Þjóðviljinn - 30.10.1974, Blaðsíða 3
Miövikudagur. 30. október. 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Yfirmenn ísal þögulir
Eiturefni geymd í jörð
Starfsmaður álversins skrif*
aði grein i Þjóðviljann i gær,
þar sem hann lýsir vinnu-
brögðum varðandi eyðingu úr-
gangs frá verksmiðjunni.
t greininnisegir m.a.: ,,...nú
hefur fyrirtækið byrjað á aö
flytja úrgangsefni, er koma úr
notuðum kerjum út af hinu
rammgirta umráðasvæði
verksmiðjunnar og eru þessi
úrgangsefni nú losuð I hraun-
gjótu, sem er fast við Kefla-
vikurveg. Þarna er nú á stutt-
um tima búið að losa fleiri
hundruð tonn af þessum úr-
gangi, sem inniheldur margs
konar efnasambönd, sem fáir
vita hvaða áhrif kunna að hafa
á þann jarðveg, sem fyrir er,
og allt lifrænt umhverfi...”
Þjóðviljinn bað Braga Er-
lendsson, verkfræöing hjá
ísal, að skýra frá, hvaöa efni
það væru, sem losuð væru i
gryfjuna.—
Bragi neitaöi að skýra frá
þvi, en sagði, að úrgangur sá,
sem hér um ræðir, væri settur
i gryfju, rétt við aðkeyrsluna
að álverinu og yfir hann væri
mokað kalki og skeljasandi.
Kalkið og skeljasandurinn er
notaö til að eyða ákveðnum
eiturefnum sem i gryfjuna
fara, sagði Bragi Erlendsson.
„Þetta mál verður að leysa”
Þar eð þeir álversmenn
voru svo fáorðir um sorpeyð-
ingarmál sin, reyndi Þjóövilj-
inn að komast að málinu eftir
öðrum leiðum. Einn þeirra
sem við ræddum við var
Sveinn Guðbjartsson, heil-
brigðisfulltrúi Hafnarfjarðar.
Sveinn sagði að umrædd
gryfja við álverið væri nú að
fyllast af múrstenum, asbesti
og kolablokkum, en þessi úr-
gangur er brotinn innan úr ál-
kerjunum, þar eð endurnýjun-
ar er þörf. Asbestið og kola-
blokkirnar munu notaðar sem
einangrun, og með tið og tima
slitnar þessi einangrun. Nú er
verið að brjóta innan úr kerj-
unum, og eftir þvl sem starfs-
maður ísal sagði I grein sinni I
Þjóöviljanum I gær, koma um
20 tonn af þessum úrgangi úr
hverju keri.
Heilbrigðisyfirvöld I Hafn-
arfiröf, munu hafa gefiö ísal
leyfi til að jarða þennan úr-
gang I téðri gryfju. Nú blasir
hins vegar viö, að gryfjan er
full, og úrganginum með eit-
urefnunum sem Bragi Er-
lendsson, verkfræðingur, tal-
aði um, þarf að koma annars
staðar niður.
Sveinn Guöbjartsson, heil-
brigðisfulltrúi, sagði að tsal
hefði ekki leyfi til að setja eit-
urefni sln annars staðar en i
þessa einu gryfju. Vildu þeir
losa úrgang sinn viðar, yröu
þeir að sækja um leyfi til þess
til Hafnarfjarðarbæjar.
,,Og ég fylgist vel með þess-
um málum,” sagði Sveinn,
,,og engar ákvarðanir eru
teknar nema I samráði við
ýmsa sérfræðinga, Heilbrigö-
iseftirlit rikisins og reyndar
fleiri. Þetta mál verður aö
leysa. Hingað til hefur vand-
lega verið fylgst með sorpeyð-
ingarmálum álversins, og ég
verð að segja, að mér finnst ó-
sæmilegt af þessum starfs-
manni álversins, að segja að
mokað sé yfir úrgangsgryfj-
una, þegar einhverjir embætt-
ismenn koma i heimsókn.”
Reglur eru i gildi varðandi
sorplosun frá álverinu, og
taldi Sveinn Guðbjartsson
ekki að þær væru brotnar, en
eyðing eiturefna væri vitan-
lega erfitt vandamál.
—G G
„Vandlega fylgst með sorpeyðingarmálum álversins”, segir heilbrigðisfulltrúinn
Allt í óvissu með björgun
Port Vale
Að sögn Geirs Zoega, umboðs-
manns breskra togara hér á landi
þorir enginn þeirra, sem skoðað
Asgeir
formaður
Asgeir Svanbergsson var i
fyrrakvöld kjörinn formaður AI-
þýðubandalagsins I Kópavogi.
Aðrir I stjórn voru kjörnir Eggert
Gautur Gunnarsson, Þorleifur
Friðriksson, Guðbjörg Björgvins-
dóttir og Sigrún Valdemarsdótt-
ir.
I varastjórn voru kjörnir þeir
Valþór Hlöðversson og Grétar
Halldórsson.
Vetrarstarf Alþýðubandalags-
ins i Kópavogi hófst um siðustu
helgi, en þá var haldiö ball I Þing-
hóli. Aðalfundurinn var haldinn á
mánudagskvöldið, og þar var,
auk stjórnarkjörs, kosið bæjar-
málaráð, kosið til landsfundarins,
sem haldinn verður 21.—24. næsta
mánaðar, og kosið i kjördæmis-
ráð. Búið er að skipuleggja
skemmtifundi á vegum félagsins.
