Þjóðviljinn - 24.11.1973, Side 11
Laugardagur 24. nóvember 1ÍI73. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Liðsbrot
hjá
Valsliðinu
og FH vann
veröskuldaöan stórsigur
Eftir miög jafnan fyrri
hálfleik og framan af síð-
ari hálfleik varð leikur FH
og Vals alger einstefna FH
i vil, og eru ár og dagar síð-
an maður hefur orðið vitni
að jafn algeru liðsbroti hjá
liði og varð hjá Vals-liðinu.
Þar stóð ekki steinn yfir
steini síðustu 15 mínútur
leiksins. Margsinnis á
þeim tíma sendu Valsmenn
boltann beint í hendur FH-
inga, og þeir brunuðu upp
og skoruðu úr hraðaupp-
hlaupum eða þá að Vals-
menn reyndu skot úr von-
lausum færum eftir ör-
stutta sóknarlotu, og þetta
gerðist ekki bara einu sinni
heldur mörgum sinnum á
siðustu 15 mínútunum. FH-
ingar héldu rósemi sinni og
þáðu þessar gjaf ir og nýttu
til fulls og sýndu á stund-
um mjög yfirvegaðan og
góðan leik á sama tíma og
Valsmenn brotnuðu niður.
Hitt er annaö mál að ef á heild-
ina er litið var þessi leikur mjög
illa leikinn af báðum liðum og
alveg sérstaklega fyrri hálfleik-
urinn, þar sem liðin gerðu sig
bæði sek um svo miklar skyssur
og leikleysu að furðu sætir. Leik-
/*v
staðan
Staðan í 1. deildar-
keppninni i handknatt-
leik er nú þessi:
FH 3 3 0 0 68-52 6
Fram 3 1 2 0 57-47 4
Valur 3 2 0 1 62-58 4
Haukar 4 1 2 1 77-82 4
Þór 3 1 1 1 48-56 3
Vikingur3 1 0 2 64-70 2
*R 3 0 1 2 50-58 1
Ármann 2 0 0 2 24-27 0
Markhæstu menn:
Hörður Sigmarsson
Haukum 28
Viðar Simonarson
FH 26
Gisli Blöndal
Val 23
Einar Magnússon
Víkingi 22
Ágúst Svavarsson
IR 20
Axel Axelsson
Fram 20
Gunnar Einarsson
FH 19
Sigtryggur Guðlaugsson
Þór 18
menn beggja voru greinilega
mjög taugaóstyrkir, og sjálfsagt
er það ástæðan fyrir svo slökum
leik.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
eins og áður segir, og skiptust lið-
in á um að leiða, en hitt jafnaði
þegar. A markatöflunni sást 1:1,
2:2, 3:3, 4:4 og 5:5. Þá náði FH 2ja
marka forskoti 7:5, en Valur jafn-
aði 7:7 og náði forystu 8:7, en i
leikhléi var jafnt 8:8.
1 siðari hálfleik hélst enn jafnt
9:9, 10:10 og 11:11, voru þá 7 min-
útur liðnar. Þá komu fyrstu
merkin um liðsbrot Vals i ljós og
þrjár feilsendingar þeirra til FH-
inga kostuðu þrjú mörk 14:11 FH i
vil. Siðan kom 15:12, en Valur
skoraði 2 mörk i röð og staðan
15:14 og virtist liðið þá vera að ná
sér upp, en þá gerðist þetta ein-
kennilega liðsbrot, að þvi er
manni virtist að ástæðulausu. FH
breytti ekki leik sinum neitt, en
allt lak inn hjá Valsvörninni og
fjögur mörk FH gegn engu hjá
Val gerðu út um leikinn, staðan
19:14. Þessum mun hélt FH til
loka og bætti raunar heldur við,
þvi að lokatölurnar urðu 23:16
sigur FH.
Sumir gerðu þvi skóna, að FH
yrði ekki með i toppbaráttunni i
ár. Þeir hinir sömu veröa sannar-
lega að endurskoða afstöðu sina.
Sannleikurinn er sá, að FH-liðið
er lang-sigurstranglegasta liðið i
1. deild eins og er. Það virðist svo
sem missir Geirs Hallsteinssonar
úr liðinu hafi kallað á meiri kraft
hjá hinum leikmönnunum en þeir
hafa sýnt undanfarin 2 ár. Viöar,
Þórarinn, Gunnar og örn
Sigurðsson eru allir sterkir leik-
menn og áttu hver öðrum betri
leik að þessu sinni.
