Þjóðviljinn - 16.05.1974, Síða 1

Þjóðviljinn - 16.05.1974, Síða 1
RO UOÐVIUINN Fimmtudagur 16. mai 1974—39. árg. —76. tbl. (<R0ll) ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA í KRON k - á Frá ársþingi iðnrekenda: 37 miljónir endurgreiddar Magnús Kjartansson, iðnaðar- ráðherra sagði á ársþingi iðnrek- enda i gærmorgun, að siðasta ár, 1973, hafi verið íslendingum hag- stætt i heild. Kaupmáttur ráðstöf- unartekna jókst um 3—4%, haföi aukist um 15,5% 1971 en 12,5% 1972. En það sem mestum vand- kvæðum olli var þenslan og þær afleiðingar, sem hún hafði i för með sér m.a. i gengismálum. Hagsveiflur á islandi stafa flestar af sveiflum i sjávarútveginum. Engum stjórnarvöldum hefur enn tekisl að milda svo áhrifin af þeim sveiflum, að hagkerfið þró- ist á stöðugan hátt, en taki ekki stökk eins og hingað til. Til þess að mæta þeim vanda sem þessar staðreyndir hafa i för með sér fyrir útflutningsiðnaðinn var ákveðið að endurgreiða út- flutningsfyrirtækjum söluskatt og tolla af fjárfestingarvörum og öðrum aðföngum, i formi metinn- ar endurgreiðslu, sem nam 37 milj. kr., 2,5% af heildarútflutn- ingi. Fyrirhugað hefur verið að hafa svipaðan hátt á i ár eða þar til tekið hefur verið upp virðis- aukakerfi hérlendis. 1 ræðu ráðherrans kom fram að tap i útflutningsiðnaði hafi i árs- lok 1973 verið áætlað 64 milj. kr., en ofangreind endurgreiðsla var til þess ætluð að jafna þennan mun. Frá ræðu iðnaðarráðherra seg- ir annars á 4. siðu blaðsins i dag. Islensk alþýðulist Sjá grein og myndir á bls. 7. braskmarkaður, þar sem verðið er ákaflega breytilegt og óút- reiknanlegt. Þegar ástandið i oliumálunum var verst i vetur, voru mörg dæmi um margfalt verð á þorð við það hæsta sem skráð vár i Suður-Ameriku og So- Framhald á 14. siðu. Mjög vel horfir með salt- fisksölu Mjög vel horfir nú með sölu á þcim saltfiski sem til er i landinu en það voru um 26 þúsund tonn um siðustu mán- aðamót, sem er nokkuð svipað þvi sem var á sama tima i fyrra, kannski heldur minna. Að þvi er Tómas Þorvalds- son formaður SIF tjáði okkur i gær hefur SÍF þegar tilboð i þetta magn, en á morgun (föstudag) fara forráðamenn SIF til Italiu til að gera þar sölusamninga, en þar i landi er greitt einna hæst verð fyrir saltfiskinn um þessar mundir. Tómas sagði að verð á salt- fiski hefði hækkað verulega i vetur, en ekki vildi hann segja neitt um það fyrr en hann kemur til baka úr Italiuferð- inni. Tómas taldi likur á, að i ár yrði meira fullverkað af salt- fiski en i fyrra, en fyrir full- verkaðan fisk fæst auðvitað mun bPtra verð en fyrir blaut- fiskinn. —S.dór Björn Th. tekur hér útskorna rúmfjöl úr umbúðunum. „Fagur gripur,” sagði Björn. (Ljósm. S.dór) Nú hefur Morgunblaðið upp- götvað það, að oliusamningarnir við Sovétrikin séu óhagstæðir. Það er nú vist ekki nýtt að það blað, sem i gegnum persónu og eignir Geirs Haligrimssonar er tengt oliuhringnum Shell og um- boðsfyrirtæki hans á ísiandi, Skeljungi, finnist ieiðinlegt að hafa ekki frjálsar hendur um oliukaup á vestrænum mörkuð- um. Um þessar mundir berast nefnilega fréttir um það, að helstu oliuhringarnir hafi aukið ágóða sinn um 72% á fyrsta fjórð- ungi þessa árs miðað við sama tima i fyrra. Vissulega fylgir oliu- verðið hjá Sovétmönnum megin- sveiflunni á vestrænu mörkuðuú- um, og islendingar verða þvi að greiða oliuna miklu dýrara verði nú cn áður, — en hvílík fyrn að það skuli ckki vera Shell og slik dýrðarfyrirtæki úti i hinum vest- ræna heirni sem fá að græða á þeim verðhækkunum! Nú er umkvörtunarefni Morg- unblaðsins það, að verðið hjá So- vétmönnum skuli ekki fylgja verðskráningunum i Rotterdam i Hollandi, þeirri miklu umskipun- arhöfn vestrænna oliuhringa. Hingað til hefur það ekki heyrst frá ábyrgum forsvarsmönnum oliuverslunarinnar að þeir kysu frekar dagsprisana i Rotterdam en þær hægfara breytilegu skrán- ingar sem þeir sjálfir eiga hlut að samningum um við Sovétmenn. Oliumarkaðurinn i Rotterdamer Ekkert lyf dýrara en 200 krónur Nýstárlegt fyrirkomulag á niðurgreiðslum Innlend lyfmunu kosta 125 kr.,erlend 200 Lyf, afgreidd eftir lyf- seðli, verða eftirleiðis seld með næsta nýstárlegu niðurgreiðsluformi. Sfðasta daginn sem al- þingi sat var samþykkt st jórnarf rumvarp um lyfjasölu, þar sem segir, að öll lyf, afgreidd eftir lyfseðli, verði eftirleiðis seid gegn ákveðnu gjaldi. Innlend lyf munu þannig kosta 125 krónur úr lyfja- búð, en erlend lyf munu kosta 200 krónur, og sagði Almar Grimsson í heil- brigðisráðuneytinu, að skipti þá engu um hve mik- ið magn af hverju lyfi væri að ræða. Heilbrigðisráðuneytið hefur samið reglugerð um þessa niður- greiðslutilhögun og er sú reglu- gerð nú hjá Tryggingastofnun rikisins til umsagnar, en Almar bjóst við að lyfsala eftir þessu nýja fyrirkomulagi myndi hefjast fljótlega, ekki seinna en i júni. Almannatryggingar munu greiða verðmismun á hverju lyfi, þannig að neytandi þarf aldrei að greiða nema 200 krónur fyrir lyf sin. Þau lyf, sem tryggingarnar hafa hingað til greitt að fullu, verða og greidd að fullu eftirleið- is. —GG OLÍUVERÐ: Braskið í Rotterdam hagstæðra?

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.