Þjóðviljinn - 07.02.1974, Side 9

Þjóðviljinn - 07.02.1974, Side 9
Fimmtudagur 7. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 NARVE TRÆDAL Hér voru á ferð um helgina einn og átta norskir stjórnmálafröm- uðir og „öryggismálasérfræðing- ar” i þeim crindagjörðum að sitja ráðstefnu með hérlendum hug- sjónabræðrum sinum. Sjálfsagt hafa þeir kunnað margar sögur af norska varnarliðinu (bein þýðing á nafni Norðmanna á her sinum cn það er Forsvaret) og heilla- drjúgum og bráðnauðsynlegum samskiptum þess við hernaðaryf- irvöld Atlantshafsbandalagsins. i tilefni þessa er við hæfi að segja eina sögu af þessum sam- skiptum sem óliklegt er að þeir hafi flikað á ráðstefnunni. Mál það er kennt við norskan varnar- liða sem heitir Narve Trædal. Sá hefur orðið frægur fyrir að hafa komið á framfæri við norsk blöð æfingaskeytum úr sameiginleg- um æfingum NATÓ i Noregi með þátttöku norska varnarliðsins. Lesendur Þjóðviljans ættu að kannast við málþetta þar sem blaðið skýrði i byrjun janúar frá uppljóstrunum Trædals og fleiri á þvi athæfi NATÓ-hersveita að æfa sig i að ber ja niður norska alþýðu. Nú i febrúar hefjast réttarhöld i máli Trædals en við þau hafa ýmsir aðilar ansi mikið að at- huga. „ Good Heart" var byrjunin Forsaga þessa máls teygir sig aftur til ársins 1971. 1 janúar og febrúar þess árs voru haldnar sameiginlegar heræfingar allra NATÓ-herja i Evrópu i Norður- og Mið-Noregi og gengu þær undir nafninu „Good -Heart”. Mikil leynd hvildi yfir þeim og ekki einu sinni deildarstjóri i varnarmála- ráðuneytinu vissi baun um þær fyrr en eftir að þær urðu blaða- mál. 1 mars sama ár birtu Dagbladet og Klassekampen æfingaskeyti frá „Good Heart” sem miklu fjaðrafoki komu af stað. 1 skeyt- um þessum voru nafngreindir ýmsir hópar á vinstra kanti norskra stjórnmála sem og verkamenn i verksmiðjum i Þrándheimi. NATÓ-herir frá allri Evrópu eða svo gott sem voru semsé að æfa sig i að ráða niður- lögum verkamanna sem fóru i verkfall og róttæklinga i mót- mælaaðgerðum. Málið kom fyrir norska Stór- þingið og þar lýsti varnarmála- ráðherrann þvi yfir að þetta hefðu verið mistök sem gerst hefðu án vitundar ábyrgra pólitiskra yfir- valda hersin og harðneitaði að til væru áætlanir um að berja niður „innri ókyrrð” i Noregi. Eftir þessa æfingu var send út skipun til varnarliðsins um að i æfingum mætti ekki nafngreina „pólitiska flokka eða samtök en nota i þess stað nöfn eins og „fimmta her- deild”, „stuðningsmenn Orange” (Orange er dulnefni á Sovétrikj- unum á NATÓ-máli), „hópar öfgasinna” o.s.frv. Slika hópa má ekki tengja fyrirtækjum, skólum eða öðrum starfandi stofnunum”. Ekki var þess þó lengi að biða að þessar reglur yrðu brotnar. /,Strong Express" 1 september árið 1972 hélt NATÓ einar stærstu heræfingar sem það hefur efnt til i Norður- Noregi. 1 æfingum þessum sem nefndust „Strong Express” tóku þátt 64 þúsund manns frá öllum NATÓ-herjunum og æfðu þeir sig i notkun 300 farartækja á landi og 700 flugvéla. Eitt höfuðmarkmið var að æfa svon. slökkvilið NATÓ eða Allied Mobile Forces, en italska blaðið Lotta Continua seg- ir þessar sveitir vera sérhæfðar i að berja niður uppreisnir. 