Þjóðviljinn - 02.08.1974, Side 5

Þjóðviljinn - 02.08.1974, Side 5
Köstudagur 2. ágúst 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5 Alrktun miðstjórnar A.S.Í. Aukin áhrif verkalýðs- samtakanna Miöstjórn Alþýöusam- bands islands kom saman til fundar i fyrradag kl. fjögur. Á þeim fundi var eftirfarandi ályktun sam- þykkt einróma: Vegna framkominna skýrslna opinberra stofnana um ástand og horfur i efnahagsmálum,álykt- ar miðstjórn Alþýðusambands tslands eftirfarandi: 1. Að nú sem fyrr er það grund- vallarkrafa verkalýðssam- takanna að full atvinna haldist og að ekki verði gripið til neinna þeirra aðgerða, sem stefnt geti atvinnuöryggi i hættu, þótt nauð- synlegt reynist að draga úr eftir- spurnarþenslu. 2. Að miðstjórn Alþýðusara- bandsins telur að vandamál elna- hagslifsins, sem nú er við að etja, verði ekki nema að mjög tak- mörkuðu leyti leyst með launa- pólitiskum aðgerðum. 1 þvi sam- bandi leggur miðstjórnin sér- staka áherslu á þá kröfu sina, að engar ákvarðanir um þau efni verði teknar, sem með beinum eða óbeinum hætti breyttu gild- andi kjarasamningum, nema með samþykki þeirra heildar- samtaka vinnumarkaðarins, sem á þeim bera ábyrgð. 3. Að verkalýðssamtökunum beri nú að berjast af alefli gegn öllum hugsanlegum tilraunum stjórn- valda og atvinnurekenda til að skerða laun eða kjör láglauna- fólks til lengri eða skemmri tima. 4. Að ástand húsnæðismála krefj- ist nú sérstakra aðgerða til kjara- jöfnunar. Að þar komi sterklega til álita að húsnæðiskostnaður láglaunafólks verði léttur með skattalagabreytingum og með þvi að komið verði á kerfi húsnæðis- bóta til þeirra, sem greiða óhæfi- lega mikinn hluta launa sinna i húsaleigu eða i afborganir og vexti af húsnæðislánum. Þá telur miðstjórnin nauð- synlegt að sett verði i samráði við verkalýðssamtökin ný heildar- löggjöf um félagslegar ibúða- byggingar i samræmi við yfirlýs- ingar fráfarandi rikisstjórnar um húsnæðismál, er gefin var i sam- bandi við kjarasamningana i febrúar s.l. 5. Að miðstjórnin er þeirrar skoð- unar, að nú sé brýn nauðsyn á að afnema hin vélrænu tengsl bú- vöruverðs og kaupbreytinga lág- launafólks. 6. Aö miðstjórnin telur að við rikjandi aðstæður hnigi sterk rök að þvi að áhrif verkalýðssamtak- anna á meðferð efnahagsmála verði efld með þvi m.a., að þau fái aðild að stjórn Húsnæðismála- stofnunar rikisins, stjórn Fram- kvæmdastofnunar rikisins og að hugsanlegri stjórn Þjóðhags- stofnunar. Miðstjórn Alþýðusambandsins lýsir yfir vilja sinum til þess að taka upp viðræður og samráð við samtök atvinnurekenda, stjórn- völd og stjórnmálaflokka um leið- ir til að leysa farsællega þau vandamál, sem óhæfileg verð- bólguþróun og versnandi viö- skiptakjör hafa skapað og mundu, ef ekki er að gert, ógna þeim lifskjörum, sem vinnustétt- irnar hafa áunnið sér á siðari ár- um. En jafnframt leggur hún þunga áherslu á framangreind meginsjónarmið sin og önnur þau atriði, sem máli skipta til verndar efnalegum og félagslegum rétt- indum verkalýðsstéttarinnar. Hákarl og fleira markvert Sjávarútvegur Þám. elsta bátsvélin hér á landi ásamt fjölmörgum líkönum og veiðarfærum Deild Sjávarútvegsins á þróunarsýningunni er um margt merkileg og hefur ad geyma sinn skammt af fróðleik og skemmtan eins og raunar flestar aðrar deildir. Svo til daglega er borinn á borð matur úr íslenskum landbúnaðar- og sjávarút- vegsvörum og var blaða- mönnum fyrir skömmu boðið að bragða á glæsileg- um alíslenskum réttum, þar á meðal hákarli og hrognum. Meðaf atriða á sýningunni' má nefna fjölmargar Ijósmyndir af islenskum bátum og skipum og eru einnig sýndar á teikningum flestar gerðir gáta frá upphafi. Teikningar eru tölusettar og tengdar ártölum og má þannig fá skemmtilegt yfirlit yfir þróun is- lensks báta- og skipaflota i gegn- um árin. Veiðarfærin hafa sömuleiðis tekið breytingum i rás timans og það allverulegum. Leitast er við að tengja saman gamla og nýja timann, radiótæki eru sýnd frá gömlum tima og þeim nýja, fyrsta bátsvélin, sem til landsins kom, er meðal gripa á sýningunni