Þjóðviljinn - 01.12.1973, Page 11
Laugardagur 1. desember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Stórleikur í I.
deild á morgun
þegar FH og Fram mætast í Hafnarfirði
Kínversku borðtennis-
snillingarnir koma á
mánudag
Allir bestu borötennis-
leikarar Kinverja, nema
einn, koma til íslands á
mánudaginn og halda hér
sýningar. Þeir leika einn
landsleik við islendinga og
kenna þessa þjóöariþrótt
Kinverja meöan þeir
dvelja hér í 10 daga. Þaö
má segja að annaðhvort sé
það i hæl eða tá hjá islensk-
um borðtennismönnum,
sem ætla nú að leika lands-
leik við heimsmeistarana
Kinverja, eftir að hafa
tapað síðustu landskeppni
fyrir Færeyingum. Þeir
leika sem sagt við fámenn-
ustu þjóð veraldar og hina
f jölmennustu. En það
skiptir í rauninni engu
máli; aðalatriðiö er að fá
Kinverjana hingað, aðeins
til að fá að sjá þá leika.
Eins og áöur segir koma allir
bestu borðtennisleikarar Kin-
verja hingað nema einn sem er i
hernum og fékk ekki leyfi til far-
arinnar. Nú sem stendur eru 5
kinversk landsliö að keppa viðs-
vegar um heiminn, en ástæðan
fyrir þvi að við fáum þá bestu er
að þeir eru að keppa á opna
sænska mótinu sem er einskonar
„Litla heimsmeistarakeppnin’’
og þangað sendu Kinverjarnir sitt
besta lið og það kemur svo hingað
að þessari sænsku keppni lokinni.
Kinversku borðtennisleikar-
arnir sem koma eru:
Lu Yan-sheng fæddur 1954, stúd-
ent við skóla i Shanghai og var i
liðinu sem hlaut 4. sæti á kin-
verska meistaramótinu.
Wang C'hia-lin fæddur 1954 i
Shanghai, stundar nám við kenn-
araskóla. Hann varð 4. á kin-
verska meistaramótinu.
l.i I’engfæddur 1955. Hann var i
liðinu sem sigraði á kinverska
meistaramótinu og er hann talinn
efnilegasti borðtennisleikari Kina
i dag.
Cliou l'hih-chun fæddur 1951,
starfsmaður bifreiðafyrirtækis i
Canton. Hann var i liðinu sem
varð i 3. sæti á meistaramótinu.
Liu llsin-yen fædd 1955, sigur-
vegari i tviliðaleik kvenna á
meistaramótinu 1973.
Li Shu-yingfædd 1954, stúdent, og
er talin ein efnilegasta borð-
tenniskona i Kina.
IIsu Shu-kuang fædd 1954, stúd-
ent. Hún var i liðinu sem hlaut 4.
verðlaun á meistaramótinu 1973.
Yu Chin-chia fædd 1952, stundar
nám i kennaraskóla. Hún var i
liðinu er varð i 2. sæti á kinverska
meistaramótinu 1973.
Og þegar talað er um kinverska
meistaramótið má geta þess að i
þvi taka þátt 600.000 manns, svo
það eru engir aukvisar sem kom-
ast á toppinn þar.
Hér ter svo á eftir dagskrá
hcimsóknarinnar:
Mánudagur 3. dcs. Kinverjarn-
ir koma til Keflavikur kl. 18.
Aætlaður timi til Iteykjavikur á
llótel Loftleiðir kl. 19.30.
Þriðjudagur 4. des. Keppni og
sýning kinversku leikmannanna i
Laugardalshöllinni kl. 20.30.
Miðvikudagur 5. des. Farið á
borðtennisæfingu i Laugardals-
höllinni kl. 18.
Fimmtudagur 6. des. Heim-
sóknir i skóla Reykjavikur. Farið
á borðtennisæfingu i Laugardals-
höll kl. 20.
Föstudagur 7. des. Landsleikur
KtNA-tSLANI) i Laugardalhöll-
inni kl. 20.30.
