Þjóðviljinn - 07.02.1974, Page 4

Þjóðviljinn - 07.02.1974, Page 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. febrúar 1974. Réttaröryggi viðskiptamanna trygginga best borgið með sérstökum dómi Miklar umræður um stjórnarfrumvarp um tryggingadóm Magnús Kjartansson, heil- brigðisráðherra, mælti i gær fyrir frumvarpi til laga um trygginga- dóm. Hefur Þjóðviljinn áður greint frá efni frumvarps þessa. Samkvæmt þvl er gert ráð fyrir að hlutverk tryggingadóms verði: „2. gr. Verkefni trygginga- dóms er að dæma i málum, sem risa vegna úrskurða trygginga- ráðs Tryggingastofnunar rikis- ins, varðandi bætur og bótarétt einstaklinga samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þar fyrir utan skal tryggingadómur dæma i málum, sem með lögum verða lögð fyrir dóminn”. Magnús gerði grein fyrir efni frumvarpsins i stuttri framsögu- ræðu og vísaði siðan til greinar- gerðarinnar. Það kom fram i framsöguræð- unni — svo og i greinargerð — að innan nefndar þeirrar sem með málið fór og samdi frumvarpið var nokkur ágreiningur um hlut- verk tryggingadómsins. Taldi formaður nefndarinnar, að verk- svið dómsins ætti að vera tak- markað við ágreiningsefni vegna úrskurða Tryggingastofnunar- innar. Samkvæmt þvi lagði for- maðurinn til, að um hlutverk dómsins væri aðeins fyrri máls- grein 2. gr. sem vitnað var til hér á undan. Aðrir nefndarmenn vildu hafa ákvæðið og þar með hlutverk dómsins viðtækara. Gerðu þeir ráð fyrir að dómurinn fjallaði um mál sem upp kæmu vegna úr- skurða tryggingaráðs Trygginga- stofnunar, stjórna lifeyrissjóða, sjúkrasjóða, eftirlaunasjóða, vá- tryggingafélaga og annarra aðila sem starfa hér á landi og hafa með höndum tryggingastarfsemi. Sagði heilbrigðisráðherra i fram- söguræðu sinni, að hann sjálfur hallaðist fremur að þessu viðtæk- ara hlutverki dómsins, en i frum- varpinu væri farin sú millileið að ætla dómnum aðeins að fjalla um ágreining vegna úrskurða trygg- ingaráðs, en gert ráð fyrir að leggja mætti önnur mál fyrir dóminn með sérstökum lögum. Ragnhildur Helgadóttir (S) tók til máls. Hún kvaðst andvig þvi að dóm- stóllinn hefði önnur verkefni en mál frá tryggingaráði. Dómsmálaráðherra, ólafur Jó- hannesson, sagði að sér virtist 2. málsgrein 2. gr. hálfgerður hor- tittur, enda gæti alþingi sett mál undir þennan dóm og óþarft að taka slikt fram i lögum. Þórarinn Þórarinsson (F) spurði hvort kannað hefði verið hvaða kostnað samþykkt frum- varpsins hefði i för með sér fyrir rikissjóð, en frumvarpið gerir ráð fyrir þvi, að kostnaður af starf- semi tryggingadóms greiðist af rikissjóði. Gunnar Thoroddsen (S) kvaðst draga i efa að ástæða væri til að stofna þennan dómstól. Magnús Kjartansson trygginga- ráðherra Framhald á 14. siðu. Allir 67 ára og eldri geti haft atvinnu, hafi þeir sjálfir tii þess þrek og vilja Nauðsyn að taka atvinnumál aldr- aðra föstum tökum Sagt frá framsögurœðu Svövu Jakobsdóttur fyrir tillögu til þings ályktunar um atvinnumál aldraðra þingsjá þjóðvíljans Þingmaður Sjálfstæðisflokksins spyr hvað ráðherra „telji” Með Kröflu fá Norðlendingar stóra virkiun Lárus Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins i Norður- landskjördæmi eystra, hefur mjög rætt um orkumál Norður- lands á yfirstandandi alþingi. Hafa umræðuefni hans verið hin furðulegustu, en þó sérstaklega fyrirspurn hans um þessi mál þar sem m.a. var spurt um hvað ráð- herra „teldi” um eitt og annað! Magnús Kjartansson svaraði fyrirspurnum þingmannsins á þingfundi i fyrrad g, og er hér á eftirsagt frá svörum ráðherrans: Fyrsta fyrirspurnin er sú, hve- nær ráðherra „telji”, að Lands- virkjun geti seít Norðlendingum örugga raforku um fyrirhugaða háspennulinu frá Landsvirkj- unarsvæðinu til orkuveitusvæðis Laxárvirkjunar. Unnt verður að selja raforku norður -um há- spennulinuna til orkuveitusvæðis Laxárvirkjunar, eftir að linan hefur verið reist, en að þvi er stefnt, að það verði á næsta ári. Þar til fyrsta vélasamstæða Sig- ölduvirkjunar hefur verið tekin i notkun, sumarið 1976, getur orðið um einhverjar truflanir að ræða á þessari orkusölu i miklum vatns- þurrðum eða við aðrar slikar ó- venjulegar aðstæður. Hvaö „telur" ráðherra? 