og mun hún fara á Þjóðminja- safnið er þróunarsýningunni lýk- ur. Ásgeir Jakobsson hefur ritað i sýningarskrá vandaða afmælis- grein og fer þar gróft yfir islenskt fiskveiðitimabil, sem nú er 1100 ára gamalt. Segir hann þar frá fyrstu verstöðvunum, ,,döpru öld- unum”, veiðarfærum fornmanna og fleiru, sem fróðlegt er að lesa og hafa i huga, er gengið er um sýningardeild sjávarútvegsins. —gsp Dónaskapur í garð Kína % ' . Ki i Þessi bátsvél er sú fyrsta eða önnur, sem sett var i islenskan bátog mun hún fara á Þjóðminja- safnið er þróunarsýningunni lýk- ur. Norrœnir hús- mœðra- kennarar • Um 80 norrænir húsmæðra- kennarar dvelja hér á landi, dag- ána 2.-9. ágúst næstkomandi. Munu þeir dvelja á Hótel Eddu á Laugarvatni, hlýða á erindi og fara i kynnisferðir. Þá mun menntamálaráðherra taka á móti þátttakendum i Ráðherrabú- staðnum, kl. 16.00 á miðvikudag- inn 7. ágúst. Þessi kynnisferð er á vegum Kennarafélagsins Hús- stjórn, en félagið er aðili að Nor- rænni samvinnunefnd um hús- stjórnarfræðslu. Þau hneykslanlegu mistök urðu á þjóðhátiðinni á Þingvöllum á sunnudaginn, að fkni Formósu var dreginn að húni i stað fána Kina. Þetta athæfi, sem verður að skrifast á reiknning utanrikis- ráðuneytisins, er svo gróf móðgun við Kina, lýsir þvilfkum sleifarhætti i starfsháttum utan- rikisráðuneytisins, að skammar- legt er. Þórður Einarsson, blaðafulltrúi ráðuneytisins sagði i Visi á mánu- daginn, að skýringin væri sú, að það fyrirtæki sem ráðuneytið hefði pantaðalla sina fána hjá, en það fyrirtæki er bandariskt, hefði sent fána Formósu i stað fána Kina. Og á svo að afsaka aulaháttinn með þannig viðbárum? Þekkja starfsmenn utanrikis- ráðuneytisins ekki sundur fána Formósu og Kina? Gera þeir sér fulla grein fyrir hvilik móðgun þessi mistök voru við fulltrúa Kina á Þingvöllum? 1 Bandarikjunum hafa menn vist vanist þvi að lita á Formósu sem allt Kina. Og Kina merkir i eyrum ameriskra Formósa. Það Kina sem menn hér um slóðir hafa hins vegar i huga, er engin Formósa, heldur riki sem hér hefur opið sendiráð og heitir Kin- verska alþýðulýðveldi — það er á ensku ,,Peoples republic of China”. Kannski þeir i utanrikis- ráðuneytinu punkti þetta hjá sér, ef þeim einhvern tima kæmi til hugar að panta kinverska fánann hingað til lands. Og ef svo færi, þá væri lika upplagt að fletta upp i bók, og kanna hvernig sá fáni lit- ur út. —GG UNDIR FRIÐAR OG LANDNÁMSSÓL Föstudaginn 2. ágúst kl. 14.30 verður afhjúpað myndverkið „Undir friðar- og landnámssól” eftir Asmund Sveinsson. Það er reist i tilefni af þjóðhátiðinni af tslenska álfélaginu h.f., og hefur þvi verið valinn staður á mótum Bæjarháls og Ilöfðabakka. Ragn- ar llalldórsson forstjóri mun af- henda verkið, en Birgir tsl. Gunn- arsson borgarstjóri mun taka við þvi til varðvcislu fyrir hönd Reykvikinga og annara lands- manna. Kl. 16.00 hefst höggmyndasýn- ing, sem Myndhöggvarafélagið i Reykjavik gengst fyrir með Framhald á 11. siöu. REYKJAVÍK ÞJÓÐHÁTÍÐ 1974 I tilefni 1100 ára byggðarí Reykjavík hefur Þjóðhátíðar- nefnd Reykjavíkur 1 974 látið gera þessa minjagripi: Minnispening um landnám Ingólfs Arnarsonar. 70 mm i þvermál. Afhentur í gjafaöskju. Upplag: Silfur, 1000 stk. kr. lO.OOO./pr. stk. Bronz, 4000 stk. kr. 3.000./pr. stk. Teiknaður af Halldóri Péturssyni. Framleiðandi: is-Spor h.f. Útsölustaðir: Skrifstofa Þjóðhátiðarnefndar Reykjavlkur, Hafnarbúðum. Landsbanki tslands. Frimerkjamiðstöðin, Skólavörðustlg. Veggskjöld úr postulíni framl. hjá Bing og Grön- dahl í Kaupmannahöfn í aöeins 4000 eintökum. Teiknaður af Halldóri Péturssyni. Útsölustaðir: Thorvaldsenbazar, Austurstræti. Rammagerðin, Hafnarstræti Raflux, Austurstræti tsl. heimilisiðnaður, Hafnarstr. Frimerkjamiðstöðin, Skóla- vörðustig. Æskan, Laugavegi. Domus, Laugavegi Geir Zoega, Vesturgötu Rammageröin, Austurstræti Bristol, Bankastræti tsl. heimilisiðn. Laufásvegi Mál & menning, Laugavegi Liverpool, Laugavegi S.Í.S. Austurstræti. Rósin, Glæsibæ Gjafabúðin, Vesturveri

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.