Þjóðviljinn - 22.10.1974, Síða 2

Þjóðviljinn - 22.10.1974, Síða 2
2 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur. 22. október. 1974. 0@§(S § mcaoöF JWp 1 M Bœtur til Ufeyrisþega Geir Hallgrimsson Hafsteinn frá Vogatungu spyr forsætisráðherra hvað hafi ráðið þvi, að lifeyrisþegar fái 6% upp- bætur á lifeyri þegar láglauna- bætur séu 8 og 10%. Forsætisráðherra, Geir Hall- grlmsson, svaraði: ,,Með bráðabirgðalögum nr. 88/1974, 24. september 1974 um launajöfnunarbætur, bætur al- mannatrygginga og verðlagsmál er tekjutryggingamark elli- og örorkulifeyristrygginga þ.e. lág- markstekjur, sem tryggðar eru með almennum lifeyri og uppbót á lífeyri til þeirra sem engar eða mjög litlar tekjur hafa auk lif- eyris- hækkað jafnt og lægstu kauptaxtar eða um 10%. Almenn- ar bætur lifeyristrygginga eru hins vegar hækkaðar um 6%, eða likt og ætlað er að launatekjur I heild hækki vegna launajöfnunar- bóta. Meö þessum hætti eru bætur til þeirra lifeyrisþega, sem lakast eru settir hækkaðar jafnt og laun þeirra, sem lægst laun hafa, en tekjutryggingarmörk hjóna liggja nú nærri kauptöxtum verkamanna. Almennur lifeyrir, sem greiddur er án tillits til ann- arra tekna bótaþega, hækkar hins vegar eins og ofan greindi lfkt og meðallaun af völdum launajöfn- unarbóta, þó er sá munur á, að ailir bótaþegar njóta þessarar hækkunar, en stór hluti launþega, þ.e. þeir, sem hafa hærri laun en 53.500 krónur á mánuði, fær eðli málsins samkvæmt engar launa- jöfnunarbætur. Tilgangur þessara ráðstafana er aö nýta sem best það fjár- magn, sem varið er til trygginga- bóta, með hagsmuni hinna lakast settuihuga”. —-úþ Enn um móður- málið í sjónvarpinu Ekki ætla þeir sjónvarpsráða- menn að láta svo litið að svara bréfi minu og spurningum, sem Þjóðviljinn birti á dögunum, þar sem spurt var eftir hverjar kröfur væru gerðar til islenskukunndttu starfsmanna sjónvarpsins, og þá einnig þvi hvers vegna Bjarni Felixson er orðinn starfsmaður þeirrar stofnunar. Liklega þurfa spurningarnar að birtast i Mogganum þeirra Jóns Þórarinssonar og Emils Björns- sonar til þess að svör fáist við þeim. Hitt er engu að siður staðreynd, að málfar þeirra sjónvarps- manna er vægast sagt mjög brog- að, og það er mörgum sjónvarps- áhorfandanum raun að hlýða á þá islensku, sem þar er töluð. í þetta skipti vona ég að Ut- varpsráð sjái sér fært að gripa i taumana og fyrirskipa þeim herr- um I sjónvarpinu að birta skilyrði fyrir ráðningu fréttamanna og lesara I sjónvarpinu, og að þeir skipi þvi ómálga fólki, sem þegar hefur verið ranglega ráðið til sjónvarpsins að sækja islensku- námskeið, sjónvarpinu að kostn- aðarlausu, og það fái þar ekki aftur inni fyrr en málfar þess hefur tekið þeim framförum, að vænta megi, að tungutak þess og orðaval særi ekki þá, sem ein- hvern málsmekk hafa. G.tJ. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar og jeppabifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðju- daginn22. október kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sala Varnarliðseigna. Bókhaldsaðstoð með tékkafærslum flfBÚNAÐARBANKINN \£l/ REYKJAVÍK Auglýsingasiminn er 17500 MÐVHMN kif laupnum Vœngir á Siglufirði Vængir hafa haldið uppi flugferðum til Siglufjarðar og fljúga þangaö fjórum sinnum i viku þennan vet- urinn. Siglfirðingum þykir sem von er mikii samgöngubót I þessu flugi, og er þaö notað vel. — Myndina tók Júlfus Júliusson af Vængjaflugvél á Siglufjaröarflugvelli fyrir skömmu. Skoðanakönnun og afsláttur Skoda-umboðið, eða Tékk- neska bifreiðaumboöið, eins og söluumboð Skódabila heit- ir, gengst fyrir skoöanakönn- un með öllum þeim, sem skráðir