Þjóðviljinn - 02.11.1973, Side 16

Þjóðviljinn - 02.11.1973, Side 16
MQBVIUINN Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöld-, nætur- og helgarþjón- usta lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna 2. til 8. nóvember verður i Garös Apóteki og Lyfjabúðinni | •M Kvoldsími blaoamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Iðunn. Föstudagur 2. nóvember 1973 Slysavaröstofa Borgarspítalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. NÝ SPRENGJA l_ WATERGATEMÁLimh Þýðingarmestu segulbands- spólurnar „voru aldrei til WASHINGTON 1/11— Eft- ir að Nixon forseti hefur í þrjá mánuði reynt að kom- ast undan því að afhenda segulbandsupptökur á við- ræðum við nána samstarfs- menn sína um Watergate- málið kemur hann nú með þá furðuiegu yfirlýsingu, að tvö þau samtöl sem mestu skipta hafi í reynd aldrei verið tekin upp á segulband. Nixon bar þetta á borð fyrir lögfræðinga sina i gær. Hér er um Góðar viðtökur við •>•> .^ií-»niin ti r>r Síðdegisstund Ahorfendur. — Svona Htur fólk út, þegar tekin er af þvl ljósmynd i myrkri. (Ljósm. A.K.) Þeir þurftu ekki aö kvarta yfir viðtökum almennings við „Siðdegisstundinni” i gær, Leikfélagsmenn. Allir miðar seldust upp i gærdagjOg þegar blaðamaður leit þar inn virt- ust áhorfendur hinir ánægö- ustu með söng fjórmenning- anna Böðvars Guðmundsson- ar, Kristinar ólafsdottur, Kjartans Ragnarssonar og Kristins Sigmundssonar. Eins og skýrt hefur verið frá var þessi nýbreytni i Iðnó einkum miðuð við þaö fólk sem vinnur i miðbænum. Þar virðast aðstandendur hafa hitt I mark þvi blaöið fregnaöi t.d. að einn og sami maöurinn hefði keypt 60 miöa! Var aug- ljóst aö þar var um samtök á vinnustaö aö ræða. Fjórmenningarnir sungu eigin lög og þjóðlög við ýmis þekkt kvæði. Má þar nefna Kommúnistaflokkur Islands in memoriam eftir Stein Stein- arr, Jesús Mariuson eftir Jó- hannes úr Kötlum, Svarkurinn eftir Grim Thomsen o.fl. Leikfélagið áformar aö hafa slikar siödegisstundir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, og veröi viðtökur i framtiðinni svipaðar þeim sem voru i gær má búast við aö fljótlega verði farið aö heimta fleiri sýning- ar. —ÞH Af Vestfjarðamiðum: Þegar þeir telja 6 teljum við 36! Skipstjóri á togaranum Bessa er Jóhann Símonar- son, og i gær var hann staddur á Vestfjarðamið- um og þangað hringdum við í hann. — Það er fátt um Breta þar sem við erum, sagði Jóhann. Þeir eru á Kögurgrunninu 30 milur frá landi. Þóeru nokkrir hér, en aðal- lega eru þetta Þjóðverjar. Við er- um á Halanum, 40—42 milur frá landi. — Hefurðu nokkrar fréttir af friðaða svæðinu? — Nei, ekkert siðan i fyrrinótt. Þá kom þangað varðskip sem stuggaði við Bretunum, sem höfðu verið þar i næði i fyrradag. Það var mikill fiskur þar. Islend- ingarnir viluðu þaö ekkert fyrir sér að fylgja Bretunum eftir inn- fyrir friðaða svæðið. Einhverjir Bretar komu svo beint þaðan og hingað. Við Vestfirðingar viljum að fé- lagasamtökin hér vinni að þvi að túlka það sjónarmið okkar að viö séum andvigir þessu samninga- makki sem nú er verið að fara i, við viljum heldur láta þetta vinn- ast með þvi móti, sem hefur dug- að okkur hingað til. Við viljum að alþjóð fái að sjá hvernig haldið hefur verið á mál- unum hérna, sérstaklega varö- andi þessi friðuðu hólf. Það er dá- litið sárt fyrir okkur, að verða fyrir vegg i þessum friðuðu hólf- um, þar sem Bretarnir fara hindrunarlaust innfyrir, þvi þeg- ar fiskur gengur hér gengur hann vanalega vesturum og hverfur þarna inn i hólfið, þar sem útlend- ingarnir leika lausum hala. Þeg- ar gangan er komin austurfyrir hólfið, er hún vanalega búin. Það er andskoti hart að snúa bakinu i fiskinn og keyra frá þegar hvergi annars staöar er fiskur og horfa á útlendingana sleikja þetta upp. Annars er það okkar vilji að það verði ekki úlfúð og illindi á milli Landhelgisgæslunnar og okkar. Þarna hefur eitthvað farið úr- skeiðis, þar sem Landhelgisgæsl- an reyndi að bera sannleikann til baka, eins og allir hérna hafa órð- ið varir við. Fyrir okkur vakir ekki það að gera læti og háreisti út af þessu, hitt viljum við fá að vita, hvaðan þetta misræmi i frá- sögnum kemur, þvi þegar Land- helgisgæslan telur hér 6 erlenda togara, höfum við hér skipstjóra sem telur 36 erlenda togara á sama tima. Þá var heldur