Þjóðviljinn - 22.06.1974, Side 13
Laugardagur 22. júnl 1974 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Lúðvík '
Framhald af 5. siðu.
kostnað við sumar verksmiðj-
urnar til þess að gera þær
vinnsluhæfar aftur, en þetta hefur
orðið til þess, að á Norðaustur-
landi, Norðurlandi og einnig á
Vestfjörðum hafa verksmiðjur
fengið það verkefni að taka þátt i
vinnslu loðnunnar. Þetta hefur
haft gifurlega mikil áhrif, bæði
fyrir afkomu verksmiðjanna,
sem hefur stórbatnað við að fá
þessa aðstöðu, og einnig hefur
þetta haft mikið gildi i atvinnu-
málum hinna einstöku staða.
Rikisstjórnin beitti sér fyrir
þvi, að þetta var gert, og ég tel að
þarna sé um mjög þýðingar-
miklar framkvæmdir að ræða.
Rikisstjórnin hefur einnig beitt
sér fyrir þvi að fá nýjan markað
fyrir frysta loðnu og einnig niður-
soðna loðnu i Japan, og segja má
að frysting loðnunnar sé nú komin
á það stig, að þar er um glfurlega
þýðingarmikinn framleiðsluþátt
að ræða. Allt bendir til þess að á
komandi árum verði hægt að
auka enn frystinguna á loðnu, og
það verulega. Að þvi kemur
einnig, að niðurstaða verður stór-
aukin, svo og niðurlagning á
loðnu, þvi einnig á þvi sviði er
hægt að stórauka markaðina frá
þvi sem verið hefur.
Kjör sjómanna
— Hvað viltu segja um fisk-
verðið og kjör sjómanna á
stjórnartimabilinu?
— Eitt fyrsta verkefnið, sem
núverandi stjórn varð að tak-
ast á við var, að breyta þeirri
löggjöf sem fyrrverandi rikis-
stjórn hafði sett varðandi aflahlut
sjómanna á fiskiskipaflotanum.
Viðreisnarstjórnin hafði raskað
gildandi kjarasamningum sjó-
mönnum mjög i óhag, en
núverandi rikisstjórn setti bráða-
birgðalög þess efnis að breyta
þessu aftur og hækka um leið
fiskverðið til sjómanna um að
meðaltali 18 — 19%. Siðan hefur
þess verið gætt allan timann I tið
núverandi rikisstjórnar, að fisk-
verð hækkaði jafnan eins mikið
og meira en vinnulaun almennt I
landinu hafa gert. Samanburðar-
tölur sýna, að á sama tima og
tekjur verkafólks hafa tvöfaldast,
hefur sambærilegt fiskverð
hækkað um 150%. Það liggur þvi
alveg ljóst fyrir, að fiskverð hefur
hækkað á þessu timabili tiltölu-
lega meira en almennar launa-
tekjur, og það er þvi óhætt að
fullyrða, að um það hefur verið
séð, að launakjör sjómanna hafi
fyllilega og vel það verið lagfærð
til samræmis við aðrar vinnu-
stéttir i landinu. Enda má segja
það, að i tið núverandi rikis-
stjórnar hafi ekki oröið um
neinar stöðvanir að ræða
varðandi fiskveiðarnar og fisk-
vinnsluna i landinu, en I tið fyrr-
verandi rikisstjórnar var þarna
um mjög alvarlegar stöðvanir að
ræða, sem auðvitað höfðu I för
með sér minnkandi framleiðslu
og lakari launakjör fólksins.
Okkar stóriðja
— Þú hefur þá unnið að þvi sem
sjávarutvegsráðherra, að reyna
að skipuleggja fiskvinnsluna I
landinu og fiskveiðarnar og sam-
rýma þetta tvennt meir en verið
hefur og einnig að tryggja sam-
felldari rekstur?
