Þjóðviljinn - 07.02.1974, Page 16
mmi/m
Fimmtudagur 7. febrúar 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaöamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar-, kvöld- og næturþjónusta
lyfjabúða i Reykjavik 1.-7. febr.
er i Austurbæjarapóteki og
Laugavegsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Stöðvast breski
•X X • Q
íonaðunnn:
Talið vist að Heath
ákveði þingkosningar
LUNDONUM 6/2 — Breska kola-
námumannasambandið hefur
lýst þvi yfir, að það muni reyna
að fá önnur verkalýðssamtök til
þess að hætta að afgreiða kol og
lugi
Oliusalar
;u stjórn-
ina fulla
ROM 6/2 — Allt leikur nú á reiði-
skjálfi á Itaiiu út af oliuhneyksl-
inu, sem þar er nýkomið á dag-
inn. Stjórnin hefur tilkynnt að
hún muni um óákveðinn tima
fresta verðhækkun á bensini, sem
ákveðin hafði verið. Hyggst
stjórnin biða eftir niðurstöðum
rannsóknar, sem nú fer fram i
framhaldi af ásökunum á hendur
oliuhring landsins um að hann
hafi mútað stjórnmálamönnum
og embættismönnum til þess að
láta oliukreppuna líta út enn al-
varlegri en hún i rauninni er.
Sagter að múturnar hafi numið
alls um 2.3 miljörðum króna.
Gerð hafa verið upptæk skjöl og
bókhaldskompur margra oliufé-
Framhald á 14. siðu.
oliu til orkustöðva. Derek Ezra,
forstjóri hinna rikisreknu kola-
náma, hefur látið hafa eftir sér að
algert verkfall i námunum myndi
valda breskum þjóðarbúskap
meira tjóni en nokkuð annað, sem
fyrir hann hefði komið eftir siðari
heimsstyrjöld. í neðri deild
þingsins er nú almennt reiknað
með þvi að rikisstjórnin taki það
ráð að efna til nýrra þingkosn-
inga.
Meðal þingmanna er helst við
þvi búist að Heath forsætisráð-
herra muni ákveða nýjar kosn-
ingar annaðhvort tuttugasta og
áttunda febrúar eða sjöunda
mars. Tækist íhaldinu að auka
þingmeirihluta sinn i kosningum,
er liklegt að Heath treysti sér til
að taka harðari afstöðu gagnvart
námumönnum, en kröfur iðnrek-
enda um að látið yrði undan kröf-
um námumanna hafa undanfarið
orðið æ háværari.
Ef stöðvuð yrði afgreiðsla á
kolum og oliu til raforkustöðva,
eins og kolanámumenn stefna nú
að, myndi það verka sem rothögg
á iðnaðinn, sem ekki má við
miklu úr þvi sem komið er. Joe
Gormley, formaður sambands
kolanámumanna, sagði i dag að
svo að segja allur iðnaðurinn
myndi stöðvast viku eftir að raf-
orkuverin yrðu að hætta fram-
leiðslu.
Hertöku japanska
sendiráöið í Kúvæt
Halda ambassadornum i gislingu
KÚVÆT 6/2 — Hópur japanskra
og arabiskra skæruliða hernam i
dag japanska sendiráðið i Kúvæt
og tók ambassadorinn og aðra
starfsmenn sendiráðsins i gisl-
ingu. Skæruliðarnir kröfðust þess
að fjórir menn, sem gerðu fyrir
skemmstu misheppnaða atlögu
að oliuhreinsunarstöð Shell i
Singapore, fengju til umráða
flugvél og fararleyfi til Kúvæt.
Allir nema
íhaldið
herinn
vilia
burt
Samhljóða ályktun æskulýðssamtaka
allra stjórnmálaflokka nema
Sjálfstœðisflokksins
Helgina 2.-3. febrúar sam-
þykktu ungmennasamtök vinstri
flokkanna á íslandi eftirfarandi
ályktun um herstöðvamálið:
Samband ungra Framsóknar-
manna, Samband ungra jafn-
aðarmanna, Æskulýðsnefnd Al-
þýðubandalagsins og Æskulýðs-
nefnd Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna krefjast þess, að
rikisstjórnin standi við það loforð
sitt, að allur her verði horfinn frá
Islandi fyrir lok kjörtimabilsins.
Rikisstjórninni ber nú þegar
skylda til að leita heimildar Al-
þingis til uppsagnar varnarsamn-
ingsins við Bandariki Norður-
Ameriku frá 1951 og beita þeirri
heimild, ef ekki næst samkomu-
lag um brottför alls herliðs i
fyrirhuguðum febrúarviðræðum
tslendinga og Bandarikjamanna.
Þurfi herflugvélar á vegum
Atlantshafsbandalagsins að fá
lendingarleyfi hér á landi i sér-
stökum tilfellum, eftir að samn-
ingurinn er úr gildi failinn, skal
allri fyrirgreiðslu við þær vera
eins háttað og við aðrar flugvélar.
Öll störf á Keflavikurflugvelli,
þar með talin flugþjónusta og lög-
gæsla, skulu að sjálfsögðu vera i
höndum Islendinga.
S.U.F. Æskulýðsnefnd Alþýðu-
bandalagsins, S.U.J. Æskulýðs-
nefnd Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna.
ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Erindi Jónasar Arnasonar um stöðuna i herstöðvamálinu, sem halda
átti á umræöufundinum I kvöld er frestað um viku.
