Þjóðviljinn - 01.12.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 01.12.1973, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Laugardagur 1. desember 1973. Álmennár upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefr-- simsvara Læknafélags Reykja vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaðamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Helgar-, kvöld- og næturþjónusta lyfjabúða i Reykjavik 30. nóv. — 6. des. verður i Reykjavikurapó- teki og Borgarapóteki. AHSTIIRLÖND NÆR; Allt er á suðupunkti Jerúsalem. Kairó 30/11 — Allt er nú á suðupunkti fyrir botni Miðjarðarhafs eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum egypskra og ísraelskra herfor- ingja í gær. Talsmaður stjórnarinnar í Kaíró segir alla möguleika vera til athugunar, þar á meðal að hefja strlð að nýju, láti Israelar ekki af ögrunaraðgerðum sínum. Talsmaður friðarsveita S.Þ. skýröi frá þvi i Kairó aö f jöldi vopna- hlésbrota hefði aukist aö mun siöustu dagana. A miðcikudag hafi verið tilkynnt um 20 bardaga á landi og fjórar loftorrustur. Hann kvað þó ekki horfur á aö vopnahléiö fari út um þúfur Yfirmaður friöarsveitanna, Ensio Siilasvuo hershöfðingi", sem stjórnað hefur viðræðum striðsaðila átti i dag viðræður við Ahmed Ismail, hermálaráðherra Egypta og um helgina mun hann fara til Jerúsalem til viðræðna við Moshe Dajan og fleiri israelska ráða- menniþeim tilgangi að reyna að koma viðræðunum á aftur. Herir r beggja hafa fengið skipanir um að vera við öllu búnir. Areiöanlegar heimildir i Kairó segja að áður en til nýrra viðræðna geti komiðmuni fulltrúar Egypta eiga viðræður við sendimenn So- vétmanna og Bandarikjamanna. Bæru þær engan árangur ættu Eg- yptar engra annarra kosta völ en að hefja strið að nýju,og þar með væri friðarráðstefnan i Genf fyrir bi sögðu heimildirnar. Israelsmenn eru vongóðir um að viðræðurnar i Súez hefjist að nýju innan skamms. Aðalfiindi LIÚ frestað r Utgerðar- menn setja úrslitakosti Landssamband Islenskra út- vegsmanna frestaöi aöalfundi sinum I gær, og setti um leiö stjórnvöldum úrslitakosti fyrir framhaldi útgeröar á landinu. Niðurlag aðalályktunar fundar- ins var svolátandi og má hver og einn sjá að hér er um úrslitakosti um framhald útgeröar af hálfu útgerðarauðvaldsins aö ræða: Um kl. 16 I gærdag varð harður árekstur á vegamótum Krisuvikurvegar og Reykjanesbrautar. Fjórar manneskjur sem I bílunum voru slösuðust nokkuð en ekki llfshættuiega að þvl er Hafnarfjarðarlögregl- an sagði. Bifreiðarnar skemmdust mikið. Myndina tók Viðar Toreid nokkru eftir að árcksturinn varð. Bráðabirgðatenging hringvegarins í dag Skeiðará veitt undir brúarhlutann sem fullgerður er „Þar sem augljóst er, aö útgerð veröur ekki stunduö á næsta ári, nema nauösynlegar ráðstafanir séu gerðar til að tryggja öruggan rekstrargrundvöll hennar.og þar sem enn er meö öllu óljóst, hvaða ákvarðanir verða teknar, telur fundurinn, aö heildarsamtökin undir forustu sambandsstjórnar veröi að hafa vakandi auga með framvindu mála, og sé þvi ekki fært að slita fundinum, fyrr en úr- lausn hefir fengist, og samþykkir þvi að fresta honum”. Þrátt fyrir frestunina kaus fundurinn sér stjórn og er for- maður hennar Kristján Ragnars- son, sá er þvl starfi hefur gengt næstliðið ár. 1 tilefni fullveldisdagsins, og þeirrar loka-baráttu sem nú er hafin fyrir brottflutningi banda- riskra herstöðva af islandi, snéri blaðið sér tii formanns Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik, og spurðist fyrir um hvort Alþýðu- bandalagsmenn þar hyggðu á sérstakar aðgerðir á næstunni. Sigurður svaraði þvi til, að við mótun vetrarstarfsins heföi fé- lagið i Reykjavik ákveðið að halda öflugu starfi fyrir brott- flutningi bandarisku herstöðv- anna. Hugmyndin væri að semja dreifibréf þar sem sett væru fram helstu rök Alþýðubandalags- manna fyrir brottflutningnum, en. meðan að verið væri að útbúa slikt upplýsingarrit, yrðu haldin nokkur erindi á vegum félagsins um ýmsa þætti herstöðvarmáls- ins. Þannig væri þegar búið að á- kveða aö Dagur Þorleifsson tæki fyrir bandarisku herstöðvarnar á íslandi í tengslum við heims- valdastefnuna, Ragnar Arnalds Framkvæmdum við mann- virkjagerð á Skeiðarársandi hef- hinar fráleitu fullyrðingar her- námssinna um varnarmátt og öryggi herstöðvarinnar fyrir Is- lendinga, Úlfar Þormóðsson tæki fyrir hin sérstöku vandamál Reyknesinga vegna nábýlis við herstöðina, Þorbjörn Broddason áhrif hinnar langvarandi hersetu á þjóðlif og menningu; auk þess væri ætlunin að Jónas Arnason ræddi um þær hugmyndir sem stundum er hampað að banda- riski herinn hafi fataskipti, og að Islendingar tækju að sér her- mannastörf. Sigurður sagði að starfsemi þessi myndi væntan- lega hefjæt strax upp úr áramót- um. Auk þess sagði hann að fé- lagsstjórnin i Reykjavik hvetti Alþýöubandalagsmenn til þátt- töku i starfi herstöðvaandstæð- inga hvarvetna sem kostur gæf- ist. Þannig heföi stjórnin sam- þykkt á siðasta stjórnarfundi sin- um stuðning við hátiðarsamkomu námsmanna H.