Þjóðviljinn - 22.10.1974, Page 11
Þriöjudagur. 22. október. 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
íslandsmótið í körfuknattleik:
Pressuliðið — landsliðið 22:21
Úrslitin eru kjafts-
högg fyrir landsliðið
Nokkrir pressuliðsmenn sýndu að þeir eiga skilyrðislaust að fá sæti í landsliðinu
Pressuliðið gerði sér lítið
fyrir sl. sunnudagskvöld
og sigraði landsliðið 22:21/
og þó vantaði ekki minni
karla en Björgvin Björg-
vinsson, Gunnstein Skúla-
son og Geir Hallsteinsson í
pressuliðið. Þessi úrslit eru
slikt kjaftshögg fyrir
landsliðið að það hefur
vart fengið annað meira
um dagana. Val landsliðs-
ins sem fara á til Sviss í
þessari viku og þarna lék
gegn pressuliðinu hefur
veriðgagnrýnt mjög. Fyrir
utan liðiðstanda menn sem
skilyrðislaust eiga sæti í
landsliðinu, vegna þess að
þeir eru gæðaflokki fyrir
ofan suma þá sem í lands-
liðið hafa verið valdir. Til
að mynda sönnuðu þeir
Stefán Gunnarsson, Ólafur
Benediktsson og Brynjólf-
ur Markússon það áþreif-
anlega í pressuleiknum að
þeir eiga allir að fara inní
landslið^og án Gunnsteins
Skúlasonar getur landslið-
ið ekki verið, það sást
greinilega í pressuleikn-
um. Að vísu var Gunn-
steinn meiddur á sunnu-
daginn, en það er ekki al-
varlegt. Nei, Birgir, þú
verður að stokka spilin
upp. Draumórar eru ekki
heppilegir við landsliðsval.
Pressuliftið var nokkuð seint i
gang i fyrri hálfleik, en það
bjargaði þvi að Ólafur Benedikts-
son sannaði einu sinni enn, að
hann er okkar besti markvörður i
handknattieik, og hann varði
hvert skotið á fætur öðru, svo
munurinn var aldrei mikill með-
an að pressan var að stilla kanón-
urnar. Landsliðið hafði oftast yfir
eitt til tvö mörk i fyrri hálfleik. Þó
var jafnt 2:2, 4:4, 5:5 og 6:6 en
siðan kom 7:6, 8:6 10:8 12:9 og
12:10 i leikhléi landsliðinu i vil.
1 byrjun slðari hálfleiks komst
landsliðið i 14:11 og siðan i 18:14
og hélt maður að þá væri sigur
þess i höfn, en það var nú eitthvað
annað. Þegar munur var orðinn
4 mörk fór pressuliðið fyrst i gang
svo um munaði. Það skoraði
næstu 4 mörk án þess að landslið-
inu tækist að svara fyrir sig, og
það gerði meira en að jafna, það
komst yfir 20:19.
Siðan komst landsliðið yfir
21:20, en tvö siðustu mörkin skor-
aði pressuliðið og sigráði þvi
22:21. Og eins og i upphafi segir
hefur islenska landsliðið ekki
fengið fastara kjaftshögg en að
þessu sinni, og þó er ekki við liöið
sjálft að sakast, heldur Birgi
Björnsson einvald þess, sem virð-
ist ekki fær um að velja sterkasta
liðið, enda hefur val á landsliði
sjaldan verið meira gagnrýnt en
að þessu sinni. Og þessi úrslit
sanna betur en nokkur orð hversu
mikinn rétt á sér þessi gagnrýni
átti.
Þeir Stefán Gunnarsson,
Brynjólfur Markússon og Ólafur
Benediktsson sönnuðu allir i þess-
um leik, að þeir eiga skilyrðis-
laust að taka sæti i landsliðinu, og
Birgir yrði maður að meiri ef
Framhald á bls. 13
Engin óvænt úrslit
í fyrstu umferðinni
íslandsmótið i körfuknattleik,
1. deild, hófst um siðustu helgi, og
var leikin heil umferð. Engin
óvænt úrslit urðu I þessum fyrstu
leikjum, allt fór eins og búist var
við.
Á laugardaginn fóru tveir
fyrstu leikirnir fram, og mættust
Armann og UMF Njarðvikur i
fyrsta leik mótsins. Leikurinn fór
fram i Njarðvikum. Armenning-
arnir sigruðu auðveldlega 78:62.
