Þjóðviljinn - 24.11.1973, Síða 15

Þjóðviljinn - 24.11.1973, Síða 15
Laugardagur 24. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Það gerðist fyrir stuttu, að fyrirtæki hér i borg fékk scndan simareikninginn er hljóðaði upp á 22 krónur fyrir utan söluskatt. Þetta er i sjálfu sér ekki i frásögur fær- andi, nema hvað kostnarhiiðin við sendingu þcssa reiknings er stórkostlegt reiknings- dæmi. Sendingarkostnaður simans við að senda giróseðilinn ásamt simreikningnum ér 13 krónur. Giróseðiilinn sjálfur kostar 17 krónur. Þegar fyrir- tækið er búið aö greiða reikninginn þarf siminn að senda kvittun i bréfi og þá er burðargjaldið aftur 13 krónur + umslag + vinnulaun. Þetta dæmi er þegar orðið býsna skemmtilegt, þ.e., það kostar 43 krónur minnst að rukka inn 22 krónur! En nú kemur rúsinan I pylsuendanum. t þctta skipti átti reikningurinn ekkert erindi við fyrirtækið, hann á erindi við ailt annan aðiia. Fyrirtækið endursendir reikninginn, og þá fer reikningurinn af stað aftur frá simanum; ef siminn er hcppinn og finnur réttan mót- takanda i annarri umferð, þá kostar þetta ekki nema 86 krónur, að rukka inn 22 krónur'. Salon Gahlin — Það er undarlegt hvað menn geta sagt mikla vitleysu eins og orðaforðinn er fátæk- legur nú til dags. Það er víðar en hér sem blöðin eiga við mikil f járhagsvandræði að stríða. Ný- lega voru póstburðargjöld fyrir blöð hækkuð í Danmörku, og þá gerði Bidstrup þessa mynd fyrir Land og Folk. Ráðherrarnir þrír ræða saman við blaðagröf ina: — Þú átt sök á blaðadauðanum, Kampmann! — Já, en það verða þá f ærri blöð sem gagnrýna stef nu okkar! — Já, og þessi blöð auka þá ekki verðbólguna með hækkuðu verði. — Nei, það gera bara þau blöð sem ef tir lif a! Krókódilar og hlébaröar eru i hvað mestri hættu gagnvart útrýmingaröflunum. DÝRAVERND A umhverfisráðstefnunni i Stokkhólmi i fyrra var sér- staklega rætt um hina bráðu útrýmingarhættu ýmissa dýrategunda og er nú unniö að þvi að fá fram sameiginlega stefnuyfirlýsingu margra þjóða um verndun vissra dýrategunda. Þegar hafa Bandarikin og Brasilia lýst yfir stuðningi sinum við fram komnar tillögur; búist er við að Sviar komi næst, og siðan fjöldi annarra þjóða. 375 tegundir á hættulista Gerður hefur verið listi yfir þær dýrategundir sem eru i hættu og er talan býsna há, eða 375 tegundir. Það sem helst tefur framgang alþjóða- laga er breytingar sem gera þarf á inn- og útflutnings- reglum, tollareglum og við- skiptahömlum i hinum ýmsu löndum. Fyrst og fremst þarf að vinda bráðan bug að þvi að vernda pelsdýr, krókódila, skjaldbökur, og ýmsa fugla sem hafa fallegar fjaðrir, s.s. paradisarfuglinn og páfa- gauka. Gerðar verða vissar undan- tekningar i sambandi við kaup dýragarða, en öll slik verslun verður að vera milli opinberra aðila i framtiðinni. Svartamarkaösbrask Fyrst og fremst verður reynt að koma i veg fyrir svartamarkaðsbraskið, sem er umfangsmikið i dag, en auðvitað er eftirspurnin mest eftir sjaldgæfum dýra- tegundum. Þetta á jafnt við um lifandi og uppstoppuð dýr, horn, egg og skinn. Egg sjald- gæfra fugla eru seld á háu veröi á alþjóðlegum markaði i dag. Þessi ásókn getur á stuttum tima breytt allri lifs- rásinni á vissum stöðum. Þannig hafa menn, sem eru á höttunum eftir vissum fiska- tegundum i hitabeltinu, sprengt kóralrif til að auka veiðina. Áróður farinn að segja til sín útrýma hlébarðanum, en hlé- barðaskinn hafa verið mjög eftirsótt. Vaxandi áróður gegn útrýmingu þessa fallega rándýrs hefur haft þau áhrif að stertimanneskjur þora ekki lengur að láta sjá sig i klæðum gerðum úr hlébarðaskinnum, og hefur til dæmis ein stærsta pelsverslun Sviþjóðar auglýst hlébarðaskinn á útsölu fyrir aðeins 13 þúsund krónur sænskar, sem þykir lágt verð. Nú er langt komið að 1 stað bjarndýrsfelda og hlébarðaskinna geta menn t.d. valiö úr hverskonar lambsskinnum. Hér er sovésk stúlka að vinna við verkun persneskra iambsskinna. i upphafi var liturinn svartur, en nú hefur tekist að ná fram tuttugu ólikum litum, eða allt frá svörtu til hvits. SÍÐAN UMSJÓN: SJ LAUGARDAGS- SKÁKIN nfÉ ■ 'ýmfcy, M wm m1 'éM w wm W'- 111 m ý'M' m 0 m 1® % m . H ÍX wé 'ÆÆ gl§ jp u M Þessi skákþraut er eftir Itússann T. Ch. Amiroff. Hvitur á leik og mátar i 2. leik. Lausn á siðunni á morgun. LAUGARDAGS- KROSSGÁTAN Lárétt: 1. fantur 3 skip 6 atv.o. 8 kind 9 versna 10 pyttur 12 bókafél. 13 vondur 14 frumefni 15 eink.st. 16 karlnafn 17 veggur. Lóðrétt: 1 landið 2 fjöldi 4 vitund 5 lindýr 7 far 11 vælir 15 eignir ALLIR VEGIR FÆRIR Á Yokohama SNJÓBÖRÐUM KNÞ KÓPASKERI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.