Þjóðviljinn - 17.03.1974, Síða 8

Þjóðviljinn - 17.03.1974, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. raarz 1974. FRÖNSK HÁTÍÐ Dagana 27. mars til 3. apríl n.k. verður haldin á vegum franska sendiráðs- ins í Reykjavík frönsk kvikmyndavika í Háskóla- bíói. Sýndar verða a.m.k. sjö nýjar kvikmyndir og sýningum hagað þannig að hver mynd er sýnd þrisvar, en þrjár mismunandi myndir sýndar dag hvern. Þetta eru afar ánægjuleg tið- indi, maður minnist sams konar viku er Frakkarnir stóðu að i Nýja biói fyrir nokkrum árum. Þá gafst Reykvikingum kostur á að sjá nokkrar nýjar úrvals- myndirsem voru margar hverjar ekki frumsýndar i nágrannalönd- unum fyrr en löngu siðar. Þaö sama gerist nú. Ég nefni að þessu sinni aðeins eina myndanna, nýj- ustu mynd Francois Truffauts, La nuit américaine, sem sýnd er um þessar mundir við fádæma hrifningu viða um heim. Háskólabió hefur reyndar þeg- ar hafið þessa hátið upp á eigin spýtur. Bióið sýnir nú 2 bráð- skemmtilegar franskar myndir: „Manninn á svöru skónum”, snargeggjaðan njósnafarsa, leik- stjóri Yves Robert, og svo á mánudagssýningunum „Flagð undir fögru skinni” er Truffaut gerði 1972, næst á undan La nuit américaine. Bióið hefur einnig fest kaup á 4 nýjustu myndum Claude Chabrols og mun sýna þær á næstunni, svo og mynd Marco Ferreri „Átveisluna miklu”, verðlaunamynd frá Cannes ’73. Ég óska Háskólabiói til ham- ingju og skora á alla sem vilja lyfta sér upp að bregða sér i frönsku veisluna vestur á Melum. Þar eru kræsingar sem engan svikja. Þ.S. í Kvik- [myndir Maðurinn á svörtu skónum”, sprenghlægileg ný frönsk mynd um njósnir „Flagð undir fögru skinni”, næst-nýjasta mynd Truffauts, veröur sýnd tvo næstu mánudaga. Sú nýjasta kemur svo strax á eftir. Bandarísk stór- bœkistöð á Diego Garcia Diego Garcia nefnist grims- eyjarkrili eitt suður af Maledíveyjum á Indlandshafi, alllangt suð-vestur af Seylon og suðurodda Indlands. Þar höfðu Bretar flotastöð, en nú hafa Bandarikin ákveðið að leysa þá þar af hólmi sem víöar og fara þaðan á nútima langskipum og flugdrekum um gervallt Indlandshaf. Bandarlkin eru sögð hafa tryggt sér þegjandi samþykki Kinverja áður en þau ákváðu að koma sér þarna upp meiri- háttar vighreiðri, en Sovét- rikin hafa á hinn bóginn lýst þessu tiltæki sem ögrun gegn sér. Afstaða þessara þriggja stórvelda varðandi Diego Garcia veitir nokkra innsýn i afstöðu þeirra hvers til annars i Indlandshafslöndum. Sovét- rikin halda úti miklum her- flota á Indlandshafi, og fer ekki leynt að þeim flota er fyrst og fremst ætlað að vera til taks gegn Kinverjum. Kín- verjar vonast liklega til að Bandarikin verði þeim hollari en Sovétmönnum og telja sér þvi fremur i hag að þau komi sér upp mikilli herstöð i Ind- lándshafi miðju, svo sem til að dreifa athygli sovéska flotans frá Kina. Starfsemi Húsnœðismálastofnunar meiri en nokkru sinni fyrr: Veitt lánsfé hœkkaði úr 1184 milj. kr. í 1395 milj. kr. 1972 til 1973 Starfsemi Húsnæðismálastofn- unar rikisins varð meiri að vöxt- um á árinu 1973 cn nokkurn tima áður. Lánveitingar hennar námu hærri fjárhæö samtals en nokkru sinni fyrr, til smiði og/eða kaupa á fleiri ibúðum en áður hefur ver- ið. Einnig var áfram unnið með margvislegum öðrum hætti að framförum i húsnæðismálum þjóðarinnar. Veitt lánsfé stofnunarinnar á árinu nam samtals 1394.2 milj. kr„ til greiðslu komu 1401.44 milj. kr. og eru þar innifaldar eftir- stöðvar fyrri ára. Til