Þjóðviljinn - 06.12.1973, Side 14
14 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN IFimmtudaKur li. desemher l!)7:i.
FÉLAGSLÍF
Borgfirðingafélagiö
minnir félaga og velunnara á
aö skila munum á basarinn 9.
des. n.k. hið allra fyrsta til
Ragnheiðar sima 17328,
Guðnýjar sima 30372 og Ragn-
heiðar i sima 24665.
Kvenfélag Hreyfils
Fundur fimmtudag 29. nóv. kl.
20.30 i HreyfilshúSinu. Sýndar
verða myndir úr sumarferða-
laginu. t>ær konur, sem tóku
myndir, taki þær með. Mætið
vel og stundvislega.
Stjórnin.
Minningarkort
Styrktarfélags
vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum :
Bókaverslun Snæbjarnar,
Ilafnarstræti
Bókabúð Braga, llafnarstræti
Versluninni lllin, Skólavörðu-
stig
Bókabúð Æskunnar. Bauga-
vegi
og á skrifstofu félagsins að
I>augavegi ll,simi: 15941.
DJOÐVIUINN
Blaðberar óskast á
Seltjarnarnes
Grimsstaðarholt
Háskólahverfi
Hverfisgötu
Sundlaugaveg
Nökkvavog
Hraunbæ
Skipholt
Stórholt
Þjóðviljinn simi 17500
Og 17512.
SKIPAUTGCRB RIKISINS
M/s Baldur
fer frá Reykjavik
mánudaginn 10. þ.m. til
Breiðaf jarðarhaf na.
Vörumóttaka: fimmtu-
dag og föstudag.
Dönsku
Framhald af bls. 16.
skipan og vinnubrögð þeirra
flokka, sem stjórnað hafa til
skiptis undanfarin kjörtimabil.
— Gæti þessháttar komið fyrir
á tslandi að þinu áliti?
— Eg held að það sé engin leið
að draga hliðstæður milli danskra
stjórnmála og islenskra: þar er
umtöluvert mismunandi
viðfangsefni að ræða. En að
minnsta kosti sýnir þetta þörfina
á þvi, að flokkar, sem orðnir eru
gamlir i hettunni, lagi vinnubrögð
sin meira en gert hefur veriö að
nýjum kröfum, sem rás timans
gerir til stjórnmálanna.
Ragnar Arnalds,
formaður Alþýðubanda-
lagsins:
Hin megna pólitiska óánægja
og leiði á forustumönnum
danskra stjórnmála, sem
kosningarnar þar i landi bera
vitni um, á sér vafalaust margar
orsakir. Almenningur hefur ekki
orðið var við, að innganga Dan-
merkur i Efnahagsbandalag
Evrópu hefði i för með sér þann
búhnykk, sem lofað hafði verið,
heldur hefur reyndin orðið þver-
öfug. Vonbrigðin valda megnri
vantrú á forustunni, einkum
meðal sósialdemókrata og hægri
manna.
Einnig hefur verðbólgan vafa-
laust haft mikil áhrif, þótt hún sé
að verulegu leyti af erlendum
toga spunnin, en þar eins og i
mörgum öðrum löndum iendir
ábyrgðin af hinni gifurlegu al-
þjóðlegu verðbólgu á þeim, sem
með völdin hafa farið, þ.e. á
sósialdemókrötum og SF.
En ég held ekki, að lukku-
riddarar eins og Glistrup og
Jakobsen verði langlifar stjörnur
á himni danskra stjórnmála.
Vonbrigðin vcrða sjálfsagt ekki
minni en hin barnslega eftir-
vænting, sem nú virðist hafa
gripið um sig meðal danskra
kjósenda við óvenjulegar
aðstæður.
Magnús Jónsson, vara-
lormaöur Sjálfstæðis-
iiokksins:
Frá minum bæjardyrum séð
virðist þetta benda til mjög alvar-
legrar upplausnar i dönskum
stjórnmálum. Fljótt á litið er að
sjá, að straumurinn liggi til
hægri, þar eð báðir þessir nýju
flokkar, sem ná þessum miklu
áhrifum virðust vera þeim
megin. Annarer klofningsflokkur
úr jafnaðarmannaflokknum og að
þvi er virðist heldur úr hægra
armi þess floks, og hinn, ef flokk
Auglýsingasíminn
er 17500
UNDRALAND
ný leikfangaverslun i Glæsibæ.
Allt sem rúllar, snýst, skoppar, tistir og
brunar:
Fjölbreytt úrval.
Komið, sjáið, undrist i
UNDRALANDI
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Gamli bærinn
Innan ABR hafa um skeið verið starfandi þrir umræöuhópar, er gert
hafa frumathuganir á ýmsum þáttum borgarlifsins vegna stefnuskrár-
gerðar ABR fyrir kosningarnar i vor.
