Þjóðviljinn - 24.11.1973, Side 9

Þjóðviljinn - 24.11.1973, Side 9
Laugardagur 24. ndvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Aldarfjóröungs- afmæli tilrauna- stöövarinnar á Keldum: Björn Sigurðsson. Þar tókst fyrst aö finna varnir gegn kara- kúl-pestum Tilraunastöð Háskólans í meinafræði/ Keldum, á tuttugu og fimm ára af- mæli um þessar mundir, en stööin var stofnsett haustiö 1948. Sagöi forstöðumaður stöðvarinnar, Guömundur Pétursson læknir, blaða- mönnum aö liklega yrði hallast aö því að kalla fimmtánda nóvember af- mælisdaginn. Aðalverkefni stöðvarinnar eru rannsóknir á b.úfjársjúkdómum og framleiðsla á bóluefni við þeim. Stöðin heyrir undir menntamálaráðuneytið og lýtur læknadeild Háskólans. Einnig er til húsa á Keldum Rannsókna- deild Sauðfjárveikivarna, sem heyrir undir landbúnaðarráðu- neytið, en störf þessara tveggja stofnana eru mjög samantvinnuð. Forstöðumaður rannsóknadeild- ar Sauðfjárveikivarna er nú Sig- urður Sigurðarson, dýralæknir. Páll A. Pálsson, yfirdýralæknir, hefur aðsetur á Keldum og stjórn- ar framleiðslu og sölu á bóluefni, og einnig hefur þar aðstöðu til rannsókna og kennslu Margrét Guðnadóttir, prófessor i sýkla- fræði við Háskóla fslands. Fast- ráðnir starfsmenn tilrauna- stöðvarinnar eru tuttugu og tveir talsins, en til viðbótar er ráðið fólk að sumarlagi til heyskapar og annars sem til fellur. Meginviðfangsefni stöðvarinn- ar hefur, eins og þegar er getið, alla tið verið rannsóknir á búfjár- sjúkdómum, og hefur mest á- hersla verið iögð á rannsóknir sauðfjársjúkdóma. En jafnframt hefur þróunin orðið sú, að sérstök rækt hefur verið lögð við rann- sóknir á veirusjúkdómum bæði i mönnum og skepnum, enda hefur Keldnastöðin fram til þessa verið eina rannsóknarstofnununin hér- lendis. sem haft hefur tækjakost og útbúnað til þeirra verka. Sauðfjársjúkdómar þeir, sem fyrst og fremst hefur verið glimt við, eru þær langvinnu og ill- ræmdu karakúlpestir, sem urðu skæðasti ógnvaldur sauðfjár- ræktar i landinu milli striða, garnaveiki, votamæði og þurra- mæði, og má að likindum telja visnu i þeim flokki. Þessir sjúk- dómar voru óþekktir hér á landi fyrir innflutning karakúlfjárins. Á Keldum tókst i fyrsta sinni i heiminum að skýra og finna orsök að mæðiveiki, og mæðiveikiveir- una tókst að rækta þar 1959. Á Keldum tókst lika i fyrsta sinn i sögu búfjársjúkdóma að fram- leiða bóluefni sem dugði gegn garnaveiki, og var farið að bólu- setja með þvi skömmu eftir 1950. Mun óhætt að telja þetta tvennt einhver nytsamlegustu afrek, sem unnin hafa verið á Keldum, þótt þar sé af nógu að taka. Til dæmis má geta þess að kenningar dr. Björns Sigurðssonar, fyrsta forstöðumanns tilraunastöðvar- innar, um sérstakan flokk hæg- gengra smitsjúkdóma, sem hvorki sé hægt að telja i flokki með bráðum sóttum né langvinn- um, hafa vakið mikla athygli meðal visindamanna á þessu sviði erlendis og skipta þar miklu máli i sambandi við rannsóknir á ýmsum þeim sjúkdómum manna og dýra, er þar koma til greina. Undanfari þessara kenninga dr. Björns voru rannsóknir, sem framkvæmdar voru á Keldum á ýmsum veirusjúkdómum, eink- um þurramæði og visnu, en einnig votamæði, riðu og fleirum. Visn- an er hæggengur smitsjúkdóm- ur, tengdur