Þjóðviljinn - 24.11.1973, Side 8

Þjóðviljinn - 24.11.1973, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember 1973. SKYLDUM VIÐ EIGNAST ÍSLENSKT BRÚÐU- LEIKHÚS? Hópurinn í Leikbrúöulandi meö nokkrar brúöanna: Frá vinstri Hólmfriöur Pálsdóttir leikstjóri, Þorbjörg Höskuldsdóttir leiktjaldasmiöur, Hallveig Thorlacius, Erna Guömarsdóttir og Helga Steffensen. A myndina vantar einn þátttakandann, Bryndisi Gunnarsdóttur. Hann Meistari Jakob i Leikbrúðulandi, sem vann hylli yngri kyn - slóðarinnar siðastliðinn vetur, er aftur kominn á stjá, og gefst ungu leik- húsgestunum frá i fyrra nú tækifæri til að endur- nýja kynnin og öðrum að kynnast Jakobi og félög- um hans á sunnudaginn kemur, þegar frum- sýndir verða tveir nýir leikþættir i brúðuleik- húsinu á Frikirkjuvegi 11. Þættirnir sem nú verða sýndir eru „Meistari Jakob gerist barn- fóstra” og „Meistari Jakob og þrautirnar þrjár” og er ætlunin að hafa reglulegar sýningar á hverjum sunnudegi kl. 3, eins og voru eftir áramót i fyrra, en þá sýndi flokkurinn Leikbrúðuland einnig i sjónvarpi, á barna- skemmtunum og i skólum. Enn sem fyrr er Meistari Jakob reiðubúinn að sigrast á öllum erfiðleikum og i fylgd með honum eru að þessu sinni ýmsir gamlir kunningjar, en einnig hafa bæst við mörg ný andlit, bæði gott fólk og verstu forynjur, að þvi er félagar i Leikbrúðulandi sögðu blaðamanni Þjóðviljans. t flokknum eru þær Helga Steffensen, Erna Guðmarsdóttir, Bryndis Gunnarsdóttir og Hall- veig Thorlacius, sem stjórna brúðunum, en leiktjaldasmiður er Þorbjörg Höskuldsdóttir og leik- stjóri Hólmfriður Pálsdóttir, sem áður hefur stjórnað sýningum Leikbrúðulands. Brúðuleikhús er listgrein, sem ásér langa og litrika sögu, en hin- ar fyrstu, upprunalegu leikbrúður voru guðalikneski, sem gátu hreyft höfuð og hendur. Strengja- brúður eða marionettur eru einnig ævagamlar og getið i griskum heimildum frá 4. öld f.Kr. Brúðu- leikhús var mjög vinsælt meðal Rómverja og áhrif þess greini- lega mikil, þvi Cæsar bannaði brúðuleikurum að leika annað en látbragðsleik, þareð hann óttaðist pólitisk áhrif sýninganna ella. t Frakklandi voru leikbrúðu- sýningar orðnar svo vinsælar á 17. öld, að leikhúsunum stafaði hætta af samkeppninni. Kom oft til handalögmála milli listamann- anna, og vinsælustu verkefni brúðuleikhúsanna um þær mund- ir voru skopstælingar á sýningum stóru leikhúsanna. Brúðuleikhús hafa löngum verið fastur liður I menningarlifi margra Evrópulanda og þá siður en svo verið einskorðuð við áhorf- endur á barnsaldri. Margir álita Tékka hafa komist einna lengst i þessari list, og þar hefur brúðu- leikhúsunum ósvikið verið beitt i pólitiskri andspyrnu, þegar sýningar annarra leikhúsa hafa verið bannaðar eða heftar með ritskoðun af erlendum valds- mönnum og leppum þeirra. A Norðurlöndunum hefst starf- semi brúðuleikhúsa ekki af al- vöru fyrr en á 17. öld og það er frá danskri brúöuleikhúshefð, sem Meistari Jakob Islenska Leik- Meistari Jakob t.v. I samræðum viökonu, sem viö kunnum þvi miöur ekki skil á (Myndir: A.K.). MEISTARI JAKOB KOMINN Á STJÁ í LEIKBRÚÐULANDI Leikbrúðuland var stofnað af flokki áhugafólks um brúðuleik- hús i framhaldi af námskeiði i leikbrúðugerð, sem haldið var fyrir 6 árum á vegum Handiða- og myndlistarskóla Islands undir stjórn Kurt Ziers. Hafði flokkur- inn ekkert til að byggja starf sitt á nema sameiginlegan áhuga, og fyrstu árin fóru að miklu leyti i að búa til leikbrúðurnar og skapa persónurnar, og liggur mjög mikið starf að baki hverrar brúðu. Fram að þessu hafa eingöngu verið notaðar handbrúður á sýningum Leikbrúðulands, en nú hafa bæst við nýjar brúður, sem smiðaðar voru I haust. Jón E. Guðmundsson kenndi hópnum þá ný vinnubrögð við brúðugerð, og árangurinn er nokkrar stórar stangarbrúður, sem stjórnað er með strengjum. Æfingar hjá leikhópnum hafa staðið yfir rúmar 7 vikur og á sunnudaginn fá börn sem sagt að sjá Meistara Jakob, þegar hann gerist barnfóstra og þegar hann leysir þrautirnar þrjár. Fullorðn- ir mega enn um sinn biða sér- stakra sýninga fyrir sig, þótt margir þeirra skemmti sér reyndar ágætlega yfir uppátækj- um Meistara Jakobs ekki siður en börnin. En hver veit nema sú starf- semi, sem nú er hafin þarna i kjallara gamla Thors Jensens hússins eigi eftir að verða rót nýrrar listgreinar á Islandi og við eigum eftir að eignast okkar eigið brúðuleikhús áður en lýkur. —vh brúðulandsins kemur. 1 Dan- mörku kom Meistari Jakob eða Mester Jakel” fyrst fram i kringum 1790 og hefur orðíð einskonar þjóðsagnapersóna, sem enginn sérstakur maður hef- ur skapað, heldur lifir hann gegn- um aldirnar með sinum sérein- kennum. Slik er einnig saga margra annarra þekktra brúðu- leikhúspersóna, þar má nefna td. Petrúska, Tsérenka, Punch, Spejbl og Húrvinek og fleiri. Meistari Jakob er fyrst og fremst náungi, sem ekki ber virðingu fyrir neins konar valdi. Brúðuleikhús á sér ekki langa hefð I islensku menningarlifi, og hefur aðeins starfað hér reglu- lega áður eitt brúðuleikhús, Is- lenska brúðuleikhúsið, sem Jón E. Guðmundsson, brautryðjand- inn á þessu sviði hér, skapaði og stjórnaði. Nornin stelur barninu, sem Meistari Jakob átti aö passa — atriöi úr öörum leikþættinum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.