri. Hóf hann þegar rannsókn, og kom þá i ljós eftir vitnaleiðslu að bóndinn á Hámundarstöðum, sem enn hefur leyfi til laxveiöa i sjó, hafði lagt þennan lax inn i frysti- húsið. Voru lögð fram sönnunar- gögn fyrri þvi að hann hefði lagt laxinn inn i frystihúsiö. í bréfi Freys Ófeigssonar til saksóknara telur hann ekki á- stæðu til frekari aðgerða i máli þessu eins og kæru er háttað, og var málið þar með fellt niður. Þá var og tekið fyrir annað mál, sem einnig snertir laxveiði bóndans á Hámundarstöðum i sjó frá árinu 1972, en það mál var einnig fellt niður, en það geröi saksóknari eftir að hafa fengið i hendur gögn frá F'rey Ofeigssyni, sem einnig rannsakaði það mál. Snerist það um kæru vegna meints ólöglegs veiðiútbúnaðar. Bóndinn á Hámundarstöðum hefur eins og áður segir leyfi til laxveiða i sjó. Arið 1932 voru sett lög sem bönnuöu slika veiði, en nokkrum mönnum sem stundað höfðu veiði á laxi i sjó var þó gefin undanþága til að stunda hana á- fram.enda legðu þeir fram sann- anir, svo sem skattskýrslur og fleira, fyrir þvi, að þeir hefðu stundað þessar veiðar. Smám saman hefur svo þessi veiðirettur verið keyptur af þeim, er hann höfðu, af veiðiféíögum viðkomandi áa. Mun bóndinn á Hámundarstöðum vera sá siðasti hér á landi sem hefur leyfi til lax- veiða i sjó. Þess má að lokum geta, að i bréfinu til saksóknara er bent á hvort ekki sé ástæða til að kaupa upp veiðiréttindi bóndans og myndi veiðiiélag viðkomandi ár gera það. —S.dór Basar í Blindraheimilinu Basar veröur haldinn I Blindraheimilinu að Hamrahllð 17 laugardaginn 3. nóvember kl. 2. Þar veröur margt góöra muna, t.d. handavinna blindra og styrktarfélaga, svo sem prjón- les, púöar og margskonar annar varningur, lukkupakkar, skyndihappdrætti og heima- bakaðar kökur. Styrktarfélagar standa fyrir basarnum og ágóðinn rennur til nýbygging- ar blindrafélagsins, Myndin sýnir hluta af þeim varningi sem verður á basarnum. Ofull- nœgjandi eldvamir a Hótel Borg Eldvarni á Hótel Borg eru allsendis ófullnægjandi að áliti slökkviliðsstjóra og eru það fyrst og fremst reykvarnar- hurðir sem vantar. Þetta kom fram á borgar- ráðsfundi á þriðjudaginn, þar sem samþykkt var framleng- ing veitingaleyfis fyrir Hótel Borg og Hótel Sögu. Mætti slökkviliðsstjóri á fundinum af þvi tilefni, en það sem hann á- taldi i sambandi við eldvarnir á við hótelið sem slfkt, en ekki veitingasali. —vh Hrggjasi hœtta tryggingu innanstokks muna Borgarráð ihugar nú að hætta tryggingu innanstokks muna og annarra lausafjár- muna i stofnunum borgarinn- ar nema við sérstakar aðstæð- ur, þar sem er um að ræða mjög dýran búnað, einsog l.d. á sjúkrahúsum. Var þetta rætt á siðasta fundi borgarráðs i sambandi við greinargerð hagskýrslu- stjóra borgarinnar um trygg- ingar á innanstokksmunum, en þar kemur i ljós, að borgin tryggirslika muni árlega fyrir samtals 517 miljónir og nema iðgjaldagreiðslur 1.625.000 krónum. Tjónagreiöslur hafa ekki numið nema óverulegri upphæð, rúmlega 112 þús. kr. á 4ra ára timabili, frá 1. jan. 1968 til ársloka 1971, eða tæpum 7% af iðgjaldagreiðsl- um eins árs. Aksturs- greiðslur r l stað styrkja 1 ráði er að breyt fyrirkomu lagi á endurgreiðslum fyrir afnot borgarinnar af bifreið um i eigu starfsmanna, þannig að i stað bilastyrkja komi akstursgreiðslur. Stendur til að athuga, hve mikið starfs menn aka raunverulega i þágu borgarinnar og hefur borgar ráö i meginatriðum fallist á greinargerð hagskýrslustjóra og forstöðumanns Vélamið stöðvar um þetta efni og falið þeim að leggja endanlegar til lögur um málið fyrir borgar ráö. Er gert ráð fyrir að breyt ingarnar verði um ármótin 1974-75.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.