Föstudagskvöldiö 7. des. boðar sá hópur, er fjallað hefur um skipulag
og uppbyggingu borgarinnar, til opins fundar að Grettisgötu 3.
Umræðuefnið verður:
Vandamál við verndun og uppbyggingu gamla bæjarins.
skyldi kalla, er samansettur af
mönnum, sem eru ákaflega
andvigir öllum rikisafskiptum,
nánast hverju nafni sem þau
nefnast. Hverjar afleiðingar
þessara kosninga verða, er auð-
vitað ómögulegt um aö spá nú, en
þetta hlýtur að merkja eitthvert
millistig i þróuninni. Ekki er gott
um það að segja á þessu stigi
hvort þetta eru að einhverju leyti
afleiðingar velferðarþjóðfélag-
sins, en meðal annars sýnist þetta
benda til þess aö fólk almennt sé
ákaflega andvigt skattaálögum
tii opinberra þarfa. Mér sýnist
ástæða til að gefa að þessu gaum,
þar sem hér er um m jög þroskaða
þjóð að ræða. Af þeirri ástæðu lit
ég svo á að við þurfum að huga
vel að þvi hvaöa raunveruleiki sé
hér að baki og hvaða tilfinningar
eru hér helst að brjótast fram.
betta getur auðvitað ekki orðið til
frambúðar, vegna þess að þessir
nýju flokkar virðast ekki eiga sér
neinn traustan grundvöll, og
flokkakerfið þar að auki nú orðið
svo flókið, að um einhverja upp-
stokkun flokkakerfisins eða
algert öngþveiti er að velja.
— Þar eð Sjálfstæðisflokkurinn
er til hægri i stjórnmálunum hér,
telurðu þá likur á þvi að hann snúi
stefnu sinni enn meira til hægri
með hliösjón af þessum úrslitum i
Danmörku?
— Ég hef enga trú að þvi að það
breyti hans afstöðu i megin-
atriðum. Hitt er annað mál að ég
hygg að öllum flokkum væri hollt
að draga af þessu vissa lærdóma.
Norðurlöndin hafa verið talin
fremst i röð þróaðra þjóðfélaga,
svo að nauðsyn ber til að fylgjast
með þvi hvert þau stefna, og
hvaða áhrif, sem sú grundvallar-
stefna, sem þar hefur verið fylgt,
virðist hafa á hugi fólksins.
Annaðhvort virðist hér vera um
að ræða þreytu á þessu stjórnar-
fari almennt eða þá einhvern
pólitiskan uppreisnaranda, sem
maður veit ekki hvert kann að
leiða. En satt best aö segja hefur
Sjálfstæðisflokkurinn aldrei
dregið sérstaklega dám af
erlendum stjórnmálum og er ekki
tengdur erlendum stjórnmála-
samtökum, þannig að hann hlýtur
áfram að móta afstöðu sina eftir
innlendum viðhorfum.
Kötlugos
Framhald af bls. 3.
inu undanfarin ár. Hann sagði i
gær að jarðskjálftahrinur eins og
nú hefðu fundist, siðan 25. nóv. sl.,
hefðu oft komið áður undanfarin
ár. Til að mynda heföu komið
mjög miklar hrinur 1966 en þær
svo liðið hjá án goss. — Þess
vegna l'innst mér ekki ástæða til
að óttasl gos nú frekar en olt áð-
ur. Ilitl er annað mál að timi
Kötlu mun vera kominn og þvi
full ástæða til að vera á verði.
Eins er hitt að l'erli þeirra jarð-
skjáll'ta sem verið hala þarna að
undanförnu er þess eðlis að á-
stteða er til þess að fyigjast vel
með öllum mælitækjum á svæð-
inu. sagði Ragnar. en ástæðulaust
að spá gosi nú frekar en áður,
svona hrinur hafa oft komið á
undanförnum árum og alveg eins
iniklar og nú. — S.dór.
Hrakfarir
Framhald af bls. 1
sem missti nær helming kjós-
enda- og þingfylgis sins, en enn
meiri athvgli vekja þó ófarir
sósialdemókrata, sem frá þvi á
millistriðsárunum hafa verið
þungamiðjan i dönskum stjórn-
málum og stundum haft hreinan
meirihluta i þinginu. Nú hafa þeir
aðeins fjórðung kjósenda á bak
við sig, og er erfitt að sjá annað
en forustuhlutverki þeirra i
dönskum stjórnmálum sé lokið i
bráð. Anker Jörgensen hefur
þegar gengið á fund drottningar
og tilkvnnt henni lausnarbeiðni
stjórnar sinnar. og er talið ólik-
legt að hann taki að sér að revna
að mvnda nýja stjórn.
Alls greiddu atkvæði i
kosningunum 3.052.844 manns
eða 88.2 af hundraði kjósenda. en
1971 greiddu 87.2% atkvæði.
