Þjóðviljinn - 15.12.1973, Side 7

Þjóðviljinn - 15.12.1973, Side 7
Laugardagur 15. desember 1!)7:!. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7 Sitt af hverju tagi Ég væri brotin væri ég gler Þriöja bindi Þjóðsagnabókar Sigurðar Nordals kom út á dög- unum. Þótt frumsmiðar margs- konar riði mjög húsum þessa daga eins og siðvenja er og heimti að þær séu lesnar, þá freistast maður samt til að eiga stolna stund með þessum ágæta grip: rifja upp kynni af útlegumönnum, ævintýrum, viðburðasögum, gamansögum og bæta á sig nýjum hlutum i leiðinni. Nú ætla ég mér ekki þá dul að skrifa umsögn um þetta safnrit, sem geymir vist á sjötta hundrað sögur, en það væri þarft verk að fróðir menn tækju sig til og gerðu úttekt á vali 'Sigurðar og að- ferðum. En hinn almenni lesandi á harla auðvelt með að trúa þvi, að hann hafi i þessari bók ekki verið svikinn um neitt sem máli skiptir. Enn á ný megum við kætast yfir þvi, hve tslendingar hafa látið sér verða mikið úr söguefnum (Grámann), við undrumst hina einkennilegu grimmd sumra ævintýra (Sigurður slagbelgur), einhvern- veginn höldum við enn að ævin- týri eigi að vera ..falleg’’ og yfir- máta uppbyggileg. Við erum Sigurði Nordal þakklátir fyrir að hann gleymir ekki kynferðis- legum gamanmálum — og að sjálfsögðu er hann maður hinna miklu tilsvara. ,,Ég væri brotin væri ég gler, og bráðnuð væri ég smér, og farðu inn að sjóða, Lauga”, sagði Guðleif á Lamba- stöðum við vinnukonu sinu þegar þær höfðu séð mann Guðleifar og einkason drukkna þar skammt undan landi. Þjóðsagnabókin verður mönnum þeim mun meiri upp- lyfting, að hún færir mönnum sjálfan kjarnann, það besta sem skráðhefur verið, einmitt á þeim tima, þegar við erum lang- þreyttir orðnir á viðleitni til að þynna og þynna út án enda tilefni til að búa til bækur sem eru sum- part þjóðfræði, sumpart persónu- saga, sumpart atvinnuháttalýs- ingar. Og eru samt ekkert af þessu i þeim mæli, að nokkruskipti. Að öllu samanlögðu hefur Þjóðsagnabókin verið eitt skynsamlegasta tiltæki AB, sem virðist reyndar i allmikilli óvissu i sinniútgáfupólitik um þessar mundir. Eins og reyndar fleiri. Ósigur fyrir Skugga-Sveini AB hefur einnig gefið út Djöflana, stutta sögu eftir Hrafn Gunnlaugsson, ungan mann sem hefur komið þó nokkuð við sögu i fjölmiðlun. Liklega er réttast að kalla þessa samantekt útilegu- mannasögu. Byggðamaður — ungur jarðfræðingur við mæl- ingar — ætlar að frelsa unga stúlku úr klóm afdalaþurs roskins. Kunningsskapur, sem virðist bjóða upp á vel heppnaða lækningu á kvenmannsleysi tjald- búa, er meira hættuspil en i fyrstu virtist. Nema hvað byggðamaður telur sér trú um að það sé köllun sin að hafa Jjósálfinn” sinn á brott frá karli þeim, frænda stúikunnar, sem hefur tekið hana frillutaki. 1 loftinu eru morð og geðveiki. En þetta er nútimaúti- legumannasaga og endar öðruvisi en þær fyrri. Byggðamaður gengur á hólm við Skugga-Svein vopnaður tveim viskiflöskum. en fellur i eigin gildru og undir borð eins og við mátti búast á karakterlausri brennivinsöld. Lýsingin á ósigri þessum full- komnuðum er allgott dæmi um stilsmáta Hrafns, sókn hans i að skapa áhrif með hraða. örstuttum setningum, ofhvörfum og af- dráttarlausum fullyrðingum : ..Hann vaknar i ælu sinni á eld- húsgólfinu með sólina i andlitið og logsvíður i skraufþurr augun. Slagæðarnar bylja i höfðinu. Lim- kennt slim og rotbragð f munn- inum. Heilinn sullast inni i kúp- unni. Fingurnir dofnir og tillinn- inga-lausir. Brennandi þorsti herpir að kverkunum. Gleraugun brotin undir borðinu. Tvær tómar flöskur á eldavélinni. Tættar myndir frá nóttinni leiftra i si- feliu. Ruglingsleg orð klingja i eyrum hans. Minnsti hávaði er járnkólfur sem dynur á höfuð- kringlunni. Taugarnar þandir fiðlustrengir". Þessi skilmerkilega timbur- mannalýsing segir m.a. frá þvi. að Hrafn Gunnlaugsson kann ýmislegt fyrir sér. Það kemur einnig fram i þvi hvernig hann áður skapar andrúmsloft vissrar spennu og óhugnaðar. En