samanburö- ar má geta þess, að á árinu 1972 nam veitt lánsfé 1183.8 milj. kr„ á árinu 1971 nam veitt lánsfé 972.4 milj. kr. til smiði og/eða kaupa á 1604 ibúðum og á árinu 1970 nam veitt lánsfé úr Byggingarsjóði rikisins 570.8 milj. kr. til smfði 1106 ibúða. A árinu 1973 voru veitt ibúðar- 159 ibúða i verkamannabústöðum Ián að fjárhæð 1302.46 milj. kr. úr Byggingasjóði rikisins og af hinu sérstaka framlagi rikissjóðs, til smiði og/eða kaupa á 2512 ibúð- um. Af þessu fé og ógreiddum lánveitingum frá fyrri árum komu 1331.24 milj. kr. til útborg- unará árinu 1973. Lánsf jármagn- ið skiptist þannig: E-lán, til smiði nýrra ibúða, voru veitt til smiði 2208 ibúöa og námu samtals 1245.26 milj. kr. G-lán, veitt til kaupa á eldri ibúðum, námu samtals 56.95 milj. kr. veitt tii kaupa á 303 ibúðum. Þar til viðbótar komu til greiðslu á árinu G-lán samtals að fjárhæð 21.15 milj. kr„ er veitt voru á ár- inu 1972, og nemur þvi heildar- greiðsla G-lána á árinu 1973 78.1 milj. kr. C-lán, veitt af hinu sérstaka framlagi rikissjóðs til smiði ibúða i stað heilsuspillandi húsnæðis, sem lagt er niður, nam 0.25 milj. kr. Lánið var veitt einu sveitarfé- lagi til smiði einnar ibúðar. Samtals námu þessar lánveit- ingar 1324.04 milj. kr. Auk þess voru á árinu 15 fram- kvæmdaaðilum i byggingariðn- aðinum veitt framkvæmdalán (rekstrarlán) úr Byggingasjóði rikisins til smiði 603 ibúða og námu þau samtals 202.36 milj. kr. Á árinu 1973 var slikum iánum að fjárhæð kr. 224.97 milj. kr. breytt i föst lán (E-lán) og er hér aðal- iega um framkvæmdalán i'rá fyrri árum að ræða. Lán þessi eru sem kunnugt er veitt með þeim skiiyrðum, að ibúðirnar séu seld- ar fullgerðar á verði, sem hús- næðismálastjórn samþykkir. Byggingasjóður verkamanna greiddi á árinu 1973 lán samtals að fjárhæð 69.95 milj. kr. til smiði á 13 stöðum i landinu. A árinu hóf- ust framkvæmdir við smiði 60 ibúða i 5 byggðarlögum i landinu. Til samanburðar má geta þess, að á árinu 1972 hófust fram- kvæmdir við smiði 85 ibúða á 7 stöðum i landinu, á árinu 1971 hóf- ust framkvæmdir við smiði 18 ibúða á 2 stöðum. A siðasta ári lauk formlega smiði 12 ibúða i 1 byggðarlagi i landinu, en mun fleiri ibúðir voru teknar i notkun. A árinu 1973 komu til afhend- ingar 205 nýjar 2ja og 3ja her- bergja ibúðir úr IV. og V. áfanga Framkvæmdanefndar bygginga- áæltunar. Auk þess var ráðstafað nokkrum eldri FB-ibúðum, sem komu til endursölu. Stefnt mun að þvi, að ljúka á þessu ári og fyrri hluta hins næsta byggingu 314 ibúða og er þá byggingaráætlun þessari lokið. Teiknistofa stofnunarinnar seldi á árinu 1973 teikningar af samtals 490 ibúðum og er það meiri fjöldi en nokkru sinni áður. Þá vann stofnunin einnig áfram að margvislegum öðrum verkefn- um til eflingar framförum i bygg- ingariðnaðinum og hefur þeirra flestra verið getið i almennum fréttum á árinu. Skylt er að taka fram, að eigi hefði tekist jafnvel til og raun ber vitni um lánveitingar úr Bygg- ingasjóði rikisins á árinu 1973 ef eigi hefði komið til sérstök og mikilvæg fyrirgreiðsla Seðla- banka Islands fyrir tilstilli félags- málaráðherra. Var þar um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, sem aðeins stendur skamman tjma. 1 þvi sambandi má það koma fram, að fjárhagur Bygg- ingasjóðs rikisins verður mjög þröngur á þessu ári ef ekki kemur til stórfelld langtima-lausn til efl- ingar hag hans.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.