Þjóðviljinn - 24.11.1973, Síða 3

Þjóðviljinn - 24.11.1973, Síða 3
Laugardagur 24. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Ákvörðun iðnaðarráðuneytisins Tryggir hitaveitu- framkvæmdirí Kópa vogi og Hafnarfirði Helmingi dýrara að hita með olíu en vatni Eins og skýrt var frá í Þjóö- viljanum i gær hefur iðnaðar- ráðuneytið að fengnu samþykki rikisstjórnarinnar tilkynnt borgarstjórn Reykjavikur að veitt hafi verið heimild til 12% gjaldskrárhækkunar Hitaveitu Reykjavikur frá og með 1. des. n.k. Jafnframt var tilkynnt, að heimild til hækkunar væri bundin þvi skilyrði, að staöið verði að fullu við þau fyrirheit um fram- kvæmdahraða, sem hitaveitan hefur gefið bæjarstjórnum Kópa- vogs og Hafnarfjarðar, en verði misbrestur á efndum beirra fyrirheita muni iðnaðarráðu- neytið endurskoða gjaldskrá hita- veitunnar á nýjan leik. Það hefur áður komið fram, að Hitaveita Reykjavikur hefur ' ''ndið skuldbindingu sina um .nkvæmdahraða við lagningu ataveitu i Kópavog þvi skilyrði, að Hitaveita Reykjavikur skilaði árlegum 7% rekstararði. tbúum Kópavogs og Hafnar- fjarðar er það mikió hagsmuna- mál að fá heita vatnið sem allra fyrst, ekki sist með tilliti til gifur- legra verðhækkana á oliu, og er þvi ákvörðun rikisstjórnarinnar mjög þýðingarmikil fyrir þá. Þjóðviljinn sneri sér til Svan- disar Skúladóttur, bæjarfulltrúa i Kópavogi.og spurði hana tiðinda af þessum málum. Svandis sagði: — Það eru um 10% Kópavogs- búa, sem nú njóta heita vatnsins frá Hitaveitu Reykjavikur til upphitunar, og er hitunar- kostnaður um helmingi lægri hjá þvi fólki en öðrum bæjarbúum. Munurinn á kostnaði við upphitun með heitu vatni og oliu á væntanlega enn eftir að vaxa verulega, og eru þvi mjög miklir hagsmunir i húfi fyrir Kópavogs- búa, að þeim verði tryggt heitt vatn til upphitunar sem allra fyrst. Viö bæjarfulltrúar H-listans i Kópavogi greiddum á sinum tima atkvæði með þeim samningi, sem gerður var við Hitaveitu Reykja- vikur, en okkur þótti það aö sjálf- sögðu verulegur galli á samningunum, að Reykjavikur- borg hélt fast við það skilyrði að ráögerður framkvæmdahraði væri háður þvi að Hitaveita Reykjavikur hefði 7% árlegan arð af rekstri sinum i heild. Slik skilyrði eru að ég hygg mjög óvenjuleg við samninga um ákveðnar framkvæmdir, en við áttum ekki annars kost en ganga að þessu. Fyrir okkur er ákvörðun iðnaðarráðuneytisins þvi tvi- mælalaust mikið fagnaðarefni og geri ég mér vonir um að hún verði til þess, að hitaveituframkvæmd- um i Kópavogi og Hafnarfirði verði haldið áfram af fullum krafti og alveg sérstaklega fagna ég þeim ummælum i bréfi iðnaðarráðherra, að kannað verði, hvort ekki sé unnt að flýta hitaveituframkvæmdum i ná- grannabyggðum Reykjavikur enn meir en upphaflega var ráð- gert. Þær gifurlegu hækkanir á verði oliu, sem nú dynja yfir,kalla mjög á það, að allt verði nú gert, sem hægt er til að láta hlutina ganga, Lengi hafa nemendur og kennarar Menntaskóians í Reykjavik gert tilraunir til aðbenda á hina óviðunandi vinnuaðstöðu/ sem þeim er boðið upp á. En þeir hafa löngum talað fyrir daufum eyrum ráðamanna, sem að visu hafa alltaf haft „rik- an skilning á málinu". Svandis Skúladóttir þrátt fyrir fyrirvara Reykjavik- urborgar. Við teljum reyndar, að það ætti lika að vera hagsmunamál fyrir Hitaveitu Reykjavikur að geta selt okkur þá umframorku, sem þeir hafa af heitu vatni. Búið er að leggja aðveitukerfi að bæjar- mörkum