hitt er svo alveg óvist hvað Hrafn Gunn- laugsson lætur sér verða úr þessari kunnáttu siðarmeir, þegar hann hefur lokið fingra- æfingum sinum. Símalína úr Hallgrímskirkju önnur ljóðabók Friðriks Guöna Þorleifssonar heitir Augu i svartan himin (útgefandi Hörpu- útgáfan). Fyrsti þáttur bókarinnar heitir Um ársins hring, syrpa smá- mynda,sem helgast af þvi að verðurfar sætir meiri tiðindum á tslandi en viðast annarsstaðar. Þessi smákvæði eru að þvi leyti hefðbundin, að ekkert er okkur eðlilegra en að gera árstiöirnar að lifandi verum bæði i skáldskap og almennu tali. Þetta gerir Frið- rik Guðni skynsamlega og er fylginn sér: Ýlir er með tannkul en rauðtypptir jólasveinar kveikja stjörnublys i augum lians. Bálkarnir Með spekings svip, Gamalt og nýtt og Frá hinu opin- bera minna á það að Friðrik Guðni er ekki ákaflega hátiðlegur i þessari bók. Fyrsti flokkurinn er safn aforisma, um 20-30 orð starfa saman að einni hugsun á sem ein- faldastan hátt og má enginn óþarfi komast að. Þankinn sjálfur þarf ekki endilega að vera spánný speki, það væri til of mikils mælst, en hann þarf að orðast með einhverju af galdri hins óvænta. Þetta tekst ekki alltaf. Stundum er þankinn of flatur. Hnyttilegust er þessi visa: llvort sem þú læðist upp eða niður stigann brakar alltaf i sama þrepinu. 1 Gamalt og nýtt leikur höf undur sér að þvi að búa til kokk- teil úr þjóðsöguminnum og nútima. Honum hættir til að of- segja, en öðru hverju verður úr þessu nokkuð skondinn texti: ef stóra nautið hans föður mins væri komið á bandarikjamarkað glófaxi gullintanni graðhestur til útflutnings renni renni rekkjan min daglega til mæorka.. Friðrik Guðni er fremur góð- viljaður ljóðasmiður, broddur hans er ekki hvass. Ekki heldur i bálkinum ,,Frá þvi opinbera” — en þó verður skens hans þar ismeygilegast og haglegast. Hefðu ýmsar góðar hugmyndir þar notið sin betur með niður- skurði á þeim sem minna skipta, og fyrir minn smekk er ofrausn að endurtaka tvisvar i sömu ..visu” linu sem gengur i gegn um hvert kvæði. En þarna segir m .a. frá þvi að á alþingi eru ..bætiflák- arnir orpnir sandi”og i stjornar- ráðinu" er verðurbliðan i al- glevmingi / og skjaldarrendur til náttverðar"og er ekki nema gott um það að segja að fleiri skuli fást við pólitiskan orðaleik af þessu tagi en Jónas Svafár, meistari þessarar aðferðar. 1 ..Kirkja" segir svo-og kannski hefði kvæðið ekki þurft að vera lengra: ofan úr turni llallgrimskirkju liggur griðarleg simalin- enginn veit hvert númerið er. t Gömlu stefi fer Friðrik Guðni laglega með forn minni, og i loka- kvæðinu Um sólina og blómin talar hann smekklega og skyn- samlega um náttúruna, beitir hana röksemdum: en þar sem skuggarnir eru langir og nóttin dimm skin sólin lika glaðst meðan hún skin... Þessi bók er áreiðanlega lram- för frá þeirri fyrstu, það er i henni meira öryggi, hófstilling, engin óráðsia. ekki sagt annað en það sem unnt er að standa við. En sumt er i bókinni of dauflegt, hlutlaust.t.d. finnst lesanda mjög skorta snerpu i bálkinum um Göngulúna menn, sem er tilbrigði við bibliumótif og endurskoðun á þeim — þótt við vel getum verið sammála t.d. þvi, að á Golgata er „tómlæti lýðsins" þyngstur kross á herðum. Sprunga í frumskorpu draumsins Undir hamrinum heitir fjórða ljóðabók Jóns frá Fálmholti sem einnig hefur gefið út skáldsögu og smásögur. Bókin hefst á bálki sem nefnist Astir fjallsins. Upphafiðereinfaltog blátt áfram fallegt: þögnin talar við vatnið.... háturinn horfir á tunglið kveikja eld i djúpinu lángt er heim til landa ljóðið vakir. En einhvernveginn verður minna úr en skyldi hjá Jóni, sem hefur ýmsa hluti vel gert. 1 þessum bálki hnýtur lesandinn um full einhæfa notkun á and- stæðum (mýkt/harka, þögn/sprenging) og myrkviði i likingum, sem hann veit ekki hvort borgar sig að brjótast i gegn. Út af fyrir sig er máski ekki nema gott eitt um linur eins og þessar að segja: opnum hlátri rennur blóð um þöglan streing hörpunnar En