1 vestur-þýska blaðinu Frank- furter Allgemeine Zeitung segir svo frá sögusviði æfinganna: „Gengið var út frá uppþotum i skandinaviskum borgum, einkum norskum og sænskum. Hópar vinstrisinna höfðu uppi mótmæla- aðgerðir á götum úti og kröfðust úrsagnar Noregs úr NATÓ. 1 dreifiritum var NATÓ ásakað um heimsvaldasinnaða árásar- stefnu... Þeir sem að baki stóðu mætti enga visbendingu gefa um hvort vinstri- eða hægrisinnar ættu i hlut. Nú hefði mátt ætla að endir hefði verið bundinn á ósómann en ekki var þvi að heilsa. 1 mars árið 1973 voru enn haldnar heræfingar, að þessu sinni undir nafninu „Firm Sand”. Nú var norska varnarliðið ekki með heldur einungis herlið það sem Norðmenn leggja til hins sameiginlega NATÓ-hers. Og enn láku skeyti. 1 þessum skeytum var rætt um hluti eins og mótmælaaðgerðir fyrir utan Stórþingið og banda- riska sendiráðið, vel að merkja friðsamlegar, sem eru hvers- dagslegur atburður i norsku stjórnmálalifi. Vilja Norðmenn ekki viðurkenna að þær beri að Narve Trædal: taldi sig vera að gera lýðræðinu gagn, er nú lögsóttur fyrir vikið. um að honum skyldi sleppt og i Osló var efnt til mótmælagöngu. Þann 1. júli viðurkenndi Trædal að hafa sent blöðunum skeytin en lýsti þvi jafnframt yfir að ekki bæri að sakfella hann þar sem hann hafi tekið ákvörðun um að senda skeytin vegna þess að inni- . , • :..................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................... < —~ v Svona vill NATÓ tryggja lýöræðið: Skriðdrekar scm voru mcð i Wintex-æfingum NATÓ. hugðust færa sér i nyt andúð þá á hervörnum sem borið hefur á á Norðurlöndum.” Ókyrrð þessi átti svo að leiða af sér innrás Rússa en hersveitir NATÓ höfðu það hlutverk að mæta henni. Þrjú skeyti láku út af æfingum þessum. I þeim var talað um neð- anjarðarstarfsemi og bent á stúd- enta sem hugsanlega landráða- menn. Sumt i skeytunum var til- búningur en i tveimur skeytanna var átt við atburði sem áttu sér stað meðan á æfingunum stóð. Var þar rætt um mótmælaað- gerðir sem efnt var til fyrir utan hótel eitt i bænum Finnsnes i til- efni dvalar nokkurra NATÓ-hers- höfðingja þar. Þessum tveimur skeytum kom Narve Trædal á framfæri við Klassekampen sem birti þau i janúar og mars 1973. Eftir það var send út önnur skipun frá æðsta ráði varnarliðsins þar sem minnt var á skipunina frá árinu 1971 sem vitnað var i hér að fram- an og þvi bætt við að i umtali um fimmtu herdeild eða öfgahópa flokka undir glæpi og fimmtuher- deildarstarfsemi. Þá eru þeir ekki á þvi að mótmælaaðgerðir gegn NATÓ-aðild séu svipaðs eðlis og skemmdarverk oþh. Skeytin birtust i Klassekampen og siðar i blöðunum Orientering, Friheten og Dagbladet. Kom i ljós að Firm Sand var einungis einn liður mjög viðtækra æfinga NATÓ sem gengu undir nafninu Wintex- 73 (skýrt var frá þeim hér i blaðinu i byrjun janúar i ár). Trædal handtekinn Þann 14. júni var Narve Trædal handtekinn og með hinni mestu leynd úrskurðaður i þriggja vikna gæsluvarðhald og einangrun vegna gruns um að hafa sent blöðunum skeytin. Félögum hans var tilkynnt að þeir mættu ekki segja frá handtöku hans og þeim sem hringdu til hans sagt að hann væri i leyfi. Þann 27. júni var hulunni svipt af handtöku Trædals þegar Dag- bladet skýrði frá henni. Samstundis