— Ég tel eitt af stærstu verk-
efnunum, sem að hefur verið
unnið og áfram þarf að vinna að,
vera einmitt það, að koma fisk-
vinnslu I landi á það stig, og þá
alveg sérstaklega hraöfrysti-
húsaiðnaðinum, að þar sé yfirleitt
um samfelldan rekstur að ræða -
þar sem góður grundvöllur hefur
verið lagður að þvi hvernig megi
tryggja hverju frystihúsi fyrir sig
nægilegthráefni til vinnslu svo að
segja alla vinnudaga ársins, að
alltaf sé til i fiskmóttökunum hrá-
efni til nokkurra vinnsludaga
fram I timann. Þetta tel ég eitt
allra stærsta verkefnið, sem
liggur fyrir I islenskum fisk-
iðnaði, og að skipuleggja
veiðarnar og móttökuna I landi,
efla samstarf milli fiskvinnslu-
stöðva I landi og milli einstakra
staða umfram það sem nú er,
þannig að hér gæti verið um fullt
rekstraröryggi aö ræða.
Það er min skoðun, að fisk-
iðnaðurinn eigi að verða stóriðja
okkar Islendinga. Hann á að vera
okkar langsamlega stærsta og
þýðingarmesta iðngrein og það á
að vera hægt að standa að henni
þannig, að við ráðum fullkomlega
yfir öllum fiskimiðunum við
landið einir. Þá gætum við einnig
séö um það, aö veiðarnar fari
fram með þeim hætti, og aflinn
berist að landi svo hægt sé að
tryggja hér alveg samfellda
vinnu i staðinn fyrir þá mjög svo
slitróttu vinnu sem verið hefur. A
þann hátt eigum viö að gera fisk-
iðnaðinn að okkar stóriðju á
komandi árum.
Erfiðleikar
Framhald af bls. 16.
öll lán orðin 1-2 mánuðum á eftir
áætlun, en úr þessu rætist
væntanlega og fullyrða má, að
Byggingarsjóður rikisins hefur
aldrei haft eins mikið eigið fé til
útlána eins og i ár og fullyrða má,
að nýtt fjármagn verði ekki
minna en 1 miljarður vegna
aðgerða rikisstjórnarinnar. Það
er 1% launaskattsstig sem alþingi
ákvað i vetur og þau lán er fást
frá lifeyrissjóðunum, eftir að
gengið var frá verðtryggingar-
ákvæðunum, sem hér hafa gjör-
breytt fjármagnsstöðu Bygginga-
sjóðs. Það fjármagn sem Hús-
næðismáiastjórn hefur til útlána
hefur þrefaldast i tið vinstri
stjórnarinnar.
Þjóðviljinn mun siðar birta
fréttatilkynningu frá rikisstjórn-
inni um þessa fjármögnun.
Fólk
Framhald af bls. 1 .
eigur sinar með áróðursplöggum
ihaldsins. Fjöldi fólks hefur
hringt til Þjóðviljans og látið i ljós
reiði yfir hinni dæmalausu frekju
Sjálfstæðisflokksins og þessari
nýju tegund átroðslu, sem það
telur enn eina árás flokksins á
persónufrelsi einstaklinganna.
eyþ
Ragnar
Framhald af bls. 1
fellur ekki siður dauður niöur hjá
Sjálfstæðismönnum, þvi að i þvi
máli fást þeir alls ekki til að
svara tveim afgerandi
spurningum, sem fyrir þá hafa
verið lagðar á hverjum fundi. En
þær varða Haagdómstólinn. Eins
og menn vita fellur úrskurður
dómstólsins innan tiðar, og þvi
hefur verið lýst yfir opinberlega
af talsmönnum Sjálfstæðis-
manna, að þeir telji dómsorð
Haagdómstólsins bindandi úr-
slitadóm og honum verði ekki
áfrýjað. Og það hlýtur þvi að vera
stóra spurningin, hvað Sjálf-
stæöisflokkurinn ætli að gera, ef
úrskurður Haagdómstólsins
verður Islendingum i óhag. Hvort
hann ætlar að standa I þvi, ef
hann verður i stjórn, að land-
helgin verði færð aftur inn að 12
milna mörkum. En þessari
spurningu eru þeir alveg ófáan-
legir til að svara. Nákvæmlega
eins er þetta með 200 milurnar,
sem þeir reyna aö eigna sér, enda
þótt öllum sé kunnugt, aö á
Alþingi voru i vetur samþykkt
lög, sem heimila útfærslu i 200
milur, og enginn ágreiningur sé
um að það verði næsta skrefið I
landhelgismálinu. En þeir fást
alls ekki til að svara þeirri
spurningu, hvaö gerist, ef haf-
réttarráðstefnan dregst á langinn
og við færum landhelgina úti 200
milur, hvortþeir ætla þá að beygja
sig undir úrskurð dómstólsins i
Haag i þvi máli. Ög þessi þögn
Sjálfstæðismannanna um þessar
örlagarlku spurningar hefur að
vonum vakið mkla tortryggni
kjósenday.
