Þjóðviljinn - 01.12.1973, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.12.1973, Blaðsíða 1
Húsnæðismálastofnun rikisins 420 miljónir á næstunni Áfundi húsnæðismálastjórnar i dag var tekin ákvörð- un um lánveitingar Húsnæðismálastofnunar ríkisins á næstu vikum og mánuðum, er nema munu um 420 mil- jónum króna. Er hér um byggingalán að ræða, er koma munu til greiðslu i þremur áföngum frá og með 15. des- ember nk. til og með 10. febrúar nk. Afgreiðslan á byggingalánsum- 1. Allar þær umsóknir, sem sóknum i ofangreindum lánveit- báruststofnuninni fyrir 1. febrúar ingum veröur meö neðangreind- j 1973, höfðu verið úrskurðaðar um hætti: Framhald á 14. siðu Störaukning á húshitun með rafmagni? t frétt frá Landsvirkjun segir að Sigölduvirkjun geri kleift að stórauka húsahitun með raf- magni þar sem hitaveitu verður Gert er ráð fyrir, að fram- kvæmd á framangreindum við- skiptum við rafveiturnar verði i Framhald á 14. siðu Lúðvik Jósepsson á aðalfundi út^erðarmanna: 2 miljörðum þegar varið til uppbygg- ingar frystihúsa 11 ný frystihús í byggingu Lúðvík Jósepsson, sjávarútvegsráðherra, flutti í gær ræðu á aðal- fundi Landssambands ís- lenskra útvegsmanna. Við birtum ræðuna á morgun, en Lúðvík sagði m.a.: Það málefni sem ég tel að næst gangi landhelgismáiinu að mikilvægi fyrir islenskan sjávarútveg, cru þær miklu framkvæmdir sem nú er unnið að i fiskiðnaði og jafnhliða sú endurnýjun fiskiskipaflotans sem nú fer fram. 11 ný frystihús eru nú i byggingu viðsvegar um landiö og ráðgerðar eru fleiri nýbyggingar stórra fiskiðn- aðarstöðva. Slofnkoslnaður þessara 11 frystihúsa var áætl- aður 13S(> miljónir króna, cn mun vcrða ailmiklu meiri. Þeg- ar hcfir verið unnið fyrir 5-(>00 miljónir króna I þessum húsum. i 19 öðrum frystihúsum hefir verið unnið að stórfrlldum end- urhótum og hreytingum þar sem um hefir verið að ræða frainkvæmdir, sem áællað var að kostuöu frá 40 miljónum i húsi til 112 miljónir. Samtals voru endurbætur i þessum 19 frystihúsum áætlaður kosta a 11- miklu meira i rcynd. i þessum húsum hefir þegar verið unnið fyrir 8-900 milj. króna. Auk þessa hafa staðið yfir breyting- ar og endurbætur, og fram- kvæmdir við nýja vélvæðingu i flestum öðrum frystihúsum landsins og i mörgum öðrum fiskviunslustöðvum og nemur framkvæmdakoslnaður þa r yfirleitt 10-20 miljónum króna á hús. Áætlaöur heildar-fram- kvæmdakostnaður i frysliliús- um er 4385 inilj. króna og talið er samkvæmt fyrirliggjandi skýrslum að þegar hafi verið unnið fyrir 2030 milj. króna, eða sem nemur 40,3% af heildar áætluðum framkvæmdum. 1. des. ísland úr Nato- Herinn burt islenska borgarastéttin og NATÓ nefnir Guðmundur Ármann Sigurjónsson þessa mynd sfna, scm er á sýningu i Galleri Súm. Baráttusamkoma í dag ekki komið við. i áætlunum um Sigölduvirkjun hcfur verið reiknað meö, að virkj- unin geri kleift aö taka upp stór- aukna húshitun með rafmagni á orkusveitusvæði Landsvirkjunar. Er talið, að á orkuveitusvæðinu sé viðbótarmarkaður fyrir alls 280 milj. kWst. á ári til húshitunar á þeim svæðum, sem ekki er liklegt að geti notið hitaveitu. Samsvar- ar það þvi, að 25—30 þús. manns til viöbótar fái notið rafhitunar. Mundi þetta spara náiægt 34 þús tonna oliuinnflutning á ári hverju Samkvæmt áætlun geta núver- andi vatnsaflsstöðvar Lands- virkjunar framleitt 2150 milj. kWst. á ári i meðalvatnsári. Framleiðslan 1973 verður sem næst 2000 miljónir kWst. og áætl- uð framleiðsla 1976 um 2100 milj. kWst. við óbreyttar aðstæður. Það er þvi ekki af miklu að taka, þar til Sigölduvirkjun tekur ti) starfa. Er það ástæðan fyrir þvi, að Landavirkjun hefur viljað fara varlega i að hvetja til aukinnar húshitunar næstu 2—3 árin, þvi að ekki má mikið út af bregða, ef notkun eldsneytisstöðvanna á að vera i hóf stillt. Annað mundi hækka verðið til almennra nota. Hinar miklu hækkanir oliu- verðs að undanförnu valda þvi hins vegar, að samkeppnisað- staða rafhitunar hefur batnað verulega og enn rikari ástæða en áöur til að flýta fyrir aukinni notkun rafhitunar, eftir þvi sem aöstæður frekast