Kópavogs, og væri það mjög óhagkvæmt fyrir Reykja- vikurborg að falla frá fram- kvæmdum á þessu stigi, eða tefja gang þeirra. Þannig gengu t.d. nem- endur og kennarar á fund Magnúsar Torfa fyrir tveimur árum og afhentu honum kröfur sinar. Magnús skildi málið til fullnustu að vanda, lofaði ýmsu en efndirnar virðast að venju láta standa á sér. Hann er að vísu ekki ein- ráður i menntamálum þjóðarinnar, Halldór fjár- málaráðherra hefur i raun úrslitavaldið. Ef ef tekið er mið af rikum skilningi Halldórs á vandamálinu þá finnst ýmsum óneitan- lega furðuiítið vera gert; raunar alls ekki neitt. Það er a.m.k. sorgleg stað- reynd, að í hinni glæstu stofnun, Menntaskólans i Reykjavik, kem- ur það fyrir að gluggakisturnar eru notaðar i stað stóla og borða. Þrengslin i kennslustofunum eru svo gifurleg, að nemendur láta undan þrýstingi fjöldans og hörfa upp i gluggakisturnar. Svona slæmt er ástandið þó sem betur fer ekki nema i nokkrum stofum, raunar aðeins i tveimur stofum i Þrúðvangi, sem hefur nú verið notaður sem „bráðabirgðahús- næði” i rúman áratug. t gær héldu MR-ingar skólafund i samkomusal sinum, mötuneyti sinu, prófstofu sinni, söng- kennslustofunni og fleirum gjör- nýttum skúmaskotum, en sá samkomusalur er samkvæmt Framhald á 14. siðu 1 dag opnar Marla H. ólafsdóttir málverkasýningu f Norræna húsinu. Maria sýnir teikningar og pastelmyndir og skiptir myndunum i tvo flokka: „Þegar amma dó” og „Kolfinnusaga”. Hinn siðar- nefndi er frá landnámsöld; heiðin kona berst á móti kristinni. Og úr þeim flokki er verkiö sem mynd er af hér að ofan. Þaö heitir Njálsbrenna. Sýning Mariu verður opin til 3. des. kl. 2—22 s.d. Marfa við Njálsbrennu Jafnvel gluggakist- urnar eru þéttsetnar Nemendur MR mótmæla gjörsamlega óviðunandi húsnæði Ummæli Baldurs Pálmasonar Osannindi Löðurmannleg framkoma að varpa eigin ábyrgð yfir á aðra Vegna ummæla Baldurs Pámasonar i Morgunblaöinu á fimmtudag um þátt hans að ákvörðun um flutning Olgu Guðrúnar Arnadóttur á sögunni Börnin taka til sinna ráða þar sem hann reynir allt hvað af tekur að hvitþvo sig af „glæpn- um” og kasta ábyrgðinni yfir á Silju AðaIsteinsdóttur hafði bláðiö tal af tveimur yfir- mönnum viö útvarpið og lagði fyrir þá spurningar. útvarpsstjóri Andrés Björnsson útvarps- stjóra spurðum viö hvenær hann teldi efni samþykkt. Hann kvað erfitt að svara þvi. Það væri undir útvarpsráði komið þvi það ræki vissa dag- skrárstefnu sem það birti starfsmönnum og sem þeir reyndu siðan að fara eftir. Hann kvaðst frekar gera ráð fyrir þvi að svo væri litið á að efni væri samþykkt þegar búið væri að lesa það inn á band og greiðsla komin fyrir. Það væri aö hans dómi alvarlegur hlutur að ganga frá greiðslu fyrir óbirt efni. Gunnar Vagnsson Eru þess dæmi að greiðsla hafi komið fyrir efni sem ekki hefur verið flutt? Þessa spurningu lögðum við fyrir Gunnar Vagnsson starfsmanna- stjóra útvarpsins, en hann sér jafnframt um greiðslur til flytj- enda. Hann kvað það afskaplega sjaldgæft og gat ekki tilgreint um það nákvæm dæmi. Hann kvað starfsmenn útvarpsins yfirleitt ekki telja mögulegt að efnið væri ekki flutt þegar þeir ganga frá greiðslum. Það hvarflaði yfirleitt ekki að þeim. Baldur fór meö ósannindi Af svörum þessara manna má draga þá ályktun að Baldur Pálmason hefur farið með ósannindi þegar hann segist ekki hafa samþykkt flutning sögunnar, hann hafi aðeins verið að gera Olgu „vinar- greiða” með