Þjóðviljinn - 24.11.1973, Síða 16
UOÐVIUINN
Laugardagur 24. nóvember 197:!.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gef""- r
simsvara Læknafélags Reykja
vfkur, sfmi 18888.
Kvöldsimi hlaöamanna er 17504
citir klukkan 20:00.
Kvöld, - nætur, - og helga -
þjónusta apótekanna 23. — 29.
nóvember verður i Ingólfsapóteki
og Laugarnesapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Mál og menning
Barnabóka-
búð á 100 fm.
Eina sérverslunin með barnabœkur
Þótt ótrúlcgt sc, þá er aðcins til
cin barnabókavcrslun i Reykja-
vik; þctta cr barnabókaverslun
Máls og menningar að Laugavegi
18, scm stofnsett var árið 1909.
Kins og gefur að skilja varð þessi
verslun fljótlega of litil og þvi var
ráðist i að stækka hana i liaust og
var verslunin opnuð eftir stækk-
unina um siðustu mánaðamót.
Kr verslunarpláss barnabóka-
verslunarinnar nú 100 ferm að
gólffleti.
Hörð
afstaða
Arabaríkja
ALStRBORG 23/11. — Arabiskir
utanrikisráðherrar, sem i dag
komu saman i Alsirborg til þess
aö undirbúa fund rikisleiðtoga
sinna á mánudaginn, gáfu yfir-
leitt við það tækifæri til kynna
harða afstöðu gagnvart tsrael.
tsmail Fami, utanrikisráðherra
Egyptalands, sagði við komuna
til Alsirborgar að baráttunni væri
enn ekki lokið, þvi að tsraelar
hefðu ekki hörfað og Palestinu-
menn berðust enn fyrir sjálfs-
ákvörðunarrétti sinum.
Við ræddum stuttlega við Jón-
stein Haraldsson verslunarstjóra
i Bókaverslun Máls og menningar
um þessa einu barnabókaverslun
i borginni og spurðum fyrst hvers
vegna MM hefði farið út i að opna
sérverslun með barnabækur.
— Það var sannarlega ekki að
ófyrirsynju að þetta var gert
þegar er athugað að nú munu
vera til sölu um 700 barnabóka-
titlará islensku, auk barnabóka á
erlendum málum sem eru hér til
sölu. t hinu mikla plássleysi
bókaverslana vilja barnabækur
oft verða útundan og seljast þvi
minna en skildi og það fer ekkert
milli mála, að sala á barnabókum
hel'ur aukist mjög mikið hjá
okkur eftir aö við opnuðum
barnabókaverslunina. t fyrra
kom i Ijós að verslunarplássið var
orðið of litið og þvi réðumst við i
að stækka hana eins og hægt var.
— Geta barnabækur einar bor-
ið uppi slika verslun sem þessa?
- Það er nú á mörkunum og
þess vegna höfum við selt þarna
leikföng, spil og annað fyrir börn
og hefur það mælst vel fyrir að
hafa til sölu á einum stað það sem
ætlað er börnunum. Kg vona að
þessi stækkun komi sér vel og
verði viðskiptavinum okkar til
þæginda.
—S.dór
I gær var undirritaður samningur milli Kjarn-
orkumálanefndar Bandarikjanna og Orku-
stofnunar um upplýsingaskipti varöandi hag-
nýtingu jarðhitaorku.Myndina tók Ari Kárason
af undirritun samninganna*. Frá vinstri:
Magnús Kjartansson iðnaðarráðherra, Jakob
Björnsson orkumálastjóri sem undirritaði
samninginn og Dixie Lee Ray formaður kjarn-
orkumálanefndar Bandaríkjanna. Hún mun
vcra valdamesta kona i stjórnkerfi USA. Eftir
helgina birtir Þjóðviljinn nánari frásögn um
inntak samningsins.
Einn og hálfur miljarður takk!
Kosningavíxill borgar-
stj órnarmeirihlutans!
Borgarstjórnarmeiri-
hlutinn mun vera búinn að
ákveða að taka kosninga-
vixil, svo takast megi að
koma einhverju sérlegu i
Bandalag háskólamanna:
Miðar við
SÍNE lýsir
kröfum BHM
Til blaöanna streyma stöðugt
fréttatilkynningar frá Bandalagi
báskólamanna þar sem bæði er
mótmælt þeim vinnubrögöum
sem BSRB hefur viðhaft i kjara-
kröfum sinum og einnig kjara-
kröfum Alþýðusambands tslands.
I nýjustu fréttatilkynningunni er
sagt að byrjunarlaun háskóla-
menntaðra gagnfræðaskólakenn-
ara séu nú 46.704 kr. á mánuði og
að það sé staðreynd að 70% allra
háskólamanna i þjónustu rikisins
hafi byrjunarlaun undir 60 þús-
und kr. á mánuöi.
BHM krefst nú 66.270 kr. á
mánuði i byrjunarlaun fyrir há-
skólamenntaða gagnfræðaskóla-
kennara og samkvæmt kröfunum
myndu um 70% háskólamanna fá
90.000 i byrjunarlaun og þar fyrir
neðan. Sagt er i fréttatilkynning-
unni að þær 120.279 kr. sem oft sé
vitnað til úr kröfum BHM eigi að-
eins við örfáa æðstu embættis-
menn þjóðarinnar, biskup, land-
lækni, rektor háskólans og slíka
virðingarmenn.
