Þjóðviljinn - 07.02.1974, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. febrúar 1974.
Strætó stoppi
nær Hall-
yeigarstöðum
Adda Bára Sigfúsdóttir, borg-
arfltr. Alþýðubandalagsins, hef-
ur lagt eftirfarandi tillögu fyrir
fund borgarstjórnar i dag:
„Með tilliti til þarfa aldaðs
fólks, sem sækir tómstundastarf-
semina á Hallveigarstöðum,
beinir borgarstjórn þvi til stjórn-
ar SVR, að hún kanni, hvort ekki
sé unnt að láta strætisvagna
stoppa nær Hallveigarstöðum en
þeir gera nú”.
önnur mál á dagskrá fundarins
eru m.a. fyrirspurnir varðandi
úthlutun úr lóðasjóði, fjárhagsað-
stöðu borgarsjóðs og aðstoð við
aldrað fólk og tillögur um breyt-
ingu á skipan útgerðarráðs og
varðandi breytingu á lögum um
fasteignamat og lögum um sam-
býli.
Þá má vænta talsverðra um-
ræðna um einstök atriði er fram
koma i fundargerðum nefnda og
ráða. —vh
Vélfryst skautasvell
kemur í Laugardalinn
Húsnæði
óskast
2 til 3 herbergja ibúð
óskast til leigu; má
þarfnast lagfæringar.
Upplýsingar i sima
71122 f.h. og 42794 e.h.
Vélfryst skautasvell verður nú
loks brátt veruleiki i Reykjavik,
en mikið er það mál búið að vera
lengi á leiðinni frá þvi að fyrstu
draumarnir um skautahöll skutu
upp kollinum.
A siðasta fundi borgarráðs lágu
fyrir frá iþróttaráði teikningar af
vélfrystu skautasvelli i Laugar-
dal og samþykkti borgarráð þær
fyrir sitt leyti. Kemur þar með i
ljós, að þótt meirihluti borgar-
stjórnar vildi ekki samþykkja til-
lögu um slikt svell, sem siðar yrði
jafnvel yfirbyggt, frá Sigurjóni
Péturss. 1970 og bæri við kostnaði
og fleiru, er þetta mögulegt nú.
Er það ekki i fyrsta sinn, sem
ekki má samþykkja tillögu frá
minnihlutanum, þótt borgarfull-
trúar meirihlutans séu i sjálfu sér
sammála þeim.
Reyndar kom fram á þessum
fundi borgarráðs, að meirihlutinn
er klofinn i iþróttamálunum og lét
Albert bóka þar eftir sér, að hann
hefði ekki og mundi ekki taka þátt
i afgreiðslu neinna mála, sem
snerta iþróttavellina, sem nú eru
I byggingu i Laugardalnum.
Auk skautasvellsins samþykkti
borgarráð teikningar af girðing-
um umhverfis iþróttavellina i
Laugardal og að samið yrði við
Hlaðbæ hf. um gerð malarvallar
þar.
Þá leggur iþróttaráð til, að
fjarlægt verði hús, sem stendur á
væntanlegu bifreiðastæði Laug-
ardalsvallar og Vatnsveitan hef-
Auglýsing
Tryggingaeftirlitið
vekur hér með athygli á þvi, að samkvæmt lögum nr.
26/1973 um vátryggingarstarfsemi, sem tóku gildi 1. janú-
ar sl., ber öllum þeim, sem nú reka hvers konar vátrygg-
ingarstarfsemi að sækja um leyfi til slikrar starfsemi fyrir
1. mars 1974. Umsókn skulu fylgja gögn i samræmi við
reglugerð nr. 396 frá 28. desember 1973 ,,um leyfi til vá-
tryggingarstarfsemi og skráningu i vátryggingarfélaga-
skrá”.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar veitir Trygginga-
eftirlitið, Stórholti 1, slmar 26757 og 26746.
TRYGGINGAEFTIRLITIÐ
Tilkynning
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á
þvi, að samkvæmt auglýsingu viðskipta-
ráðuneytisins, dags. 31. desember 1973,
sem birtist i Stjórnartiðindum og 8. tbl.
Lögbirtingablaðsins 1974, fer 1. úthlutun
gjaldeyris- og/eða innflutningsleyfa árið
1974 fyrir þeim innflutningskvótum, sem
taldir eru i auglýsingunni, fram i febrúar
1974. Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa
borist Landsbanka íslands eða útvegs-
banka íslands fyrir 20. febrúar 1974.