Framboðsfundir hér I kjör-
dæminu eru sjö og eru fjórir
búnir. Þeir hafa allir verið mjög
vel sóttir, og það virðist vera
mjög mikill áhugi hér á þessum
kosningum.
Baráttuvilji
Að lokum vildi ég segja þetta,
sagði Ragnar. Vafalaust hafa
margir vinstrisinnar ekki gert
upp við sig enn,hvern kost þeir
eigi aö taka i þessum kosningum.
En þeir verða að gera sér ljóst, að
fjöldi uppbótarþingsæta Alþýðu-
bandalagsins og Sjálfstæðis-
flokksins ræður sennilega
úrslitum um valdahlutföllin á
Hafréttarráðs tefnan:
Reiptog milli
risavelda og
þróunarlanda
þingi. Það veit enginn, hvort
Samtökin koma nokkursstaðar
manni að, og Framsóknar-
flokkurinn getur ekki fengið
uppbótarsæti. Við verðum þvi að
einbeita okkur að þvi af itrasta
mætti, að gera fólki ljóst, að
likurnar á áframhaldandi vinstri-
stefnu aukast I réttu hlutfalli viö
fylgisaukningu Alþýðubanda-
lagsins.
Nú veltur á miklu að vel sé
unnið, og það er sannarlega
ánægulegt að verða var við þá
miklu bjartsýni og baráttuvilja,
sem virðist einkenna kosninga-
starf Alþýðubandalagsmanna um
allt land.
Byggingar
Framhald af bls. 6.
á þvi fé, sem sjóðurinn þarf að
taka verðtryggt frá lifeyrissjóð-
unum. Með þeirri ákvörðun opn-
ast möguleikar til þess að fá
verulegt fjármagn til þess að
endurlána þeim sem nú biða eftir
lánum frá húsnæðismálastjórn.
Ef úr þessu rætist á næstu vik-
um þá vona ég að sú töf sem orðið
hefur á lánveitingum verði ekki
til þess að draga úr þeirri upp-
byggingu á ibúðarhúsnæði, sem
nú er I fullum gangi um allt land
og er sérstaklega ánægjuleg þró-
un. Ég tel að nú hilli undir lausn á
þvi vandræðaástandi i húsnæðis-
málum, sem valdið hefur miklum
erfiðleikum á liðnum árum.
Ég vil svo skjóta þvi hér inn að
lokum að ég vona að þjóðin fari
ekki að kjósa yfir sig nýja við-
reisnarstjórn, sem dregur allar
framkvæmdir saman og sendir
iðnaðarmennina úr landi i at-
vinnuleit.
Metheppni
Framhald af bls. 11.
ina og Eyleifur Hafsteinsson
stakk varnarmennina af og vipp-
aði boltanum yfir Diðrik sem
komið hafði út á móti honum, en
þó á skökkum tima. 1:0 fyrir ÍA
var staðreynd. Og það er ekki of-
sagt að þetta séu ein óréttlátustu
úrslit I knattspyrnukappleik sem
maður hefur séð lengi, sannar-
lega meistaraheppni yfir Skaga-
mönnum.
Það var ofur létt fyrir Skaga-
mennina að verjast það sem eftir
var leiksins. Vikingarnir press-
uðu að visu nokkuð, en greinilega
skipulagslaust og i örvæntingu.
En það er eins og Benedikt
Valtýsson bakvörður Skaga-
manna sagði eftir leikinn: — Það
eru ekki tækifærin sem telja stig-
in, heldur mörkin, drengir minir.
Vissulega rétt, en eigi að siður
hlýtur það að vera sárt fyrir Vik-
ingana að horfa uppá slikt sem
þetta.
Þetta er lang-lélegasti leikur
lA-liðsins i þessu móti og sá eini
sem þeir hafa verið heppnir I.
