Þjóðviljinn - 15.01.1974, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 15. janúar 1974
|S| Æskulýðsráð Reykjavíkur
Bátasmiðar
í
Nauthólsvik.
Innritun i nýja flokka hefst 16. janúar.
Starfið byrjar 21. janúar. Starfstimar
flokka nánar ákveðnir með tilliti til
stundaskrár þátttakenda. Aldurstakmark;
Fædd 1962 og eldri.
Námskeið
i
siglingafræðum
og meðferð seglbáta.
Námskeiðin eru fyrir félaga i Siglunesi, og
verða að Frikirkjuvegi 11 á fimmtudögum
frá kl. 18.00.
Athygli skal vakin á þvi, að ofangreindir
starfsþættir eru jafnt fyrir pilta og
stúlkur.
«w»t4»|ftnrfh0tffögmánari upplýsingár á skrifstou
Æskulýðsráðs Reykjavikur, Frikirkjuvegi
11, simi 15937.
Verður haldinn fimmtudaginn 17. jan. 1974
kl. 8.30 e.h. i Lindarbæ, niðri.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Samningamál
3. önnur mál
Mætið vel og stundvislega
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
LEIKFANGALAND
Leikfangaland
Veltusundi l.Sími 18722.
Fjölbreytt úrval leik-
fanga fyrir börn á öllum
aldri. — Póstsendum.
Innliinsviðskipti leið
til Ián§viðskipta
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Frá Skákþingi Reykja-
víkur 1974
Fimmtudaginn 3. þ.m.
hófst skákþing Reykjavik-
ur 1974. Keppendur eru alis
74. Keppnin fer nú í fyrsta
sinn fram á þann hátt, að
keppendum er raðað í
flokka samkvæmt stigum.
Stigin, sem notuð eru, eru
Ákastig, kennd við Áka
heitinn Pétursson. Ingvar
Ásmundsson, mennta-
þessu máli eins og flestum öör-
um. Ég held, að þessi aöferð við
flokkaskiptingu geti ekki annað
en verið betri en sú, sem fyrir
var, og einn kostur er greinilegur
á þessu móti: Nú tefla i hverjum
flokki ,,allir við alla” og hverfur
þar meö Monrad-kerfið marg-
fræga, sem rikt hefur alltof lengi
við litlar vinsældir.
Mótið fer fram á Grensásvegi
46, og teflt er á þriðjudögum,
Umsjón Jón Briem
skólakennari/ á heiðurinn
af stigaútreikningnum
ásamt tölvu Menntaskól-
ans við Hamrahlíð.
Flokkaskiptingin er þannig að
12 þeir stigahæstu mynda A-flokk,
12 næstu mynda B-flokk o.s.frv.,
en flokkarnir eru fimm. Fjórir 12
manna flokkar og einn með 26
keppendum, en þeir hafa ekki enn
komið til stigaútreiknings. 1 fjór-
um efstu flokkunum teflir hver
keppandi við alla hina i flokknum.
í A-flokki eru þessir keppendur:
Benóný Benediktsson 4094 stig,
Andrés Fjeldsted 3807, Björgvin
Viglundsson 4213, Bragi Halldórs-
son 4001, Jóhann Þórir Jónsson
3818, Björn Halldórsson 3797,
Július Friðjónsson 4230, Leifur
Jósteinsson 3945, Ómar Jónsson
3825, Jón Þ. Þór 3917, Björn Jó-
hannesson 3871 og Gunnar Gunn-
arsson 3996.
Nú hafa verið tefldar 5 umferð-
ir, og i A-flokki er Jón Þ. Þór efst-
ur með 3,5 v. og eina biðskák, þar
sem hann stendur betur. 1 B-
flokki er Helgi Ólafsson efstur
með 4,5 v. eftir 5 umferöir. Helgi
er næst-stigahæstur i B-flokki
með 3686 stig. Haraldur Haralds-
son er stigahæstur meö 3787 stig,
aðeins 10 stigum minna en sá
stigalægsti i A-flokki.
Ekki eru allir sammála um
ágæti þessarar aðferðar við að
raða niður i flokka. Sumir hafa
óttast aö hægt væri að sitja til ei-
lifðar i B-flokki, þótt maður sigr-
aöi i flokkinum oftar en einu
sinni. Svo mun þó ekki vera, m.a.
vegna þess, að sá sem verður
efstur, hækkar sig all-verulega á
stigum, og að auki lækka þeir á
stigum, sem verða i neðri helm-
ingi A-flokks. Þeir eru þó fleiri,
sem telja þetta kerfi til bóta, og
verður reynslan að skera úr i
fimmtudögum og sunnudögum og
biðskákir á sunnudögum.
