Þjóðviljinn - 07.02.1974, Síða 15

Þjóðviljinn - 07.02.1974, Síða 15
Fimmtudagur 7. febrúar 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 r Alfræðibók um framtíðina Allir með sömu laun A stuttum tima hafa vcrið stofnuð þrjú ný blöð, i Dan- mörku. Fvrst ber að nefna VEJLE AVIS sem er dagblað, sið a n k om SÖN- DÁGSBLADET og siðast vikublaðið FOLK I ARHUS. I»essi blöð eiga það öll sam- eiginlcgt að þau vilja flytja cfni, sem böl'ðar til skvnsemi og launjiega almennt. Að FOLK I ARHUS stendur hópur fólks scin vinnur allt blaðið að ööru leyti en prcntun þess og dreifir þvi. Allt fólkið setn vinnur að blaðinu tckur 40 krónur danskar (528 kr.isl.) á tiniann, jafnt ritstjórar sem aðrir, og vinnuvikan er áætluð :i0 stundir hjá fastráðnum, svo þeir v-rði ekki lciðir og sljóir á vinnustaðnum. Blaðið veröur 22 siður og flytur venjulegt af- þrcyingarefni i bland, en ætlar fyrst og fremst að kanna og kynna heim hins venjulega launamanns og gera betur á þvi sviði en önur blöö. Blaðið á að standa undir sér með 13.500 eintaka sölu. Bandariska Hudson stofnunin i I’aris er nú með áform utn að gefa út 5 binda alfræðibók um framtiðarspár. Yfir 100 kunnir visinda- og listamenn munu skrifa greinar um sin sérsvið. i þeim hópi má nefna Wernher von Braun geimvisindamann. SKEYTI LONDON — Sneið af hrúökaupsköku Viktoriu Eng- landsdrottningar var seld á uppboði i London á dögunum. Kökusneiðin er 133 ára gömiil, en seljandinu hefur ekki komið l'ram i dagsljósið. Það var ofursti tengdur ástralska sendi- ráðinu i London sem keypti kökuna á 14 þúsund krónur, en talið er að hann hafi verið milli- liður safnara i Tasmaniu. LONDON — Ungt par á lióteli fór saman i bað til að spara heita vatnið en gleymdi lögmáli Arkimcdesarþannig að það flóði úr baðinu niður á barinn á hæðinni fyrir neðan. Unga fólkið varð að borga um 20 þúsund i skaðabætur og þola háðsglósur hótelsgesta. 11. mammútinn Á þessum myndum sjáum við jarð- áÉpskar leifar mammúts sem fannst í ^rustur hluta Siberíu i ísalögum við ána Shandra. Þetta dýr frá steinöld hefur legið í ís og ísaldarleir í margar aldir og varðveist furðulega vel. Mammút- inn fannst með þeim hætti, að fiski- eftirlitsmaður sá vígtönn skaga út úr ísleirnum og þegar vísindamenn komu á vettvang tók þá þrjá daga að hreinsa isaldarleirinn frá skepnunni. Sníkju- dýr voru búin að hreinsa burt húðina, en innyflin voru heilleg og mikið gras fannst í maga dýrsins. Þessi einstæði fundur gerir vísindamönnum kleift að afla nýrra upplýsinga um dýrið og plöntulíf á þeim tíma er það var uppi. Þetta er ellefta mammútsbeinagrind- in sem finnst og sú stærsta. Hæðin er um fjórir metrar, þyngdin 7 tonn og ^^arlægð milli enda vígtannanna um ff|nr metrar. Mammútinn er nú á saf ni i Novosibirisk þar sem APN-ljós- myndari festi gripinn á filmu. Margret Mead, Arnold Toynbee s'agnfræðing, Ilerbert Kahn Iram tiðarfræðing, Edward Teller, föður vetnissprengj- unnar, og fjölniiðlafræðinginn Marshall McLuhan. Fyrsta hindið kemur út á ensku árið 1975. ii Kanar spuröir um Svíþjóö Hvað halda Bandarikja- menn um Svia eftir að þeir gagnrýndu svo ákaft þáttöku Bandarikjamanna i Viet- namstriðinu? Nýlega fór fram viðtök könnun i Bandarikjunum um þetta atriði og þar kom i ljós að aðeins einn af hverjum tiu taldi afstöðu Svia bera vott um kala til Bandarisku þjóðarinnar. Yfirgnæfandi meirihluta aðspurðra taldi Sviþjóð gott riki, þar sem rikti pólitiskt frelsi, fólkið væri mennlað og tæknikunn- átta á háu stigi. Fiestir héldu aftur á móti að rikið ætti öll helstu iðnfyrirtækin (i raun aðeins 6%) og mjög margir vissu litið sem ekkert um tryggingakei'fið, eða að Svi- þjóð væri hlutlaust land. 73% gátu ekki munað nafn á neinni borg i Sviþjóð! Skákmeistarinn Ciocaltea • Victor Ciocaltea, skák- meistarinn rúmenski er teflir hér á Reykjavikurmótinu, er fæddur árið 1932. Hann hefur teflt mikið að undanförnu og meðal árangra hans má nefna 3.