LANDSBANKI ÍSLANDS
ÚTVEGSBANKIÍSLANDS
Bótagreiðslur
Almannatrygginga i Reykjavik
Útborgun ellilifeyris í Reykjavik hefst að
þessu sinni föstudaginn 8. febrúar.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
ur nú afnot af. Var það mál ekki
afgreitt.
—vh
Olíusalar
Framhald af bls. 16.
laga og standa vopnaðir tollverðir
vörð um þau plögg. — Forseti
fulltrúadeildar þjóðþingsins,
Sandro Petrini, hvatti á mánudag
til þess að rannsókninni yrði
hraðað. Skjölin, sem gerð hafa
verið upptæk, sýna auk annars að
oliukauphöldarnir lugu stjórnina
fulla um ástandið i oliumálinu
eftir að Arabar tóku að takmarka
oliuútflutninginn. Er talið að þá
hafi oliubirgðir i landinu verið
fjörutiu af hundraði meiri en oliu-
hringur landsins hélt fram. Þess-
ar fölsku upplýsingar leiddu til
þess að stjórnin samþykkti
bensinskömmtun i nóvember og
desember, auk þess sem oliufé-
lögin fengu að hækka oliuverðið
stórum meir en annars hefði
komið til greina.
Stærsta mútan, sem kunnugt er
um, kom i hlut þekkts stjórn-
málamanns, og var hún afhent
honum i ávisun, er skrifuð var á
nafn vinnukonu hans. önnur
mútuávisunin var skrifuð á nafn
þekkts veðhlaupahests.
Chile
Framhald af bls. 2.
innar og MIR yrði unnt að gera
bandalag gegn stjórninni, enda
þótt það mál yrði að visu reifað á
sérstökum fundi fulltrúa póli-
tiskra afla Chile, sem haldinn
verður „einhversstaðar i heimin-
um” nú i febrúar. Við þurfum að
styrkja sem best innviðu sjálfrar
Alþýðufylkingarinnar. Þvi er
áriðandi að enginn skerist úr leik
og hefji upp á eigin spýtur að-
gerðir sem gætu tafið fyrir þvi að
andfasistafylkingin festist i sessi.
Altamirano vildi ekki gera mik-
ið úr fréttum um innbyrðis á-
greining innan herforingjastjórn-
arinnar. Hann væri timabundinn
og tengdur persónulegu þrefi um
völd. Meiru skipti, að herfor-
ingjaklikan væri einangruð
heima fyrir og á alþjóðavettvangi
og ætti I miklum efnahagsörðug-
leikum.
Einangruð klika
Heimafyrir hefur stjórnin ekki
við aðra að styðjast en auðborg-
arastéttina i hinum hægrisinnaða
Þjóðarflokki, arm Eduardos
Freis I Kristilega demókrata-
flokknum og fasistasamtökin
Föðurland og frelsi. öll önnur
þjóðfélagsöfl i landinu hafa með
einu móti eða öðru hafnað stjórn-
inni eða fordæmt glæpsamlegar
aðferðir hennar. Almenningsálit-
ið i heiminum á stjórn Chile
gæti ekki verið lakara. Enda fá
menn sifellt nýjar fréttir af
grimmdarverkum hennar.
Nokkrar þær siðustu: ofsóknir
gegn ýmsum virtustu læknum
landsins, Angel Parca dæmdur i
30 ára fangelsi fyrir að hressa
menn með söng sinum, Giliberto,
einn af miðstjórnarmönnum
sósialista , hefur verið pindur i
fangabúðum og einnig Juan van
Schoewen, einn af foringjum
MIR.
1 þessu sambandi varaði Alta-
mirano sérstaklega við sumum
þeim sendinefndum sem heim-
sækja Chile og taka útskýringar
stjórnvalda þar fyrir góða og
gilda vöru. Stærst hneyksla var
það að fjórir sendimenn vestur-
þýskra Kristrlegra demókrata
heimsóttu pólitiskar fangabúðir á
Dawsoneyju og sögðu að þeirri
heimsókn lokinni, að fangarnir
hefðu ekki borið fram neinar
kvartanir um aðbúnað. Menn
ættu að geta skilið, hvað hefði
gerst ef þeir hefðu kvartað, og
ekki sist ættu Þjóðverjar að vita
að t.d. fangar i fangabúðum Hitl-
ers hefðu aldrei getað svarað rétt
og satt til um aðbúnað sinn.
