Þjóðviljinn - 17.03.1974, Síða 16
n voamiiNN Almennar upplýsingar um lækna- Kvöld-, nætur- og helgarvarsla þjónustu borgarinnar eru gefnar i lyfjabúða i Reykjavik 15,—21. simsvara Læknafélags Reykja- mars er I Austurbæjarapóteki og vikur, simi 18888. Lyfjabúðinni Iðunni.
Kvöidsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Sunnudagur 17. marz 1974.
Slysavarðstofa Borgarspítalans6
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Þessar tvær myndir eru úr ibúð Karls Benediktssonar en hann tók við ibúðinni tilbúinni — meira að segja með eldavél og viftu og teppi á góifum. Hann flutti inn með fjöiskyldu
sinni 20. júli 1972 og greiddi þá fyrir fbúðina tilbúna, ásamt öllu sameiginlegu, kr. 1605 þúsund! tbúðin er 86.9 fermetrar og geymsla 16.8 fermetrar. Sjá ýtarlega verklýsingu á
öðrum stað á siðunni.
Trésmiðjan
Akur hf.
á Akranesi:
BYGGIR ÓTRÚLEGA
ÓDÝRAR ÍBÚÐIR
Verktakinn segir: Betra vinnuafl en gengur og gerist, menn vinna
fullan vinnutima og sömu undirverktakar frá blokk til blokkar
Trésmiðjan Akur hf. á
Akranesi er nú að byrja á
fjórðu íbúðarblokkinni við
Garðabraut á Akranesi.
Blokkirnar fjórar verða
allar eins/12 ibúðir í hverri
blokk. Stærri íbúðirnar eru
103/7 fermetrar með
geymslu/ en þær minni 93/2
fermetrar með geymslu.
ibúðirnar eru afhentar
alveg fullbúnar og lóð
frágengin. Verð þessara
ibúða hefur verið það lágt
að furðu sætir.
Fréttamaður blaðsins
hitti að máli Stefán
Teitsson/ framkvæmda-
stjóra Akurs hf., og bað
hann að skýra út fyrir les-
endum blaðsins hvernig
honum og samstarfsfólki
hans hefur tekist að byggja
svo ódýrt eins og raun ber
vitni. Eru eftirfarandi
upplýsingar byggðar á því
viðtali.
Þessar byggingaframkvæmdir
hófust fyrir áeggjan fyrrverandi
bæjarstjóra, Björgvins
Sæmundssonar, en áöur hafði
fyrirtækið tekið að sér smiði rað-
húsa og einbýlishúsa með góðum
árangri.
í fyrstu blokkinni, sem flutt var
i árið 1970, kostuðu minni
ibúðirnar 990 þúsund og þær
stærri 1110 þúsund. Þá var hús-
næðismálastjórnarlánið 400
þúsund krónur.
1 blokk númer tvö var flutt inn
20. júli 1972. Þá var verð stærri
ibúðanna áætlað kr. 1540 þús. en
varð i reynd 1605 þús. Verð minni
ibúðanna reyndist 1420 þús. Þá
var lánið frá húsnæðismálastjórn
600 þús.
Þriðja blokkin er nú senn til-
búin. Verð ibúðanna þar var
áætlað 1.980 þús. og 1840 þús., en
fyrirsjánlegt er að þessar ibúðir
hækka um 20-30% frá fyrstu
áætlun, sem gerð var 1. janúar
1973. Hækkunin er samt ekki
meiri, þrátt fyrir gifurlegar
hækkanir á timabilinu erlendis og
hérlendis. Á öðrum stað hér á
siðunni er birt verklýsing fyrir
þessar ibúðir.
Nú er verið að byrja á grunni
fjórðu blokkarinnar, og hefur
fyrirtækið áætlað verð þeirra
ibúða 3,5 miljónir og 3,2 miljónir,
og er þá búið að reikna með
nýjustu verð- og kauphækkunum,
sem t.d. nema hjá trésmiðum
41%.
Hvernig er þetta hægt? Stefán
taldi m.a. fram eftirfarandi
ástæður:
— Það er mun betra vinnuafl
hér en genguur og gerist og minni
tilkostnaður i sambandi við það.
Við notum samt yfirleitt dýrara
efni en byggingarmenn i Reykja-
vik. Svo nýtist vinnuaflið mun
betur hérna, það er mætt á
réttum tima i vinnu og hætt á
minútunni. Þeir segja mér i
Reykjavik að hjá þeim fari i
súginn allt að 20% vinnutimans,
sem ekki er unninn en skrifaður.
Við höfum allan timann notað
sömu undirverktaka, þannig að
það eru alltaf sömu menn sem
vinna verkin. Þeir vinna á föstu
verði, samkvæmt samningum
hverju sinni, og sjá alveg um sina
flokka. Þeir hafa sömu fyrirvara
á hækkunum og við gagnvart
kaupendum.
— Þegar þið hafið sýnt svo
áberandi hæfni i starfi njótið þið
þá aukinnar fyrirgreiðslu frá
Húsnæðismálastjórn eða rikinu?