-4. sæti á Malaga 1971, en þar sigraði Spánverjinn Pomar. Á minningarmóti Asztalos 1971 varð hann i 3. sæti en þá var Forintos efstur með 11 vinninga. 0 A Hatsingsmótinu 1971-72 lenti Ciocaltea i 11. sæti, en þá urðu efstir og jafnir Karpov og Kortsnoj. Ciocaltea varð skák- meistari RUmeniu árið 1971. Hann hefur oft teflt á Olympiu- skákmótum og árið 1962 sigraði hann Fischer á sliku móti. Ciocaltea er alþjóðlegur meistari og það er Fórintos reyndar lika, en við kölluðum hann stórmeistara i ógáti hér á siðunni i gær. (Heimild mótsskrá SI) UMSJÓN: SJ Pillan vinsæl hiá Kín- verjum l»að kom fyrir skönimu fram i grein i tímaritiini CERES, sem Matvæla og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna gcfur út, að pillan svonefnda er jneira notuð sem getnaðarvörn i Kina en i nokkru öðru landi. Þessar upplýsingar koma lram . i grein eftir Carl Djerassi, efna- fræðiprófessor við Standford háskólann, en hann hefur stundum verið nefndur „faðir pillunnar”. Greinin er birt i sér- stöku hefti timaritsins þar sem einkum og sér i lagi er fjallað um mannfjölgunarvandamálin. Prófessorinn heldur þvi fram, að tiu til fimmtán miljónir kinverskra kvenna hafi notað pilluna sem getnaðarvörn á siðastliðnu ári, en það telur hann vera 10 til 15 prósent allra kvenna i barneign i Kina. Hann segir enn- fremur, að hlutfallslega noti ef til vill fleiri konur pilluna i ýmsum löndum á vesturlöndum, en raun- tala þeirra sé þó hvergi hærri en i Kina, að þvi er hann best viti. Timaritið Ceres kemur Ut hálfsmánaðarlega á ensku, frönsku og spænsku. (Frá upp- lýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlönd.) 200 ferðir Ferðafélagsins Ferðafélag lslands-ráðgerir rUmlega 200 ferðir á þessu ári samkvæmt 36. ferðaáætlun fé- lagsinssem er nýkomin Ut. Ft hefur skipulagt 22 sumarleyf- isferðir á árinu, 128 styttri ferðir, 34 Þórsmerkurferðir. 19 ferðir i Landmannalaugar og 6 ferðir um Kjöl. Lengsta ferðin tekur 17 daga. en þær stystu hluta Ur degi. Gist er i skálum Ferðafé- lagsins þegar þvi verður við komið, en annars i tjöldum sem ferðafólkið leggur sjálft til. Hver og einn sér um mæt' fyrir sig i ferðum þessum. Áætlun Ferðafélagsins er snotur bæklingur. og þar er skilmerkilega gerð grein fyrir öllum ferðunum, m.a. með merkingum á íslandskortinu. Klassísk gítartónlist Þann 11. nóvember sl. var stofnað ..Félag áhugamanna um klassiska gitartónlist", Stofnendur eru rUmlega 20, og hefur Kjartan Eggertsson, Unufelli 9. Reykjavik, verið kosinn formaður Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur þess: a. að efla kvnni félags- manna og annarra áhuga- manna á klassiskum gitarleik með tónlistar- og kynningar- fundum. b. að koma upp nótna- og bókasafni til afnota fvrir fé- lagsmenn, c. að auka, áhuga almenn- ings á klassiskum gitarleik með hljómleikum félags- manna og konsert-gitar- leikara Félagsmenn geta orðið allir áhugam.enn um klassiska gitartónlist. Upplýsingar um félagið má fá hjá formanni i sima 43389, og hjá Gunnari H. Jónssyni i sima 25828

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.