Þjóðviljinn - 10.11.1973, Blaðsíða 16
Laugardagur 10. nóvember 1973.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
víkur, simi 18888.
Kvöldsími blaóamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar- ,kvöld- og nætur-
þjónusta Lyfjabúða i Reykjavik
9. - 15. nóv. verður i Apóteki
Austurbæjar og Ingólfsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Sexliða friðar-
áætlun samþykkt
Óvœntur skyndifundur ísraelsstjórnar
WASHINGTON, RIAD,
TEL AVIV 9/11.— Egypt-
ar og israelsmenn hafa
samþykkt sexliöa áætlun
til tryggingar vopnahlénu
fyrir Miöjarðarhafsbotni
og til þess aö greiöa fyrir
varanlegri lausn á deilu-
málum israels og Araba,
samkvæmt tilkynningu frá
Hvíta húsinu i kvöld.
Var texti samningsins kunn-
gerður eftir aö hann hafði verið
Ráðstefna
Vietnam-
nefndar
í Norrœna
húsinu
Vietnamnefndin á tslandi
boðar til ráðstefnu með full-
trúum aðildarsamtakanna
þrettán og öðru stuðningsfólki
um stöðu og Iramtiðarverk-
efni VNl. Ráðstefnan hefst i
dag, laugardag,kl. 13.30.
Ráðstefnustjórar verða
Halldór A. Sigurðsson og Jón
Hnefill Aðalsteinsson.
Dagskrá:
13.30 Opnun ráöslefnunnar,
skráning fulltrúa og kynning.
11.00 Kramsöguræður:
1. Aslandið i Indókina —
Sveinn R. Ilauksson.
2. Herstöðvamálið — Arni
lijartarson.
3. ISaráttan i öðrum hlutuin
lieiins — Þórhannes Axelsson
14.45 Umræðuhópar: Skipt
upp i þrjá hópa, scm hver
fjallar um eitt ofangrcindra
mála.
15.45 Kaffihlc.
10.00 Umræðuhópar skila áliti.
nlniennar umræður, ályktanir
17.00 Framsöguræður: II
1. Uppbygging, starfshættir
og verkefni VNI — Jón
liannesson.
2. Starfsaðstaða og fjár-
öflun — Kygló Bjarnadóttir.
17.30 Almennar umræður um
starfsemi og franitiðarverk-
efni.
18.30 Káðstefnu lýkur.
VtETN AMNEFNDIN
A ÍSLANDI
sendur Kurt Waldheim, aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna.
Samkvæmt samningnum skulu
Egyptar og tsraelsmenn beaar i
stað hefja samningaumleitanir
með það fyrir augum að hinir
siðarnefndu dragi siatilbaka að
vopnahléslinunni frá þvi
tuttugasta og annan október.
Munu fulltrúar Sameinuðu þjóð-
anna annast umsjón viðræðn-
anna.
Dá er gert ráð fyrir þvi i hinni
samþykktu áætlun að daglega
verði send matvæli, vatn og lyf til
borgarinnar Súes, og allir særðir
borgarar skulu fluttir þaðan.
Verðir i þjónustu Sameinuðu
þjóðanna taka við gæslu á vegin-
um milli Kairó og Súes af isra-
elskum varðmönnum. Skipst
verður á striðsföngum, bæði
særðum og heilum heilsu.Henry
Kissinger, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, tilkynnti Wald-
heim i bréfi að Egyptar og
tsraelar myndu senda fulltrúa
• sina á ákveðinn stað við veginn
milli Kalró og Súes, þar sem þeir
myndu undirrita samninginn.
Bað Kissinger Waldheim að koma
þvi svo fyrir að samningurinn
yrði undirritaður á morgun eða
einhvern annan dag, sem hentaði
Egyptum og tsraelsmönnum-
báðum.
Golda Meir, forsætisráðherra
tsraels, kallaði stjórn landsins
óvænt saman á aukafund i kvöld
til þess aö ræða sexliðaáætlunina,
sem þeir Kissinger og Sadat
Egyptalandsforseti urðu sam-
mála um á l'undi sinum i Kairó.
Oopinberar heimildir i Tel Aviv
höfðu áður hermt að tsraeslmenn
myndu samþykkja áætlunina, og
veldur þessi óvænti stjórnarfund-
um þvi nokkrum heilabrotum.
