Þjóðviljinn - 17.03.1974, Page 14
14 StÐA — ÞJOÐVILJINN Sunnudagur 17. marz 1974.
Rikissjóður
Framhald af bls. 1.
ári 5.845 milj. kr. Þar af eru
hreinar rikisframkvæmdir 3.858
milj. kr., en framkvæmdir kost-
aðar af fleiri aðilum, nær ein-
göngu sveitarfélögum, 1.987 milj.
kr. Það er sú upphæð sem rikið á-
formar að leggja á móti sveitar-
félögunum i verklegar fram-
kvæmdir.
Af þessari upphæð sem rennur
frá rikissjóði á móti framlögum
sveitarfélaganna er skiptingin
þannig á eftirtaida málaflokka:
Til skólabygginga (>95,4 milj. kr.
Til hafnargerði 622,7 milj. kr.
Til sjúkrahúsa, heilsugæslu-
stöðva og læiknisbústaða alls
295,1 milj. kr.
Þá nema fjárfestingarstyrkir
úr rikissjóði til framkvæmda sem
sveitarfélögin annarst sjálf kr.
161 miij. kr. og er þar nær ein-
vörðungu um að ræða styrki til
vegagerðar i þéttbýli, greitt úr
vegasjóði.
Samanlagt fé úr rikissjóði til
verklegra framkvæmda sveitar-
félaganna nemur þvi um 2.148
miij. kr. á þessu ári samkvæmt
áætlunum fjárlaga.
Jón Arason eftir Matthías frumsýndur á næstunni
Æfingar hafa staðið yfir á
þriðja mánuð i Þjóðleikhúsinu á
Jóni Arasyni eftir Matthias
Jochumsson, en leikurinn verður
frumsýndur eftir nokkra daga i
Við vorum að hnippa i Visi fyrir
lélegan fréttaflutningi blaðinu 14.
mars og i gær hringdi Erlingur
Viggósson með enn eina ábend-
ingu varðandi fréttaflutnings Vis-
is. Biaöið segir i gær: „Enn er
kjarasamningur sjómanna og út-
Sunnudaginn 24. mars n.k.
verður haldinn hátiöiegur Al-
þjóðadagur fatlaðra. Sjálfsbjörg,
I.s.f., mun af þvi tilefni fá hingað
til lands hr. Tor-Albert Henni,
formann landssambands fatlaðra
I Noregi, til þess að flytja erindi
um foreldrafræðslu vegna
fatlaðra og fjölfatlaðra barna.
Landssamband fatlaöra i
Noregi hefur um margra ára
skeið gefið þessu nauðsynjamáli
mikinn gaum. Það hefur efnt til
námskeiða um allt landið og
skipulagt sumarbúðir, þangað
sem foreldrar hafa komið með
Þjóðleikhúsinu. Þetta. er mjög
fjölmenn sýning um 75-80 leikarar
og aukaleikarar taka þátt i sýn-
ingunni. Leikstjóri er Gunnar
Eyjólfsson, en Sigurjón Jóhanns-
gerðarmanna óstaðfestur, en
samningar vinnuveitenda og
samninganefndar Sjómannasam-
bandsins voru undirritaðir á
laugardaginn var”. Sjómanna-
sambandið hefur aldrei skrifað
undir neina samninga, aftur á
fötluð böra sin og notiö fræöslu
um meðferð þeirra og uppeldi.
Samtimis eru börnin i eigin búð-
um I umsjá kennara, sálfræðistú-
denta, félagsfræöinema og ann-
arra hæfra manna.
Þá er þaö aö sjálfsögðu mikil-
vægt, að aðstandendur fatlaðra
barna hittist og geti borið saman
bækur sinar
Erindi Thor-Albert Hennis
verður haldið að Hótel Loftleiðum
(ráðstefnusalnum) sunnudaginn
24. mars og hefst kl. 16.00. Að þvi
loknu svarar Tor-Albert Henni
fyrirspurnum.
son gerir leikmyndir og Þorkell
Sigurbjörnsson hefur samið tón-
list með verkinu.
Rúrik Haraldsson leikur hið
stóra og veigamikla titilhlutverk,
móti skrifaði Farmannasam-
bandið undir og samdi um gildis-
tima fram til miðs árs 1976.
Samningar við Sjómannasam-
bandið hafa einkum strandað á
gildistimanum, og hefur ekki
verið boðað til nýs fundar með
Fyrstu tvo mánuði ársins uröu
1181 umferðaróhöpp, þar af 104
með meðslum, þar sem 134
slösuðust og 2 létust. Miðað við
sömu mánuði 1973 er um fækkun
umferðarsysa að ræða eða 79
óhöpp og 16 slys. 1 janúar og
febrúar 1973 uröu 4 dauðaslys, i ár
2. Upplýsingar þessar eru frétt
frá Umferðarráði.
1 janúar og febrúar slösuðust
134 vegfarendur, sem skiptist
þannig: 47 ökumenn, 38 farþegar,
14 fórust,46
slösuðust i
flugslysi
TEHERAN og KAUPMANNA-
HOFN 16/3 — Danskir og iranskir
sérfræðingar munu rannsaka flak
dönsku farþegaflugvélarinnar,
sem kviknaði i á flugvellinum i
Teheran i gærmorgun. Komið er i
ljós, að alls fórust 14 manns, en 46
slösuðust. Flestir hinna slösuðu
liggja á sjúkrahúsi I Teheran fót-
eða handleggsbrotnir eftir að
hafa stokkið út úr brennandi flug-
vélinni. Eldurinn kom að þvi er
viröist upp i bremsukerfi flugvél-
arinnar rétt fyrir flugtak.
biskupinn sjálfan. Segja má að
þetta verði fjölmennasta og ein
viðamesta sýning Þjóðleikhúss-
ins á þessu leikári.