Hægrisinnar töldu verðbólgu
einhverja mestu synd stjórnar
Allendes. En nú hafa landsmenn
farið úr ösku I eld i þeim efnum; á
siðustu fjórum mánuðum hefur
verðbóigan numið 1000%. 12%
allra vinnufærra manna eru at-
vinnulausir. Kaupbinding rikir
meðan verðbólgan ris himinhátt.
25 þúsund stúdentar hafa verið
reknir úr háskólum og bætast við
hinn stóra her atvinnuleysingja.
Framleiðslan hefur dregist sam-
an og mikill afturkippúr er i sam-
anlögðu efnahagslífinu.
Blöð á Vesturlöndum hafa mjög
rætt um þann möguleika að her-
foringjastjórnin reyndi að
„hressa upp á andlitið”; reyna
með mannaskiptum og öðrum
ráðum að lita betur út gagnvart
umheiminum. Altamirano vék að
þessu og kvaðst ekki hafa sér-
stakan áhuga á hugsanlegri við-
leitni herforingjaklikunnar til að
setja upp einskonar lýðræðisbros
út á við. Við erum, sagði hann,
ekki að berjast gegn einstakling-
um. Við erum að berjast gegn á-
standi, gegn fasisma og þeirri
heimsvaldastefnu sem að baki
honum stendur og ráðið hefur nið-
urlögum lýðræðis i landinu.
(áb byggði á Prensa Latina)
Svona fréttir
Framhald af bls 8.
er alveg óhætt að láta sér sjálfum
detta eitthvert nýtt starf i hug og
sækja um, þótt karlmenn hafi ein-
okað það til þess tima.
Hin fréttin er öllu neikvæðari og
segir frá stúlku, sem lokið hefur
stúdentsprófi og sótti um
afgreiðslustarf i tiskuverslun skv.
auglýsingu.
Henni var neitað um starfið
vegna of mikillar menntunar og
vildi atvinnurekandinn helst fá
„stelpur, sem hefðu lifað vana-
bundnu lifi og aldrei kynnst neinu
öðru”. Fólk, sem væri orðið svona
menntað, sagði hann, að „væri
búið að sjá svo mikið og vissi svo
mikið svona vitt og breitt”.
Ekki verður bókvitið i askana
látið! segir blaðamaðurinn og við
bætum við: Það skyldi þó aldrei
vera, að hægt sé að halda
„stelpum”, sem aldrei hafa
kynnst neinu öðru, i nógu lágu
kaupi fyrir kaupmanninn? —vh
Ragnar
Framhald af bls. 7.
inn eðlilegum hætti og án
rembings.
h) Hann skiptir um skoðun.
i) Hann er með framtiðina á
vörunum og kann að þurrka sér
um munninn.
j) Hann kann að glotta.
Og nú hefst upp lokasöngurinn:
Ragnar minn, sumum mönnum
eru sjötiu ár ekkert hættulegri en
dálitið nasakvef. Þú ert einn
þeirra manna. Þú kannt að blása
úr nös. Og ég veit, að þú munt
bora eða snýta kvefi áranna úr
nefi þinu, án aðstoðar eða upp-
örvunar meðalagjafaranna á
menningarsviðinu.
Ráðlegging: Vertu ekki heima
á afmælisdaginn, þvi að annars
færðu bæði brennivin og fálkaorð-
una.
Hvað mun Ragnar Jónsson
taka til bragðs á næstu árum?
Hann mun vitaskuld vinna það
verk, sem öllum afreksmönnum
dreymir um að vinna. Hann mun
vinna óvinnandi verk. Það eitt á
hann eftir.
Með bestu óskum um erfiða og
splunkunýja framtið.
Guðbergur Bergsson
P.S. Alltaf þegar ég skrifa bréf,
þá bæti ég pé essi við i lokin og
berupp spurningu. Spurning min,
sem ég beini til þin, hljóðar svo:
Hvort heldur þú að ill og mjúk ör-
lög Silfurhestsins, sem gagnrýn-
endur — eða kæfur — dagblað-
anna veita árlega höfundi lang-
bestu bókar ársins, samkvæmt
reglunni „prúð og frjálsleg i fasi,
fram nú allir i röð”, stafi af þvi,
að undir hestinn vantar silfur-
skeifuna, eða hana vanti undir
gagnrýnendurna?
