Þjóðviljinn - 02.11.1973, Page 6

Þjóðviljinn - 02.11.1973, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. nóvember 1972 MOWIUINN MÁLGAGN SÓSiALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiösia, auglýsingar: Skóiav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Áskriftarverð kr. 360.00 á mánuöi Lausasöluverö kr. 22.00 Prentun: Blaöaprent h.f. MIKIÐ ER í Hl)FI Flokksráð Alþýðubandalagsins, sem i eiga sæti nær 100 fulltrúar úr öllum kjör- dæmum landsins kemur saman til fundar i Kópavogi i kvöld, og þar verður þingað yf- ir helgina. Milli landsfunda er það flokks- ráðið, sem fer með æðsta vald i málefnum Alþýðubandalagsins og tekur ákvarðanir um störf og stefnumótun. Þegar flokksráðið kemur nú saman eru pólitiskar aðstæður með þeim hætti, að taka verður til meðferðar og ákvörðunar málefni, sem vissulega eru vandmeðfarin og erfið úrlausnar. Alþýðubandalagið hefur nú átt aðild að rikisstjórn nokkuð á þriðja ár, og vissu- lega hefur margt áunnist, svo sem veru- lega bætt lifskjör launafólks og glæsileg atvinnuuppbygging um land allt, og þá, ekki sist sú breyting sem orðin er frá nið- urlægingu viðreisnaráranna á sviði utan- rikismála og varðandi allt, sem lýtur að samskiptum við erlend herveldi og auð- hringa. En margt er eftir að framkvæma af þvi, sem rikisstjórnin setti sér i upphafi, og tvö af veigamestu baráttumálum Alþýðu- bandalagsins eru enn i deiglu, þ.e. land- helgismálið og herstöðvamálið. Samstaða i rikisstjórninni hefur yfirleitt verið góð, og yfir timabilið i heild i raun- inni betri en hægt er að búast við, þegar þrir ólikir stjórnmálaflokkar starfa sam- an. En hinu er ekki að neita, að atburðir siðustu vikna i landhelgisdeilunni hafa varpað nokkrum skugga á þetta góða samstarf. Alþýðubandalagið átti ekki hlut að þeim tilboðum til Breta, sem ólafur Jóhannesson forsætisráðherra setti fram i London, og hefur hann reyndar tekið skýrt fram sjálfur á opinberum vettvangi, að á- kvörðun um þau tilboð hafi hann tekið einn á eigin ábyrgð, án samráðs. Þjóðviljinn hefur ekki ásakað forsætis- ráðherra um landráð af þessum ástæðum, eins og Morgunblaðið heldur fram. Vissu- lega geta bæði einstaklingar og stjórn- málaflokkar metið stöðuna i deilu við sameiginlegan andstæðing nokkuð ólikt og einn talið að meiru sé fórnandi fyrir bráðabirgðasamkomulag en annar, enda þótt báðir stefni heils hugar að sama marki. Það er ekkert launungarmál, að Al- þýðubandalagið er ekki sátt við þann „samkomulagsgrundvöll”, sem Bretar hafa boðið. Þess vegna hefur af Alþýðu- bandalagsins hálfu verið lögð á það mikil áhersla að knýja fram breytingar á upp- kastinu og fá fram skýringar á þeim atrið- um, sem óljós eru. Hver niðurstaðan verð- ur i þeim efnum liggur enn ekki ljóst fyrir. Hegðun landhelgisbrjótanna nú undan- farna daga hér á miðunum meðan á samningaþófinu hefur staðið gefur vissu- lega ekki tilefni til bjartsýni um nokkra sanngirni af Breta hálfu, og vist er um það, að furðulegt athafnaleýsi landhelgis- gæslunnar að undanförnu verður ekki til að gera gallaðan samkomulagsgrundvöll aðgengilegri. Við þessar aðstæður kemur það i hlut flokksráðsfundar Alþýðubandalagsins að móta stefnu og ákvarðanir flokksins fyrir næstu daga og vikur. Hér skal aðeins á það minnt, að innan fárra mánaða fæst úr þvi skorið, hvort fyrirheitið i stjórnarsáttmál- anum um brottför hersins af Keflavikur- flugvelli nær fram að ganga. Það fyrirheit er einn af hornsteinum stjórnarsam- starfsins, og horfur um framgang þess máls hljóta að ráða miklu um niðurstöður Alþýðubandalagsins nú. Þing Alþýðusambands Vestfjarða: Verulega laimahækkun til þeirra lægst launuðu Dagana 20. og 21. október var haldið á ísa- firði 21. þing Alþýðu- sambands Vestfjarða. Þingið sóttu fulltrúar frá flestum verkalýðsfélög- um á Vestfjörðum. I stjórn Alþýöusambands Vest- fjarða voru kjörnir: Pétur Sigurösson