Þjóðviljinn - 02.08.1974, Side 10
10 StÐA — ÞJÖDVILJINN Föstudagur 2. ágúst 1974.
Gamalt
land
Skáldsaga
eftir
J.B. Priestley
— Hann er breytilegur. Ég er
harður við fólk i skilnaðarstandi.
En ég skal vera rýmilegur við
þig, Adamson. Þetta er áhuga-
vert mál — dálitið óvenjulegt —
viss örgrun fólgin i þvi — og ég
skal taka það að mér fyrir fimm-
tiu pund á viku að viðbættum
kostnaði — sanngjörnum og
skjalfestum. Þú hefur væntan-
lega ráð á þvi, eða hvað?
Tom sagðist hafa það, en ef leit-
in stæði vikum saman, þá gæti
hún orðið býsna dýr.
— Það var og, sagði Crike. —
Ég ætlaði einmitt að koma að þvi.
t svóna máli er einna sanngjarn-
ast að viðhafa bónus. Ef ég finn
hann fyrir lok fyrstu vikunnar, þá
læturðu mig hafa hundrað punda
bónus. Ef það tekur tvær vikur,
verður bónusinn aðeins fimmtiu
pund. Eftir þann tima verður ekki
um neinn bónus að ræða. Það gef-
ur auga leið að ég vil heldur næla
mér í bónusinn og byrja á ein-
hverju öðru verki en draga þetta
á langinn. Er það ekki sann-
gjarnt, Adamson?
Tom jánkaði þvi og spurði hann
siðan hvað hann héldi að þetta
gæti tekið langan tima.
— Án nokkurra upplýsinga —
tvær vikur. Með forskotinu sem
ég fékk hjá Bassenthwaite, gæti
það tekið viku. Og þú skalt fá ná-
kvæma skýrsiu á hverjum degi,
Adamson. Nú legg ég til að við
drekkum kaffið i einhverju ró-
legra horni á setustofunni, og ef
þú ert að spá i vindil, er ég með á
nótunum. Mér finnst gott að fá
mér vindil eftir hádegisverð.
Það fannst Tom ekki, en hann
bauð Crike vindil, þótt ekki væri
nema fyrir ósvifnina.
Yfir kaffinu og vindlinum i
setustofunni, losnaði um mál-
beinið á Crike. — Þú getur litið á
þetta sem fyrstu skýrslu mina,
Adamson. Nú get égsagt þér hvað
Bassenthwatie sagði mér. Og þar
vorum við heppnir. Ég þori að
veðja að vettvangur málsins
verður i Miðlöndunum og þar hef
Brúðkaup
Nýlega voru gefin saman i hjóna-
band Hallveig Hilmarsdóttir og
Ingimundur Sigurpálsson. Heim-
ili þeirra er að Alfaskeiði 90,
Hafnarfirði. ( Ljósm. Nýja
myndastofan)
ég gert margt og mikið og er öll-
um hnútum kunnugur. Ég nauð-
þekki London og Miðlöndin. Er
ekki alveg eins vel heima fyrir
norðan, — og i sannleika sagt
Adamson- alveg uti að aka i suð-
vesturhorninu — rjóma-nn og
smjörsvæöunum
Crike tókst að brosa án þess að
taka ut úr sér vindilinn. Tom
kinkaði kolli, en hann var aðvelta
fyrir sér hvar Helga væri og hvað
hún væri að gera. Umhugsunin
um hana gerði setustofuna
skuggalegri, og var hún þó ekki
sérlega björt fyrir.oe bæði stofan
og Crike urðu i senn hvimleið og
lágkúruleg, gersneydd töfrum og
þokka að eilífu.
— Árið 1949 var Bassenthwite
með leikflokki i Sutwick, iðnaðar-
bæ i vestur-Miðlöndum. Crike tal-
aði faglega eins og hann væri að
gefa viðskiptaskýrslu. — Hann
var eiginlega eins konar leik-
stjóri, vegna þess að stjórnand-
inn, sem kostaði fyrirtækið, var
ósköp ungur og grænn. Pabbi þinn
birtist alit i einu og hitti Bas-
senthwaitb. Þeir höfðu leikið
saman i West End fyrir striðið.
Faðir þinn reyndi ekki að leyna
neinu. Hann hafði setið inni i
þessum fangabúðum fyrir fyrsta
brotsmenn einhvers staðar á milli
Sutwick og Birmingham. Hann
gekk undirnafninu Charles Arch-
er. Svoleiðis nafnbreytingar eru
mjög algengar. Þú heldur skirn-
arnafninu, vegna þess að það er
erfitt að venjast nýju nai'ni. Þú
velur þér ættarnafn með sama
upphafsstaf og þú hafðir áður,
vegna þess að þú átt kannski
ferðatöskur og ýmislegt annað
með fangamarki á. Hvað sem þvi
liður, þá hét hann nú Charles
Archer.