BHM bendir á að kröfur þjóna i
yíirstandandi deilu séu allt að
86.120 kr. i kauptryggingu á mán-
uði og kröfur matsveina allt að
93.600 kr. á mánuði. Sagt er að
iðnaðarmenn álversins i
Straumsvik geri kröfu um 70.000
kr. i mánaðarlaun og þar fyrir of-
an og fram hafi komið i fjölmiðli
að miðlungslaun flugstjóra séu
150 þús. kr. á mánuði.
Segist BHM berjast fyrir ó-
breyttum launamun i þjóðfélag-
inu og að þeir ætlist ekki til að
sanngjörn laun þeirra bitni á öðr-
um.
Háskólamenn segja að rikjandi
launamunur sé sanngjarn.
Byggja þeir það viöhorf sitt á þvi,
að starfsævi þeirra sé skemmri,
Framhald á 14. siöu.
'A,
Ofvitinn
íslenzkur aöall
Frásagnir
Ævisaga Arna
prófasts
Þórarinssonar.
Mál og menning
cnn.
Þessi höfuðrit Þórbergs Þórðarsonar,
samtals um 2000 bls. í fimm bindum
í samstæðri útgáfu eru nú
öll fáanleg á mjög hagstæðu verði:
Kr. 4.490 ib. í rexin.
Kr. 5.680 ib. í skinn.
(að viðbættum söluskatti).
Laugavegi 18, Reykjavík. Pósthólf 392
framkvæmd fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar aö
vori.
Er ætlunin að fóðra lántöku
þessa með þvi að láta svo heita að
brúka eigi féð til hitaveitufram-
kvæmda, til að standa undir
rekstri Rafmagnsveitunnar, sem
tekist hefur að reka með halla,
svo og til hafnarframkvæmda.
Hins vegar mun ætlunin að nota
féð á annan hátt, meðal annars til
þess að greiða upp ýmsa fram-
kvæmdaliði, sem farið hafa fram
úr áætlun, en fjármálastjórn hins
nýja borgarstjóra er i hinum
mesta ólestri og fjölmargir
framkvæmdaliðir koma til
með að kosta mun meira en ætlað
var.
Helst mun það vera „gróðurinn
meðfram malbikinu”, svo notuð
séu fleyg orð hins nýja borgar-
stjóra, sem kostað hefur svim-
andi upphæðir, og reyndar ekki
búið að gera allt það dæmi upp
enn.
En fjárþörfin er meiri en svo að
innlendi peningamarkaðurinn
geti mett hana. Búið mun vera að
ákveða að sækja um leyfi til fjár-
málaráðuneytisins til að leita
eftir lánatilboðum erlendis frá.
Og það mun ekki vera neitt
pinulitið sem Birgir Isleifur
Gunnarsson ætlar að slá til að
fleyta sér á, 1500 miljónir, einn og
hálfur miljarður!
Mun þetta vera með stærri
kosningavixlum sem sögur fara
af. En hvað er ekkigerandi fyrir
góðan málstaö, og svo eru það jú
aðrirsem borga. -úþ
ÍRA á móti
sam
steypustjórn
BELFAST 23/11. — Hinn bannaði
trski lýðveldisher (IRA) visaði i
nótt leið á bug á fyrirætlunum um
að mynda samsteypustjórn yfir
Norður-Irland, sem i sitji fulltúar
trúarflokkanna beggja, mótmæl-
enda og kaþólikka. IRA segir i til-
kynningu, sem gefin var út i
Dublin, að þessi fyrirætlun sé frá
Bretum komin og dæmd til þess
að misheppnast.
Hitaveitumálin eru efst á baugi
Samvinnimefnd
um
hitaveitumálin
Stjórn Sambands islenskra
sveitarf élaga gerði svofcllda
ál.vktun á fundi sinum hinn 21.
nóveniber:
..Stjórn Sambands islenskra
sveitarfélaga beinir þvi til rikis-
stjórnarinnar, að Inin skipi nú
þegar samvinnunefnd rikis og
sveitarfélaga um hitaveitu-
mál. Stjórnin leggur til, að
nefndin fái það hlutverk að gera
áætlun um notkun jarðvarma til
liúsahitunar i þeiin byggöar-
lögum landsins, þar sem unnt er
aö koma sliku við og hagkvæmt
þykir. Jafnframt undirbúi hún
stofnun hitaveita i samstarfi viö
þau sveitarfélög, sem hlut eiga að
máli.
Ahersla er lögð á, aö nefndin
hraði störfuni sem mest og
jafnhliða verði unnið að þvi að út-
vega fé til framkvæmda:’.
Þá barst Þjóðviljanum einnig
ljósrit af bréfi Birgis I. Gunnars-
sonar borgarstjóra sem er svar
við bréfi iðnaðarráðherra sem
greint var frá i blaðinu i gær. 1
bréfi borgarstjóra segir m.a.:
Borgaryfirvöid hafa að sjálf-
sögðu fuilan hug á þvi, að af
þeirra hálfu verði staöið við
samninga viðKópavog og Hafnar-
fjörð um lögn og rekstur hitaveitu
i þessum sveitarfélögum. Fyrir-
vari þessa efnis i bréfi iðnaðar-
ráðuneytisins er þvi óþarfur,
enda er þá reiknað með, að af
hálfu ráðuneytis yðar og rikis-
stjórnarinnar verði ekki staðið á
móti þvi.að gjaldskrá Hitaveit-
unnar verði á hverjum tima
ákveðin þannig, að veitan skili
þeirri lágmarksarðsemi, sem
fyrrnefndur lánasamningur og
samningar við nágrannasveitar-
félögin gera ráð fyrir.