ekkert varðskip á staðnum. —úþ að ræða samtöl, sem Nixon átti við þá John Mitchell fyrrum dómsmálaráðherra og John Dean, sem stjórnaði kosninga- baráttu Nixons i fyrra. Þeir höfðu báðir borið það fyrir Watergate- lefnd þingsins, að i þessum sam- :ölum hafi það komið fram að Vixon fylgdist með tilraunum til að kveða Watergatemálið niður, an nú hefur þvi sem sagt verið ;ýst yfir, að sönnunargögn séu akki til. Segulbandsupptökurnar tvær sem nú er sagt að aldrei hafi verið til voru taldar skipta mestu máli af þeim niu sem Archibald Cox var rekinn frá rannsókn málsins fyrir að krefjast i sinar vörslur. Nixon lét siðan undan miklum mótmælahrópum gegn þessari afgreiðslu og lofaði að afhenda John Sirica dómara spólurnar til að hann gæti kynnt sér þær bak við luktar dyr. Sam Ervin formaður Water- gatenefndar öldungadeildar þirfgsins hefur skýrt svo frá, að hann hafi i fyrra mánuði fengið staðfestingu á þvi i Hvita húsinu að ofangreindar upptökur væru til. Sömu upplýsingar hefði Cox fengið. Enginn býst við ööru en þessi nýju tiðindi verði til þess að magna nýja öld mótmæla gegn framferði Nixons. Að sjálfsögðu spyrja menn fyrst af öllu hvernig i ósköpunum standi á þvi að svo lengi hafi dregist að tilkynna að áðurnefnd samtöl væru ekki tii á spólu. Einn af ráðgjöfum Nixons hefur gefið þá skýringu, að samtalið við Dean hafi ekki verið tekið upp vegna bilunar i tækjabúnaði og að samtalið viö Mitchell, sem átti sér stað nokkrum dögum eftir innbrotið i Watergate hafi farið fram um sima sem ekki var i sambandi við upptökutæki. Nýir menn Nixon útnefndi i dag Leon Jaw- orski lögfræðing frá Texas nýjan rannsóknardóióara i Watergate- málinu. Hefurhonum verið heitið þvi að hann fái að hafa frjálsar hendur um rannsókn málsins og að ekki megi vikja honum frá, nema samþykki leiðtoga þing- flokkanna komi til. Um leið skip- aöi Nixon William Sabe, öldung- ardeildarþingmann frá Ohio dómsmálaráðherra í stað Richardsons, sem sagði af sér þegar Cox var rekinn frá rann- sókn Watergatemálsins á dögun- Olíubann á Holland setur EBE í klípu LONDON 1/11 Krafa Hollands um jafna dreifingu á þeirri oliu sem berst til aðildarrikja Efnahags- bandalagsins hefur sett EBE i mikinn vanda. Utanrikisráöherra Hollands, van der Stoel, bar þessa kröfu fram i gær, eftir að sex Arabaríki höfðu lýst oliusölu- banni á Holland vegna þess að það hefði stutt tsrael I striðinu, og i dag bættist Saudi-Arabia við. Þaðan hafa komið 25% af þeirri oliu sem Holland kaupir. Bæöi Frakkland og Bretland eru litt hrifin af þvi að taka undir hjálparbeiðni Hollendinga vegna þess að Arabarikin mundu telja bað ögrun við sig og breyta eftir þvi. Oliusölubannið til Hollands kemur reyndar fljótlega viö kaun fleiri en Hollendinga sjálfra, þvi Rotterdam er ein helsta innflutn- ingshöfn á olíu fyrir Beneluxlönd- in og Vestur-Þýskaland. Sendi- herra Libýu i Bonn hefur þegar varað stjórn Brandts við þvi, að þaö gæti teflt oliuinnflutningi Vestur-Þýskalands i voða ef aö hún taki afstöðu með stjórn Hol - íands i þessu máli. Oliusala Arabarikja til Vest- ur-Evrópu hefur þegar minnkaö um 26%. I Hollandi hefur óþörf umferö þegar verið bönnuð á Þeodorakis boðið að snúa heim AÞENU 1/11 Upplýsingamálaráð herra grisku herforingjastjórnar- innar skýrði frá þvi i dag, að hið þekkta griska tónskáld, Þeodor- akis, mætti snúa heim ef hann vildi. Þeodorakis var handtekinn eftir valdaránið 1967, en fékk að fara úr landi 1970. Ráðherrann lét og að þvi liggja að leyft yrði að flytja þau verk Þeodorakisar i Grikklandi, sem honum hefði ver- ið leyft að flytja fyrir 1967. sunnudögum, og hvarvetna er hvatt til að spara oliu. Verð á oliu til kyndingar hefur þegar hækkað i Vestur-Þýskalandi og á Italiu. Nokkur leiguflugfélög héldu fund i Kaupmannahöfn i dag og ræddu um hækkun á fargjöldum vegna hækkandi verðs á flugvélabens- ini. I Bandarikjunum hefur inn- anlandsflug hjá þrem stærstu flugfélögum landsins þegar verið skoriö niður verulega i sparn- aðarskyni. Blaðberar óskast nú þegar i eftir talin hverfi: Þórsgötu Laugavegur 11 Seltjarnarnes Sörlaskjól Háskólahverfi Skipasund Sigtún Hverfisgötu Hjarðarhaga Langholtsveg 170-200 Hafið samband við af- greiðslu Þjóðviljans i simum 17500 eða 17512. '1

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.