1 annan stað er spurt, hvort ráðherra „telji”, að formaður stjórnar Landsvirkjunar hafi haft Tétt fyrir sér, þegar hann sagði i fjölmiðlum, að Landsvirkjun væri ekki aflögufær um orku til Norð- lendinga fyrr en á árinu 1977. Nú mætti það æra óstöðugan, ef ætti að fara að spyrja ráðherra, hvað þeir telji um eitt og annað, sem sagt kunni að hafa verið hér á landi. En i sambandi við þetta er staðreyndin sú, að formaður Landsvirkjunar hefur ekki sagt eitt einasta orð um þetta i fjöl- miðli. Hann ræddi þetta mál á al- mennum blaðamannafundi, og i fréttum útvarpsins var rangt eftir honum haft, það sem hann sagði. Formaður stjórnar Landsvirkj- unnar segist hafa sagt þetta : „Landsvirkjun hefur ekki ör- ugga orku aflögu fyrr en Sigöldu- virkjun cr komin i rekstur sumar- ið 1976. Er þá átt við vetrarorku, eins og kunnugt er verða istrufl- anir gjarnan samtimis við Laxar- virkjun og við orkuver Lands- virkjunar”. Allir útreikningar, sem byggj- ast á þvi að ekki komi orka til Norðurlands fyrr en 1978, eins og hv. fsp. var að leika sér að hérna áðan er gjörsamlega út i hött. Nú.enn er spurt, hvort ráðherra „telji” að Landsvirkjun geti selt Norðlendingum orku við svipaðar aðstæður og sköpuðust i nóv. og des. sl. Nú er það alkunna eins og raforkukerfi okkar Islendinga er enn sem komið er skipulagt, þá geta verulegar ishraflstruflanir valdið erfiðleikum i orkuöflun. Þetta á að sjálfsögðu við alls staðar á landinu, eins og menn vita ákaflega vel. Við höfum sjaldan átt við eins mikla erfið- leika að etja um langt skeið og i des.-mánuði sl„ en þá kom mesti frostakafli, sem komið hefur á ts- landi i heiia öld. Það er þvi aug- ljóst mál, að þegar likt ber að höndum mun orkuöflunaraðilinn væntanlega láta eitt ganga yfir alla, að svo miklu leyti sem unnt er og aðstæður leyfa. Þvi er full á- stæða til að ætla, að Landsvirkjun geti annað orkuflutningi til Norðurlands við svipaðar aðstæð- ur og sköpuðust hér i desember i sama mæli og aðrir viðsemjendur Landsvirkjunar fá. 1 fjórða lagi er spurt, hvort ráð- herra hyggist gera bindandi .samning við stjórn Landsvirkjun- ar um orkusölu til Norðlendinga. Ég hélt nú að þingmanninum væri það nú ljóst, að það væri ekki orkuráðherra, sem gerir samn- inga um orkusölu, hins vegar liggur það i hlutarins eðli, að þeg- ar búið er að tengja saman Norðurland og Suðurland, þá muni orkuöflunarfyrirtæki, bæði sunnanlands og norðan, þurfa að gera með sér samning um það, með hverjum hætti slik orkusala fari fram. Nú, ef leitað er ein- hverrar fyrirgreiðslu ráðuneytis- ins um það, þá er það að sjálf- sögðu auðsótt mál. Krafla Og i annan stað, þá er spurt, hvort að fyrst og fremst verði að þvi stefnt á næstu árum að afla Norðlendingum innlendrar raf- orku á þann hátt. Nú ætti þessi fyrirspyrjandi að vita það ákaf- lega vel, að fyrir Alþingi liggur tillaga um 55 megawatta virkjun við Kröflu, og ég hef fulla ástæðu til þess að ætla, að um það mál sé algjör samstaða á hinu háa Al- þingi, þannig að vænta megi þess að það nái fram að ganga á þessu þingi, og þá verður reynt að hraða þessum framkvæmdum eins og auðið er, þannig að Norðlending- ar fái þá með sem fljótvirkustum hætti verulega stóra virkjun á Norðurlandssváeðinu.og þar er að sjálfsögðu um að ræða ákaflega