Þeir hafa sýnt yfirburði I flestum
leikjum slnum á mótinu, og það
er þvl engin tilviljun að þeir leiða
nú I deildinni, en auðvitað geta
sterk lið átt slaka leiki. Þó er það
alveg vist, að þeir mega ekki eiga
þá marga lika þessum, ef þeir
ætla að vinna titilinn sem allt
bendir til nú. Það er ekkert lið
svona heppið oftar en einu sinni.
Að vanda voru það þeir Jón
Gunnlaugsson, Jón Alfreðsson og
Þröstur sem af báru i liðinu. Allir
aðrir voru nokkuð langt frá sinu
besta.
Hjá Vlkingi voru það u-lands-
liðsmennirnir Oskar Tómasson
og Gunnar Orn sem báru af, á-
samt þeim Páli Björgvinssyni,
sem hefur bætt vörnina mikið eft-
ir að hann kom i liðið, og Jóhann-
esi Bárðarsyni. Vonin um að
sigra I mótinu hefur minnkað
verulega hjá Vikingum við þetta
tap. Það verður erfitt fyrir þá að
ná Skágamönnunum héöan af.
—S.dór
V erkalýðsf élög
Framhald af 1. siðu.
Islandi, til að ræða við stjórn-
endur SH i þeim tilgangi að foröa
þvi, að til átaka komi.
Laurent Enckell, bandariski
fulltrúinn, kemur hingað á vegum
Alþjóðasambands matvæla-
iðnaðarins, en það tók að sér að
hafa milligöngu um samningana.
Þetta samband, sem hefur innan
vébanda sinna 2.2 miljónir félaga
i 56 löndum, sendi fulltrúa sinn
CARACAS 21/6 — MikiO reiptog
er nú hafið á hafréttarráðstefn-
unni I Caracas, höfuðborg Vene-
súelu, um það hversu mikill
meirihluti atkvæða skuli ráöa
niðurstöðum á ráðstefnunni.
Fyrsta fundinum um þetta atriði
lauk án þess að nokkuð þokaði i
samkomulagsátt, en ætlast er til
Þóra Borg
slasaðist
A fimmtudagskvöldið varð
Þóra Borg leikkona fyrir þvi ó-
happi að hrasa og handleggs-
brotna, þegar hún var á leið i leik-
húsið til að leika i „Selurinn hefur
mannsaugu” eftir Birgi Sigurðs-
son. Þóra Borg fer með veiga-
mikið hlutverk i leiknum og varð
að aflýsa sýningunni um það leyti
að hún átti að hefjast og leikhús-
gestir voru sestir I sæti sin.
Næsta sýning á leikriti Birgis
átti að vera annað kvöld, en verð-
ur einnig að falla niður af þessum
orsökum. I stað þess mun Leikfé-
lagið hafa aukasýningu á Fló á
skinni. Er það 204. sýning á þeim
sivinsæla gamanleik. Samkvæmt
dagskrá leikhússins i Iðnó er á-
ætlað að sýning veröi á „Selurinn
hefur mannsaugu” á fimmtu-
dagskvöld i næstu viku, en ekki er
enn vitað hvort leikkonan verður
þá búin að ná sér nægilega til þess
að af henni geti orðið.
Sameiginleg-
ar haf-
rannsóknir
MURMANSK (APN) — Rann-
sóknaskipin Akademik Knipovits
og Ajaka halda áfram siðari hluta
rannsókna sinna i Norgeshafi og
Barentshafi. Rannsóknir þar fara
fram samkvæmt áætlun, sem er
sameiginleg fyrir Sovétrikin,
Noreg og Island.
Sovéska rannsóknaskipið Per-
sej-3 hefur unnið að athugunum I
Norð-vestur-Atlantshafi. Skipið
kom i höfn i Halifax i Kanada,
þegar sovésku visindamennirnir
tóku þátt i starfi alþjóöanefndar
um talningu fiskstofnanna.
