Þjóðviljinn - 08.12.1973, Qupperneq 16
MOÐVIUINN
Laugardagur 8. desember 1973.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gef"''- J
simsvara Læknafélags Reykja
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaöamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar-, kvöld- og næturþjónusta
lyfjabúða i Reykjavik 7.des. — 13.
des. verður i Laugavegsapóteki
og Holtsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans'
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Ráðherraráðstefna Nató:
Kólnar milli
N ató-ríkj a
BRUSSEL 7/12 — Sérfræðingar
um Nató-mál hafa fyrir satt að
klofningurinn, sem kominn er upp
milli Bandrikjanna og evrópskra
Natórikja, muni allmjög setja
svip sinn á ráðherrafund banda-
lags þessa, sem nú er hafinn i
Brussel.
Er talið að fulltrúar sumra
Evrópurikjanna muni á fundinum
vekja máls á þvi hátterni
Bandarikjastjórnar að gera allan
herstyrk sinn alkláran til striðs á
Enn mikil
stríðshœtta
við Súes
KAtRÖ, TEL AVIV 7/12 —
Stjórnarblöðin i Egyptalandi
héldu þvi fram i dag, að trú-
lega brytist út strið i Austur-
löndum nær i fimmta sinnið, ef
tsrael ekki samþykkti að
draga lið sitt vestan Súes-
skurðar austurfyrir skurðinn.
1 Tel Aviv telja menn einnig
mikla hættu á nýju striði.
Egyptar hafa þó gefið til
kynna að þeir muni taka þátt i
friðarráðstefnunni i Genf, sem
á að hefjast átjánda desem-
ber.
Finnskir friðargæsluliðs-
menn lentu i eldlinunni milli
Egypta og tsraelsmanna i
dag, er þeir skutusl á við Súes-
borg. Enginn Finnanna særð-
ist, og mátti það að sögn kall-
ast mikil heppni. Skothriðin
stóð yfir i stundarfjórðung, og
var þetta eitt það alvarlegasta
af vopnahlésbrotunum til
þessa, en þau hafa upp á sið-
kastið komið fyrir daglega.
dögunum, þegar tsraelar og
Arabar börðust, en eins og kunn-
ugt er þótti þá liggja við borö að
þriðja heimsstyrjöldin hæfist.
Evrópsk Nató-riki létu þá þegar
I ljós mikla óánægju með umrætt
tiltæki Bandarikjastjórnar, sem
stefndi Vestur-Evrópu i mikla
hættu vegna bandariskra her-
stöðva þar, sem viðbúnaöarskip-
unin var gefin án þess að svo litið
væri látið að tilkynna banda-
mönnunum i Nató um það áður.
Eins og menn muna brást Banda-
rikjastjórn hin versta við gagn-
rýni bandamanna sinna, kvað þá
hafa svikiö sig á örlagastundu og
var alveg sérstaklega harðorð i
garð Vestur-Þýskalands.
James Schlesinger, varnar-
málaráðherra Bandarikjanna,
flutti ræðu i dag á ráöstefnunni og
reyndi að afsaka viöbúnaðartil-
skipun Nixons. Annars snýst ráð-
stefnan mikið til um reksturinn á
bandariska hernum f Evrópu, en
hann telur um 310.000 manns.
Bandarikin hyggjast nú i sparn-
aðarskyni og vegna breyttrar
hertækni leggja niður allnokkrar
herstöðvar viða um heim, og eru
þvi aðeins reiðubúnir að hafa á-
fram jafnf jölmennan her i
Evrópu að evrópsku Nató-rikin
borgi brúsann. Að afloknum
fundi, sem haldinn var fyrir lukt-
um dyrum i gær, var tilkynnt að
tíuevrópsk Nató-riki (Frakkland,
tsland og Portúgal undanskilin)
myndu auka fjárframlög sin til
hermála um tvo miljarða dollara
á komandi ári.