fóru að berast kröfur hald þeirra braut i bága við gildandi fyrirmæli. Var honum sleppt samdægurs og leystur undan heraga. Fjöldi félaga hans úr hernum var yfirheyrður á þessum tima og beðinn að gefa nákvæma skýrslu um stjórn- málaafstöðu ' Trædals og kunningja hans. Trædal var siðan ákærður fyrir trúnaðarbrot og afglöp i starfi. A hann yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi verði hann fundinn „sekur”. Mótmælin streyma aö Siðan hefur fjöldi félagasam- taka — hermannafélög, verka- lýðsfélög, námsmannafélög og pólitisk félög — mótmælt máls- höfðuninni á hendur Trædal og krafist þess að þeim sem raun- verulega eru sekir sé refsað. 1 ályktun frá Trondheim Faglige Samorganisasjon segir ma.: „Það er ánægjulegt að til skuli vera árvakir hermenn sem þora að taka afleiðingum skoðana sinna og skýra almenningi frá þessum ódrengilega leik sem her- foringjarnir efndu til i þeirri trú að almenningur fengi ekki að vita hvað væri að gerast. Það vekur ugg að varnarliðið sé i striðsleik þar sem andstæðingarnir eru verkamenn.” 1 ályktun Odda Faglige Samorganisasjon segir ma.: „Við álitum slikar æfingar vera glæpsamlegar. Það eru lýð- réttindi að mega breiða út skoðanir sinar, mótmæla og leggja niður vinnu. Norskum her- mönnum á ekki að etja gegn verkalýðshreyfingunni, náms- mönnum eða öðrum þegnum þjóðarinnar... Narve Trædal sinnti bara sinum lýðræðislegu skyldum er hann kom skeytunum á framfæri. Við krefjumst þess að fallið sé frá ákæru á hendur honum og að i þess stað sé varpað ljósi á glæpastarfsemi varnar- liðsins.” Að hengja bakara fyrir smiö En að öllu forfallalausu verður Trædal dreginn fyrir rétt seinni- hluta þessa mánaðar. Þegar málið kom fyrir á Stórþinginu neitaði stjórnin að beita áhrifum sinum til að fallið yrði frá málinu. Eitt er lika óeðlilegt við réttar- höldin. Samkvæmt réttarhefð i Noregi á dómurinn að ákveða áður en málarekstur hefst hvaða vitni sé nauösynlegt að yfirheyra. Komið hefur fram að ýms vitni sem Trædal og verjandi hans vilja að mæti fyrir dómnum eru ekki i þeim hópi. Eru þar ma. varnarmálaráðherrann, fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar og félagar Trædals i hernum. Vilji þeir ao þessi vitni mæti fyrir dómnum verða þeir að borga sjálfir ferðir og uppihald vitn- anna. Kostnaður við það er áætlaður um 150-60 þúsund islenskar krónur. Réttarhöldin yfir Trædal minna i mörgu á IB-málið i Sviþjóð. Þegar upp kemst um starfsemi einhverra rikisstofnana, sem striðir gegn lögum og yfir- lýsingum ráðamanna,er athygl- inni ekki beint að starfseminni sjálfri,heldur eru þeir,sem komu upp um hana og töldu sig einungis vera að gegna sjálfsagðri upplýs- ingaskyldu,ofsóttir á alla lund. Og eitt er vist: starfsemi sú sem Narve Trædal kom upp um var ekkert einangrað slys. Það sýnir endurtekning æfinganna hvað eftir annað. Nei, hér var komið að kjarna NATÓ og allra herja i auðvaldslöndum; þeim er ekki ætlað að verja alþýðu manna gegn yfirgangi Rússa eða annarra tilbúinna óvina,heldur eru þeir borgarastéttarinnar til að verja hagsmuni hennar íyrir alþýðunni. —ÞH Saga sem ekki var sögð á ráðstefnu Varðbergs um síðustu helgi

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.