Þjóðviljinn - 07.02.1974, Blaðsíða 1
Verksmiðju-
eigendur
þinga á
morgun
Eigendur fiskimjölsverk-
smiðja munu ætla að lialda
fund á morgun, föstudag, til að
ræða það vandamál sein nú er
upp komið vcgna yfirvofandi
verkfalla. Mun þar verða rætt
um hvcnær þeir hætti loðnu-
móttöku vegna verkfallshætt-
unnar.
Við -höfðum samband við
tvo loðnukaupendur i gær og
voru þeir báðir bjartsýnir á að
ekki kæmi til verkfalla og
vildu ekki ræða þann mögu-
leika að þeir yrðu að hætta
loðnumóttöku unt helgina
vegna verkfallshættu. Von-
andi að spá þessara manna
rætist. —S.dór
Ragnar
í Smára
sjötugur
í dag
Hinn þjóðkunni bókaútgef-
andi og listfrömuður Ragnar
Jónsson i Smára er sjötugur i
dag. Þeir Þorsteinn frá Hamri
og Guðbergur Bergsson skrifa
afmæliskveðjur á 7. siðu i dag.
1 fréttatilkynningu frá
Listasafni ASÍ og miðstjórn
Alþýðusambandsins i gær seg-
ir að þessir aðilar hafi ákveðið
að láta stækka og reisa mynd
Sigurjóns Ólafssonar, Krluna,
i landi Mundakots á Eyrar-
bakka, en þar var æskuheimili
Ragnars Jónssonar. Myndin
er af listaverkinu.
Fjórða, um-
ferð i kvöld
t kvöld kl. 7 hefst fjórða um-
ferðin á Reykjavikurskákmótinu
að Kjarvalsstöðum. Þá eigast við
Guðmundur og Július, Bronstein
og Velimirovic, Ciocaltea og
Ingvar, Benóný og Freysteinn,
Smyslof og Leif ögaard, Friðrik
og Magnús, Forintos og Jón
Kristinsson, Kristján og Tringov.
Þeir fyrrnefndu hafa hvitt. Sjá
skákskýringar á bls. 7.
Stjórnarfrumvarp um breytingar á kosningalögum:
Kosning auðvelduð
utan kjörfundar
Unnt verði að kjósa á sjúkrahúsum
og hjá kjörræðismönnum erlendis
í gær var lagt fram á
alþingi stjórnarfrum-
varp um breytingu á
Rækjuvertið er nú að hefjast á
Breiðafirði en veiðisvæðið þar
var opnað nú um mánaðamótin.
Alls munu 15—16 bátar róa frá
höfnum á Snæfellsnesi. 4 l'rá
Stykkishólmi, 8—10 frá Grundar-
firði og 2—3 frá Rifi og Ólafsvik.
Á mánudaginn fóru tveir bátar
frá Grundarfirði i fyrsta róður-
inn. Að sögn Aðalsteins Friðfinns-
sonar verkstjóra i rækjuvinnslu
Soffaniasar Cecilssonar á Grund-
arfirði gerði vont veður hjá þeim
og gátu þeir ekki togað nema
stuttan tima. Fengu þeir um 300
kiló og kvað Aðalsteinn það lofa
góðu um vertiðina. Ekki hafa bát-
ar komist út siðan, þvi vitlaust
veður hefur verið á Breiðafirðin-
um að undanförnu.
6 bátar munu leggja upp hjá
rækjuvinnslu Soffaniasar en auk
hans rekur Július Gestsson
kosningalögunum.
Frumvarp þetta er sam-
ið og flutt i framhaldi af
rækjuvinnslu á Grundarfirði.