Þá er starfandi námshópur um
sósialisma og er þátttaka þar
ágæt. —úþ
hafa aðstæður þar sem breski
togarinn Purt Vale strandaði við
ósa Lagarfljóts, að spá neinu um
hugsanlega möguleika á björgun
hans. Enginn leki mun kominn að
togaranum, utan þess að lak með
röri I gær, en það var þétt. Skipið
stendur orðið mjög ofarlega I
fjörunni.
1 dag er væntanlegur maður frá
enska tryggingafyrirtækinu sem
tryggir togarann, og mun hann
kanna aðstæður og taka ákvörðun
um tilraunir til björgunar.
Ef það verður talið gerlegt,
verður sennilega fyrst reynt á
laugardaginn, en þá er stór-
streymt. Verður þá varðskip
fengið til að taka i togarann.
Svo er enn eitt i þessu máli:
Ekki er reynandi að draga skipið
á flot nema aflandsvindur sé, eða
þá mjög lágsjávað, og þvi er ekki
nóg að stórstreymt sé, ef veður
leyfir ekki tilraun til björgunar.
Það gæti allt eins farið svo að
sandurinn fái að geyma þetta skip
eins og sandarnir i kringum land-
ið gera svo viða þar sem strand
hefuráttsérstað.
S.dór
VIÐSKIPTAHALLI
Innfiutningur fyrstu 9 mánuði
ársins varð nær 37 miijónir króna
að verðmæti um 14 miljónum
króna meiri en á sama tima i
fyrra. Flutt hefur verið út fyrir 24
miljónir króna, 4 miljónum meira
en I fyrra.
Vöruskiptajöfnuður á timabil-
inu janúar-september i ár hefur
þvi verið óhagstæður i landinu um
11 miljarða króna, en á sama
timabili I fyrra var vöruskipta-
hallinn „aðeins” 2 miljarðar
króna.
1 fréttatilkynningu frá Hagstof-
unni segir svo:
Innflutningur i september 1974
er 1155 milj. kr. meiri en I júli
1974, en þá hafði hann áður orðið
mestur i mánuði, þar sem ekki
eru talin innflutt skip og flugvél-
ar. En hér verður að hafa I huga,
að innflutningsverðmæti septem-
bermánaðar 1974 er 20% hærra en
ella vegna gengisbreytingarinnar
2. sept. 1974.
Innflutningstala september-
mánaðar 1974 er og óeðlilega há
sökum þess, að allmikill innflutn-
ingur hefur færst til — frá ágúst
og yfir á september — þar eð á
timabilinu frá 22. ágúst og til
mánaðamóta var ekki tekið á
móti innflutningsskjölum til toll-
afgreiðslu, vegna yfirvofandi
gengisbreytingar, sem kom til
framkvæmda 2. september. —
Innflutningur i ágúst 1974 nam
2860 milj. kr., en 5127 milj. kr. i
september.
Sýningum á ,kerlirigunum‘! að ljúka
Þær eru orðnar 30 sýningarnar I Leikhúskjallaranum á hinum skcmmtilegu leikþáttum Þjóöleikhúss-
ins, „Ertu nú ánægð kerling”. Uppselt hefur verið á flestöllum sýningum, og oft hafa marglr þurft frá aö
hverfa. Greinilegt er aö þessi nýbreytni Þjóöleikhússins við rekstur .kjallaraleikhúss” hefur mælst vel
fyrir.
Aöeins verða fjórartil fimm sýningará „kerlingunum” til viðbótar.
Myndin er af einu söngatriði leiksins.
The Siar relalivr t<> tl\e firsl class
Kuighl Cross of thf Ordér.
The Peeoralion worn hy Káighls
ol the Oriier.
Það dugði ekki minna en stórriddarakross, efst til vinstri, handa
fulltrúum Alusuisse, A myndinni má sjá öll stig hinnar Islensku Fálka-
orðu.
Fulltrúar Alusuisse:
Sœmdir stór-
riddarakrossi
A föstudaginn efndi forsætis-
ráðherra til veislu til heiðurs
fulltrúum svissneska auðhrings-
ins Alusuisse en þeir voru þá
staddir hérlendis til samninga-
viðræöna viö Islenska aðila vegna
álverksmiðju auðhringsins i
Straumsvik.
Það vakti nokkra athygli
veislugesta er einn svisslending-
anna kvaddi sér hljóðs og þakkaði
islenskum stjórnvöldum þá
hugulsemi aö hafa sæmt sig og fé-
laga sinn hinni islensku fálka-
orðu!
Af þessu tilefni hafði blaðið tal
af forsetaritara og staöfesti hann
það að á föstudaginn hefðu tveir
fulltrúar Alusuisse, Meyer og
MUller að nafni, verið sæmdir
stórriddarakrossi hinnar Islensku
fálkaoröu. Tilefnið var góð sam-
vinna þessara manna við islenska
aöila.
Blaðið spúrði forsetaritara af
hverju engin tilkynning hefði
verið send út um þetta eins og
ætið er gert þegar Islendingar eru
sæmdir oröum. Hann kvað það
venju embættisins að tilkynna
aldrei um orðuveitingar til út-
lendinga.
Um þá Meyer og MUller má
annars segja, aö enda þótt samn-
ingsgerð þeirra og samvinna viö
islensk stjórnvöld sé til sóma frá
sjónarmiði Alusuisse, hefur það
einatt veriö umdeilt, hvort ál-
samningarnir voru islendingum
til sæmdar. Umskiptin i ráð-
herrastólunum koma fram á öll-
um sviðum. ÞH. ^