mikilvægt öryggisatriði, bæði fyrir Norðurland og raunar fyrir Austurland lika. Svava Jakobsdóttir mælti á dögunum fyrir tillögu þriggja þingmanna Aiþýðubandalagsins urn atvinnumál aldraðra. Tillög- una flytja auk Svövu þeir Eðvarð Sigurðsson og Ilelgi F. Seljan. Tillagan er á þessa leið. „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að undirbúa i samráði við launþegasamtök landsins frumvarp til laga um atvinnumál aldraðra, og verði að þvi stefnt, að allir 67 ára og eldri, sem til þess hafa þrek og vilja, geti átt kost á atvinnu við sitt hæfi.” í framsöguræðu sagði Svava Jakobsdóttir: „Við flm. erum á þeirri skoðun, að með þessari till. se hreyft mjögmikilvægu máli, sem nauð- synlegt sé, að tekið verði föstum tökum hið bráðasta. Vandamál aldraðs fólks hafa oft verið til umr., bæði innan þings og utan og ekki er hægt að halda öðru fram en margt hafi á siðustu árum ver- ið gert til þess að auðvelda öldr- uðu fólki lifið. Nægir þar að minna á stórhækkaðan ellilífeyri og tekjutryggingu til þeirra, sem engar aðrar tekjur hafa en elli- launin. Félagsmálaaðgerðir mega ekki einskorðast við að leysa vanda- mál. Hin rikjandi stefna i félags- málum er, sem kunnugt er, sú að koma i veg fyrir, að vandamál risi. Hin mikla röskun, sem verð- ur á lifi fólks, þegar það nær há- marksaldri i starfi og verður að setjast I helgan stein sem kallað er, hefur svo mikil vandkvæði i för með sér fyrir svo marga, að það liggur við, að skilgreina megi ellina sem vandamál i þjóðfélagi okkar I stað þess, að á hana sé lit- iðsem eðlilegt timabil á æviskeið mannsins. Þessi þáttaskil i lifi fólks hafa ekki eingöngu i för með sér fjárhagsáhyggjur fyrir flesta, heldur og kviða fyrir breyttum lifsháttum og beinlínis áhyggjur vegna verkefnaskorts. Tilfinning- in fyrir þvi að verða gagnslaus þjóðfélagsþegn i eigin augum eða annarra verður oft svo lamandi, að erfitt er undir að risa. 1 Noregi mun hafa verið gerð félagsleg rannsókn um afleiðingar þess, að fólk verður aðhætta i starfi sakir áldurs. Þvi miður hef ég ekki séð niðurstöðurnar i heild, en þar mun hafa komið fram, að áhrifa þessara reglna gætir miklu fyrr en ætlað var, að kviði fyrir þvi að hætta gripi fólk allmörgum árum áður en að þvi væri komið, og Svava Jakobsdóttir dragi úr starísþreki þess og Hfs- löngun. N„ sem fær þessa þáltill. til meðferðar, gæti hugsanlega útvegað sér þessar niðurstöður norsku rannsóknarinnar, ef henni þætti þurfa. Þá held ég, að öllum séljóst án nokkurrar félagslegrar rannsóknar, að hér er um vanda- mál að ræða fyrir marga. Ég get nefnt það, að ég hef rætt þetta mál við landlækni og þessa till. efnislega. Hann er mjög hlynntur málinu og sagðist ekki draga i efa, að læknastéttin i heild væri þvi fylgjandi, þvi að það væru læknarnir sem yrðu að glima við þetta vandamál hér. Þeir sæju manna best, hversu mjög þetta þjakaði margan manninn. Við flm. að þessari till. erum ekki að leggja til, að reglur um aldurshámark verði afnumdar. Þær eiga rétt á sér af ýmsum á- stæðum. En það er staðreynd, að margur sjötugur maðurinn hefur starfsþrek og starfsvilja og það er lika staðreynd, að heilsufar sjötugs fólks nú er yfirleitt betra en sjötugs fólks fyrr ,á timum. Það eigum við að þakka bættri læknisþjónustu og betri lifskjör- um. Aldrað fólk, sem verður að hætta slnu ævistarfi, leitar oft annarra starfa, en þvi stendur yf- irleitt ekki til boða annað en störf á almennum vinnumarkaði, sem krefjast fulls vinnudags og oft á tiðum er fullur vinnudagur þessu fólki öfraun. Þá er einnig hætt við, að þróun atvinnumála skerði möguleika þessa fólks til að fá slika vinnu i framtiðinni. Má i þvi Framhald á 14. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.