Hér kemur ein skák frá mótinu.
Hvitt: Bragi Halldórsson
Svart: Björn Jóhannesson.
1. d4 d5
2. Rf3 Rf6
3. c4 e6
4. Rc3 c6
5. Bg5 Rbd7
6. e3 Da5
7. Rd2 dxc4
8. Rxf6 Rxf6
9. Rxc4 Dc7
10. Be2 Be7
11. 0-0 0-0
12. Hcl Hd8
13. Rf3 Hb8
14. De2 Rd5
15. Hfdl Rxc3
16. bxc3 b6
17. Re5 Bb7
18. Be4 Bd6
19. f4 Bxe5
20. fxc5 c5
21. Bbl
Hvitur vill eðlilega halda i bisk-
upinn, sem stefnir upp á h7.
21. ... De7
22. I)h5 g6
Með hjálp biskupsins hefur
hvitum nú tekist að skapa mikla
veikingu i svörtu kóngsstöðunni,
og ræður hún úrslitum i fram-
haldi skákarinnar.
Liklega hefði verið betra fyrir
svartan að leika 22. ... h6. Þá hót-
ar hann t.d. Dg5, en hvilur hefur
samt betri stöðu eftir 22. ... h6
23. Hfl Hd7 24. Hf4
23. Dg4 Hbc8
24. h4 h5
Með þessum leik veikir svartur
kóngsstöðu sina enn meira og
varpar frá sér ágætu færi til
gagnsóknar með 24... cxd4 25.
exd4 Da3. Hann hótar nú 26. ...
Hxc3, og ef hvltur valdar peðið
með drottningu t.d. 26. Dg3 þá
kemur Hxd4. Leiki hvitur hins
vegar 26. c4 þá kemur De3 27. Khl
Ba6.
25. Dg3
26. nri
27. Hf6
28. Dg5
29. Hcfl
30. g4
31. cxd4
32. gxh5
33. hxg6
34. Hxfl
35. h5
36. h6
Kg7
Bc6
Bf8
Hc7
Hdd7
cxd4
Da3
Hcl
Hxf 1
fxg6
Hf7
Kh8
Eftir 36. ... Kf8 vinnur hvitur
einnig m.a. með 37. HxH BxH 38.
Dd8 Be8 39. Dd6 DxD 40. exD og
svartur má hvorki hrevfa kóng né
biskup. T:d. >40.- ... Kg8 41. Bxg6
BxB 42. d7, eða 40. ... Bf7 41. d7
Ke7 42. h7. Hvitur getur einfald-
lega farið af stað með kónginn
upp á f6 og vinnur auðveldlega.
37. Hxf7 Bxf7
38. Df6 gefið.
Þá koma hér skákfréttir frá
Isafirði. Skákþing Isafjarðar var
haldið i desember s.l. og úrslit
fengust á gamlársdag. Keppend-
ur voru 24, og var þeim fyrst skipt
i 6 fjögurra manna riðla. Sigur-
vegararnir i riðlinum tefldu siðan
til úrslita, og þá urðu efstir
Mattias Kristinsson og Sigurður
Eiriksson með 4 v. i 5 skákum.
Þeir tefldu siðan einvigi, sem
lauk á gamlársdag með sigri
Mattiasar 2,5v. gegn 1,5.
Jón G. Briem.
Sexburar
í Suður-
Afríku
HÖFÐABORG 14/1 — Frú Sue
Rosenkowitz i Höfðaborg i Suður-
Afriku eignaðist á föstudaginn
var sexbura, þrjá drengi og þrjár
stúlkur.
Sexburarnir fæddust fjórum
vikum fyrir timann og eru allir
með gulu, en liðan þeirra er góð
eftir atvikum. Frú Rosenkowitz
hafði neytt lyfs eins um fjögurra
ára skeið sem ætlað er að auka
frjósemi kvenna. Hún átti samt
tvö börn áður.
MEIRI VANDI
ER AÐ GÆTA
SAMVINNUBANKINN
Fundur um herstöðvamálið
Þorbjörn Broddason lektor flytur n.k.
fimmtudag erindi á 2. fundi Alþýðubandalags-
ins i Reykjavik um herstöðvamálið. Fjallar
hann um áhrif herstöðvanna á þjóðerni og
menningu íslendinga.
Fundurinn hefst kl. 20.30 á Grettisgötu 3.
Herstöðvaandstæðingar eru hvattir til að koma
á fundinn og taka þátt i umræðum.
Alþýðubandalagið í Reykjavík