miðtaugakerfi, veld- ur lömun og leiðir að lokum til dauða. Þykir liklegast að visnan hafi verið einskonar fylgifiskur þurramæðinnar. Niðurstöður visnurannsókna á Keldum hafa vakið mikla athygli erlendis, einkum til samanburðar við heila- og mænusigg (sclerosis disseminata) i mönnum. Til margvislegra rannsókna verður ekki komist hjá að hafa tilraunadýr af ýmsum tegundum, og hefur til þess verið haft á Keld- um sauðfé, hross, kaninur, nag- grisir, mýs, rottur, hamstrar, hænsni, geiturog um stuttan tima hreysikettir og apar. Til ýmis- legra prófana og tilrauna eru nagdýrin mest notuð. Sermi gegn lambablóðsótt er frámleitt úr hrossablóði, og eru nú rúmlega þrjátiu hestará Keldum til þeirra hluta. Á árinu 1972 voru seldir frá til- raunastöðinni yfir hálf önnur mil- jón skammta af bóluefni ýmiss- konar, og voru helstu tegundirnar (iuðinundur Gislason. Páll A. Pálsson. yfirdýralæknir. Guðniundur Pétursson, núver- audi forstöðumaður tiirauna- stöðvarinnar. iialldór Vigfússon að störfum i rannsóknadeild Sauðfjárveikivarna. Ilann hefur starfað á Keldum frá upphafi og er höfundur kynningarrits, sem tilraunastöðin gefur út I tilefni afmælisins. I)r. Guðmundur Eggertsson og aöstoðarstúlka hans að störfum. þessar: Lambablóðsóttarbóluefni (115.560 skammtar, lambablóð- sóttarsermi 516.920 skammtar, lungnapestarbóluefni 154.660 skammtar, garnaveikibóluefni 119.040 skammtar, ýmis ormalyf 623.085 skammtar. 'I'ekjur af lyfjasölunni hafa staðið undir rekstri stofnunarinnar og stuölað að vexti hcnnar og viðgangi. Sem lyrr er getið var fyrsti for- stöðumaður tilraunastöðvarinnar dr. Björn Sigurðsson, læknir, og aðrir sérfræðingar frá upphaíi voru þeir Páll A. Pálsson, núver- andi yfirdýralæknir, og Halldór Grimsson, efnafræðingur. Af fyrstu starfsmönnunum á Keld- um eru þar ennþá starfandi fimm: Páll A. Pálsson, Gunnar Ólason, sem vejrið hefur þar bú- stjóri l'rá upphafi, og Páll Sigurðsson, B jiirg Einarsdóttir og Halldór Vigfússon, sem öll starfa i rannsóknadeild Sauðfjárveiki- varna. Við lát Björns Sigurðsson- ar 1959 tók Páll A. Pálsson við forstöðu tilraunastöðvarinnar og hafði það starf á hendi til 1967, er Guðmundur Pétursson, læknir, núverandi forstöðumaður, var skipaður i starfið. Guðmundur Gislason, læknir, var forstöðu- maður rannsóknadeildar Sauð- fjárveikivarna þegar deildin var flutt að Keldum, en núverandi lorstöðumaður er sem fyrr getur Sigurður Sigurðarson. Enn ótaldir núverandi sérfræð- ingar við stööina eru þeir Guðmundur Georgsson dr. med., sérfræðingur i liffærameinfræði, Guðmundur Eggertsson, doktor i erfða- og gerlafræði, Baldur Simonarson, lifefnafræðingur, Sigurður H. Richter, dýrafræð- ingur og Þorsteinn Þorsteinsson, lifefnafræðingur. Guðmundur Georgsson hefur sinnt fjölþættum rannsóknum meðal annars með rafeindasmásjá. Samkvæmt um- sókn hans gaf Humboldt-stofnun- in i Þýskalandi dýrmætt hjálpar- tæki til þeirrar vinnu, svonefndan örskera, (ultramikrotom), sem hefði kostað um 330.000 krónur. Guðmundur Eggertsson hefur til rannsókna sinna, sem eru mjög sérhæfðar, fengið styrk að upp- hæð 2.8 miljónir króna frá The Jane Coffin Childs Memorial Fund for Medical Research i Bandarikjunum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.