þegar á heildina er litið flýr þessi metnaðarmikla („sprunga i frumskorpu draumsins splundrar eldinum”) tilraun til að bræöa saman i nýja heild mann og náttúru skynjun okkar og skilning. Onnur tóntegund er slegin i syrpunni Inntak.en það er þvi miður allt og sumt sem ég fæ um hana sagt, lengra nær skilningurinn ekki, og við skulum vona að ég beri einn skömm þar af. Eða hvað segið þið?: utar vakti búrinu frjáls og æfður nema stúlkur laða ótta i ncfin. Hinsvegar er Kyrrð og breiða, sem ort er i minningu Drifu Viðar, einfaldleikinn sjálfur. Þar eru staðreyndir náttúru og mynd- Sigurður Nordal Jón frá Þálmholli Indriði G. Þorsteinsson Hrafn Gunnlaugsson listar raktar, þeim raðað hlið við hlið, úrvinnslan er kannski i minnsta lagi: land og þögn sól i dögun grjót og lauf tært vatn og birta. Jón minnist fleiri samferða- manna. Kvæðið um Ástu Sigurðardóttur er reyndar einum of venjubundiö að hugsun og formi til að vekja athygli. Miklu meira tekst Jóni að segja um Jóhannes úr Kötlum á þennan einíalda hátt: Aður en við héldum heim, litum við til fjalla að skyggnast eftir veðri, en fyrst spurðuin við þig ráða : Hvar er nú vegurinn Jóhannes, sögðum við. Þvi enn varst þú mcira lifandi en við sem höfðum kvatt þig. Aftast eru nokkur þýdd kvæði, þar eru m.a. á ferð Norðurlanda- menn sem hafa haft nokkra við- dvöl á tslandi. Einn þeirra, Ole Lillelund, lýsir vetri i Reykjavik á svolelldan hátt: Hrafnarnir krúnka. en það verða ekki okkar lik sem þeir tæta. Og við frrðumst ekki til vinalegri sólarstranda. við verðum hér i snjónum ástin er sólskin okkar... Augun eru okkar eina ljós ástin er sólskin okkar. Jón frá Pálmholti hefur sjálfur lagl stund á þessháttar óþving- aðar lýsingar á mannlifi i borg sem reynast sýnu betur en sá veikleiki hans fyrir afslrak-' sjónum sem er fyrirferðarmikill i þessari bók. Þjóölegar syndir Dagliók um veginnheitir ljóða- bók sem Indriði G. Þorsleiusson hel'ur gelið út. Þetta er safn smá- synda i anda þjóðernisins; hve margir eru ekki þeir islendingar sem freistast til að rima um heimaslóðir, hendur forfeðranna, gera i ljóðformi athugasemdir á ferðalögum, ekki sisl þegar einhver þekklur lundi helur áður komiðá sama stað? I fyrsta hluta bókarinnar er sterkastur þáttur ræktarsemi við heimaslóðir, samanburður á okkar hlutskipli og hlul lyrri kynslóða, blandinn sam viskubiti: Og ofur þægindum öllum allri virkt sem við njótuni hýr minning um heitar hendur selii hlýjuðu kölduni fótum. En ferðakvæðin eru mest að fyrirferð, i sumum er elnið það, að hér gengu frægir menn um garða, önnur eru pólitiskar athugasemdir á stórveldareisum. Fer nú fyrir Indriða eins og mörgum langferðamönnum sam- timans, að hann er skeptiskur á Rússa og Kana en Kinverjar eiga hans virðingu: Það hriklir i fyrri herrum og hroll setur að oss þegar framliðin tyllir tánuiti á torg hins himneska friðar. Indriði er i þessari bók oltast nær dugandi hagyrðingur og stundum ivið meira. Hann kann á ýmsar tegundir kvæðagerðar og tekur sér ekki nærri að hafa hlið- sjón af ýmsum fyrirmyndum (Jónas, Halldór Laxness, Tómas ofl. i.Kverið bætir ekki við Indriða sem rithöfund, en það er skemmtilegt veikleikamerki á hæfu sagnaskáldi. Bókinni lýkur á svofelldri játningu: Þótt fari það allt Ijandans til i flestra liuguni sem ég vann skal enginn kunna á þvi sil að mér þyki miður. Um það saka ég cngan mann. Ég er mitt skáld og smiður. Það er oft kvartað yfir þvi, hve lággróður og milligróður sé fyrir- ferðarmikill i islenskum kveð- skap. En i raun og veru er það ekki nema ágætt að hver maður sé „sitt skáld”, og enginn ástæða til að amast við þvi að hver gefi út kveðskap sinn frekar en hann máli sitt hús eftir sinu höfði. Mestu skiptir að ekki fylgi vand- ræðatilgangssemi af hálfu höf- unda eða einhverra annarra að- standenda bóka, þvingað bram- bolt sem á að skapa hugmynd um að eitthvað stórfenglegt hafi gerst. Árni Bergmann

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.