Aðalfundur Alþýðubandalagsins i
Hafnarfirði
verður haldinn i Góðtemplarahúsinu uppi i kvöld
fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuieg aðalfundarstörf
2. Bæjarstjórnarkosningarnar
3. Jónas Arnason alþm. ræðir herstöðvamálið.
Félagar, f jölmennið. — Stjórnin
Jónas
Hótuðu skæruliðar að ganga af
gislunum dauðum ef ekki yrði
gengið að kröfum þeirra.
Japanska stjórnin sendi þegar i
stað flugvél til Singapore eftir
nefndum fjórmenningum, þrem-
ur Japönum og einum Araba, sem
hafa hafst við um borð i ferju á-
samt tveimur gislum. Hinsvegar
tilkynntu yfirvöld i Kúvæt i kvöld,
að flugvélin myndi ekki fá lend-
ingarleyfi þar. Kúvætstjórn býð-
ur skæruliðum að þeir fái að yfir-
gefa landið i fullum griðum, svo
fremi þeir sleppi gislunum. Enn
standa yfir samningaumleitanir
við skæruliðana, sem eru úr Al-
þýðufylkingunni til frelsunar
Palestinu (PFLP) og harðsnún-
um jarpönskum samtökum, sem
telja sig vinstrisinnuð og kallast
Rauði herinn. Þessi samtök munu
hafa staðið i félagi að téðri aðgerð
i Singapore.
1 sendiráðsbyggingunni er fjar-
ritunarútbúnaður, og geta skæru-
liðarnir með þeirri tækni talað
milliliðalaust við stjórnina i Tók-
ió.
r
Ovænt bilun
hj á símanum
Um hádegisbilið i gær varð
bilun i stöð bæjarsimans við
Austurvöll og fóru númer sem
byrja á 25, 26, 27 og 28 úr
sambandi. 1 framhaldi af þvi
urðu ýmsar truflanir hjá öðr-
um simnotendum. Um þrjú-
leytið var búið að laga þessar
truflanir, en orsök bilunarinn-
ar fannst siðar og var unnið að
fullnaðarviðgerð fram eftir
kvöldi. Bilunin varð i kassa
þeim, sem Guðmundur ólafs-
son, verkfræðingur stendur
hér við. Þessi samstaða var
sett upp árið 1969, og hefur
ekki komið fram nein alvarleg
bilun i henni fyrr en nú. Menn
lentu i ýmsu þegar þeir voru
að reyna að brjótast i gegn, og
einn, sem ætlaði að ná sam-
bandi við borgarskrifstofurn-
ar, kom inn á samtal einhvers
Islendings við Singapore, og
var honum þá öllum lokið!
SJ
Alþýðuflokkurinn og
Samtök frjálsL ná ekki
i Kópavogi
saman
t blaðinu Þjóðmál, sem er mál-
gagn Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna, er út kom i gær, er
frá þvi skýrt, að ekki hafi tekist
samkomulag um sameiginlegt
framboð Samtaka frjálslyndra og
Alþýðuflokksins við bæjarstjórn-
arkosningar i Kópavogi í vor, en
hins vegar muni Samtökin standa
að lista með Framsóknarmönn-
um i Kópavogi, sem Guttormur
Sigurbjörnsson hefur forystu fyr-
ir.
1 frásögn blaðsins kemur fram,
að sameiginlegt framboð með Al-
þýðuflokknum hefur strandað á
deilum um röðun á lista. Sagt er
að tveir fundir hafi verið haldnir
með fulltrúum Alþýðuflokksins,
en ekki hafi orðið af hinum þriðja
vegna óbilgirni Alþýðuflokks-
manna, sem hafi heimtað 1. sætið
i sinn hlut. Upplýst er i þessu
sama blaði, að Samtök frjáls-
lyndra i Kópavogi muni fá i sinn
hlut 2. og 4. sætið á sameiginleg-
um lista með Framsóknarflokkn-
um við komandi bæjarstjórnar-
kosningar.
Eins og kunnugt er hafa Gylfi
og Hannibal haft mikinn hug á
þvi, að tryggja sameiginleg
framboðflokka sinna sem viðast i
bæjarstjórnarkos. ingunum i vor
með tilliti til langþi áðrar samein-
ingar flokkanna siðar.
Ersvoaðsjá,aðþessimálaiok i
Kópavogi komi ekki sem best
heim við þær áætlanir.
Nixon. stefnt
sem vitni?
WASHINGTON 6/2 — FuIItrúa-
deild Bandarikjaþings greiðir i
dag atkvæði um tillögu þess efnis,
að dómsmálanefnd þingsins fái
frjálsar hendur til þess að stefna
Nixon forseta til að bera vitni fyr-
ir nefndinni i sambandi við
Watergate-rannsóknirnar. Er
fastlega gert ráð fyrir að tillagan
verði samþykkt með miklum
meirihluta atkvæða. I tillögunni
felst einnig að nefndin fær frjáls-
ar hendur til að halda áfram
rannsóknum á því, hvort nægar
ástæður séu til þess að stefna Nix-
on forseta fyrir rikisrétt.
Formaður dómsmálanefndar-
innar, demókratinn Peter Rodino
frá New Jersey, sagði i dag að
nefndin myndi hafa hraðar hend-
ur jafnskjótt og tillagan hefði ver-
ið samþykkt.
SÍÐUSTU FRÉTTlIt
Fulltrúadeild Bandarikjaþings
samþykkti i gærkvöld tillögu um
heimild til að stefna Nixon til
vitnisburðar með 410 atkvæðuni
gegn 4.