1 ráðstefnunni taka þátt
varnarmálaráðherrar allra Nató-
rikja nema Frakklands, sem að
mestu hefur haldið sér fyrir utan
hermálasamstarf bandalagsins
frá þvi á tið de Gaulle, og ts-
lands, sem engan her hefur og þar
af leiðandi engan varnarmála-
ráðherra. Af tslands hálfu tekur
ambassador þess hjá Nató þátt i
ráðstefnunni.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Miðst jórnarfiindur
Fundur er boðaður i miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins mánudaginn 10. des. kl. 20.30 að Grettisgötu
3.
Dagskrá:
1. Kosning starfsnefnda miðstjórnar
2. Efnahagsmálin og kjarasamningarnir
3. Herstöðvarmálið Ragnar Arnalds
Gamli bærinn
Innan ABR hafa um skeið verið starl'andi þrir umræðuhópar, er gert
hafa frumathuganir á ýmsum þáttum borgarlifsins vegna stefnuskrár-
gerðar ABR fyrir kosningarnar i vor.
Föstudagskvöldiö 7. des. boðar sá hópur, er fjallað hefur um skipulag
og uppbyggingu borgarinnar, til opins fundar að Grettisgötu 3.
Umræðuefnið verður:
Vandamál við verndun og uppbyggingu gamla bæjarins.
Messías fluttur í
þriðja sinn í dag
Flutningur Söng-
sveitarinnar Filharmóniu og
Sinfóniuhljómsveitar Islands
á Messiasi Handels er mikils-
háttar tónlistarviðburður.
Viðtökur á hinni vönduðu
túlkun verksins, semdr. Ró-
bert A. Ottóson stjórnar, hafa
verið með afbrigðum góðar og
aðsókn svo mikil, að verkið er
flutt i þriðja og siðasta sinn i
Háskólabiói i dag.
Verkið hefur verið flutt
þrisvar áður hér á landi, fyrir
tiu árum af sömu aðilum og nú
og svo árin 1940 og 1946. Allt
frá i fyrsta sinn hefur þetta
verk með nokkrum hætti verið
einskonar mælikvarði á stór-
hug tónlistarfólks i landinu og
Robert A. Ottóson
áhuga almennings. Þeir sem
hlýddu á Messias i fyrri viku
hafa lokið upp einum munni
um að einstaklega vel hafi til
tekist.
t söngsveitinni Filharmóniu
eru nú um 150 manns ög alls
taka um 200 manns þátt i
fliitningi verksins. Dr. Róbert
A. Ottóson hefur stjórnað
Söngsveitinni Filharmóniu
allt frá þvi hún var stofnuí
haustið 1959. Að undanförnu
hefur sveitinni borist drjúgur
liðsauki af ungu fólki. Ein-
söngvarar eru þau Hanna
Bjarnadóttir, Kristinn Halls
son, Ruth Little Magnússon og
Sigurður Björnsson.
GRIKKLAND:
Hvatt er til samstöðu
st j órnmálamanna
gegn ógnarstjórninni
AÞENU 7/12. — Dimitrios
Papaspýros.sá er siðastur manna
var forseti griska þjóðþingsins,
deildi i dag harðlega á hina nýju
valdhafa fyrir að draga ckkert úr
einræðinu i landinu. Papaspýrú
er i svokölluðum „iiberaldemó-
kratiskum" flokki.
Hann benti á að herlög giltu enn
i landinu og að herdómstólar færu
sinu fram. Ennfremur vakti
Papaspýrú athygli á þvi að stúd-
entar, háskólakennarar, fyrr-
verandiþingmenn, liösforingjar,
lögmenn og listamenn sætu enn
fangelsaðir þótt aldrei hefði verið
kveðinn upp yfir þeim dómur.