Laugardagur 8. des. Sýning og
keppni i iþróttahúsinu á Akranesi
kl. 13.30.
Mánudagur 10. des. Sýning og
keppni i iþróttahúsinu i Njarðvik-
um kl. 19.30.
Þriðjudagur 11. des. Sýning i
Gróðurhúsinu Eden Hveragerði
kl. 12.
Miðvikudagur 12. des. Sýning
og keppni i iþróttaskemmunni
Akureyri kl. 20.
Fimmtudagur 13. des. Opið mót
i einliðaleik karla og kvenna i
Laugardalshöll kl. 20.
Föstudagur 14.des. Hrottlör Irá
Keflavik kl. 9.30 áleiðis til Finn-
lands.
Oviðráðanlegar breytingar
geta átt sér stað og verður reynt
að láta vita jafnóðum.
Annar
besti í
Kína
l»cssi kinvcrski borðtcnnis-
lcikari hcitir Chou Chih-chiin
og cr aöcins 18 ára gamall, cn
cr ásamt talinn annar hcsti
borðtciinislcikari Kina og |)á
jafnframt i liópi bcstu borð-
lcnnislcikara hciins. llaiin cr
óncilanlcga skærasta sljarnan
. i þciiu 8 niaiina liópi scm
kcimir lil islantls á máiiutlag,
þólt liinir 7 scu allir snillingar.
Annaö kvöld fara fram
tveir leikir í l.-deildar-
keppninni í handknattleik
suður i Hafnarfirði og er
annar þeirra einn af stór-
leikjum vetrarins í 1. deild.
Þaö er leikur FH og Fram
og er hann fyrri leikur
kvöldsins. Hinn leikurinn
getur einnig orðið
skemmtilegur, milli Hauka
og íslandsmeistara Vals.
Gera má ráð fyrir að leikur FH
og Fram verði mjög harður, jafn
og skemmtilegur, það hafa að
minnsta kosti leikir þessara liða
verið undanfarin ár, og enn eru
þau svo svipuð að styrkleika að
engin ástæða er til að ætla annað
en að leikurinn verði sann-
kallaður stórleikur.
Spurningin er hvort Fram gerir
enn eitt jafnteflið eða hvort
GIsli Blöndal hefur átt mjög góöa lciki undanfarið. Annaö kvöld leikur
liö hans viö Hauka. Hér á myndinni sést GIsli I uppstökki i leik Vals og
Dynamo Pancevo á dögunum.
Liu Gi Shu
Lin Peng
Kuan,
Hsu
LU
Wang
herslumunurinn, sem vantað
hefur hjá liðinu verður fyrir
hendi, eða hvort FH heldur sinu
striki og vinnur 4. leikinn i röð.
Siðari leikurinn, milli Vals og
Hauka, ætti einnig að geta orðið
jafn og skemmtilegur. Haukarnir
gerðu sér litið fyrir og sigruðu FH
i úrslitaleik Reykjanesmótsins sl.
fimmtudag og þótt Valsmennirnir
séu sigurstranglegri á papp-
irnum, geta Haukarnir bitið frá
sér. Markvarslan ætti að minnsta
kosti að vera i lagi i þessum leik
þar sem mörkin verja tveir okkar
langbestu markverðir, landsliðs-
markveröirnir ólafur Bene-
diktsson og Gunnar Einarsson.
Fyrri leikurinn hefst kl. 20.15 en
á undan fara fram leikir i 2. deild
kvenna milli UBK og IBK og
Hauka og IR. En þar á eftir einn
leikur i 1. deild kvenna milli FH
og Ármanns.
Bikarkeppni KKÍ
hefst í janúar
Ákveðið hefur verið að bikar-
keppni Körfuknattleikssambands
tslands hefjist i janúarmánuði,og
verða þau félög sem ætla að
senda lið i mótið að senda þátt-
tökutilkynningu til KKI i pósthólf
864 fyrir 10. desember nk.
UMSJÓN SIGURDÓR SIGURDÓRSSON