Þjóðviljinn - 24.11.1973, Page 1
Laugardagur 24. nóvember 1973. — 38. árg. 271. tbl.
Nýr aöstoðarmaöur ráö-
herra mun nú vera i þann
veginn að taka til starfa i
félagsmálaráðuneytinu. Björn
Jónsson hefur tekið sér til
aðstoðar Sigurð Guðgeirsson
prentara, sem undanfarin ár
hefur verið starfsmaður
Verkamannafélagsins Dags-
brúnar
Steinunn Finnbogadóttir var
aöstoðarmaður Hannibals
meðan hann gegndi ráöherra-
embætti, en hún hætti störfum
um leið og Hannibal.
Þrir af sjö ráöherrum i
rikisstjórninni hafa nú tekið
sér aðstoðarmenn, en hinir
eru Halldór E. Sigurðsson og
Magnús Kjartansson.
Svartolían borgar sig
Á tveim
mámiðmn
Seðlabankinn
óskar eftir:
Rannsókn
á framferði
Óðalsbænda
Seðiabankinn hefur skrifaö
sakadómi Iteykjavikur bréf, þar
sein beöiö cr um rannsókn á
f r a ni f e r ö i forráöa m a n n a
veitingahússins Oöals, er þeir
notuöu hluta af húsnæöi sem
Seölabankinn hefur á lcigu. til aö
spraula vatni á verkfallsvcröi/'
þjóna.
Að þvi er Magnús Eggertsson
yfirlögregluþjónn hjá rann-
sóknarlögreglunni sagði okkur i
gær hefur einn maður verið yfir-
heyrður vegna þessa máls. Sagði
Magnús að likur bentu til að
eigandi húsnæðissins, eða einhver
á hans vegum, sem hefur lykla að
öllu húsinu, hefði opnað fyrir
Oöalsbændum húsnæði það sem
Seölabankinn hefur á leigu. Þar
hefði svo verið farið út á svalir
húsnæðisins og notuð bruna-
slanga sem þar er til að spraula
yfir verklallsverði. —S.dór
BARNA-
BÆKUR
ráðherra
Upp úr
skúffum
Geslir barnabóka verslunar
Máls og menningar eru á öll-
um aldrei eins og sjá má á
myndinni. Þcssi eina sérversl-
un landsins meö barnabækur
liefur nú veriö stækkuö. Sjá
grein á haksiöu. (I.jósm
S.dór)
Greiðir ríkissjóður 35
milj. fyrir Ingólf?
Þar sem hann svipti Sunnu flugrekstrarleyfi.
Næstkomandi iniövikudag
veröur mál Feröaskrifstofunnar
Sunnu gegn rikissjóöi tekiö fyrir i
borgardómi, en hér er um að
ræða illindi sem Ingólfur Jónsson,
fyrrum samgönguráöhcrra, efndi
til við ferðaskrifstofuna haustiö
1970, cr hann svipti Sunnu flug-
rekstrarley fi.
Ferðaskrifstofan Sunna fékk
flugrekstrarleyfi eftir að fyrir lá
jákvæði umsögn flugráðs voriö
1970. Hóf Sunna þegar flug-
rekstur skv. leyfinu, en i þvi voru
engar timatakmarkanir. F'lug-
rekstur Sunnu hófst 1. júni; var
flogið fyrir Sunnu og einnig ýmsa
erlenda aðila. Um mánaðamótin
september október skrifaði sam-
gönguráðherra Ingólfur Jónsson
Sunnu bréf þar sem hann aftur-
kallaði flugleyfið ,,þar sem það
hefur ekki komið yður að neinu
gagni”, eins og það var orðað.
Þegar þetta bréf berst er Sunna
búin að gera allskonar samninga
við erlenda aðila og taka að sér
flugverkefni til eins árs fyrir á
annað hundrað miljónir króna.
Bréf Ir.góKs miðaðist við aö
Sunna missti flugleyfið 1.
desember þetta ár og skilaði
fyrirtækið flugvélinni aftur úr
leigunni um það leyti. Skömmu
áður hafði ráðherrann að visu séð
að sér og farið þess á leit við for-
stöðumenn ferðaskrifstofunnar
að þeir tækju sáttum i málinu
gegn þvi að Flugfélag Islands
yrði framvegis eini viðskiptaaðili
fyrirtækisins um leiguflug fram-
vegis. Ekki var að þvi gengið og
siðar neyddist ráðherrann til að
gefa leyfið út aftur. En þá hafði
Sunna vegna afturköllunar flug-
rekstrarleyfisins losað sig við
fyrri viðskiptasamninga og oröið
fyrir verulegu tjóni fjárhagslega
auk þess sem ferðaskrifstofan
hafði beðið álitshnekki erlendis
þar sem svipting flugrekstrar-
leyfis á sér yfirleitt ekki stað
nema um nijög alvarlegt brot á
öryggisrcglum sé að ræða.