lsafiröi, for- seti, Björgvin Sighvatsson Isa- firði, varaforseti, Guðm. Friðgeir Magnússon Þingeyri, ritari, Bjarni L. Gestsson tsafiröi, gjald- keri, Hörður Snorrason Bolunga- vik, meðstjórnandi, og vara- menn: Karvel Pálmason Bolungarvik, Pétur Pétursson tsafirði, Hendrik Tausen Flat- eyri. Hér fer á eftir samþykkt þings- ins um kjaramál, en öðrum álykt- unum mun Þjóöviljinn gerá skil siðar: Að tryggja vaxandi kaupmátt launa ,,21. þing Alþýðusambands Vestfjarða itrekar fyrri sam- þykktir sinar, um nauðsyn þess að kaupgjaldsbarátta launþega- samtakanna og efnahagsstefna rikisvaldsins beinist fyrst og fremst að þvi takmarki, að tryggja öruggan og vaxandi kaupmátt launa, samfara fjöl- þættri og stöðugri atvinnu um allt land. Reynslan hefur leitt þaö i ljós, að á timum verðþenslu og ört vaxandi dýrtiöar minnkar til muna hlutdeild launþeganna einkum láglaunastéttanna i þjóð- artekjunum, þessi þróun hefur enn haldist þrátt fyrir góðan árangur i samningunum 1971. Þingið bendir á að enn skortir mikið á, að umsaminn dagvinnu- timi nægi til aö tryggja meðalfjöl- skyldu lifvænlega afkomu. 21. þing A.S.V. skorar á Alþingi aö breyta lögum um almanna- tryggingar á þann veg, að greiðslur úr lifeyrissjóðum, sem næmu allt að 50.000,00 krónum á ári hjá einstakling, verði ekki dregnar frá tekjutryggingar- ákvæöum laganna. 21. þing A.S.V. lýsir ánægju sinni yfir að kjör sjómanna hafa batnað vegna hækkaös fiskverðs og leiöréttingu á skeröingarlög- unum frá 1968. Þingið minnir þó á, að enn rennur hluti af brúttó- aflaverðmæti til útgerðarinnar og kemur ekki til skipta. Þingið skorar á stjórnvöld að hlutast til um, að þessi skerðingarákvæði laganna verði felld niður með öllu. Þrátt fyrir hækkað fiskverð vill þingið benda á, að steinbitur og koli eru þýðingarmikið hráefni i vestfirskum fiskiðnaöi og seljast fyrir gott verö á erlendum mörk- uöum. Telur þingið aö verðlagn- ing þeirra sé ekki sambærileg við aðrar fisktegundir og skorar á Verðlagsráö sjávarútvegsins að leiörétta þaö við næstu verö- ákvörðun. Sérstaka hækkun til fólks i fiskiðnaði 21. þing A.S.V. lýsir stuðningi sinum við framkomnar tillögur frá annarri kjaramálaráðstefnu A.S.t., sem haldin var i Reykja- vik 12. og 13. okt. sl. Sérstaklega leggur þingið á- herslu á eftirfarandi: 1. Verulega launahækkun til þeirra lægst launuðu. 2. Sérstaka hækkun til fólks sem vinnur i fiskiðnaði. 3. Kauptryggingu timavinnu- fólks. Þingið telur að ef þessar kröfur ásamt skattfriðindum verka- fjólks i fiskiðnaði næðu fram að ganga, myndi það hamla gegn si- vaxandi flótta verkafólks frá þessum undirstööuatvinnuvegi þjóðarinnar. 21. þing A.S.V. telur að stjórn- völd þurfi að gera róttælcar að- gerðir til úrbóta i húsnæöismál- um á Vestfjörðum. 21. þing A.S.V. skorar á þau að- ildarfélög, sem fara með samn- inga sjómanna og væntanlega stjórn sambandsins, að móta sem fyrstkröfur þær, sem lagðar yrðu fram i væntanlegri samningsgerö á milii sjómanna og útgerðar- manna. 21. þing A.S.V. mælir meö framkominni .tillögu um að ár- gjöld félagsmanna verði innheimt i hlutfalli af launum og felur væntanlegri sambandsstjórn að vinna aö þvi aö þetta fyrirkomu- lag verði tekið upp innan félaga A.S.V. sem fyrst”. SOLUSTAÐIR: Hjólbaröaverkstæöiö Nýbaröi/ Garöahreppi, simi 50606. Skodabúöin, Kópavogi, sími 42606. Skodaverkstæöiö á Akureyri h.f. sími 12520. Menningarengsl íslands og Ráðstjórnar- rikjanna — Tónleikar sovéskra listamanna i Austurbæjarbiói þriðjudaginn 6. nóvember 1973 kl. 19. Listamennirnir eru: Oleg Ptukha, ba^sasöngvari frá Moskvu Valdis Zarinsj, fiðluleikari frá Lettlandi N. Illjúkevitsj, pianóleikari frá Moskvu. Flutt verða m.a. verk eftir: Tsjækovski, Músorgski, Sjostakovitsj, Glier, Rak- hmaninof, Khatsjatúrjan, Jurjan, Vitlos, Glinka og Sviridof. Aðgöngumiðasala hjá Máli og menningu, Laugavegi 18. MÍR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.