þvi aö útvega henni „skotsilfur”. Það sem fyrir honum vakir er aö skjóta sér undan ábyrgöinni og velta henni yfir á Silju. Er þessi framkoma hans dæmi um afskaplegan ræfildóm og hefði honum veriö sæmra að axla þessa byrði og'verja söguna af ráðum og dáð i staö þess að skjóta sér á bak við ósannar yfirlýsingar. -ÞH Hótel Fram- sókn? Mikið er nú um það rætt manna á meðal að Framsókn- arflokkurinn hyggist fara út i hótelrekstur i einhverri mynd, og þá nefnt til húsnæði fiokks- ins við Rauðarárstig sem að visu cr enn i byggingu, og til- greind sem ástæða fyrir því að flokkurinn hyggist með þeim hætti tryggja scr til frambúð- ar lán það sein Ferðamála- sjóður lánaði til húsbygging- arinnar sem i upphafi var æti- að að verða hótcl. Sá maður sem einna mest hefur verið nefndur i sam- bandi við þessi áform er Krist- inn Finnbogason, fram- kvæmdastjóri Timans. Blaðið spurði Kristinn að þvi á dög- unum hvort framsóknarmenn væru búnir að ákveða að reka hótel i verðandi Framsóknar- húsi við Rauðarárstig. — Við ætlum ekki að reka hótelið sjálfir, svaraði Krist- inn. En það verður hótel i hiuta af húsinu. — Hver rekur það? — Það er ekki fullákveðið núna, en það eru nokkrir aðil- ar i sigti. — Verður þetta þá jafn- framt þvi að vera hótel rekstrasjón með bar og öðrum huggulegheitum? — Nei. Þetta verður gisti- heimili, ekki hótel. Gisti- heimiii þar sem aðeins verður seldur morgunverður. — Er þetta gert til þess að Framsóknarflokkurinn þurfi ekki að endurgreiða lánið sem fyrri eigandi hússins var bú- inn að fá úr Ferðamálasjóði? — Það er nú ekki orðið neitt klárt með það. Það sem fyrst og fremst vakir fyrir okkur með þetta hús, þar sem þetta er liklega eina húsið sem hefur verið byggt sem hótel, er að það verði þá leigt til þeirrar starfsemi sem það var upp- haflega hugsað fyrir, verði farið út i það á annað borð að leigja út hluta þess. 1 öðru lagi erum við hlynntir þvi að okkar flokksmenn geti gist þarna ef hægt er. En gistiheimilið verður sem sagt ekki á okkar vegum heldur mun sjá um það alveg sjálfstæður rekstraraðili. — Þú vilt sem sé ekki svara þvi hvort fyrir ykkur vaki að reyna að halda þessum 5,5 miljónum úr Ferðamáiasjóði? — Við höfum ekkert rætt það. Það er nú ekki greiðsla á þessu fyrr en á næsta ári. Við teljum okkur að sjálfsögðu eiga rétt á að fá fyrirgreiðslu úr Ferðamálasjóði ef þetta verður hótel, rétt eins og aðr- ir. Nú. Við erum að fara i fullan gang með þetta. Verið er að setja hitaveituna inn i húsiö, og við ætlum okkur að vera komnir inn i húsið með þessa starfsemi, flokksins og gisti- heimilisins, i mai-mánuði á næsta ári. —o— Við spuröum ólaf Steinar Valdemarsson, formann Ferðamálasjóð, aö þvi hvort Framsóknarflokkurinn héldi lán-þvi sem veitt var út á hús- bygginguna til fyrri eiganda, með þvi aðstundahótelrekstur þar i einhverri mynd. — Það þúðir ekki að þeir haldi öllu láninu, 5,5 miljón- um. Eg tel að það eigi að inn- heimta fjárhæðina alla, þvi þetta verður ekki rekið fyrst og fremst sem hótel. Ólafur kvað Ferðamálasjóð fremur óstöndugan sjóð. Sjóðurinn er fjármagnaður með framlagi af fjárlögum sem i ár er 7,5 miljónir króna og gert ráó fyrir 10 miljónum á næsta ári. Að öðru leyti tekur sjóðurinn lán til starfsemi sinnar gegnum framkvæmda- áætlun sem hann lánar svo aftur meö litlum sem engum vaxtamun. Eigiö fé hans er sáralitið. —Úþ /

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.