voru eigendur Skoda- bifreiða eftir 1. janUar 1974. Umboðið segir að tilgangur skoðanakönnunarinnar sé að kynnast viðhorfum Skodaeig- enda til bifreiða sinna, þjón- ustu umboðsins og fl. með það fyrir augum að bæta þjónust- una i samræmi við niðurstööur skoöanakönnunarinnar. Eyöublöð með spurningum verða send Skodaeigendum, og þurfa þeir helst að svara þeim fyrir 1. nóvember nk. Svörin verða ekki rakin til þess, sem þau gefur, svo hverjum og einum ætti að vera aldeilis óhætt að segja sina meiningu hreint Ut. Þá býður Tékkneska bif- reiöaumboðið viðskiptamönn- um Skodaverkstæöisins hf. i Kópavogi 10% afslátt af end- urryðvörn og 20% afslátt af bilaleigu tímabilið 1. október til 1. mars 1975. Þakka Vilhjálmi bindindið Eftirfarandi tillaga var samþykkt einróma á fundi I Kvenfélagi Kópavogs og hefur verið send menntamálaráö- herra: „Fundur I Kvenfélagi Kópa- vogs, haldinn I Félagsheimil- inu fimmtudaginn 3. okt. 1974, sendir Vilhjálmi Hjálmars- syni bestu kveðju og þakkar honum þá ákvöröun aö veita ekki vin I veislum ráðuneytis sins.” neytendasamtökin mæli með þeim sem „bestum” eða „Best Buy”. 1 þessu tilliti er um nokkuð villandi auglýsingu að ræða, þar eö slik meðmæli frá erlendum neytendasamtökum miðast ávallt við, að einhver vara sé meðmælanleg miðað við þau verð og gæði, sem fáanleg eru á markaöinum þar i landi. Þar með er alls ekki sagt, að slikt þurfi að gilda hér á landi, þar sem verðlag og vöruval er allt annað. Kaupendur eru þvi beðn- ir aö taka öllum sllkum fullyrð- ingum með itrustu varUð. Gjafir til Sjálfsbjargar A aðalfundi sinum þ. 27. febrUar s.l. bárust félaginu tvær gjafir. Onnur að upphæð kr. 100 þUs. frá frú GuörUnu Hannesdóttur, HátUni 10, i minningu um mann hennar Karl Friðriksson, f.v. vega- verkstjóra, sem starfaði mikið að málefnum fatlaðra og var um tima formaður Sjálfs- bjargar á Akureyri. Hin að upphæð kr. 12.000,- I íþrótta- sjóð, frá Svövu Sigurgeirs- dóttur, HátUni lOa. Fylgi gef- endum farsæld i framtiðinni. Bestu þakkir. Kvefpestin sœkir sig Farsóttir I Reykjavik vik- una 27.-28. september 1974, samkvæmt skýrslum 10 (8) lækna: Iðrakvef 20 (12), kighósti 5 (1), hlaupabóla 3 (1), rauöir hundar 3 (2), hettusótt 2 (4), hvotsótt 1 (1), hálsbólga 65 (56), kvefsótt 179 (86), lungna- kvef 3 (9), inflúensa 8 (12). Tímarit Freyr UmmA SR BBZT Heima er best Varið ykkur á versluninni Að gefnu tilefni vilja Neyt- endasamtökin vara við, að öll- um seljendum vöru og þjónustu er stranglega bannað að nota meðmæli hvers konar, inn- lendra og erlendra neytenda- samtaka til framdráttar sölu á vörum sinum eða þjónustu. Hafa orðið nokkur brögð að þvi undanfarið, að islensk fyrirtæki hafi auglýst vörur með þeim meðmælum, að bandarisku Hefti nUmer 19—20 af bún- aðarblaðinu Frey er komið Ut. Meðal efnis má nefna forystu- grein, Hóp-slysatryggingar, Mjaltaeiginleikar eftir Jó- hannes Eiriksson, grein um spenasig og spenaskemmdir, BUfé og fóður 1971—1973 töflu yfir fjölda bUfjár, öflun fóðurs og uppskeru garðávaxta 1971—1973, Frá minum sjónar- hóli skoðað, eftir Guðmund Jósafatsson, Hversu lengi ætla menn að misþyrma dýrum, eftir Pean Gerboux og grein um jógUrt. Attunda tölublaö 24. ár- gangs af Heima er best er komið Ut. Heiti efnis og höf- unda er svolátandi: Verkiö lofar meistarann, Eirikur Eiriksson. Bréfaskipti Sighvats Gr. Borgfirðings og Jóns Sigurðssonar forseta, SkUli MagnUsson. Þegar Loömfirðingar lögðu rostung aö velli, Jón Kr. tsfeld. Minn- ing frá vordögum 1906, Hólm- steinn Helgason. Unga fólkiö. Undur mannlegrar getu, Ei- rikur Eiriksson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.