Talsmaður tsraelssljórnar hefur
látið hafa eftir sér að endanleg af-
staða stjórnarinnar til friðar-
áætlunarinnar verði ekki kunn-
gerð fyrr en að téðum fundi lokn-
um. Húgsanlegt er talið að
tsraelsstjórn sé óánægð út af þvi
að i áætluninni, sem kunngerð var
i Washington, var ekki minnst
einu orði á sundið Bab el-Mandeb,
sem Arabarikin hafa stöðvað
siglingar um, en gegnum það
sund er siglt til Eilat, einu
hafnarborgar tsraels við Rauða-
haf. bó er ekki talið óhugsandi að
þeir Kissinger og Sadat hafi
komist að munnlegu samkomu-
lagi um það mál.
Múhameð Heykal, hinn áhrifa-
mikli greinahöfundur um al-
þjóðamál við Kairóblaðið A1
Ahram, hvatti i dag Arabarikin til
Kópavogsbúar
Bæjarmálaráð H-listans I Kópavogi hefur komið á fót umræðuhópum
um bæjarmál. A mánudagskvöld verða skipulagsmálin rædd. bar
verður fjallað um aöalskipulag Kópavogs, t.d. Snælandshverfiö, fram-
tið Fossvogsdals, Miðbæinn o.fl. Bæjarmáiaráðið hvetur bæjarbúa til
að mæta og taka þátt I starfinu. Sýnum að við höfum áhuga á umhverfi
okkar.
STJÓRN BÆJARMALARAÐS
KÓPAVOGS
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Mannlif og samfélagshættir
Umræðuhópurinn kemur saman á mánudagskvöld kl 20 30 að
Grettisgötu 3.
Akranes
Félagsfundur um herstöðvamálið og fleira
verður haldinn laugardaginn 10. nóvember kl. 14
i Rein. Arnmundur Backmann kemur á fundinn.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórnin
þess að beita oliunni til þess að
koma i veg fyrir að stórveldin
hættu að selja þeim vopn. Hann
mælti lika með þvi að Evrópurik-
in hefðu meiri afskipti af málum
Austurlanda nær hér eftir en
hingað til, þar eð ekkert vit væri i
þvi að láta risaveldin tvö ein um
það að ákveða strið og friö.
öryggi og velmegun Evrópu er
komin undir þvi að öryggi og vel-
megun riki i Austurlöndum nær,
skrifar Heykal.
■
Erhard Jacobsen útskýrir hér úrsögn slna úr Jafnaðarmannaflokki
forsætisráðherrans sem hann siðan velti með fjarveru sinni úr þingi
nokkrum dögum siöar.
DANSKI ANKER
FALLINN
KAUPMANNAHÖFN 9/11.
— Stjórn Ankers
Jörgensens mun sjá um
málefni ríkisins þangaö til
búið er að mynda nýja
stjórn á grundvelli þess
þings sem kosið verður til
4. desember. Hún leggur
fram fjárlög fyrir lok
nóvembermánaðar svo
sem skyldugt er, og hún
leggur til framvegis sem
hingað til formanninn í
ráðherranefnd EBE og
undirbýr fund æðstu
manna Efnahagsbanda-
lagsins sem verður í Höfn
14. og 15. desember.
Stjórn Ankers hefur staðið tæpt
i danska þinginu, en hún valt
vegna fjarveru eins þingmanns
við þýðingarmikla atkvæða-
greiðslu, Erhards Jacobsens, en
hann hefur nú brotist út úr flokki
jafnaðarmanna og ákveðið að
stofna sinn eigin flokk. Jacobsen
hefur mjög hægrisinnaðar hug-
myndir i húsnæðismálum og olli
það vinslitum milli hans og
Ankers.
Skoðanakönnun frá 1.
nóvember sýnir að jafnaðarmenn
njóta fylgis aðeins 27% kjósenda,
en það er 10% minna en þeir höfðu
við kosningarnar 1971. Hinn nýi
skattsvikaraflokkur Glistrups
reyndist hafa safnað um sig 15%
kjósenda. Borgaralegu flokkarnir
hinir höfðu aðeins unnið á, en
Sósialiski alþýðuflokkurinn
tapað.
Alsír slæst í hópinn
LONDON 9/11 — Alsír
ákvað í dag að hefja tak-
mörkun á oliuframleiðslu
eins og svo mörg önnur
Arabalönd.