leyfa. Með hlið- sjón af þessu ákvað stjórn Landsvirkjunar á fundi sinum hinn 29. nóvember að bjóða raf- veitum á orkuveitusvæði sinu sér- stakan húshitunartaxta fyrir þá hitunarorku, sem þær geta ekki selt á viðunandi verði innan ramma núverandi gjaldskrár. Með þessu er einkum að þvi stefnt, að unnt verði að gefa kost á rafhitun i öllum nýbyggingum utan hitaveitusvæöa, en stofn- kostnaður rafhitunar er mun minni en annarra hitunarkerfa og þvi þjóðhagslega hagkvæmt, að hana megi taka upp i sem flestum nýjum húsum. Hins vegar er ekki unnt að láta taxtann ná til rafhit- unar i hús, sem þegar hafa oliu- kyndingu, nema að tryggt sé að eigendur þeirra viðhaldi kynding- artækjum sinum, þangað til næg örugg orka fæst frá Sigölduvirkj- un, svo að gripa megi til þeirra, ef um orkuskort verður að ræða. i dag er fullveldisdagur islands^og að vanda efna stúdentar til ýmissa uppá- tækja til að minnast hans og ekki siður: gefa honum innihald. Sú vísa er aldrei of oft kveðin að sjálf- stæðisbaráttu smáþjóðar lýkur aldrei. Þess vegna eru orðin „hátiðarsam- koma" og „minningarhá- tið" eitur í beinum stúdenta: þeir kjósa að kalla það baráttuhátíð. t þriðja skiptið i röð er umsjón hátiðarhaldanna i höndum vinstrisinnaðra stúdenta og i þriðja sinn er dagurinn helgaður baráttunni gegn heimsvalda- stefnunni. island úr Nató — Her- inn burt eru einkunnarorö dags- ins. Klukkan 14 hefst i Háskólabiói baráttusamkoman. Eyvindur Eiriksson setur dagskrána en aö þvi loknu verður samfelld dag- skrá i mæltu máli, ljóðum og söng. Þar koma meðal annars fram tveir erlendir gestir: Le Van Ky sendifulltrúi Þjóðfrelsis- fylkingar Suður-Vietnama i Osló og Rafael Carero útlagi frá Chile og forsvarsmaður þarlendra stúdentasamtaka. Trúbadúrarnir Böðvar Guðmundsson og Orn Bjarnason syngja lög sin og ljóð. og kór háskólastúdenta kyrjar baráttusöngva. Aðalræðumaður dagsins er Vé- steinn Lúðviksson rithöfundur. Listsýning i SÚM 1 dag verður einnig opnuð póli- tisk myndlistarsýning i Galleri SÚM á vegum 1. des. nefndarinn- ar. f byrjun nóvember sendi nefndin nokkrum tugum ungra róttækra listamanna bréf og fór þess á leit við þá aö þeir sendu verk á þessa sýningu. Undirtektir voru mjög góðar og árangurinn varð sá að upp er komin sýning 28 listamanna sem á eru 43 verk. Verður hún opin um tveggja vikna skeið. Chilefundur á mánudag A mánudagskvöld efnir nefndin svo til fundar um Chile i Norræna húsinu og hefst hann kl. 20.30. Þar verður mættur áðurnefndur Rafael Carero og ræðir hann um valdaránið og svarar fyrirspurn- um. Dagur Þorleifsson blaða- maður ræðir um Chile og barátt- una i Suður-Ameriku. Flutt verð- ur siðasta ávarp Allende forseta til þjóðar sinnar i útvarp,en hana flutti hann að morgni 11. septem- ber úr forsetahöllinni eftir aö sprengjuárásirnar voru hafnar. Mexikanskur fréttamaður tók ræðuna upp á segulband og smyglaði henni út úr landinu. Þá verða flutt ljóö eftir Pablo Ner- uda, þjóðskáld Chilebúa. Að lok- um veröa almennar umræöur um hina alþjóðlegu baráttu sem nú hefur verið skipulögð til stuðnings alþýðu Chile. Blað og plaköt Að vanda gefur nefndin út blað i tilefni dagsins og dreifir þvi um borg og bý. Var greint frá þvi hér i blaðinu i gær. Siðan vinstrimenn fóru að hafa umsjón með hátiðarhöldunum hafa þeir haft þann sið að láta gera plaköt i anda einkunnarorða dagsins. t fyrra og hitteðfyrra voru myndirnar á þeim eftir nemendur Myndlista- og handiða- skóla Islands. I ár eru plakötin þrjú og að þessu sinni urðu fyrir valinu 2 myndir sem voru á sýn- ingu þeirri sem stóð i anddyri Há- skólabiós á meðan á baráttusam- komunni stóð og ein eftir Gylfa Gislason. Hinar tvær eru eftir Hrein Friðfinnsson og Jón Reyk- dal. Plakötin verða til sölu i anddyri Háskólabiós i dag og i Bóksölu stúdenta og Bókabúð Máls og menningar i framtiðinni. Á sömu stööum mun blaðiö liggja frammi. Þá sakar ekki að geta þess að stúdentar munu fagna deginum meö dansleik i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut i kvöld. —ÞH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.