Þjóðviljinn - 08.12.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.12.1973, Blaðsíða 3
Laugardagur 8. desember 1973. ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3 Sunnumál ekki til dóms enn Mál Ferðaskrifstofunnar Sunnu gegn rikissjóði, það er Ingólfi Jónssyni frá Hellu fyrrum ráðherra, sem rikis- ^jóöur þarf að svara fyrir, hefur ekki verið tekið fyrir þessa vikuna. Áaetlað er að málið komi fyrir á föstudaginn i næstu viku, en óvist samt sem áður. Eftir að málið hefur verið tekið fyrir einu sinni enn mun gagnasöfnun væntanlega verða lokið og málið mun þá fara fyrir dóm, og má vænta þess að þvi ljúki þá innan hálfs mánaðar frá þvi það kemur þangað. Um er að ræða nokkrar miljónir sem rikissjóður hugsanlega verður af fyrir afglöp Ingólfs. —úþ Nýir ljuffengir lagmetisréttir eftir tillögum dansks ráðgjafa- fyrirtœkis á sviði matvœlaiðnaðar í águst í sumar geröi Sölustofnun lagmetis samning við danskt ráð- gjafarfyrirtæki á sviði matvælaiðnaðar til eins árs um ýmis störf fyrir stofnunina. I gær bauð hún svo blaðamönnum að kynna sér árangurinn af samsfarfinu. Ráðgjafarfyrirtæki þetta heitir Georges S. Tomaszewski’s Gastronomiske Institut og er i útjaðri Kaupmannahafnar. bað er eina fyrirtækið sinnar tegundar i Evrópu og nýtur mikds álits. Eigandi þess sem fyrirtækið heitir eftir, er nú staddur hér á landi og kynnti hann ýmsa ljúffenga lagmetis- rétti fyrir blaðamönnum. Störf þau sem Sölustofnun lag- metis fól fyrirtækinu að inna af hendi eru: 1. að gera athugun á þeim tegundum sem þegar eru i framleiðslu með endurbætur i Hvort heldur er á sviðinu eða í bóksölunni er: Guðrún í sérflokki Mikið fjör er að fœrast í bókasöluna bað er alveg sama hvort heldur °'iðrun Á. Simonar stendur á íðinu eða segir frá i bók, alltaf _r hún i sérflokki. bað var alveg sama við hvaða bóksala var talað i gær og spurt um metsölubók, allsstaðar var sama svarið, —bókin hennar Guðrúnar er i sérflokki- og sumsstaðar var hún uppseld og meira að segja mun bókin nú uppseld hjá forlaginu i Sameinaðir standa þeir Hinn 1. janúar n.k. verður opnuð sameiginleg skrifstofa Flugfélag Islands og Loftleiða i London. Skrifstofan verður til húsa að 73, Grosvenor Street. Framkvæmdastjóri félaganna i Bretlandi verður Jóhann Sigurðsson og aðstoðar- framkvæmdastjóri Olafur Briem. Stöðvarstjóri félaganna á Heat- hrow flugvelli verður Alan Dixon. bili. bessi gifurlega sala jafnast ekki við neitt nema þegar Hall- dóriLaxness tekst best upp, sögðu bóksalar. bær bækur sem næst koma Guðrúnar bókinni eru veraldar- saga Emils Jónssonar fyrrum ráðherra og bók Gunnars Benediktssonar „Stungið niður stilvopni”. Svo áþekkar eru þessar tvær bækur i sölu að ekki er hægt að gera upp á milli þeirra. bá er mjög mikil sala i bók Guðjóns Ármanns Eyjölfssonar „Vestmannaeyjar, byggð og eld- gos” sem er nýkomin á markað- inn. Bók Ragnheiðar biskups- dóttur seldistmikið i byrjun, en mikið hefur dregið úr sölu hennar að sögn bóksala og það svo, að nú fer aðeins ein og ein bók út á dag. Annars var það samdóma álit allra bóksala að sala bóka væri ekki enn kominn i fulian gang eins og hún verður mest, en samt hefði hún verið óvenju góð i haust og þökkuðu þeir það hve jafnt og Guðrún A. Slmonar áritar met- sölubók sina sem Gunnar M. Magnúss skráði. snemma bækurnar hefðu komið, út, ekki allar i einu eins og stundum vill verða á haustin. bað er vart fyrr en eftir 10. des. að salan fer i fullan gang, sögðu