Strax á eftir léku svo 1E og
UMF Snæfell, og sigraði IR, en
mjög naumt, aðeins 66:61. Virðist
IR-liðið ekki vera svipur hjá sjón
miðað við undanfarin ár og verð-
ur að taka sig verulega á, ef það
ætlar að blanda sér i toppbarátt-
una i vetur eins og það hefur gert i
meira en áratug.
A sunnudaginn léku svo i
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi
Valur og HSK, og sigruðu Vals-
menn með yfirburðum 80:54.
Valsliðið hefurekki verið sannfær
andi i haust, en virðist eitthvað
vera að hressast, en þó vantar
enn besta mann þess, Þóri
Magnússon, sem er meiddur á
hendi og getur ekki leikið með þvi
alveg strax.
Síðasti leikurinn i 1. umferð var
svo á milli IS og UMF Snæfells, og
sigruðu stúdentarnir stórt eða
79:49. Margir spá IS miklum
frama i vetur, enda var liðið á
hraðri uppleið i fyrra og virðist
ekkert stopp hafa orðið á þeirri
ferð þess, ef marka má
Reykjavikurmótið i haust.
Einar Magnússon með skottilraun, en vörn pressuliðsins er föst fyrir (Ljösm. GSP).
Lands-
keppni í
borö-
tennis
við fær-
eyinga
Landsleikur I borðtennis
verður i Færeyjum I nóvem-
ber, og fer borðtennislands-
liðið til Færeyja sunnudaginn
17. nóvember og kemur aftur
24. nóvember.
Stjórn BTI hefur valið þá
scm fara til Færeyja.
Karlar: Ólafur II. ólafsson
örninn, Iljálmar Aðalsteins-
son KR, Ragnar Ragnarsson
örninn, Jón Sigurðsson ÍBK
Björgvin Jóhannesson Gerpla.
Auk þess I tviliðaleik: Birkir
Þ. Gunnarsson örninn. Vara-
maöur: Jóhann örn Sigur-
jónsson örninn.
Konur: Sveina S. Svein-
björnsdóttir Gerpla, Guðrún
Einarsdóttir Gcrpla, Karóiina
Guðmundsdóttir, örninn.
Eldri unglingar: Gunnar
Þór Finnbjörnsson örninn,
Jónas Kristjánsson örninn,
lljörtur Jóhannsson tBK.
Yngri unglingar: Hjálmtýr
Hafsteinsson KR, Guðmundur
Jóhannsson Gerpla, Tómas
Guðjónsson, KR.
Fararstjóri verður Sigurður
Guðmundsson.
Úrslitin í
ensku knatt-
spyrnunni
1. deild
Birmingham-Newcastle 3-0
Carlisle-Derby . 3-0
Everfbn-Chelsea 1-1
Léeds-Wolves 2-0
Leicester-Sheff. Utd. 3-0
Manch.City-Luton 1-0
Middlesbro-Coventry 4-4
QPR-Liverpool o-l
Stoke-Burnley 2-0
Tottenham-Arsenai 2-0
West Ham-Ipswich 1-0
2. deild.
Blackpool-Manch.Utd. 0-3
Bolton-Cardiff 2-1
Bristol Rov.—Milivall 2-0
Fulham-Bristol City 1-1
Norwich-Portsmouth 2-0
Notts Co.-Oxford 4'1
Oldham-York City 2-3
Sheff. Wed.-Hull >1
Southampton-Orient 4-2
Sunderland-Aston V. , ,0-0
WBA-Nottm.Forest 0-1
Staðan 11. deild er nú þannig:
Liverpool 13 9 1 3 21-8 19
Man.City 14 8 3 3 18-15 19
Ipswich 14 8 1 5 18-9 17
Everton 14 4 9 1 19-16 17
Stoke 13 6 4 3 20-15 16
Middlesbro 13 6 4 3 19-14 16
Derby 14 5 6 3 21-18 1S
Newcastle 13 5 5 3 19-19 15
Burnley 14 7 1,6 23-23 15
West Ham 14 5 4 5 25-22 14
Birminghaml4 6 2 6 20-20 14
Wolves 14 4 6 4 15-15 14
Sheff. Utd. 14 5 4 5 19-24 14
Carlisle 14 5 3 6 12-12 13
Coventry 13 3 6 4 18-23 12
Leeds 13 4 3 6 16-15 11
Chelsea 13 3 5 5 13-20 11
Leicester 12 3 4 5 16-18 10
Tottenham 13 4 1 8 16-20 9
QPR 13 2 5 6 11-16 9
Luton 14 1 6 7 12-21 8
Arsenal 13 2 3 8 12-20 7