í. 1. des., og skor- aði á félaga sina að fjöimenna i Háskólabiói. ur miöaö það vel i haust, að nú er lokið við fyrri hluta brúar og varnargarða við Skeiðará. Verð- ur ánni veitt undir þennan hluta brúarinnar, og þess freistað að halda henni þar i vetur meðan vatnsmagn árinnar er i lágmarki. i Veröur brúin tekin til umferðar með bráðabirgðatengingu laugardaginn 1. desember. Vakin skai athygli á þvi, að hér er um ó- fullkomna tengingu að ræða, og eru vegfarendur beðnir að við- hafa fyllstu aðgát i akstri sinum. Rétt er að geta þess, að færð á vegum i Skaftafellssýslum er viða mjög erfið um þessar mund- ir. Þannig er Mýrdalssandur ein- ungis fær stórum bifreiðum og jeppum og Breiðamerkursandur illfær öllum farartækjum. Fundur á Höfn Samtök herstöövaandstæðinga halda fund á Höfn i Hornafirði á inorgun, sunnudag, klukkan 13:30 i Sindrabæ. Ræðumenn verða: Már Pétursson, lögfræðingur, Einar Karl Haraldsson, frétta- maöur, Sævar Kristinn Jónsson, bóndi og Torfi Þorsteinsson, bóndi. ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ REYKJANESKJÖRDÆMI Kjördæmisráð Alþýöubandalagsins i Reykjaneskjördæmi heldur fund I Þinghól i-Kópavogi sunnudaginn 2. desember kl. 14. Svava Jakobsdóttir alþingismaður ræðir um baráttuna fyrir brottför hersins, og Sigurður Grétar Guðmundsson bæjarfulltrúi ræðir úm sveitarstjórnarmál og undirbúning kosninganna i vor. KÓPAVOGUR Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn mánu- daginn 3. desember kl. 20.30 i Þinghól aö Alfhólsveg 11. Auk aðalfundarstarfa verður rætt um bæjarmálin og undirbúning kosninganna i vor. Stjórnin Arshátiö i Borgarncsi Alþýðubandalagiö i Mýra- og Borgarfjarðarsýslu heldur árshátið á hótelinu i Borgarnesi i kvöld, laugardagskvöld. Þar verða frambornar kaffiveitingar og siöan flutt skemmtiatriði. Stjórnin ABR með um- ræðu- fundi um her- stöðvamálið Slysavaröstofa Borgarspítalans ,er opin allan sólarhringinn. 'Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. erlendar fréttir í stuttu máli Sendiráðs- bústaður umkringdur Santiago 30/11 — 30 óein- kennisklæddir lögreglumenn umkringdu i dag heimili fyrsta sendiráðsritara sænska sendiráðsins i Santiago. Einn þeirra fór inn i húsið en þar var þá enginn fyrir annar en ein þjónustustúlka. Hringdu þeir þá i sænska sendiráðið og spurðuust fyrir um Oscar Garreton sem var þingmaður og fylgismaður Allende. Sendiráðsstarfsmaður einn fór á vettvang og tókst honum að lempa mennina frá húsinu þegar þeir höfðu sannreynt að maðurinn væri ekki i húsinu. Feitir herrar flýja Buenos Aires 30/11 — Bandariski auðhringurinn Ford hefur sent allt erlent starfslið sitt (þ.e.a.s. yfir- mennina) i Argentinu úr landi vegna hótana borgarskæru- liða sem kenna sig við Peron- isma. Argentinustjórn hyggst gripa til nýrra öryggisráðstaf- ana til að koma i veg fyrir flótta erlendra starfsmanna auðhringanna úr landinu. Uppá siðkastið hafa mannrán og önnur starfsemi skæruliða staðið með miklum blóma. Verkfall í Liverpool Liverpool 30/11 — 7 þúsund hafnarverkamenn i Liverpool i Englandi lögðu niður vinnu i dag i mótmælaskyni við brott- rekstur trúnaðarmanna. Stöðvuðust 43 skip af þeim sökum. A mánudag hafa verkamenn samþykkt að taka þátt i alls- herjarverkfalli sem nær um allt England og hefst þvi vinna við Liverpoolhöfn ekki aftur fyrr en á þriðjudag. Þrir féllu á N-írlandi BELFAST 26/11 Þrir biðu bana í vopnaviöskiptum á Norður-trlandi um helgina, en þá var á nokkrum stöðum ráö- ist á breskar varðstöðvar. Einn þessara manna var breskur hermaður — hafa þá alls 200 breskir hermenn faliiö á Norður-irlandi á um fjóruni árum. Vonleysi í Grikklandi AÞENU 29/11 — Útvarpsræða hins nýja forsætisráðherra her- foringjanna, Adamantiosar Androutsopoulosar, hefur farið heldur iiia I fólk I Grikklandi segja fréttastofur. Fólk hafi átt von á einhverjum loforðum um lýðræðislegar úrbætur, en varö fyrir vonbrigöum. Svo virðist vera sem hinir nýju valdhafar hugsi sér að láta herlögin gilda á- fram unt ótiltekinn tima.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.