Helgi ekki
í hœttu
enn
Á föstudagskvöldiö höfðu tveir
læknar, Sigurður Sigurösson og
Tómas Helgason, yfirlæknir á
Kleppi, verið hjá Helga Hóseas-
syni i Hegningarhúsinu á Skóla-
vörðustig og hann rætt við þá. Að
sögn Siguröar, sem er heimilis-
læknir Helga, er hann enn i engri
hættu hvað heilsu snertir. Um
helgina verður að likindum
ákveðið, hvað tekiö verður til
bragðs viðvikjandi Helga, en
hann mun ekki hafa tekið til sin
næringu frá þvi að hann var
handtekinn um ellefuleytið seytj-
anda júni.
dþ.
hingaö að vissu leyti fýluferð, þvl
Einar Sigurðsson, stjórnar-
formaður SH og Coldwater og
Eyjólfur tsfeld, frkvstj. SH, töldu
sig þessi mál engu skipta og
neituðu að ræða við Enckell.
—gsp
að þessi þræta verði leyst fyrir 28.
þ.m„ en þá á fyrir alvöru að hefja
viðræður um þau hafréttarmál,
er fyrir liggja.
Togstreitan stendur fyrst og
fremst milli risaveldanna,
Bandarikjanna og Sovétrikjanna,
annarsvegar, en hinsvegar þró-
unarlandanna og Kina. Bandarik-
in hafa sig meira i frammi af
hálfu þeirra fyrrnefndu og vilja
helst ekki að ráðstefnan geri
neinar samþykktir,nema að um
þær náist svo að segja algert
samkomulag allra ráðstefnu-
rikja. Hætt er við að það reynist
erfitt, þvi að sem eðlilegt má
kalla eru sjónarmið hinna ýmsu
rikja, sem ráðstefnuna sækja,
næsta ólik. Þróunarlöndin hallast
hinsvegar að þvi að láta einfaldan
meirihluta atkvæða eða tvo þriðju
hluta ráða um niðurstöður.
r
Israel
fordæmt
fyrir kyn-
þáttamisrétti
GENF 21/6 — Alþjóðlega vinnu-
málastofnunin (ILO) samþvkkti I
gær á ráðstefnu sinni I Genf for-
dæmingarályktun á israel vegna
kynþáttamisréttis á herteknum
arabiskum svæðum.
1 ályktuninni segir ennfremur
aö Israel hafi niðst á réttindum
verkalýðssamtaka á svæðunum.
Ályktunin var samþykkt með 224
atkvæðum gegn tveimur, en 122
sátu hjá. Meö ályktuninni voru
fulltrúar Arabarikja, margra
annarra þróunarlanda og sósial-
iskra landa, en meðal þeirra sem
sátu hjá voru fulltrúar Noregs,
Bandarikjanna, Sviþjóðar, Kan-
ada, Sviss og Ástraliu.
Nú hlýnar í
Mývatnssveit
Veður fer nú hlýnandi I Mývatns*
sveit, að sögn Siguröar oddvita á
Grænavatni. Sigurður sagði, að
frostin I byrjun júni hefðu seinkað
sprettu um að minnsta kosti hálf-
an mánuð. Þau hefðu Ilka farið
illa með suman gróður, til að
mynda hefðu aöflutt barrtré eyði
lagst viða og óvist hvort þau næðu
sér á þessu sumri eöa nokkurn-
tima. Þó væri ásandið enn verra
í niöri I dölunum, þar sem frostið
heföi veriö meira þar neöra. Að
lokum sagðist Sigurður búast viö
aö sláttur gæti hafist um næstu
mánaðamót ef hlýindin héldu
áfram
rl.
MOGADISHU
Fjögurra daga ráðstefna
leiötoga Einingarsamtaka
Afrlkurikja (OAU) hefst I dag
i Mogadishu, höfuborg
Sómalilands. Helsta verkefni
ráðstefnunnar verður að fá
fram sættir og sameiningu
frelsishreyfinganna i nýlend-
um Portúgala, en i Angolu að
minnsta kosti er um að ræða
ein tvö baráttusamtök, sem
engir kærleikar eru með.Utan-
rikisráðherrar OAU-landa
hafa nýskeð skorað á allar
frelsishreyfingar i Mósamhik,
Angólu og Gineu-Bissá að
samræma stefnu sina gagn-
vart protúgölsku stjórninni.
Fjörutiu og tvö riki eiga
aðild að OAU.