MFIK
Sameiginlegur fundur MFIK og
Vináttufélags tslands og Kúbu
verður haldinn i félagsheimili
prentara að Hverfisgötu 21,
þriðjudaginn 13. nóvember 1973,
kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Félagsmál
2. Ingibjörg Haraldsdóttir heldur
erindi um Kúbu
3. Maria borsteinsdóttir flytur
frásögn af friðarþinginu i Moskvu
25.-31. október 1973
Samtimis gerðu formælendur
Sádi-Arabiu það ljóst, að ekki
verður tekin upp venjuleg fram-
leiðsla né hætt oliusölubanninu til
Bandarikjanna og Hollands sem
nú eru i algeru afgreiðslubanni.
Sádi-Arabaia hefur skert oliu-
framleiðslu sina um nær 30%.
Greinilegt er að viðræður
Kissingers utanrikisráðherra
Bandarikjanna við Feisal konung
i Sádi-Arabiu hafa ekki dregið
neitt úr einbeitni Feisals. að
standa fast við hlið annarra
Arabaleiðtoga i deilunum við
tsrael. Hann hefur áður sagt að
aðgerðunum i oliumálunum
verður ekki breytt fyrr en
tsraelsmenn hörfa af þeim svæð-
um sem þeir lögðu undir sig i
6—daga stríðinu um árið. 1 dag
var itrekað að aðgerðirnar gætu
staðið i mörg ár.
Utanrikisráðherra tsraels,
Abba Eban, ásakaði Efnahags-
bandalagið i dag fyrir það að vera
meira umhugað um oliuþarfir
sinar frá degi til dags en að skapa
frið i Austurlöndum nær. Vildi
hann biðja EBE-menn um að
halda sér saman og leggja ekki
stein i götu friðarsamninga með
einhliða yfirlýsingum. betta eru
viðbrögðin við sameiginlegu áliti
ráðherranefndar EBE frá þvi á
þriðjudag en þar var tsrael hvatt
til að hætta hernáminu frá 1967.
Askorun til
borgarstjóra
Konur við Vesturberg i Breiö-
holti III gengust fyrir undir-
skriftarsöfnun meðal ibúa i fjöl-
býlishúsum sem Einhamar J>f.
hefur bvggt þar efra, þar sí m
þeirri áskorun er beint tit borgar-
stjórans i Reykjavfk að liann
hlutist til um að Einhamri verði
séð fyrir lóð og aöstöðu til frekari
byggingaframkvæmda.
Af þeint.sem náöist til, undir-
rituöu allir áskorun þessa utan
þrjár manneskjur. Undirskrif-
endur eru 178.
Askorunin var afhent borgar-
stjóra á föstudagsmorgun.
Texti áskorunarbréfsins fer hér
á eftir:
Við undirritaðir ibúar fjölbýlis-
húsa þeirra sem Einhamar sf.
byggði við Vesturberg i Breiðholti
III. Rvik., skorum á borgarstjórn
Reykjavfkur að veita Einhamri
sf. byggingalóðir undir sams-
konar fjölbýlishús og það hefur
byggt við Vesturbergið, svo að
félagið þurfi ekki að hætta starf-
semi sinni, eins og nýlega hefur
komið i ljós.
Við teljum eðlilegt að fyrirtæki
sem Einhamar sf. eigi að njóta
forgangsi úthlutun byggingalóða.
Helstu rök okkar fyrir
áskorun þessari eru:
1. Einhamar sf. hefur sýnt og
sannað, að hægt er að byggja
ódýrar en vandaðar ibúðir.
2. Við teljum, að fleiri borgar-
búar ættu að eiga þess kost, að
eignast ibúðir á sömu kjörum og
við.
Að lokum leyfum við okkur að
vona að borgarstjórn taki
áksorun þessa til greina og stuðli
þar með að lækkun bygginga-
kostnaðar, i stað óþarfa
hækkunar.
Blaðberar
óskast
nú þegar i eftir talin
hverfi:
. Þórsgötu
Láugaveg 11
Seltjarnarnes
Sörlaskjól
Háskólahverfi
Skipasund
Sigtún
Hverfisgötu
Hjarðarhaga
Langholtsveg
170-200
Hafið samband við af-
greiðslu Þjóðviljans i
simum
17500 eða 17512.
E
JOÐVIUINi
3