— Við fengum framkvæmdalán
út á blokk númer tvö og var lofað
framkvæmdaláni út á blokk
númer þrjú, en það var bara það
siðbúið, að það kom ekki að
notum -- fyrrihlutagreiðsla á
venjulegum húsnæðismálalánum
var komin i gjalddaga, þannig að
það var mikið hagkvæmara að
taka þau lán inn. Fyrirgreiðslan i
bönkum hér var það góð að það
bjargaði okkur.
— Hvaðsóttu margir um ibúðir
i blokkunum?
— I númer tvö sóttu 34 um, en i
þeirri, sem er að verða tilbúin 32,
og i þeirri sem er verið að byrja á
34, þannig að það eru að jafnaði
fast að þrir umsækjendur um
hverja ibúð. Það hefur semsagt
aldrei verið auglýst eftir
kaupendum.
Við ætlum ekki að byggja fleiri
hús af þessari gerð. Það er byrjað
að teikna nýja gerð af blokkum,
þar sem verða 2ja og 4ra her-
bergja ibúðir. Það er Verkfræði-
og teiknistofan sf. sem teiknar
fyrir okkur.
Hér eru engin gatnagerðar-
gjöld, en við greiðum 50 þúsund
krónur fyrir lóðina.
— Nú hefur verið ymprað á þvi
sem einhverri lausn að lækka
Framhald á 14. siðu.
Lýsing á frágangi ibúða i
húsinu Garðabraut 24 — 26
þegar Trésmiðjan Akur hf.,
afhendir þær væntanlegum
kaupendum.
íbúðin:
Ibúðin verður fullmáluð,
samkv. útboðslýsingu um
málningu hússins. Rafmagn
frágengið samkv. útboðs-
lýsingu um rafmagn. Eldavél
og vifta fylgja eldhús-
innréttingu. Tvöfalt gler
verbur i gluggum. Innihurðir
verða úr harðviði með harð-
viðarkörmum. Tveir klæða-
skápar verða i hverri ibúð,
annar i svefnherbérgi og hinn i
skála, verða þeir einnig úr
harðviði. Eldhúsinnrétting
verður úr harðviði og plast á
borðum og i hillum. Einn
stofuveggur verður klæddur
með harðviði, svo og einn
veggur i skála.
Dúklögð verða öll gólf með
vönduðum dúk, nema stofu og
skálagólf, sem verða teppa-
Verklýsing á Garðabraut 24-26
lögð með vönduðum
Islenskum gólfteppum.
Hreinlætistæki verða af viður-
kenndri gerð. Miðstöðvar-
ofnar verða „Golf” eða aðrir
viðurkenndir ofnar og verður
sjálfvirk hitastýring á
hverjum ofni.
Sameiginlegt:
Útihurðir verða allar úr
harðviði, með harðviðar-
körmum, svo og allar svala-
hurðir. Innihurðir i kjallara
verða málaðar, einnig gólf i
kjallara. Kjallari og stigahús
verða máluð samkv. út-
boðslýsingu. A stiga og ganga
i stigahúsi koma nylongólf-
teppi. Handrið verða fullfrá-
gengin. Geymsla fylgir hverri
ibúð og hverri geymslu fylgja
10 lengdarmetrar af hillum.
Þvottahús og þurkherbergi
verður sameiginlegt. I þvotta-
húsi fylgir eftirtalið: þvotta-
vél af viðurkenndri gerð, svo
og þurrkari, strauvél og tvö
borð.
Utanhúss:
Húsið verður málað að utan
nema þak.
Lóð verður jöfnuð og i hana
sáð grasfræi, einnig verður
borin möl ofan I lóðina fyrir
bilastæði. Lóðin verður girt,
undirstöður verða steyptar,
staurar úr galvaniseruðu járni
og langbönd úr tré.
Stærð íbúðanna:
Stærri ibúðin:
Ibúðin
geymsla
86,9 ferm.
16,8 ferm.
Minni ibúðin:
Ibúðin
geymsla
79,0 ferm.
14,2 ferm.
samtals
93,2 ferm.
Sameiginlegt er nálægt 18
ferm. pr. Ibúð.
Verð íbúðanna:
Minni Ibúðin kr. 1.840.000,00
og stærri ibúðin kr.
1.980,000,00. Verð ibúðanna er
miðað við verðlag 1. jan. 1973
og breytist það eftir verð-
breytingarreglum, sem
Húsnæðismálastofnunin gefur
út þar að lútandi.
samtals 103,7 ferm.
Greiðslur verða þannig:
Stærri ibúðin: Minni ibiiðin:
Við undirritun samnings......._..........kr. 200.000 kr. 200.000
10. júli 1973 ......................... kr. 200.000 kr. 200.000
lO.sept. 1973 ......................... kr. 150.000 kr. 100.000
10. des. 1973 ......................... kr. 150.000 kr. 100.000
10. mars 1974 ...................... kr. 200.000 kr. 150.000
Eftirstöðvarnar greiðast við afhendingu ibúðanna.
Byggingartimi er áætlaður sept. 1972 til 1. april 1974.