Þjóðviljinn - 16.05.1974, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.05.1974, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVIL.JINN Fimmtudagur 16. mai 1974. Mynd: Francisco Goya y Lucientes KENJAR Mál: Guðbergur Bergsson Úr hvaða lympu deyr hann? Hann deyr áreiðanlega úr asnaskap læknavisindanna, enda er læknispútan asni. Hins vegar staðhæfir P-handritið fullum fetum: „Læknirinn er frábær, þungt hugsi, þenkjandi, varfærinn, alvarlegur. Getur nokkuð verið ákjósanlegra?” Fundist hafa tvær frumteikningar, önnur þeirra er afar ólik koparstung- unni. Þar stendur skrifað með blýanti: „Seiðskrattar dulbúnir sem almennir I íæknar”. Alþýða manna hafði, og hefur reyndarenn, meiri trú á hinum alþýð- legu grasalæknum, sem sóttu lyfin til jurtanna, sem hún umgekkst, eða dularfullu jurtanna með ævintýra- blæ, sem hún sá i draumi, en til lærðu læknanna i sloppnum og með glösin og tækin, vegna þess djúpa bils, sem er á milli vísinda visindamannsins og þekkingar alþýðunnar. Þess vegna eru visindin alþýðunni hreint kukl og gald- ur, en galdur og kukl visindi. Bestu trúna og traustið vekja asn- arnir i'sloppnum, þeir eru oft svo vin- gjarnlegir, kátir og traustvekjandi i orðum sinum og framgöngu, að sjúkl- ingurinn er oftast steindauður áður en hann veit af þvi. Dauðinn er öruggasta lækning allra meina. Guð blessi dauðann. Atli Heimir „FLOWER SHOWER” í SVÍÞJÓÐ „Flower Shower”, sinfóniskt tónverk eftir Atla Heimi Sveins- son, var flutt i Nörrköping i Svi- þjóð þann 21. apríl sl. „Þetta er skrifað fyrir sinfóniu- hljómsveit, hljómsveit, sem stillt er upp i sjö hópa, en einnig er not- að tónband. Aður en hljómleik- arnir fara fram, hefur hljóm- sveitin leikið inn á band og spilar þannig á móti sjálfri sér. Þannig fæst stereó-hljómur”, sagði Atli Heimir Sveinsson i stuttu samtali við Þjóðviljann. Atli Heimir sendi „Flower Shower” til Nörrköping fyrir milligöngu Norræna menningar- sjóðsins — og hefur enda verið leitað eftir þvi, að hann skrifaði fleiri verk til flutnings i einhverju hinna Norðurlandanna. Páll P. Pálsson stjórnaði Sinfóniuhljómsveit Norrköping- borgar, er hún flutti „Flower Shower”, og i dagblaði Austur-Gautlands, Norrköping Tidningar fer gagnrýnandi blaðs- ins mjög lofsamlegum orðum um þá Atla Heimi, Pál P. Pálsson og „Blómasturtuna”. —GG Formannaskipti hjá iðnrekendum: Gunnar J. F riðriksson lætur af formennsku 1 gær var haldið ársþing Félags isienskra iðnrekenda i ráðstefnu- sal Hótel Loftleiða. Formaður fé- lagsins Gunnar J. Friðriksson sctti þingið. Ardegis flutti formaður ræðu þar sem hann f jallaði almennt um stöðu islensks iðnaðar i dag. Kom hann sérstaklega inn á efnahags- málin og taldi þensluna á vinnu- markaðinum vera meiri verð- bólguvald en sjálft visitölukerfið. Hann ræddi gerð siðustu kjara- samninga og benti á, „að það sem þá gerðist sannaði, að heildar- samtök launþega og vinnuveit- enda væru þess ekki megnug að hafa hemil á umbjóðendum sin- um við þau skilyrði sem rikjandi væru þegar slikt þensluástand væri á vinnumarkaðinum”. Hann fullyrti, „að það kæmist aldrei jafnvægi á i efnahagsmálum fyrr en hið opinbera hætti samkeppni við framleiðsluna um vinnuafl og drægi verulega úr framkvæmd- um og útgjöldum”. Þá flutti iðnaðarráðherra Magnús Kjartansson ræðu, en frá henni er skýrt annars staðar i blaðinu. Að loknum hádegisverði flutti Sigurgeir Jónsson aðstoðar- bankastjóri erindi, en siðan var lýst stjórnarkjöri. Gunnar J Friðriksson gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en hann hefur átt sæti i stjórn félagsins i 23 ár og siðustu 11 ár sem formaður. Formaður var kjörinn Davið Scheving Thorsteinsson, en hann hefur ver- ið varaformaöur félagsins sl. tvö ár. Aörir I stjórn Pétur Pétursson Gunnar J Friðriksson fráfarandi formaður t.h. og Davíð Scheving Thorsteinsson nýkjörinn form. til framkvæmdastj., Björn Þorláks- son framkv.stj., Haukur Eggerts- son framkv.stj., og Kristinn Guðjónsson framkv.stj. Þá var á ársþinginu skýrt frá instri. könnun á árhrifum aðgerða hins opinbera á atvinnulifið 1950—70, sem er rannsókn sem félagið lét gera og gefin veröur út siðar i þessum mánuði. Árbók Hins ís- lenska fornleifa- félags Arbók Hins islenska fornleifa- félags 1973 er komin út fyrir nokkru. Ritstjóri er Kristján Eld- járn. Sjálfur skrifar Kristján þrjár greinar i Arbókina: „Þorláksskrin i Skálholti”, „Punktar um Hraunþúfuklaust- ur” og „Kirkjurúst á Krossi á Skarðsströnd”. Ólafur Halldórsson skrifar greinina „Likneskjusmið” Nanna ólafsdóttir um baðstofuna og böð að fornu, Þórður Tómasson um meltekiu á Herjólfsstöðum og um Kollvettlingssaum, Else Sass um brjóstlikan Thorvaldsens af Jóni Eirikssyni, Þór Magnússon ritar skýrslu um Þjóðminjasafnið 1972, og fleira efni er i ritinu. Frambjóð- endur hnífjafnir PARÍS 15/5 — Skoðanakönnun sem franska blaðið France Soir birti i dag bendir til þess, að þeir Giscard d’Estaing og Francois Mitterrand sem bjóða sig fram til forsetaembættisins verði hnif- jafnir. Skoðanakönnunin var gerð áður en Jean-Jacques Servan-Schreib- er lýsti yfir stuðningi við ihalds- manninn d’Estaing fyrir hönd flokks sins, Radikalsósialista- flokksins. Þeir sem ekki höfðu gert upp hug sinn voru 13 af hundraði aðspurðra. Rautt fyrir frú Rögnu (Nákvæmtega eins og hún var búin aö hugsa sér...) Frú Ragna hagnýtti sér kunnáttu þeirra hjá Sado- lin. Lakkið á gluggakarmana, vatnsmálningin á loftið og olíumálningin á skápinn var blönduð með Sadolin aðferöinni til að litirnir væru nákvæmlega i stíl við tepp- ið og litbrigðin í nýja vegg- fóðrinu. Sadolin gefur einnig yður kost á 1130 litbrigðum. Sadolin’ plastmaling dryp- ofl ttankfri h*lm«t 8302 hvid Málningarverzlun Póturs Hjalte- sted, Suðurlandsbraut 12, Reykjavik. Verzlunin Málmur, Strandgata Strandgata 11, Hafnarfjöröur. Dropinn, Hafnargata 80, Keflavík. Neshúsgögn, Borgarnesi. Hafliöi Jónsson, hf., Húsavik.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.