Nú höiðaði Sunna mál og
krafðist 05 milj. kr. skaðabóla af
rikissjóöi. Uögfræðingur stefnda
hélt þvi fram að ekki hefði verið
um neitt tjón að ræða og setti
dómarinn þá matsnefnd i málið. 1
henni voru Guðmundur Magnús-
son prófessor og Bárður Daniels-
son verkfræðingur. Hófu þeir
störf um sl. áramót og luku mats-
gjörð sinni i sept. sl. Töldu þeir að
ferðaskrifstofna hefði orðið fyrir
115.4 milj. kr. tjóni — og á
miðvikudaginn verður eins og
fyrr segir mál þetta tekið fyrir
hjá borgardómi. Og hann mun
siðan kveða upp úr með það hvort
rikissjóður verður að greiða
hálfan fjórða tug miljóna fyrir
e m b æ 11 i s a f g 1 ö p Ingólfs
Jónssonar.
Ofangreindar upplýsingar eru
að nokkru leyti komnar frá Guðna
Þórðarsyni.
Segir Gunnar Bjarnason
formaður svartolíunefndar
Þaö gengur ákaflega treglega
að fá menn til aö nota svartoliu á
togurunum i staðinn fyrir gas-
oliuna sem verður nú dýrari með
hverjum deginum, sagði Gunnar
Bjarnason fyrrv. skólastjóri Vél-
skólans i simtali við Þjóðviljann i
gær.Gunnarer formaður nefndar
á vegum sjávarútvegsráöu-
neytisins sem á að vinna að þvi aö
auka útbreiðslu svartoliu i fiski-
skipum þar sem hún getur komiö
i staðinn fyrir gasoliu.
Aðstoðar-
— Það þarf að visu aukakerfi á
vélina sem kostar sitt, það er
búnaður til hitunar á svartoliunni
og til hreinsunar, en verðmis-
munurinn á oliutegundunum er
svo mikill, að þetta borgar sig
upp á tveim mánuðum. Þá miða
ég við það verð sem veriö hefur
en gasolian kemur til með að
hækka miklu meira en svartolian,
svo að bilið gleikar enn.
— Hvað kostar það að brenna
svartoliu miðað við gasoliuna?
— Það hefur að undanförnu
verið um 40% af þvi sem það
kostar að brenna gasoliu. Og þá
Framhald á 14. siðu
MAL OLGU
AFGREITT
SAGAN EKKI STÖÐVUÐ
t fyrradag fjallaði útvarps-
ráö um flutning Olgu
Guðrúnar Árnadóttur á
sögunni Börnin taka til sinna
ráða. Á fundinum lögðu
íhaldsmennirnir i ráðinu, þeir
Magnús Þórðarson og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson,
fram tillögu um að sagan yrði
stöðvuð og „mistökin"
hörmuð.
Útvarpsráð felldi þessa til-
lögu en samþykkti að fela dag-
skrárstjóra að ,,kanna afskipti
og afstoðu hlutaðeigandi
starfsfólks til málsins” og
ennfremur ,,að hlýða á þá
lestra, sem eftir eru,og meta,
hvort þeir orka tvimælis.
Ráðið óskar þess, að hann
fresti lestrum til næsta út-
varpsráðsfundar, ef hann
telur ástæðu til.”
Sá ekkert sem
orkaöi tvimælis
Blaðið hafði tal af Hirti
Pálssyni dagskrárstjóra i gær
og spurði hann hvernig fram-
haldið yrði.
Hann kvaöst hafa hlýtt á þá
lestra sem eftir eru strax i
fyrrakvöld. Hafi hann ekki séð
neitt það i þeim sem orkaði
tvimælis eða væri varhuga-
vert, ekkert sem gæfi ástæðu
til að stöðva lesturinn. Af hans
hálfu væri málið þvi afgreitt
og flutningurinn myndi ganga
sinn gang.
Hvað seinni liðinn áhrærir
kvaðst Hjörtur hafa gert þaö
eitt að biðja Silju og Baldur að
semja greinargerðir hvort um
sig um þátt þeirra i þessu máli
og leggja þær fyrir næsta út-
vafpsráðsfund sem haldinn
verður á fimmtudaginn.
Hann sagði að þeim heföi
ekki borið saman um gang
málsins i viðtölum við hann.
Þarna væri um að ræða hluti
sem farið hefðu þeirra á milli
sem engin vitni hefðu verið að
og stæði þvi fullyrðing gegn
fullyrðingu. Kvaðst hann ekki
l'ær um að úrskurða um það
hvort heföi rétt fyrir sér og þvi
hefði hann valið þá tilhögun
sem að framan greinir.
Hjörtur Pálsson hefur þvi
afgreitt þetta mál frá sinni
hendi og nú er það útvarps-
ráðs að skera úr um það hver
framið hafi þann „glæp” að
hleypa Olgu Guðrúnu inn i
Morgunstund barnanna — ef
baö sér þá ástæðu til.
-Þll