Þeir fangelsuðu fá ekkert sam-
band að hafa við fjölskyldur
sinar. Papaspýrú hvatti stjórn-
málamenn til samstöðu i þvi
skyni að bæta úr ástandinu, og
réðist sérstaklega á ofsóknir
einræðisstjórnarinnar gegn
blöðunum, en nýlega hefur hald
verið lagt á eignir blaðsins
Vradýni.
IB-málið:
Harðorð mótmœli norskra
rithöfunda og blaðamanna
OSLÓ 7/12. — Fjöldi norskra
rithöfunda, blaðamanna og fólks
vinnandi að útgáfustarfsemi
hefur skrifaö Olof Palme, for-
sætisráðherra Sviþjóðar, mót-
mælabréf gegn handtöku sænsku
blaðamannanna Jan Guillou og
Peters Bratt, sem sænska rann-
sóknarlögreglan fangelsaði
vegna uppljóstrana þeirra um
hina ólöglegu leyniþjónustu-
stofnun IB.
Ilinir norsku rithöfundar og
blaðamenn segja meðal annars i
bréfi sinu að þeir hafi verið svo
barnalegir að halda að atburðir
sem þessir gætu ekki skeð i landi
eins og Sviþjóð. — Við vissum
ekki annað en að prentfrelsi væri
tryggt i stjórnarskrá Sviþjóðar,
og að lögregluaðgerðir á borð við
handtöku blaðamannanna gætu
ekki átt sér stað i þessu
nágrannalandi okkar, stendur i
brefinu. — Bréfritarar leggja
áherslu á að aðfarir sænsku
lögreglunnar og ákæruvaldsins
gegn blaðamönnum séu i algeru
ósamræmi við skandinaviskar
erfðavenjur, og ennfremur spyrja
þeir hvenær þjóðfélagsgagnrýni
hafi farið að teljast til njósna.
Flokkurinn Leikbrúðuland,
sem sýnt hefur brúðuleikþættina
um Meistara Jakob undanfarna
sunnudaga við góðar undirtektir
yngstu leikhúsgestanna, mun nú
hefja fastar sýningar á laugar-
dögum lika. Verður fyrsta
laugardagssýningin i dag kl. 3, á
sama tima og á sunnudögum, að
Frikirkjuvegi 11, kjallara.
Happdrættí
Þjóðviljans
1973
Um árabil hefur verið
haldin svokölluð Eystrasalts-
vika i Rostok i Þýska alþýðu-
lýðveldinu i byrjun júli.
Þátttakendur skipta
þúsundum og koma frá þeim
rlkjum, er eiga lönd að
Eystrasalti. Fulltrúar frá
tslandi hafa löngum sótt þessa
ráðstefnu, enda er samvinna
þeirra við ýmsar Eystrasalts-
þjóðir, t.d. Norðurlöndin,
umtalsverð.
Mörg málefni eru rædd á
Eystrasaltsvikunni. Þáttak-
eiidum er skipt eftir starfs-
hópum. Þannig koma saman
verkamenn. þeir sem vinna
við borgarstjórn og heima-
vinnandi húsfreyjur, svo að
eitthvað sé nefnt.
Listasýningar blómstra i
Rostock þessa viku. tslenskir
málarar tóku t.d. þátt i mál-
verkasýningu þar i fyrra.
Rostock er gamalgróin
borg, og þar má sjá margar
menjar fornrar frægðar.
Borgin var mjög illa leikin i
siðustu heimsstyrjöld, en
Ibúar hennar hafa byggt upp
mikið af gömlum byggingum i
elsta hluta bæjarins, þannig
að enn má þar komast i snert-
ingu við gömlu Rostock
Hansakaupmannanna.
Fjórði vinningur i
happdrætti Þjóðviljans er að
þessu sinni ferð til Rostock
fyrir tvo og dvöl á Eystra-
saltsvikunni. Verðgildi þessa
vinnings er kr. 50.000.00.
Dregið á
Þorláksmessu
Skrifstofan
Grettisgötu 3,
sími 18081.
Eflið
Þjóðviljann!
Gerið skil!