Þar til liðsbrotið kom hjá Val
bar Gisli Blöndal af. Ölafur Jóns-
son var með, en er langt frá þvi að
vera orðinn góður; hann haltraði
orðið þegar á leikinn leið og var
langt frá sinu besta. Þá áttu þeir
Gunnsteinn og Stefán Gunnarsson
góðan leik, en þá er lika upp talið.
Mörk FH: Viðar 8, Gunnar 7,
Þórarinn 5, örn, Jón G. og Ólafur
1 márk hver.
Mörk Vals: Gisli 9, Bergur 4,
Gunnsteinn, Jón K, og ólafur 1
mark hver.
—S.dór
Hermann Gunnarsson kominn inn úr horni en skotið var varið. (Ljósm. S.dór)
Haukar misstu niður
6 marka forskot og
Þór náði jafntefli
Einhver allra furðu-
legasti handknattleikur
sem undirritaður hef ur séð
var leikur Hauka og Þórs
frá Akureyri í fyrrakvöld.
Haukarnir höfðu yfir 12:8 i
leikhléi og náðu að auka
við þessa forystu i 14:8
þegar aðeins var liðið á
siðari hálfleik. Það hefur
áreiðanlega ekki hvarflað
annað að nokkrum manni í
troðfullu íþróttahúsinu í
Hafnarf irði en að hér væri
aðeins spurning um hve
stór sigur Hauka yrði, en
ekki hvort liðið myndi
sigra. En það var nú eitt-
hvað annað upp á ten-
ingnum, áður en yf ir lauk.
Svo sannarlega máttu
Haukarnir þakka fyrir
jafnteflið á síðustu sek-
úndum leiksins, en Þórs-
arar brunuðu upp á hrað-
upphlaupi, staðan 22:22, en
Ömar Karlsson mark-
vörður Hauka varði skotið
meistaralega og bjargaði
þar öðru stiginu fyrir lið
sitt. Rétt áður hafði
Tryggvi markvörður Þórs
varið vitakast og þar með
sennilega bjargað öðru
stiginu fyrir sitt lið.
Siðustu 5 til 10 minútur leiksins
var boðið uppá eins mikla spennu
og myndast getur i einum leik.
Þórsarar voru að saxa forskot
Hauka, og allt fór i handaskolum
hjá Haukunum. Staðan var 15:12
þegar um það bil 10 minútur voru
eftir af leiknum. En mörkin
hlóðust upp, og alltaf minnkuðu
Þórsarar forskotið 21:18 sást á
markatöflunni, þar næst 21:19 og
21:20 og loks 21:21.
Þá skoraði Stefán Jónsson 22.
mark Hauka, og menn hugðu aö
það myndi duga, og vissulega
hefði það átt að vera svo, ekki sist
þar sem dæmt var viti á Þór. En
þá brást Herði Sigmarssyni boga-
listin, og Tryggvi Gunnarsson
varði, Þór fékk boltann og jafnaði
22:22. Enn fengu Haukarnir tæki-
færi til að ná forystu á þeirri einu
minútu sem eftir var, en á siðustu
sekúndunum misstu þeir boltann
og Þórsmenn bruna upp, en Ómar
varði skotið, og má segja að þar
hafi Haukarnir verið stálheppnir
að missa ekki bæöi stigin.
Það er aftur á móti ihugunar-
efni fyrir Hauka hversvegna þeir
misstu niður 6 marka forskot i
jafntefli á rúmum 15 minútum.
Þótt Þórsliðið sé þokkalegt lið og
alls ekki liklegt til að falla niður
eins og það lék i þessum leik, þá
er þaö samt ekki svo sterkt að það
geti unnið upp 6 marka forskot ef
allt er eðlilegt hjá Haukum.
Framan af var leikurinn
nokkuð jafn, 3:3, 4:4, 5:5, 6:6 og
8:8, en i leikhléi var staðan orðin
12:8 Haukum i vil eins og áður
segir og varð um tima 14:8, en
eftirleiknum hefur áður verið
lýst.
Tveir menn bera af i Þórs-
liðinu, þeir Þorbjörn Jensson og
Sigtryggur Guðlaugsson, menn
sem gengju inni hvaða 1. deildar-
lið sem væri. Þá er ólafur
Sverrisson einnig skemmtilegur
leikmaður. Þó er hætt við að
Þórs-liðið haldi ekki út i hröðum
og hörðum leik sökum skorts á
góðum skiptimönnum.
Framhald á 14. siðu
UMSJÓN SIGURDÓR SIGURDÓRSSON