bóksalar. —S.dór huga. 2. gera tillögur um nýjar framleiðsluregundir, bæði úr hrá- efnum sem áður hafa verið notuð svo og úrónýttum hráefnum sem hér fást. 3. stuðla að sem bestri nýtingu hráefnis með þvi að gera uppskriftir að vörutegundum sem nýta hráefnisafganga annarrar framleiðslu og 4. vera ráðgefandi um ytra útlit vörunnar og kynn- ingu á henni. Nú er Tomaszewski kominn hingað til lands með nokkrar til- lögur að nýjum framleiðslu- vörum og hefur hann og stjórn Sölustofnunarinnar átt fundi með lagmetisframleiðendum undan- farna daga. t Hann hélt smátölu áður en hann kynnti tillögur sinar. Sagði hann meðal annars að i hugum flestra útlendinga þýddi tsland fiskur. bað sem þyrfti að breytast væri að Island þýddi góður fiskur og til þess þyrfti að bæta gæði fram- leiðslunnar og aðlaga hana neysluvenjum á markaðs- svæðinu. Siðan voru blaðamenn fóðraðir á hverri tegundinni á fætur annarri. Bar þar mikið á hörpu- diski matreiddum á ýmsan hátt i margs konar sósum. Einnig voru aflangar fiskbollur upp á franska visu/kokkteilpinnar úr þorsklifur og sild i ýmsum útgáfum. Voru blaðamenn samdóma um að þarna væri hið mesta lostæti á ferð og mætti furðulegt teljast ef útlendingurinn rynni ekki á bragðið. Auk þessa sem upp er talið kom Tomaszewski með vörutegundir eins og grásleppukaviar, þorsk- hrogn i túbum, fiskisúpu ofl. begar endanleg ákvörðun hefur verið tekin um uppskriftir verða þær afhentar þeim verksmiðjum sem framleiða undir vöru- merkinu Icelandic Waters en það er vörumerki islensks lagmetis- iðnaðar. bess má að lokum geta að kostnaður við starf þetta greiðist úr bóunarsjóði lagmetisiðnaðar- ins en tekjur hans eru útflutnings- gjöld af lagmeti og söltuðum grá- sleppuhrognum. —t>H hljómplata Á þessari nýju hljómplötu leikur Rögnvaldur Sigurjónsson eftir- minnileg íslenzk píanóverk, sem ekki hafa verið gefin út áður á plötu: Tilbrigði eftir dr. Pál ísólfsson, Rögnvaldur Sigurjónsson leikur píanóverk eftir Atla Heimi Sveinsson, Leif Þórarinsson og Pál ísólfsson. Barnalagaflokk og Sónötu eftir Leif Þórarinsson og ,,Dimmalimm“, þrjú lög eftir Atla Heimi Sveinsson. Hljómplata sem auðgar safn tónlistarunnenda. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS Skálholtsstíg 7 bórhallur Vilniundarson r Utilegumenn í Odaðahraun og konungar Svía og Gauta bórhallur Vilmundarson prófessor, forstöðum a ður Ornefnaslofnunar bjóðminja- safns, flytur fyrirlestur i Háskólabiói n.k. sunnudag 9. des. kl. 2e.h. og mun hann fjalla um ýmis kunnustu örnefni á tslandi og Norðurlöndum. Fyrirlesturinn nefnist „Útilegu- menniódáðahraun og konungar Svia og Gauta”. Ollum er heimill aðgangur að fyrirlestr- inum, segir i frétt frá Háskóla tslands. Fyrirlestrar bórhalls um örnefni og tilurð þeirra hafa jafnan vakið mikla athygli enda kenningar hans i þeim efnum nýstárlegar og forvitnilegar. JÓNAS JÓNASSON Polli, ég og allir hinir POLLI Vg, ' ‘ ’ ■ ../' ,' uutesKKUwnm. 1 v- ■ r, fitmm OSSWWOH ..“'gZíSPq " L . Eftir ■-■i J JÓNAS 3ÓNASSON Eftir hinn góðkunna út- varpsmann Jónas Jónas- son. Heimahagar strák- anna I bók Jónasar eru fjörur, tún og kálgarðarnir f Skerjafirði. Þar gerast ævintýrin og slagsmálin, og þar er tuddi og þar er Gunna gamla. Svo eru sumir sendir f sveit, en koma fflefldir að hausti f ævintýralandið f Skerja- firði. Ragnar Lár mynd- skreytti bókina. Ný drengjabók eftir nýjan höfund Setberg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.