Aðalsteinn sagði að fyrir hálf-
um mánuði hefði fiskifræðingur
farið á miðin og kannað skiptingu
aflans, hvort mikið væri um seiði
i honum. Var hann ánægður með
útkomuna og lagði til að svæðið
yrði opnað sem siðan var gert um
mánaðamótin.
t fyrra var veiðin allt upp i 3
tonn á bát á sólarhring i Breiða-
firðinum og hélst góð veiði frá
miðjum febrúar fram i júni.
t Stykkishólmi var veiðin ekki
hafin. Þar rekur Þorvarður Guð-
mundsson rækjuvinnslu og munu
fjórir bátar leggja þar upp. Verk-
smiðjan er ekki komin i gang enn
og stafar það af þvi að vélar i
hana komu ekki vestur fyrr en á
mánudaginn. Bjóst Þorvarður
ekki við að hún kæmist i gagnið
fyrr en i næstu viku. —>n
ályktun sem samþykkt
var á siðasta þingi. Þar
var rikisstjórninni falið
aö leggja fyrir yfir-
standandi þing frum-
varp um breytingu á
kosningalögunum i þvi
skyni að breyta utan-
kjörfundai*kosningu og
auövelda hana.
Með stjórnarfrumvarpinu er
lagt til að heimilað verði að fram-
kvæma utankjörfundarkosningu
á sjúkrahúsum og dvalarheimil-
um aldraðra.
Samkvæmt gildandi lögum get-
ur utankjörfundaratkvæða-
greiðsla farið fram á 19 stöðum i
10 þjóðlöndum. tslendingum er-
lendis hefur farið fjölgandi á und-
anförnum árum, en mörgum
þeirra er- fyrirmunað að neyta
kosningaréttar sins vegna fjar-
lægðar frá kjörstað. Er lagt til i
frumvarpinu að þessu verði
breytt, þannig að utanrikisráðu-
neytinu verði falið að ákveða og
auglýsa fyrir hverjar kosningar,
hvar utankjörfundarkosning skuli
fara fram hjá kjörræðismönnum.
Með þvi móti mætti fjöiga kjör-
stöðum erlendis að mun.
Enn
bætti
Börkur
afla-
metið
Enn hætti Börkur NK aflametið
á loðnu þegar liann tilkynnti um
rúmlcga 800 tonna afla i gær. Að-
ur hafði liann fengið mest tæp 800
tonn.
i gær kl. 18 höfðu 36 skip til-
kynnt um afla samtals 8170 tonn
og er þá heildaraflinn kominn yfir
160 þúsund tonn.
Mikið vandamál var fyrir þessi
skip að losna við aflann þar sem
iöndunarbið er mikil á þeim stöð-
um sem eitthvað þróarrými hafa,
en þeir staðir eru raunar fáir. Þó
var citthvað þróarrými að losna á
Austfjarðahöfnum I gær og i dag.
Þrjú skip hafa þegar siglt til
'Bolungarvikur, lléðinn ÞH,
Kaxaborg og Jón Kinnsson, en
þau eru öll i liópi stærstu loðnu-
skipanna, enda ekki öðrum fært
að sigla með afla svo langan veg.
Búist er við að einhver skip
fari nú að sigla til Vopnafjarðar
og Raufarhafnar, enda ekkert
annað fyrir þau að gera ef þau
ætla að losna við aflann án þess
að þurfa að hiða sólarhringum
saman eftir löndun.
—S.dór
Rækjuvertíð hafin
á Breiðafirði
Vilj a, að giftar konur borgi skattana sína sjálfar, síða(i)
Byrjað að landa í Örfirisey
1 gær var bvrjað að landa loðnu i þrær fiskimjölsverksmiðjunnar I
Örfirisey og voru notuð ný löndunartæki sem Landssmiðjan hefur
smíðað fyrir verksiniðjuna. Þessi löndunartæki eru þannig að loðnu-
dæla skipanna er notuð til að dæla loðnunni úr lest skipanna f tvær skilj-
ur en siðan fer loðnan á færiböndum upp I þrær verksmiðjunnar.
Afkastagcta þessara löndunartækja er um 240 til 250 lestir á klst. Var
verið að reyna þau I gærmorgun og var Svanur RE fyrsti báturinn sem
landað var úr. Ekki voru komin full afköst strax i gær, enda var verið
að lagfæra ýmislegt smávegis sem ekki varð scð fyrir áður en tækin
væru reynd.
Þróarrými verksmiðjunnar i örfirisey er um 4000 lestir. 20 skip biðu
löndunar i Ileykjavikurhöfn I gær. —S.dór