Eftirtektarvert er að flokkarnir
til vinstri við sósialdemókrata
hafa haldið sinu nokkurnveginn,
þar eð fylgið, sem Sósialiski
þjóðarflokkurinn tapar nú,
svarar nokkurnveginn til
aukningarinnar hjá
kommúnistum.
17. júni
Framhaid af bls. 1
loforð um brottför Bandarikja-
hers frá tslandi að striðslokum.
Nú spyrjum viö Morgunblaðið:
Var það Kóreustriðiö 1951 eða
rússnesk herskip á Atlantshafi
1973, sem réðu áformum Banda-
rikjamanna 1944 um að veita
tslendingum ,,vernd” sina á
friðartlmum?
Hvað hefðu tslendingar sagt 17.
júni 1944, ef Bandarikjamenn
hefðu sýnt okkur sitt rétta andlit?
Sþ
Framhald af bls. 7.
þjóða almennt og Rhódesiu-
málsins sérstaklega, en við
túlkuðum ekki orðalag tillög-
unnar sem kröfu um valdbeit-
ingu.
Ég tel sóma að þvi að við
skyldum standa að samþykkt til-
lögunnar, en hún hlaut um 100
atkvæði i nefndinni. Aðeins þrjú
riki voru á móti, Bandarikin,
Bretland sjálft og Portúgal (S-
Afrika tekur ekki þátt i svona), en
auk Norðurlanda sátu nokkur riki
hjá eins og Vestur-Þýskaland,
Holland og ttalia.
— Hafði afstaða okkar áhrif?
— Ég er nú hræddur um það'.
Norski fulltrúinn var mjög leiður
ylir þvi að hann skyldi ekki vera
búinn að fá heimildir til að haga
sér eins og við, en atkvæða-
greiðsluna bar brátt að. Allar
likur eru til að bæði Noregur og
Kinnland samþykki tillöguna
þcgar hún kcmur fyrir allsherjar-
þingið.
— Hvað viltu segja að lokum?
— Mér fannst mjög fróðlegt að
fylgjast með störfum allsherjar-
þingsins og nefnda þess i þessar 5
vikur sem ég dvaldist vestra. Ég
sannfærðist enn betur en áður um
það, hvilika hauka við eigum i
horni, þar sem eru nýfrjálsar
þjóðir i Afriku og önnur riki
þriðja heimsins. Milli okkar getur
skapast dýrmætur gagnkvæmur
stuðningur, og við þurfum á þvi
að halda.
Með tilliti til þessara nýju
viðhorfa er utanrikisþjónusta
okkar úrelt að skipulagi, þvi hún
er miðuð við gamla heiminn. Sér-
staklega þykir mér brýnt að
komið sé upp sendiráði i Afriku.
Þar eru 42 riki en ekkert islenskt
sendiráð. Stjórnmálasamband er
aðeins við 4 riki (það fimmta er á
leiðinni), en það er svo falið
sendiskrifstofum okkar i gömlu
nýlenduveldunum i Evrópu.
Hagsmunir okkar krefjast þess
að hér verði breyting á.
hj—
Skólakerfi
Framhald af bls. 9.
kennslubækurnar. ()g þar eiga
þeir. sem skikkaðir verða, aldeil-
is verk fyrir höndum, þvi i
kennslubókunum, sem nú eru not-
aðar. er bókstaflega meira og
minna morandi af lordómum, úr-
eitum hugsunarhætti. hefðbund-
inni hlutverkaskipan Irá siðustu
öld, verkaskiptingu á heimili og
vinnustað, sem konur berjast nú
gegn og eru óðum að losna um. —
karlmannasumfélaginu. sem ætla
mætti að höfundar hefðu i huga að
viðhalda, en er þarna sjálfsagt
meira af hugsunarleysi en með
vitund og vilja.
Þetta er svo sem ekki einsdæmi
i kennslubókum islenskra skóla.
en meðan málin eru rædd og jafn-
vel unnið af opinberri hálfu að
endurskoðun með jafnréttið i
huga i nágrannalöndunum. heyr-
ist alltof litið um þessi mál hér og
ekkert frá viðkomandi vfirvöld-
um. Nokkrir kennarar — konur.
— hafa vakið máls á þessu á-
standi skólabókanna hér i blaða-
og timaritsgreinum. en ekki er að
sjá. að opinberir aðilar hafi kippt
við sér. Þegar nýju lögin um
skólakerfið hafa verið samþykkt
og taka gildi,hlýtur endurskoðun
skólabókanna að vera með fyrstu
verkum. sem setja þarf vel starf-
hæfa og fordómalausa nefnd i að
hafa yfirumsjón með.
—vh
t næstu viku verður sagt frá
skyndikönnun nokkurra rauð-
sokka i gagnfræðaskóla á
kennslubókum sinum s.l. vetur.