Tom endurtók nafnið með
hægð. — Segðu mér, hélt hann á-
fram, — heldurðu að hann kalli
sig enn Charles Archer?
— Það fer eftir þvi hvað hann
hefur verið að bauka, sagði
Crike næstum afsakandi. — Ef
Nýlega voru gefin saman i hjóna-
band Guðrún Magnúsdóttir og
Bergþór Pálmason. Heimili
þeir>-a er að Asparfelli 4. —
(Ljósm. Nýja myndastofan).
hann hefur staðið sig bærilega og
er skynsamur maður, þá hefur
hann ekki breytt aftur um nafn.
Miklu að tapa og ekkert að vinna.
Ég reikna með að hann kalli sig
Sharles Archer þar tii ég fæ ann-
að að vita. Hlustaðu nú á, Adam-
son. Hann bað Bassenthwaite að
ráða sig — i hvað sem væri —
sem leikara, leiktjaldamann,
handlangara. Bassenthwaite
þurfti á aðstoð að halda engu sið-
ur en Charles Archer vinnu, en
það þurfti mikið átak til að
kreista enn ein vinnulaun út úr
þessu Sutwick-leikfélagi. Loks
var hann ráðinn fyrir niu pund á
viku fyrir að gera það sem honum
var sagt, reglulegt skitadjobb
sem byrjaði um tiuleytið á
morgnana og stóð til miðnættis.
Og hann stóð sig þar, sagði Bas-
senthwite. Hann var enn að vinna
hjá þeim þegar Sutwick-leikfélag-
ið lognaðist út af sumarið 1950.
— Ég skil, sagði Tom, einkum
vegna þess að Crike þagnaði eins
og hann væri að biða eftir ein-
hverri athugasemd. — Og hvað
svo?
— Ekki neitt öruggt, auðvitað.
Hér kemur til minna kasta.
Bassenthwaite, sem vissi hvað i
vændum var, gat ráðið sig hjá
leikflokki einhvers staðar i Skot-
landi. Charles Archer ég kalla
hann það að öllu óbreyttu — vissi
ekki hvað hann myndi taka sér
fyrir hendur.
— Og hann hverfur.
— Ef til vill og ef til vill ekki.
Bassenthwaite gat gefið mér eina
visbendingu. Og til allar ham-
ingju fyrir okkur hefur hann gott
minni. Charles Archer var góður
— mjöggóður — vinur roskinnar
konu, frú Jones, sem rak stóra
veitingakrá i Colston, rétt fyrir
utan Sutwick. Hún kom i leikhúsið
á hverjum mánudegi, tók sér fri
úr kránni. Og Charles Archer fór
þangað oft i hádegisverð á sunnu-
dögum, en það var eini dagurinn
sem hann átti fri. Meira veit ég
ekki, Adamson, en þetta er betra
en ekkert. Og ég vænti þess að ég
geti hafið eftirgrennslanir minar i
kvöld i þessari krá i Colston. Ég
veit ekki einu sinni hvað hún heit-
ir — Bassenthwaite kom þangað
aldrei — en ég finn hana fljótlega.
Og þú skalt fá fyrstu skýrsluna
mina, snyrtilega vélritaða — ekki
á morgun heldur hinn. Á föstu-
dagsmorgun. Til þessa heimilis-
fangs, er ekki svo — ha? Ágætt!
Nú er ég búinn að leggja spilin á
borðið, Adamson. Nú vil ég að þú
gerir slíkt hið sama.
— Hvað áttu við?
— Ég á við — segir mér allt
sem þú manst um hann föður
þinn. Ég veit það er langt um liðið
— Það eru þrjátiu og þrjú ár —
— Það er allt i lagi. Segðu mér
allt sem þú manst. Ég verð að fá
að vita það.
Það var svo sem ekki nema
sanngjarnt, en Tom hefði getað
geispað framan i hann. Samt
þvældist hann gegnum næsta
stundarfjórðung og tindi allt til
sem til var i minni hans, en Crike
sat með alvörusvip og krotaði i
þvælda vasabók, sem virtist hafa
leikið hlutverk i ótal mörgum
hvimleiðum skilnaðarmálum.
— Er þetta allt og sumt? sagði
Crike þegar Tom þagnaði.
— Já, þetta er allt og sumt.
— Kærar þakkir, Adamson.
Crike stakk vasabókinni niður. —
Getur komið að gagni. Eða ekki.
En eitt vil ég brýna fyrir þér — i
alvöru. Gerðu þér ekki vonir um
að hitta manninn sem þú hefur
verið að tala um, ef mér lánast
þetta. Sá maður er úr sögunni.