SAMI
Réttaröryggi
Framhald af bls. 4,
Magnús Kjartansson sagði að
sömu þingmenn og nú sitja á
þingi hefðu samþykkt að fela sér
sem ráðherra að láta semja
frumvarp um tryggingadóm með
samþykkt laganna um almanna-
tryggingar frá 27. des. 1971.
Magnús lagði áherslu á að oft
væri það mjög efnalitið fólk sem
ætti viðskipti við tryggingastofn-
unina. Réttaröryggi þessa fólks
yrði að tryggja með sérstökum
ráðstöfunum og það yrði gert
best með þvi að stofna sérstakan
tryggingadóm. Hefði slikt fyrir-
komulag reynst vel á Norðurlönd-
unum og engin ástæða væri til að
ætla að annað gilti hér á landi.
Ráðherrann tók fram, að 2.
málsgr. 2. greinar væri i frum-
varpinu til samkomulags innan
nefndarinnar.
Hann sagði að oft væru óljós
mörk milli almannatrygginga og
annarra tryggingá. Nefndi hann i
þvi sambandi slysatryggingamál
sjómanna. 1 sjálfu sér virðist mér
eðlilegt að öll tryggingamál heyri
undir slikan dómstól, sagði
Magnús.
Ráðherrann kvaðst ekki hafa
undir höndum nein gögn um
kostnað sem hlytist af starfsemi
dómstólsins, en slikt yrði að sjálf-
sögðu athugað. Hann lagði á það
áherslu að nauðsynlegt væri að
starfsemi af þessu tagi væri kost-
uð af rikissjóði, þvi ella væri hætt
við, að fólk hlifðist við að leggja
mál fyrir dóminn.
Enn tóku til máls Halldór E.
Sigurðsson, fjármálaráðherra,
Þórarinn Þórarinsson, Ragnhild-
ur Helgadóttir, Gunnar Thorodd-
sen og loks Friðjón Þórðarson
sem kvaðst almennt vera andvig-
ur þvi að stofnaðir væru sérdóm-
stólar. Réttara væri að búa betur
að hinu almenna réttarkerfi
landsins.
Svava
Framhald af bls. 4.
sambandi benda á sivaxandi vél-
væðingu og aukið hagræðingar-
skipulag, eins og t.d. ákvæðis-
vinnustörf. A þessu stigi leggjum
við ekki til, á hvern hátt leysa
skuli þessi mál, en við leggjum
hins vegar áherslu á, að fullt
samráð verði haft við launþega-
samtök landsins. Eflaust koma
fleiri leiðir en ein til greina. Jafn-
framt þvi, sem sú skylda væri
lögð á atvinnufyrirtæki að sjá
öldruðu starfsfólki sinu fyrir
vinnu, kannske við sérstök störf
og styttri vinnutima en almennt
gerist, jafnvel aðeins hálfan dag-
inn, væri lika hugsanlegt að koma
á fót. sérstökum vinnustöðum við
léttan iðnað, þar sem aldrað fólk
gæti starfað eftir þreki og aðstæð-
um hvers og eins. Við viljum þó
leggja áherslu á það, að við telj-
um æskilegt, að mönnum sé gert
kleift að starfa áfram á þeim
vinnustöðum og i þvi umhverfi,
sem þeir hafa unnið i og reynt sé
að finna lausn, sem feli i sér sem
minnsta persónulega röskun fyrir
hvern og einn.”
Aðalgrein
Framhald af bls 8.
tiskrar meðvitundar og baráttu i
stað þess að verða aðeins virkir
þjóðfélagsþegnar annað hvert ár,
þegar þær nota sinn lýðræðislega
atkvæðisrétt.”
Frelsun konunnar og verka-
mannsins — það var frá upphafi
eitt höfuðtakmark sósialismans,
segir i forystugrein Réttar og að
lokum, að timaritið vonist til að
geta á næstunni flutt fleiri greinar
um það efni.
—vh
Kópavogsbúar!
Skoðanakönnun meðal stuðningsmanna H-listans
um skipun framboðslista við næstu bæjarstjórnar-
kosningar stendur yf ir alla þessa viku og fer fram á
skrifstofu Alþýðubandalagsins að Álfhólsvegi II.
Þátttakendur skrifa á kjörseðilinn nöfn þeirra
sem þeir leggja til, að skipi framboðslistann í kosn-
ingunum í vor. Skrifstofan er opin alla vikuna milli
kl. 6 og 7 síðdegis.