Myndin er tekin á æfingu fyrir
tveimur dögum og er af biskupn-
um og sonum hans i Hólakirkju.
deiluaðilum.
Farmannasambandið hefur
enn ekki borið samninga sina
undir félagsmenn, enda þótt vika
sé liðin frá þvi skrifað var undir
með fyrirvara um samþykki
félagsmanna. cj
47 gangandi vegfarendur og 7
hjólreiðamenn. 32 voru 14 ára og
yngri.
Aukning umferðarslysa á
siðasta ári var minnsta aukning
frá ári til árs siðan 1969 og aukn-
ing slysa með meiðslum sú
minnsta siðan 1968. Er þvi hægt
að tala um jákvæða þróun siðustu
14 mánuði, sérstaklega þegar
höfð er i huga veruleg aukning
ökutækja.sem er á þessu timabili
meira en 10%.
Gjöld sem rikið
greiðir nú
Þegar nýju tekjustofnalögin
voru samþykkt yfirtók rikið lög-
reglukostnað frá sveitarfélögun-
um, greiddi allan hluta sveitarfé-
laga i lifeyristryggingum i al-
mannatrygginga og aukinn hluta
af kostnaði sjúkrasamlaga. Hér
er um að ræða verulegar upphæö-
ir sem létt hefur veriö af sveitar-
félögunum.
Hluti sveitarfélaganna i lög-
reglukostnaöi hefði á þessu ári
numið 230 milj. kr.
Hluti sveitarfélaganna, 18% af
útgjöldum lifeyristrygginga al-
mannatrygginga, hefði numið 730
milj. kr. á þessu ári. (Miðað við
tryggingabætur fyrir 25% hækk-
unina 1. april n.k.)
J Sveitárfélögin greiddu árið 1971
24,64% af útgjöldum sjúkrasam-
laga, eða um 85% af greiddum ið-
gjöldum sjúkrasamlagsmeðlima.
Árið 1972 myndu sveitarfélögin
hafa greitt 25% miðað við ó-
breyttar reglur, eða um 1000 milj.
kr. af 4000 milj. kr. sem útgjöld
sjúkrasamlaganna eru áætluð
1974. Þess i stað greiöa sveitar-
samlögin samkvæmt nýju reglun-
um 10% af útgjöldum samlag-
anna eða 400 milj. kr.Mismunur-
inn á þessum lið einum er 600
milj. kr.
En samanlagt hefur rikissjóður
tekið á sig að greiða fyrir sveitar-
félögin 1560 milj. kr. miðað við
áætlanir sem gerðar voru fyrir
þetta ár.
Akur
Framhald af bls. 16.
tolla á innfluttu efni. Hvaða vörur
eru mest tollaðar?
— Það er einkum spónaplötur
og timbur, en það er reyndar þaö
lágt tollað að það myndi lækka
kostnaðinn mjög litið.
— Er hugsnlegt að byggja enn
hagkvæmar en þið gerið?
— Með meiri hraða og 'stærri
einingum væri það hægt — innan
við 10% ódýrar skulum við segja.
Ef viö hefðum nægan mannskap
og fjármagn gætum við lokið við
svona blokk á 10 mánuðum.
Verkstjórn- arnámskeið
S.l. föstudag lauk i Reykjavik
fjögurra vikna námskeiði fyrir
verkstjóra sveitarfélaga, sem
haldið hefur verið i tveimur
áföngum i vetur. Námskeið þetta
sóttu 16 verkstjórar frá Akranesi,
Ólafsvik, Patreksfirði, Blönduósi,
Dalvik, Akureyri, Vopnafirði, Fá-
skrúðsfirði, Vestmannaeyjum,
Eyrarbakka, Hafnarfirði og úr
Reykjavik.
Auk almennrar verkstjórnar
var megináhersla lögð á leið-
beiningar i mælingum, úrvinnslu
uppdrátta, vali vinnuvéla og
áhalda og sérstaklega var fjallaö
um einstaka þætti tæknimála svo
sem vatnsveitur, hitaveitur og
gatnagerö úr varanlegu efni.
Námskeið þetta var liður i hin-
um reglulegu námskeiöum Verk-
stjórnarfræðslunnar, en nái isefni
valiö i samráðiiviðSamband isl.
sveitarfélaga, og er þetta i annað
sinn, sem slikt námskeið er
haldið.
SJ
Jarðarför mannsins mins
SIGURÐAR KRISTINS GÍSLASONAR
fer fram frá Fossvogskapellu þriöjudag 19. mars kl. 3e.h.
Fyrir hönd barna minna og tengdabarna
Ólafia R. Sigurþórsdótir
Blóm vinsamlega afbeðin.
RÖBERT A. OTTOSSON.
sem andaðist hinn 10. þ.m. verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni miðvikudaginn 20. þ.m. kl. 13.30.
Guðriður Magnúsdóttir, Grétar Otto Róbertsson.
Enn um fréttaflutning Vísis
Alþjóðadagur
fatlaðra
1181 umferðaróhapp
á tveimur mánuðum