Farþegaskip
Framhald af bls. 4
að koma á norrænni samvinnu
um málið.
Upphaf málsins innan Norður-
landaráðs má rekja til tillögu, er
Magnús Kjartansson, núverandi
iðnaðarráðherra, flutti þar fyrir N
nokkrum árum er hann átti sæti i
samgöngunefnd ráðsins.
Siðan hefur málið verið þar á
dagskrá og samþykkt hefur verið
ýtarleg álitsgerð þar sem skýrt
kemur fram þörfin fyrir reglu-
bundnar skipaferðir milli land-
anna.
Sagði Svava. að ekki vantaði
nema herslumuninn til að koma á
fót rekstri farþegaskips á sam-
norrænum grundvelli og það teldi
hún æskilegt.
Eystcinn Jónsson fagnaði til-
lögunni og taldi það rétt athugað
hjá flutningsmanni að heimahöfn
sliks skips ætti að vera á Aust-
fjörðum, og tillagan bæri vott um
góðan skilning á gerbreyttum
viðhorfum, sem lagning hring-
vegarins hefði i för með sér.
Hclgi Scljan fagnaði tillögunni
og sagði, að hún væri eins og töluð
út úr sinu hjarta. llann minnti á
að árið 1957, er hann sat sem
varamaður á þingi, hafi hann ein-
mitt flutt tillögu um fastar skipa-
ferðir milli Austfjarða og annarra
landa, og slikar ferðir hafi jafnan
veriö sér mikið áhugamál. Helgi
sagði, að tilkoma hringvegarins
nýja hefði ekki eingöngu stórkost-
leg áhrif á samgöngur hér innan-
lands, heldur einnig á samgöngur
við útlönd.
Gils Guðmundsson sem á sæti i
samgöngunefnd Norðurlandaráðs
sagði, að innan nefndarinnar væri
mikill áhugi fyrir þvi, að Norður-
' lönd sameinuðust um rekstur far-
þegaskips, er héldi uppi sigling-
um á þann hátt, sem hér væri rætt
um. Auk tslendinga hefðu Norð-
| menn sýnt málinu mestan áhuga,
| en nokkurrar tregðu gætti hins
| vegar hjá sumum dönsku fulltrú-
■ anna. Gils minnti á, að af öllum
Norðurlandaþjóðunum ættu Fær-
eyingar mest undir þvi komið, að
reglubundnar ferðir farþegaskips
kæmust á, og sennilega væri á-
huginn á málinu hvergi meiri en
þar.
Vel meint
IFramhald af bls. 2.
dagsblaði Þjóðviljans, þá geta
börn orðið bæði bæld og beisk, og
áhöld um. hvort er lakara. Þetta
getur orðið af litlu tilefni, svo
litlu, að við gerum okkur ekki
grein fyrir þvi, og það getur lika
stafað af veigameiri ástæðum,
það geta meirað segja myndast
komplexar, sem þörf er að leysa.
Þá geta svona sögur einmitt verið
sannkallaður lifselexir. Bannið
lifir i huganum það sem gerist i
sögunni. Þannig réttir það hlut
sinn á vissan hátt. Börn gera
minni greinarmun á hugmyndum
sinum og raunveruleika en full-
orðið fólk. Þetta verður likast þvi
að hreinsa gröft úr kýli. Hins veg-
ar hefur saga ekki eins djúp áhrif
til eftirbreytni og t.d. kvikmynd.
Það ættu allir uppalendur að
hafa i huga.
En það er fleira. sem ber að
þakka. en sagan hennar Olgu
Guðrúnar. Ég hef ekki haft minni
ánægju af öllu fjaðrafokinu kring-
um þetta mál. en af sögunni
sjálfri. 1 flestum okkar býr ein-
hver skollans demón, sem iðar
i skinninu af ánægju. þegar
náunginn verður að athlægi. Les-
endabréfin i Morgunblaöinu. að
ógleymdu framlegi þeirra
Magnúsar Þórðarsonar og Þor-
valdar Garðars. hafa skemmt öll-
um. sem hafa óspillta kimnigáfu.
Ég undrast mest. hve fáir hafa
kunnaö að meta öll þau skemmti-
legheit. Það er jafnvel svo að sjá.
að útvarpsmennirnir okkar hafi
ekki i sínum fórum nægilegan hú-
mor til að njóta þessa frábæra
skemmtiatriðis. Þeir mættu
gjarnan treysta meira á eigin
dómsgreind en á bréfin frá ,,hús-
móðurinni i Vesturbænum". Oll
þessi frábæru skemmtilegheit vil
ég hér með þakka lika. Það er
ekki oft. sem Mogginn er svona
skemmtilegur.
Siglufirði 29. nóv.
Illööver Sigurðsson.