Sitthvað hefur gerst á þessum
þrjátiu og þremur árum —
— Ég veit það, ég veit það.
Tom virtist þreytulegur, vegna
þess að hann var þreyttur. Hann
var búinn að fá nóg af Crike,
kannski hafði hann fengið nóg af
þessum týnda föður sinum lika.
Crike reis á fætur og fór að
bursta vindlaösku af jakkanum
sinum. — Það er eitt enn, Adam-
son. Ég kemst ekki i bankann
minn og ég vil komast af stað sem
fyrst. Gætirðu látið mig fá fyrir-
framgreiðslu upp í útgjöldin —
bara til hagræðis?
Þegar Tom hafði litið i veskið
sitt, hikaði hann ögn. — Ég er
með tuttugu pund á mér, Crike.
Þú getur fengið þau, ef ég get ver-
ið viss um að hótelið hérna kaupi
af mér ávisun. Ég fer með gest út
að borða i kvöld á dýru veitinga-
húsi —
— Aha! Aha! Crike breyttist
■O-íQí.
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.35 Lögregluforinginn.
Þýskur sakamálaflokkur.
Morð á hraðbrautinni
Þýðandi Briet Héðinsdóttir
20.35 Með lausa skrúfuj-’innsk
fræðslumynd um nýjar að-
ferðir við kennslu barna,
þar sem höfuðáhersla er
lögð á að láta sköpunargáíu
einstaklingsins njóta sin og
losa um óþarfar hömlur.
Þýðandi og þulur Hrafn
Hallgrimsson (Nordvision
— Finnska sjónvarpið).
22.10 tþróttir. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
Dagskrárlok óákvcðin.
FÖSTUDAGUR
2. ágúst.
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Rannveig Löve les
þýðingu sina á sögunni
„Fyrirgefðu manni, geturðu
visað okkur veginn út i nátt-
úruna?” eftir Benny Ander-
son. (3). Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli liða. Spjallað
við bændur kl. 10.05. Morg-
unpopp kl. 10.25. Morgun-
tónleikar kl. 11.00: Wolf-
gang Schneiderhan og Fil-
harmóniuhljómsveit Berlin-
ar leika fiðlukonsert i D-dúr
eftir Igor Stravinsky / Janet
Bakersyngur með Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna
„Dauða Kleopötru”, ljóð-
rænt tónverk eftir Hector
Berlioz / Claude Helfer leik-
ur pianósónötu eftir Béla
Bartók.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan: „Katrin
Tómasdóttir” eftir Rósu
, Þorsteinsdóttur. Höfundur
les (2).
15.00 Miðdegistónleikar.Jutta
Zoff og Filharmóniusveitin i
Leipzig leika Hörpukonsert
i Es-dúr eftir Reinhold Gli-
er, Rudolf Kempe stjórnar.
Nikolai Ghiauroff syngur
rússneska söngva við pianó-
undirlcik Zlatinu Ghiaurcff.
Filharmóniusveitin i Vin
leikur „Hnotubrjótinn”,
ballettsvitu eftir Tsjaikov-
ský: Herbert von Karajan
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphornið.
17.10 Tónleikar.
17.30 1 leit að vissum sann-
leika.Dr. Gunnlaugur Þórð-
arson flytur ferðaþætti. (4).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurt og svarað. Ragn-
hildur Richter leitar svara
við spurningum hlustenda.
20.00 Samkeppni barna- og
unglingakóra Norðurlanda
— i. Guðmundur Gilsson
kynnir.
20.50 islensk myndlist i ellefu
hundruð ár. Siðari þáttur
Gylfa Gislasonar um sýn-
inguna á Kjarvalsstöðum.
21.30 Útvarpssagan: „Ar-
minningar” eftir Sven Del-
blanc. Sverrir Hólmarsson
og Þorleifur Hauksson lesa.
(11).
22.00 Fréttir,
22.15 Veðurfregnir. Búnaðar-
þáttur: Kál og rófur. Gisli
Kristjánsson ræðir við As-
geir Bjarnason garðyrkju-
bónda á Reykjum i Mos-
fellssveit.
22.35 Siðla kvölds. Helgi Pét-
ursson kynnir létta tónlist.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Ótrúlega lágf ver6
^cmrnisuo
Einstök
gaeði
MET
EINKAUMBOO: TEKKNESKA BIFREIOAUMBOOID A ÍSLANDI
BARUM
BfíEGST EKK/
SoLUST ADIR:
Hjolbarðaverkstæöiö Nybarði, Garöahreppi, simi 50606.
Skodabúðin, Kopavogi, simi 42606.
Skodaverkstæöiö á Akureyri h.f.#simi 12520.
Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstööum,
simi 1158.
Bókhaldsaðsíoð
með tékkafærslum
f^BÚNAÐARBANKINN
\fl/ REYKJAVÍK